Morgunblaðið - 11.06.1983, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
Dýraspítalinn:
Óvíst hvenær starf-
semin kemst í lag
STARFSKMI Dýraspítalans liggur nú að mestu niöri, eins og áður hefur
komið fram hér í blaðinu, vegna þess að dýralæknum spítalans var sagt upp
störfum frá og með 1. júní sl. Islenskur dýralæknir sem starfað hefur í
Noregi kemur til landsins um miðjan mánuðinn, en ekki er útséð meö hvort
hann ræðst að Dýraspítalanum.
Deilur eru á milli dýralækna og Dýraspítalans um skiptingu innkominna
tekna á milli dýralæknanna og spítalans. í odda hafði þá skorist milli
stjórnarmanna í dýraspítalastjórninni út af þessu og öðru. Tveir stjórnar-
menn sögðu þá af sér störfum í stjórninni, formaður hennar, sem var Sverrir
l'órðarson, og Kggert Gunnarsson, dýralæknir.
Mbl. haföi samband við nokkra aðila þessa máls og leitaöi eftir sjónarmið-
um þeirra. Sverrir Þórðarson fyrrverandi formaður Dýraspítalans vildi ekk-
ert segja um málið.
Helgi Sigurðsson dýralæknir sem
sagt var upp störfum við Dýraspítalann:
Uppsögn mín alger-
lega tilefnislaus
„ÉG OG annar dýralæknir gerðum sl. haust starfssamning við Dýraspítalann
til 6 ára og skyldi hann vera óuppsegjanlegur af hálfu spítalans allan tímann
en uppsegjaníegur af okkar hálfu til eins árs,“ sagði Helgi Sigurðsson
dýralæknir í samtali við Mbl. er hann var inntur eftir því hvernig það hefði
borið að að honum var sagt upp störfum viö Dýraspítalann.
„Þegar kollegi minn fékk starf
sem dýralæknir norður í landi
kom hann að máli við þáverandi
formann stjórnar spítalans og
sagðist geta fengið íslenskan
dýralækni sem starfar í Noregi í
staðinn fyrir sig. Það var sam-
þykkt og viðkomandi manni til-
kynnt bréflega í apríl að hann
fengi stöðuna. Síðan skeður það
um miðjan maí að hann fær þréf
frá varaformanni stjórnar Dýra-
spítalans þar sem honum er til-
kynnt að meirihluti stjórnar sé á
móti því að hann gangi inn í nú-
verandi samning og honum bent á
að fylgjast með auglýsingum.
Þetta kom auðvitað ákaflega illa
við hann því hann var búinn að
gera sínar ráðstafanir úti, segja
upp starfi sínu þar og þess háttar.
Samhliða þessu óx ágreiningur við
okkur þáverandi dýralækna spít-
alans um skiptingu aðgerðagjald-
anna þrátt fyrir að við værum
með gildandi samning um það efni
og hann átti ekki að endurskoðast
fyrr en 1. febrúar á næsta ári.
Það næsta sem gerðist var að
strax eftir hvítasunnu segir
stjórnin okkur báðum, sem höfum
starfað þarna í vetur, upp störfum
frá og með 1. júní, kollega mínum
á þeim forsendum að hann hafi
brotið samninginn með því að
hætta og fá annan í sinn stað og
mér á þeim forsendum að ég hefði
brotið samninginn með „gertöku".
Þar mun átt við að föstudaginn
fyrir hvítasunnuna tók ég minn
hlut af innkomnum aðgerðagjöld-
um þá vikuna úr afgreiðslukassa
spítalans og lét í staðinn kvittun.
Þessi gjöld hafa verið gerð upp á
hverjum föstudegi í vetur. Venju-
lega hefur dýrahjúkrunarkonan
séð um að gera þau upp, en þegar
hún hefur ekki verið við eins og
var þennan dag, höfum við
athugasemdalaust gert það sjálfir.
