Morgunblaðið - 11.06.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
Skuldbreyting íbúða-
lána hefst í næstu viku
SETTAR hafa verið nánari reglur
um framkvæmd bráðabirgðalaganna
(nr. 57/1983) sem ríkisstjórnin setti
27. maí síðastliðinn um frestun
greiðslna vegna verðtryggðra íbúða-
lána. Reglur þessar ná annars vegar
til verðtryggðra íbúðalána úr Bygg-
ingasjóði verkamanna og Bygg-
ingasjóði ríkisins og hins vegar til
verðtryggðra lána sem viðskipta-
bankar og sparisjóðir hafa veitt til
íbúðakaupa. Á næstunni er gert ráð
fyrir að slíkar reglur verði settar um
íbúðalán Lífeyrissjóðanna.
í bráðabirgðalögunum var kveð-
ið á um að ríkisstjórnin geti „að
Þingflokkur Framsóknarflokksins:
Páli endurkjörinn
formaður með 9 atkv.
PALL Pétursson var endurkjörinn
formaður þingflokks Framsóknar-
flokksins á þingflokksfundi í gær. í
störf varaformanns og ritara voru
Davíð fékk
fyrsta laxinn
VEIÐIN í Elliðaánum hófst í gær
og veiddi I)avíð Oddsson borgar-
stjóri fyrsta laxinn í fossinum
laust fyrir klukkan 7.30 í gær-
morgun. Var það glæst hrygna, 10
pund að þyngd og 79 cm. löng og
varð maðkur hennar banabiti.
Tveir aðrir laxar komu á
land þennan fyrsta morgun,
báðir 9 punda þungir og fékk
Jón G. Tómasson borgarritari
þá báða. Veiddust laxarnir í
næstneðsta veiðistaðnum í án-
um, sem heitir Við steininn.
Voru laxarnir, sem voru hrygn-
ur hvoru tveggja, augsjáanlega
nýgengnir í ána og með lús með
þráðum, en þræðir þessir falla
af eftir um 24 tíma veru í
fersku vatni.
kjörnir Davíð Aðalsteinsson og
Ingvar Gíslason, en stjórnin skiptir
sjálf verkum á milli þeirra.
Tíu þingmenn sátu fundinn en
fjórir voru fjarverandi. Páll fékk
níu atkvæði í formannskjörinu,
Stefán Guðmundsson eitt. f kjöri
meðstjórnenda hlaut Davíð Að-
alsteinsson flest atkvæði eða níu,
Ingvar Gíslason hlaut fimm.
Næstur Ingvari kom Tómas
Árnason með þrjú atkvæði, Stef-
án Guðmundsson fékk tvö og
Guðmundur Bjarnason eitt at-
kvæði.
Stjórn þingflokksins á síðasta
löggjafarþingi skipuðu, auk Páls,
þeir Jón Helgason sem var vara-
formaður og Jóhann Einvarðsson
ritari.
'O
INNLENT
fengnum tillögum húsnæðismála-
stjórnar og Seðlabanka íslands
ákveðið að fresta skuli greiðslu á
allt að 25% af samanlagðri fjár-
hæð afborgana, verðtryggingar-
þátta og vaxta verðtryggðra lána
Byggingarsjóðs ríkisins og Bygg-
ingarsjóðs verkamanna og verð-
tryggðra íbúðalána banka og ann-
arra lánastofnana er gjaldfalla á
tilteknu tímabili hér á eftir, ef
lántaki óskar."
f reglunum nýju segir að ákvæði
bráðabirgðalaganna taki til lána
er veitt voru einstaklingum úr
Byggingarsjóði verkamanna frá 1.
júlí 1980 og úr Byggingarsjóði
ríkisins frá 1. júlí 1974. Lögin
gilda um ofangreind lán sem
gjaldfalla á tímabiiinu 1. maí 1983
til 30. apríl 1984, að því tilskyldu
að um fulla greiðslu á gjalddaga
sé að ræða. Fjárhæð sem frestað
er bætist við höfuðstól lánsins og
kemur til greiðslu að loknum
lánstímanum. Varðandi íbúðalán
banka og sparisjóða er samkvæmt
reglunum heimilað að fresta
greiðslu afborgana og verðbóta er
falla í gjalddaga á 12 mánuðum á
tímabilinu 28. maí 1983 til 27. maí
1984. Sú frestun skal framkvæmd
þannig að þeim greiðslum sem eft-
ir eru verður fjölgað þannig, að
greiðslur á tímabilinu verði 75%
af því sem annars hefði orðið.
Greiðslur sem frestað verður sam-
þykkir lántakandi að greiða á
fyrsta ári eftir að áður umsömd-
um lánstíma lýkur. Þess má geta
að hafi lántakandi þegar greitt lán
sem hann hefði átt rétt til að
fresta samkvæmt ákvæðum regln-
anna á hann kost á leiðréttingu.
Gert er ráð fyrir að reglur þessar
komi til framkvæmda í næstu
viku.
Sjá nánar á bls. 22.
Frá aðalfundi Hafskips hf. í gær. í ræðustól er Albert Guðmundsson, fjár-
málaráðherra, fráfarandi stjórnarformaður, og við borðið sitja Ragnar Kjart-
ansson, hinn nýi stjórnarformaður, Björgólfur Guðmundsson, forstjóri, og
Ólafur B. Ólafsson.
Björgólfur Guð-
mundsson verður
forstjóri Hafskips
Ragnar Kjartansson tekur við stjórnarfor-
mennsku af Albert Guðmundssyni
BREYTINGAR hafa orðið á æðstu stjóm Hafskips. Á aðalfundi félagsins,
sem haldinn var í gærdag, var skýrt frá því, að sú stjórnkerfisbreyting hefði
átt sér stað hjá félaginu, að framkvæmdastjórar þess yrðu ekki lengur tveir.
