Morgunblaðið - 11.06.1983, Page 1
130. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Thatcher um mesta kosningasigur frá stríðslokum:
„Mikill sigur og honum
fylgir mikil ábyrgð“
Sigur-
vegarinn -
Margaret Thatcher veifar
úr glugga í aðalstöðvum
íhaldsflokksins í Lundún-
um í gær eftir kosninga-
sigur sinn.
London, 10. júní. AP.
MARGARET THATCHER forsætisráðherra hét því í dag eftir mesta kosn-
ingasigur í Bretlandi frá stríðslokum að nota ekki þingmeirihluta sinn til að
fylgja fram öfgafullri hægristefnu.
„Miklum sigri fylgir mikil
ábyrgð," sagði hún. „Eg er ekki
öfgafull að eðlisfari og ég er ekki
öfgafull núna. Ég er óhagganleg í
stuðningi mínum við frelsi og rétt-
læti og varðveizlu þess.“
Kosningaúrslitin voru gifurlegt
áfall fyrir Verkamannaflokkinn og
leiðtogar hans segja að þau séu af-
leiðing margra ára innanflokksvær-
inga. Fjöldi kjósenda hafnaði
vinstristefnu Verkamannaflokksins
og fylkti sér um hið nýja bandalag
frjálslyndra og jafnaðarmanna.
Bandalagið fær mjög fá þingsæti,
þótt það fengi fjórðung atkvæða.
Roy Jenkins, leiðtogi bandalagsins,
kenndi um óréttlátu kosningafyr-
irkomulagi, sem hann kvað
„hneyksli fyrir lýðræðið".
Samkvæmt lokatölum fær
Thatcher 144 þingsæta meirihluta í
Neðri málstofunni í stað 35 þing-
sæta meirihluta áður.
Frú Thatcher er fyrsti forsætis-
ráðherrann, sem sigrar í kosning-
um, situr heilt kjörtímabil og sigrar
aftur í kosningum, síðan Salisbury
lávarður árið 1900. Engin brezk rík-
isstjórn hefur fengið eins víðtækt
umboð frá kjósendum síðan Verka-
mannaflokkur Clement Attlees
sigraði Winston Churchill 1945 með
146 þingsæta meirihluta.
íhaldsflokkurinn fær 397 þing-
sæti, Verkamannaflokkurinn 209 og
bandalagið 23, en af þingmönnum
þess eru 17 frjálslyndir. íhalds-
flokkurinn fékk 42,4% atkvæða,
Verkamannaflokkurinn 27,6% og
bandalagið 25,3%.
Fylgi íhaldsmanna minnkaði um
1,5% og það sem tryggði þeim sigur
var sundrungin í röðum vinstri-
manna.
Verkamannaflokkurinn beið
mesta ósigur sinn í 60 ár undir for-
ystu Michael Foots, sem kallaði úr-
slitin „harmleik fyrir landið". Hon-
um verður sennilega vikið úr stöðu
leiðtoga á þingi flokksins í haust.
Verkamannaflokkurinn tapaði
um þriðjungi atkvæða sinna til
bandalagsins og íhaldsmenn sigr-
uðu í tugum Verkamannaflokks-
kjördæma. „íhaldsmenn unnu ekki
kosningarnar, Verkamannaflokkur-
inn tapaði þeim,“ sagði John Silkin
fyrrum ráðherra.
í viðtali við BBC staðfesti frú
Thatcher að hún mundi gera breyt-
ingar á stjórn sinni til að veita
henni „nýtt yfirbragð“. En hún
sagði að hófsamir menn yrðu ekki
reknir. „í öllum ríkisstjórnum
verða allir skoðanahópar að eiga
fulltrúa," sagði hún. Búizt er við að
Francis Pym utanríkisráðherra
verði látinn víkja.
Vinstrisinnaðir verkalýðsleiðtog-
ar hafa þegar hótað verkföllum.
Fyrirsjáanlegt er að völd þeirra
verða skert enn frekar og að erfitt
verður að knýja fram launahækk-
anir, en að öðru leyti eru þeir snið-
gengnir.
Á Norður-írlandi sigraði Sinn
Fein, stjórnmálaarmur írska lýð-
veldishersins, í einu kjördæmi af 17
og víða annars staðar olli framboð
hreyfingarinnar klofningi meðal
kaþólskra kjósenda. Sósíaldemó-
kratar og Verkamannaflokkurinn
fengu aðeins eitt þingsæti, íhalds-
menn öll hin þingsætin.
Sjá nánari fréttir af
kosningunum á miðopnu.
