Morgunblaðið - 11.06.1983, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
11
Aðalfundur Sambands íslenzkra rafveitna:
Átelur vinnubrögð ríkis-
stjórnarinnar í sambandi
við hækkunarmál rafveitna
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi afrit af skeyti sem
sent var iönaðarráðuneytinu frá
aðalfundi Sambands íslenzkra
rafveitna, sem haldinn er á ísa-
firði:
Ríkisstjórn sú, er lét af störf-
um í síðasta mánuði, setti eins
og kunnugt er, bráðabirgðalög
þar sem afnuminn var réttur
orkuveitna til að verðleggja
þjónustu sína.
í stjórnarsáttmála núverandi
ríkisstjórnar segir hins vegar:
„Sveitarfélög ákveði sjálf
gjaldskrár þjónustu fyrirtækja
sinna."
Þrátt fyrir þetta tók ríkis-
stjórnin þá skyndiákvörðun nú
fyrir nokkrum dögum að ákveða
jafna 9,5% hækkun á orkuverði
allra rafveitna til að mæta 19%
verðhækkun Landsvirkjunar til
þeirra.
Fyrir flestar rafveitur er
þessi hækkun alls ófullnægj-
andi, enda iðnaðarráðuneytinu
full kunnugt um að þarfir raf-
veitnanna vegna þessarar heild-
söluverðhækkunar eru mismun-
andi og liggja á bilinu 9,5% til
15%.
Höfóar til
„fólksíöllum
starfsgreinum!
Aðalfundur SÍR átelur þessi
vinnubrögð og beinir því til iðn-
aðarráðuneytisins, að það beiti
sér fyrir því að ríkisstjórnin
leiðrétti þessi mistök hið bráð-
asta enda rafveitur landsins
engan veginn í stakk búnar til
að þola beint tekjutap sem af
fyrrgreindum ráðstöfunum leið-
ir.
Ályktun þessi var samþykkt á
aðalfundi SÍR í dag, 9. júní 1983.
Átta fiskiskip
sigla með afla
SEX íslensk fiskiskip hafa selt afla
sinn í erlendum höfnum það sem af
er þessari viku.
Börkur NK seldi rúm 150 tonn í
Grimsby á mánudag fyrir 3,3
milljónir, meðalverð var 21,78
krónur. Ingólfur GK seldi á mánu-
dag í Cuxhaven rúm 90 tonn fyrir
1,2 milljónir, meðalverð var 13,53
kr. Engey RE seldi á þriðjudag
tæp 172 tonn í Bremerhaven fyrir
3,7 milljónir, meðalverð var 21,83
krónur. Gullborg VE seldi í fyrra-
dag 62 tonn í Grimsby fyrir 1,7
milljónir, meðalverð var 27,14
krónur. Pétur Ingi KE seldi í gær
rúm 53 tonn í Grimsby fyrir 1,1
milljón, meðalverð var 21,28 krón-
ur og í gær seldi Stafnnes KE í
Grimsby en aflatölur og verð hafði
ekki borist til skrifstofu LlÚ fyrir
lokun þar í gær. I dag ætluðu Guð-
finna Steinsdóttir AR að selja í
Grimsby og Sif SH í Hull.
Árnar í fardagaflani
Syóra Langholti, 9. iúní.
MAÍMÁNUÐUR var sérlega þurr-
viðrasamur og fremur kaldur hér í
uppsveitum Árnessýslu og svo að
stóð gróðri verulega fyrir þrifum. í
júníbyrjun tók að rekja og jafnframt
hlýnaði í veðri og er nú komin ágæt-
ur sauðgróður á tún. Meö hlýindum
og vætunni óx mjög í ánum en snjór
á hálendinu var sagður með meira
móti.
Laxveiði í Stóru-Laxá og Hvítá
byrjar ekki fyrr en 20. júní en
hæpið er að árnar verði komnar í
jafnvægi þá. Sauðburður gekk yf-
irleitt vel og bera ær allstaðar á
húsi. Frjósemi var mikil og fer þar
saman bætt meðferð fjárins og
kynbætur. Mikil vinna er hjá
sauðfjárbændum um sauðburðinn
ekki síst á svo köldu vori sem
þessu þegar gefa þarf lömbum
inni fram í júní. Nokkra bændur
veit ég um sem sofa í fjárhúsunum
um sauðburðinn. Allstaðar eru til
næg hey og var selt nokkurt magn
af heyi héðan úr Hrunamanna-
hreppi í vetur og vor. Jarðvinnsla
gekk vel meðan þurrt var þó að
nokkur jarðklaki sé ennþá og gátu
bændur sáð í akra sína. Þó er dá-
lítið eftir af jarðvinnslustörfum
enn á þessu vori.
Þurkurinn og kuldinn tafði
einnig fyrir hjá garðyrkjubænd-
um en ef tíð batnar enn og hlýnar
ætti útigrænmeti að geta komið á
markað á svipuðum tíma og vant
er.
Nokkrar byggingarframkvæmd-
ir eru fyrirhugaðar í sveitinni í
sumar einkum í þéttbýlinu á Flúð-
um. Sig. Sigm.
— UM HELGINA —
OPIÐ: FRÁ KL. 1 - 5 LAUGARDAG OG SUNNUDAG
#
GOLF - JETTA - PASSAT
AUDI 100 - VOLKSWAGEN sendibíll
AmitsubishiA
COLT - LANCER F - TREDIA - CORDIA - GALANT
SAPPORO - l 300 sendibíll - l 300 minibus
L 300 4 x 4 - PAJERO
Auól
PRISMA