Morgunblaðið - 11.06.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
5
Dregið í Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins
I DAG er dregið í Landshapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins. Þeir
sem enn eiga ógerð skil á heim-
sendum miðum eru hvattir til að
gera skil nú þegar og styðja þann-
ig starf Sjálfstæðisflokksins.
í Reykjavík er afgreiðsla happ-
drættisins í Valhöll, Háaleitis-
braut 1, sími 82900. Greiðslur eru
sóttar heim, ef óskað er.
Söfnun SÁÁ:
Rúmar 19 milljónir
króna hafa safnast
RÚMAR 19 milljónir króna hafa nú
þegar safnazt í söfnun þeirri sem
SAÁ hleypti af stokkunum til að fjár-
magna byggingu nýju sjúkrastöðvar-
innar við Grafarvog. Hlutur ein-
staklinga í söfnuninni nemur um 16
milljónum króna en rúmar þrjár
milljónir hafa borizt frá fyrirtækj-
um, stofnunum og félagasamtökum.
Ennþá er þó tækifæri til að vera
með í skuldabréfasöfnuninni, eða
til 19. júní. Þann dag verður dreg-
ið um þá vinninga, sem eru með í
spilinu í skuldabréfasöfnuninni.
SÁÁ skorar á alla velunnara
sína, sem ekki eru þegar þátttak-
endur í söfnuninni, að koma eða
hringja til skrifstofu samtakanna
Síðumúla 3—5. Þar er opið frá kl.
9—12 alla virka daga og kl. 1—5
síðdegis á laugardögum og sunnu-
dögum.
Þeir sem sendu inn bréf í góðum
tíma eiga að vera búnir að fá
rukkun vegna fyrstu afborgunar
bréfanna kr. 360,- Hafi hún ekki
borizt er fólk vinsamlega beðið að
hafa samband við skrifstofuna eða
umboðsmenn SÁÁ víðsvegar um
landið.
Um leið og SÁÁ þakkar góðar
undirtektir og almennar er skorað
á þá, sem enn hafa ekki gerzt
þátttakendur, að gera lokaátakið
glæsilegt.
(FrcIUtilkynnmi!)
10—15% samdráttur í
hótelbókunum í sumar
„MÉR sýnist ekki fjarri lagi, að áætla,
að bókanir hótelanna séu 10—15%
færri í sumar en í fyrra. Það er að vísu
eitthvað breytilegt eftir hótelum,"
sagði Kmil Guðmundsson, hótelstjóri
á Hótel Loftleiðum, í samtali við Mbl.
Emil Guðmundsson sagði að-
spurður, að um helgar væru flest
hótelin fullbókuð yfir sumartímann,
en hins vegar væri jafnan eitthvert
rými á þeim í miðri viku.
Aðspurður um hvort samdráttur-
inn kæmi fram í minnkandi ferða-
lögum útlendinga hingað til lands,
sagði Emil að samdrátturinn kæmi
jafnt fram í minni ferðum útlend-
inga og svo hefði orðið samdráttur í
bókunum fslendinga utan af landi.
Bjartsýnis-
verðlaunin
afhent
Þessi mynd var tekin í Kaup-
mannahöfn í fyrradag þegar
Þorgerður Ingólfsdóttir tók við
bjartsýnisverðlaunum Bröstes,
en íslenska dómnefndin ákvað
að veita Þorgerði verðlaunin
fyrir brautryðjendastarf hennar
með skólakóra. Á mvndinni
með Þorgerði er C. Hill-Mad-
sen, stjórnarformaður stofnúnn-
ar Bröstes.
KJÚKLINGAR
eru sérgrein okkar, nammi, namm.
Komiö á staöinn, eöa
hringiö á undan ykkur og
pantiö í síma 29"j "|7
Þá er maturinn tilbúinn
þegar þið komið
Franskar kartöflur
sósa og salöt
SOUTHERN
FRIED
CHICKEN
Verið velkomin
Kjúklingastaðurinn í
Tryggvagötu
Ertu sólskinsbarn
— eöa ofurseldur
þreytu — streitu
og bleytu
í sumarleyfinu?
GULLNA STRONDIN Þú átt dýrölega daga í vændum í Lignano. Hér hjálpast allt aö til aö gera
býður þér í lO ára
afmælisveislu Útsýnar
í Lígnano
Brottfarardagar: Og veröiö — þaö er aiveg
21/6, 12/7, 26/7, 2/8, 9/8, 16/8, 23/8, einstakt — eöa allt frá kr.
30/8.
2 eöa 3 vikur.
17.286.-
Gvngi 27/5 ’«3.
sumarleyfiö yndislegt: gistiaöstaóa og þjónusta í sérflokki, friösælt fag-
urt umhverfi, allt svo hreint og baóaö í blómum, frábært loftslag, hrein
gullin ströndin í fárra skrefa fjarlægó, fjöldi ódýrra veitingastaöa meö
Ijúffengan mat og vín, úrval verzlana meó glæsilegan varning, hvíld eöa
skemmtun og Ijúft líf viö hvers manns hæfi.
Stórkostlegar kynnisferóir undir leiösögn þaulkunnugra fararstjóra Út-
sýnar til Feneyja, Flórens, Rómar eöa ógleymanleg þriggja landa sýn:
Júgóslavía, Austurríki og ítölsku Aiparnir.
REYKJAVÍK:
Austurstræti 17.
Símar: 26611.
20100.
27209.
Þetta er sérhönnuð sumarleyfisparadís handa þér.
Vid tókum nokkra farþega tali 1. júní og spurðum:
„Hvað finnst þér um sumarleyfið hér?“
„Lignano er stórkostlegur staöur sem mætir kröf-
um jafnvel vandlátustu viðskiptavina. Allt um-
hverfiö og aðstaðan vekur ánægju og vellíðan.
Við getum ekki sett út á neitt.“
Jónína Benediktsdóttir og Stefán E. Matthíasson,
Spóahólum 20, Reykjavík.
„Lignano er dýrðlegur staöur fyrir þá sem vilja
hvila sig en einnig njóta lífsins. Snyrtimennska er
einstök, svo og öll þjónusta, annars hefðum við
ekki komið hingað aftur."
Ragna Pálsdóttir og Kjartan Bjarnason,
Gnoðarvogi 56, Reykjavík.
AKUREYRI:
Hafnarstræti 98.
Sími: 22911.
Sendum öll bestu
kveðjur úr
þessari
sumarparadís.
„Lignano býöur upp á allt sem öll fjölskyldan kýs
og óskar sér og öll þjónusta og fararstjórn er
fráþær. Þess vegna erum við komin hingað aftur."
Birgir Örn Birgis og fjötskytda,
Dalalandi 10, Reykjavík.