Gerry Adams, varaforseti Sinn Fein, stjórnmálahreyf-
ingar írska lýðveldishersins, borinn á gullstól eftir sigur
sinn í kjördæmi í Vestur-Belfast. Hann sigraði Gerry Fitt,
sem hefur verið þingmaður kjördæmisins í 20 ár og reynt
að miðla málum í deilum kaþólskra og mótmælenda. (Sjá
nánar á miöopnu.)
Khadafy vingast við
konung Saudi-Arabíu
Jidda, 10. júní. AP.
KHADAFY Líbýuleiðtogi fór frá Saudi-Arabíu í dag eftir nokkra viðræðufundi
um bætta sambúð Araba viö Faud konung.
Samkvæmt góðum heimildum tjáði Khadafy sig fúsan til að miöla málum í
deilum Sýrlendinga og Husseins Jórdaníukonungs, þrátt fyrir það orð sem
hefur farið af honum sem „friðarspilli".
En Khadafy hvikaði ekki frá
harðlínustefnu sinni í deilumálum
Araba og ísraelsmanna. Hann
krafðist þess m.a. að leiðtogar Ar-
aba yrðu við því búnir að fara
„hernaðarleiðina" í deilunum við
Israelsmenn og ræddu þá leið á
hverjum þeim fundi sem þeir kynnu
að halda, auk hugsanlegra friðartil-
lagna.
Meðan Khadafy var í Saudi-Ar-
abíu gaf hann sér tíma til að fara í
pílagrímsferð til Mekka, þótt aðeins
séu tvö ár síðan hann skoraði á alla
múhameðstrúarmenn að fara ekki
til Mekka meðan konungsætt
Saudi-Arabíu væri við völd.
Háværar deilur Khadafys og
Yasser Arafats, leiðtoga PLO,
hurfu í skugga viðræðna hans við
konung Saudi-Arabíu. Arafat var í
Norður-Jemen um leið og Khadafy
fyrr í vikunni, en tilraunir forseta
Norður-Jemens, Ali Abdullah
Saleh, til að fá þá til að halda fund
með sér, fóru út um þúfur.
{ Norður-Jemen reyndi Khadafy
að miðla málum í styrjöld íraka og
frana. Á bak við áhuga Khadafy á
sættum við gamla óvini, konunga
Araba, kann að leynast áhugi á því
að verða ekki haldið utan við til-
raunir til að efla „Maghreb-hug-
sjónina“ um einingu Norður-Afr-
íkuríkjanna — Marokkó, Túnis og
Alsírs.
Lokasamþykkt um
N ATO-eldflaugar
RÚSSAR fengu nýja bendingu í dag frá utanríkisráðherrum NATO þess efnis
að þeir yrðu að hafa hraðan á í viðræðum við Bandaríkjamenn um takmörkun
kjarnorkuvígbúnaðar til að afstýra uppsetningu bandarískra kjarnorkueld-
flauga í Evrópu síðar í ár.
Josef Luns, framkvæmdastjóri
bandalagsins, sagði að ráðherrarnir
hefðu „eindregið ítrekað" stefnu
bandalagsins í varnarmálum, af-
stöðu þess til viðræðna og ákvörð-
unina um að koma fyrir 572 stýri-
eldflaugum og Pershing II-
eldflaugum ef ekkert miðar áfram í
viðræðunum í Genf um takmörkun
kjarnorkuvígbúnaðar.
Svipaðar ályktanir hafa verið
samþykktar á sjö fyrri fundum
utanríkisráðherra NATO síðan
1980. Nú er munurinn sá að utan-
ríkisráðherrarnir koma ekki aftur
saman til fundar fyrr en eftir að
eldflaugunum hefur verið komið
fyrir.
Þótt NATO itrekaði fyrirætlanir
sínar komu fram vísbendingar um
óeiningu á fundinum. Þar sem svo
erfiðlega gekk að ná samkomulagi
um orðalag lokayfirlýsingarinnar
neyddist Luns til að fresta fundi
sínum með fréttamönnum í tvo
tíma.
Heimildir á ráðstefnunni hermdu
að utanríkisráðherrar Bandaríkj-
anna og Frakklands, George
Schultz og Claude Cheysson, hefðu
verið ósammála um þann hluta
lokayfirlýsingarinnar sem fjallar
um það hve háð Vestur-Evrópa er
orðin Rússum í orkumálum.
Luns var einnig sagður hafa sett
ofan í við grísku sendinefndina þar
eð hún neitaði að lýsa yfir stuðningi
við þá yfirlýstu stefnu NATO að
koma fyrir meðaldrægum eldflaug-
um.
Að öðru leyti virðast fyrirætlanir
NATO njóta alntenns stuðnings
bandalagsins. Eitt tákn þess er að
stjórn franskra sósíalista — eina
ríkisstjórnin innan NATO þar sem
kommúnistar eiga sæti — sam-
þykkti að standa að vorfundinum í
ár.