Ragnar Kjartansson hefur nú
látið af starfi framkvæmdastjóra,
en mun annast sérstök verkefni
fyrir félagið enn um sinn. Frá
sama tíma tekur Björgólfur Guð-
mundsson við forstjórastarfi fé-
lagsins, en þeir Björgólfur og
Ragnar hafa farið með sameigin-
lega framkvæmdastjórn félagsins
undanfarin 5 ár.
Ný stjórn var kjörin á fundinum
og á stjórnarfundi í kjölfar hans
var Ragnar Kjartansson kjörinn
stjórnarformaður í stað Alberts
Guðmundssonar, fjármálaráð-
herra, sem gegnt hefur því starfi
undanfarin fjögur ár. Auk Alberts
gengu úr stjórn félagsins þeir
Haukur Hjaltason og Jón Hákon
Magnússon, en inn í stjórn komu
þeir Ragnar Kjartansson, Jón
Helgi Guðmundsson og Jón
Snorrason.
Sjá ennfremur frásögn af aðal-
fundinum á bls. 21
Þingflokkur Framsóknar:
Samhljóða álit að þing komi
ekki saman fyrr en í haust
Forsætisrádherra segir einhug innan ríkisstjórnarinnar um það sama
ÞINGFLOKKUR Framsóknar-
flokksins samþykkti einróma á
fundi sínum í gær, að standa að baki
ráðherrum sínum varðandi tillögu-
flutning í ríkisstjórn þess efnis að
Alþingi komi ekki saman fyrr en í
haust. Samkvæmt heimildum Mbl.
lýsti forsætisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, því yfir á þing-
flokksfundinum, að þrátt fyrir yfir-
lýstan meirihlutavilja þingflokks
Sjálfstæðisflokksins fyrir þinghaldi í
sumar, væri sér kunnugt um að allir
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins væru
á sama máli og hann, þ.e. að þing
ætti ekki að koma saman fyrr en í
haust. Hann mun einnig hafa lýst
því yfir að Sverrir Hermannsson
iðnaðarráðherra, sem sagt hefur
opinberlega að hann væri hlynntur
sumarþingi, hefði skipt um skoðun,
og því einhugur í ríkisstjórninni.
Fyrirhugað er að ganga endan-
lega frá ákvörðun um samkomu-
dag Alþingis á fundi ríkisstjórnar-
innar á þriðjudag, en samkvæmt
heimildum Mbl. hefur málið ekki
verið rætt í ríkisstjórn frá því
þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
gerði sína samþykkt sl. mánudag.
Mbl. spurði Sverri Hermanns-
son álits á yfirlýsingum Stein-
gríms, og hvort hann myndi styðja
tillögu Framsóknar. Hann svar-
aði: „Já, úr því sem komið er þá
mun ég gera það.“ Sverrir sagðist
„Fundurinn sýndi ein-
hug bandalagsríkja"
— segir Geir Hallgrímsson um utanríkisráðherrafundinn
„Þessi fundur sýndi að mikill ein-
hugur er meðal bandalagsþjóð-
anna,“ sagði Geir Hallgrímsson
utanríkisráðherra í samtali við
Morgunblaðið, en hann sat tveggja
daga utanríkisráðherrafund Atl-
antshafsbandalagsríkja, sem lauk í
París í gær.
Geir sagði að fjallað hefði ver-
ið um stöðu alþjóðamála I gær,
og ákvörðunin frá í desember
1979 um staðsetningu meðal-
drægra eldflauga í Evrópu til
mótvægis við SS-20 kjarnorku-
flaugar Sovétmanna, hefði verið
staðfest.
„Hins vegar gerðu menn sér
vonir um að samningar tækjust í
Genf um fækkun kjarnorku-
vopna áður en til þess kæmi að
þessar flaugar Atlantshafs-
bandalagsins yrðu settar upp,
sem á að gerast fyrir lok þessa
árs. Því var lýst yfir að menn
væru reiðubúnir til áframhald-
andi samningaumleitana.
Þá var meðal annars rætt um
stöðu mála í Póllandi, í Afghan-
istan, og einnig fjallað um sam-
skipti austurs og vesturs," sagði
Geir Hallgrímsson.
Geir llallgrímsson
hafa skipt um skoðun þar sem
tíminn væri runninn frá þeim. „Ég
var á því fyrst eftir stjórnarmynd-
unina að kalla ætti þing saman og
sá enga ástæðu til annars en að
mæta þar með þá málafylgju sem
við höfum, en ég hafði ákveðna
fyrirvara, svo sem varðandi laga-
skylduna um fjárlög og góða sam-
stöðu við stjórnarandstöðu. Nú
hefur þetta verið þæft það lengi að
ég er orðinn trúlítill á að þetta nái
fram.“
Ólafur G. Einarsson formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins er
erlendis og ekki náðist samband
við hann. Friðrik Sophusson vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins var
spurður álits. Hann sagði m.a.:
„Formaður þingflokksins hefur
lýst áhuga sínum á að kalla þingið
saman til að fjalla um bráða-
birgðalögin og kjósa forseta og
starfsnefndir þingsins. Um þessi
viðhorf vissu ráðherrar flokksins.
Nú kemur það í ljós að Framsókn-
arflokkurinn hefur hafnað þessum
tilmælum. Ég harma það að
sjálfsögðu. Ákvörðun um þetta at-
riði er auðvitað í höndum ríkis-
stjórnarinnar og þó aðallega for-
sætisráðherra, sem hefur vald til
þess að kalla þingið saman. Ég tel
því ekki ástæðu til að fjalla frekar
um þetta mál fyrr en ríkisstjórnin
hefur öll komið saman til að gera
endanlega út um það.“