Morgunblaðið - 17.05.1983, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1983
29
Könnunarviðræður um
þriggja flokka stjórn
— milli Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks
og Bandalags jafnaðarmanna
Á SUNNUDAG fóru fram óformlegar könnunarviðræður af hálfu fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins við fulltrúa Alþýðuflokks og Bandalags jafnaðarmanna.
Markmið þeirra var, skv. upplýsingum Morgunblaðsins, að kanna, hvort
málefnagrundvöllur væri til staðar fyrir samstarfi þessara þriggja flokka í
ríkisstjórn, en sameiginlega hafa þeir 33 þingmenn á Alþingi, en 32 þing-
menn þarf til þess að ríkisstjórn hafi starfhæfan meirihluta.
Af hálfu Sjálfstæðisflokksins
tóku þátt í þessum viðræðum
Friðrik Sophusson, Lárus Jónsson
og Ólafur G. Einarsson. Af hálfu
Alþýðuflokksins Kjartan Jó-
hannsson, Karl Steinar Guðnason
og Jón Baldvin Hannibalsson. Af
hálfu Bandalags jafnaðarmanna
Viimundur Gylfason, Guðmundur
Einarsson og Ágúst Einarsson.
Viðræður þessar fóru fram í
húsakynnum Almennra trygginga
og stóðu með nokkrum hléum frá
sunnudagsmorgni til sunnu-
dagskvölds. Viðræðuaðilar munu
hafa borið saman bækur sínar um
helstu málefni sem á döfinni eru,
svo sem efnahagsaðgerðir 1. júní
nk. og framhaldsaðgerðir, skipan
fiskverðsákvörðunar og fleiri mál-
efni.
Á þingflokksfundi Sjálfstæð-
ismanna í gærmorgun var gerð
grein fyrir þessum viðræðum
ásamt viðræðum Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks um
helgina. Skv. upplýsingum Morg-
unblaðsins er það mat þeirra, sem
fylgdust með þessum viðræðum,
að þessir þrír flokkar gætu hugs-
anlega fundið samkomulags-
grundvöll sín í milli í veigamiklum
málum, en hins vegar hafi margir
óvissuþættir legið fyrir, þegar upp
var staðið.
„Þetta voru óformlegar könnun-
arviðræður milli manna úr þess-
um flokkum, þar sem rædd voru
ýmis þau mál sem snerta stjórn-
armyndun," sagði Karl Steinar
Guðnason er Morgunblaðið innti
hann eftir viðræðunum í gær.
„Málin voru rædd út frá þeim nót-
um að um stjórnarsamstarf þess-
ara þriggja aðila gæti orðið að
ræða, en hvað verður, mun skýrast
á næstu dögum,“ sagði Karl Stein-
ar.
Ekki tókst að ná tali af tals-
mönnum Bandalags jafnaðar-
manna í gærkvöldi.
I 7. sæti í Portúgal og 9. í Belgíu:
Mezzoforte fær
uppörvandi frétt-
ir í veganesti
„Þetta er bara tilraun, eins og ég
hef tekið fram áður. Við setjum
markið ekki hátt, ætlum okkur að
vera úti í 6 mánuði. Okkur hefur
gengið ágætlega hingað til og eins og
staðan er nú ætti þessi tilraun að
heppnast hjá okkur,“ sagði Steinar
Berg ísleifsson, forstjóri Steina hf.,
er Morgunblaðið ræddi við hann í
gærkvöldi.
Fimmmenningarnir í Mezzo-
forte halda til Englands á morgun,
til dvalar erlendis næstu sex mán-
uðina. Dvölin í Englandi verður
Bush kemur
5. júlí
George Bush, varaforseti
Bandaríkjanna og eiginkona hans
eru væntanleg hingað til lands í
opinbera heimsókn í júlímánuði
næstkomandi, eins og áður hefur
verið skýrt frá í fréttum Morgun-
blaðsins. í frétt er blaðinu barst í
gær frá forsætisráðuneytinu segir,
að heimsókn hans muni standa
dagana 5. til 7. júlí.
Varaforsetinn mun einnig heim-
sækja nokkur önnur lönd í
Evrópuferð sinni að þessu sinni,
þar á meðal öll Norðurlöndin.
stutt til að byrja með, því
hljómsveitin á að halda þrenna
tónleika í Hollandi, áður en 7
vikna strembin tónleikaferð um
Bretland hefst. Sjálfur heldur
Steinar Berg utan í næstu viku.
Eftir að tveggja laga platan með
„Garden Party" komst í 17. sæti
bre^ka^yjnsældalistans og sú
stóra, „Surprise, Surprise" í 23.
sætið, héldu plöturnar innreið
sína á hoilensku vinsældalistana.
Stóra platan er þar enn í 7. sæt-
inu, en sú litla er á undanhaldi,
datt um helgina úr 10. sæti niður í
18.
En það eru fleiri lönd í Evrópu
en þessi tvö. Þær fregnir bárust
frá Belgíu um helgina, að litla
platan hefði tekið undir sig mikið
stökk og væri nú komin í 9. sæti
vinsældalistans þar eftir að hafa
verið í 18. sæti í síðustu viku. Þá
hafa fregnir borist frá Portúgal
þess efnis, að litla platan hafi
snarað sér beint í 7.sætið.
„Þetta er vissulega ótrúlegt,"
sagði Steinar Berg um árangurinn
í Portúgal. „Platan var að koma
þar út í síðustu viku.“ Þá er platan
rétt um það bil að koma út á
Spáni, á Ítalíu og í Frakklandi. Ný
tveggja laga plata með laginu
„Rockall" kemur út í Englandi á
föstudag og nýverið er búið að
taka upp myndbandsefni hér
heima í tengslum við þá útgáfu.
Var myndin tekin í Vestmanna-
eyjum, en lokavinnslan verður í
Englandi.
93 ára gamall
maður rændur
93 ÁRA gamall maður var rændur
þar sem hann var staddur í
Skeggjagötu laust eftir klukkan
hálfþrjú í gærdag. Ræninginn
hrifsaði veski og áfengi af gamla
manninum og flúði síðan. Ræning-
inn náðist skömmu síðar. Hann
hefur margsinnis áður komið við
sögu lögreglunnar.
Svalas Easter wish comestrue...
JCNNI GARRIGAH J
In thc cvcs or Svala Gustafsson
this ANZAC long weckcnd is hcr
own spccinl Eastcr holiday.
Tlic shy. blondo-hatrcd. bluc-cycd
10-year-old doean't mhjd that she ls
cclebratlng Ihrvc «« oks bchlnd «ne resl
of thc country — sltc is just gratcíul
tltat Easter haa cotnc nt alt.
Svala is a diabctic.
And bcforc thc E.istcr break. In carly
April. shc and inum. Mrs Helga Oustafa-
son. of Dtmcraíe. scarched city storcs
íor spccial diabetlc Eastcr eggs.
But thcy could not find any.
Svala was upsct at thc prospect of
Eastcr wltliout a chocolate cgg But shc
was also conccrned for all the othcr
diabctic chlldrcn in the Slate havtng to
go without
So shc vvrntc t" thc Prcnticr. Mr
Burkc askmu t»r his hclp.
Delighted
Thanks to
Mr Burke
Sval.t wa< dclightcd whcn
ccivrd a rcply.
Mr Btnkc cxplainod that dlabetic
chocolatc cgus «crc usually nvailablc
al Eiistcr iimc. b.i: i.»i somc uncxpiaincd
reason tln-y had not bccn delivercd lo
Wcstcrn Australian storcs in litne tln>
ycar.
Hc aiso 'tippllcd n rccipc íor diabctic
chocolatc. but ’ l».»t w.isn'i thc end ol
thc story.
TliU weck Mr Bmkc dcputlscd for th’
Easter buim.v. visited Svaia at hornc
and prcsctfcd hcr with tlirce spcclally
madc chocolatv cggs.
Tlto Prcmi«T had told thc Diabcuc
Svala sa«s Ihanks lo Premicr Mr Burkc.
A'sociation of WA about Ihc lltllc girl >
Hliglii and thc proup took it from thcrc
Mrs Jcan Blilvich. a volimtccr worker
for thc assm-lation and niother of a
diabctic. madc Svalas spcclal Eastcr
crr baskct.
And as hc Premicr prcscntcd Svala
with tlto colorful pink and purplc
basket ottr would havc boon forgivcn
for thinkliiR ll rcally was Eastcr.
tiinid
ank you so much” sald u ail
I aster arrivcd a litllc lalc— but ii
r lovclv for Svala ílustaf-
Greinin í The Sunday Times um sérstöku páskana hennar Svölu.
Páskadraumur Svölu
varð að veruleika
Síðasta helgin í aprfl voni einka-
páskar Svölu Gústafsson. Bláeygða
og Ijóshærða hnátan, sem er 10
ára, lætur sig litlu varða þótt hún
haldi sína páska þremur vikum á
eftir öðmm landsmönnum - hún er
þakklát fyrir að geta það með
pompi og prakt.
Þannig hljóðar byrjun á grein
í ástralska blaðinu „The Sunday
Times“, þar sem segir frá sér-
stæðum atburði í lífi íslenzku
stúlkunnar Svölu Gústafsson,
sem búsett er í Duncraig í Ástr-
alíu ásamt foreldrum sínum,
Sigurði Gústafssyni og Helgu.
Svala er sykursjúk, segir blað-
ið. Og fyrir páska leituðu þær
mæðgur um borgina þvera og
endilanga að páskaeggjum fyrir
sykursjúka, en fundu hvergi.
Svölu leiddist sú tilhugsun að
vera án súkkulaðieggs á páskun-
um. Og hún bar áhyggjur allra
sykursjúkra barna í Vestur-
Ástralíú fyrir brjósti sér.
Þess vegna skrifaði hún Burke
forsætisráðherra fylkisins, og
bað hann um aðstoð. Og viðbrögð
hans glöddu hana.
Herra Burke útskýrði að
páskaegg fyrir sykursjúkra
hefðu jafnan verið á boðstólum,
en af einhverjum ástæðum hefðu
þau ekki borizt til Vestur-
Ástralíu í tæka tíð. Hann sendi í
bréfi sínu uppskrift að súkkulaði
fyrir sykursjúkra.
En þar með er ekki sagan öll,
því í þessari viku birtist Burke á
tröppunum heima hjá Svölu og
foreldrum hennar og færði henni
þrjú páskaegg í fallegri körfu.
Eggin höfðu verið búin til sér-
staklega fyrir hana.
Það var því sannkölluð páska-
stemmning á heimili Svölu er
forsætisráðherrann færði henni
eggin, sem hún hafði svo þráð.
Hamingja hennar var mikil, seg-
ir að lokum í greininni.
Borgarnes:
Undirbúningur safna-
húss er langt kominn
UNDIRBÚNINGI að byggingu nýs
safnahúss Borgarfjarðar í Borgar-
nesi miðar vel og veröa allar vinnu-
teikningar tilbúnar í sumar.
Verólaunasamkeppni fór á sínum
tíma fram um hönnun hússins, en
þaö á aö rísa á Gíslatúni nálægt
landtöku Borgarfjaröarbrúarinnar.
Ingimundur Sveinsson arkitekt og
fleiri sigruðu í samkeppninni. Síðan
hefur verið unnið að gerð vinnu-
teikninga og verður hægt að hefja
framkvæmdir við bygginguna sjálfa
þcgar þeir aðilar sem standa að
byggingunni ákveða. ÞetU kemur
fram í ársskýrlsu Safnahúss Borg-
arfjarðar fyrir árið 1982.
I Safnahúsinu eru til húsa Hér-
aðsbókasafn Borgarfjarðar, Hér-
aðsskjalasafn Borgarfjarðar,
Byggðasafn Borgarfjarðar, Nátt-
úrugripasafn Borgarfjarðar og
Listasafn Borgarness. Bjarni
Bachmann er safnvörður.
Lánþegar skráðir í bókasafnið
eru 649, en alls komu 10.176 gestir
í safnið á sl. ári. Bókakostur þess
jókst á árinu um 1.255 bindi og var
bókaeign 20.744 bindi i árslok. Á
árinu voru alls lánaðar 34.501 bók
sem er 16,27 bindi á hvern íbúa í
þeim hreppum sem að safninu
standa. Þyxir það mikið og er lík-
lega annað hæsta hlutfall á land-
inu. Á árinu gáfu erfingjar
Daníels Kristjánssonar, Hreða-
vatni, safninu mikið bókasafn og
Líkan af nýju safnahúsi í Borgarnesi.
Jón Guðjónsson í Borgarnesi gaf
einnig stóra bókagjöf.
Rúmlega 10.000 gestir komu í
byggðasafnið á sl. ári, heldur
færri en í fyrra. Alls voru 380
munir skráðir inn í safnið á árinu.
Stærsta gjöfin kom frá hjónunum
Dagnýju og Hirti Helgasyni í
Borgarnesi. Það var klukkusafn
mikið, 114 vasaúr, 107 vekjara-
klukkur, 33 stofuklukkur o.fl.
190 gestir komu í skjalasafnið á
sl. ári, flestir í ýmis konar upplýs-
ingaleit. Stöðugt er unnið að
skráningu skjala safnsins, sem nú
eru að magni til 178 hillumetrar.
Nokkrir fuglar bættust í náttúru-
gripasafnið og á safnið gott fugla-
safn, samtais 279 fugla af 135 teg-
undum.
Listasafn Borgarness er varð-
veitt í Safnahúsinu. Á árinu stóð
safnið fyrir sýningu á verkum
Hönnu Jórunnar Sturludóttur og
Páls Guðmundssonar í Grunnskól-
anum í Borgarnesi. Nokkur ný
listaverk bættust í safnið á árinu
og eru nú 234 listaverk í eigu og
vörslu safnsins.
í ársskýrslu byggðasafnsins
segir safnvörður m.a., að húsnæð-
ismál byggðasafnsins séu í ólestri
og að fyrir dyrum standi að loka
því vegna þrengsla og að þeir
verðmætu hlutir sem í safninu eru
gætu legið undir skemmdum ef
ekki verði bætt úr húsnæðismál-
unum.
HBj.