Þessi uppsögn er því algerlega
tilefnislaus og okkur ekki gefinn
kostur á einu eða neinu. Með upp-
sagnarbréfi mínu fylgdi annað
bréf þar sem mér var gefinn kost-
ur á að segja upp sjálfur, sem ég
ekki gerði. Þann 1. júní vildi
stjórnin ekki draga uppsögnina til
baka þannig að ég á ekki annars
úrkosta en að leita réttar míns í
gegnum dómstólana og það mun
ég gera.
Ég tel,“ sagði Helgi Sigurðsson,
„að aldrei verði vinnufriður í
Dýraspítalanum á meðan það fólk
sem þar ræður ríkjum og lítur á
hann sem prívateign sína kemur
þar nálægt."
Sigríður Ásgeirsdóttir sem sæti
á í varastjórn Dýraspítalans:
Ekki bundin af gjald-
skrá aðgerðagjaldanna
„VIÐ VITUM ekki annað en að Dýraspítalinn geti tekið til starfa á
eðlilegan hátt þann 12. júní nk. Þá kemur íslenskur dýralæknir sem
dvalið hefur í Noregi til starfa við spítalann _ að því tilskyldu að
Dýralæknafélagið samþykki það,“ sagði Sigríður Ásgeirsdóttir í samtali
við Mbl. en hún er í varastjórn Dýraspítalans.
Sigríður sagði einnig: „Við höf-
um verið að ræða við lögfræðing
dýralæknisins sem fór og von-
umst til að hægt verði að gera
gott úr þessu máli öllu með sam-
komulagi. Hún sagði aðspurð um
deiluna um aðgerðagjöldin:
„Gjaldskráin var á sínum tíma
gerð til bráðabirgða og var hún
aldrei staðfest af stjórn Dýra-
spítalans þannig að stjórnin er
ekki bundin af henni. Væntan-
lega verður gert nýtt samkomu-
lag við dýralækninn sem kemur
nú til starfa, enda verða þá aðrar
aðstæður, hann verður einn
dýralæknir við spítalann."
aðspurð um það hvort núver-
andi ástand sé ekki alvarlegt ef
slys verða á dýrum, sagði Sigríð-
ur: „Dýralæknarnir á svæðinu
taka við þeim dýrum sem slasast
eða sýkjast. Hinsvegar er spítal-
inn og áhöld hans alltaf til reiðu
fyrir dýralæknana í þeim tilvik-
um sem þeir óska eftir og telja
nauðsynlegt að fá þar aðstöðu,
eins og hefur reyndar alltaf ver-
ið.
Ég vil að lokum taka það
fram,“ sagði Sigríður, „að ég
harma það að valin skyldi sú leið
að reka þetta mál í dagblöðunum.
Ég tel að hægt hefði verið að
leysa það með samningum og það
mun verða gert. Þau miklu
blaðaskrif sem átt hafa sér stað
um Dýraspítalann í gegnum árin
eru farin að valda honum tjóni.“
Halldór Runólfsson
formaður Dýralækna-
félags Islands:
Uppsögnin
ólögleg
„VARÐANDI upphaf þessa máls,
þ.e. deiluna um aðgerðagjöldin, þá
stendur til að setja það deiluefni í
gerðardóm sem skipaður verður
fulltrúa frá stjórn Dýraspítalans,
fulltrúa Dýralæknafélagsins og
oddamanni frá yfirborgardómara.
Um þetta er samkomulag og er ver-
ið að undirbúa málið. Gerðardómn-
um er ætlað að úrskurða hvað telj-
ist til aðgerða og reiknist þar með
til aðgerðagjalda. En frá hendi
okkar dýralækna er það á hreinu
að öll verk sem dýralæknir kemur
nálægt, hvort sem um er að ræða
ráðgjöf eða annað þar sem hann
miðiar af þekkingu sinni, telst að-
gerð,“ sagði formaður Dýralækna-
félags íslands, Halldór Runólfs-
son, héraðsdýralæknir á Kirkju-
bæjarklaustri í samtali við Mbl.
Halldór sagði einnig: „Dýra-
læknar spítalans gerðu
samkomulag við stjórn spítalans
þegar þeir réðu sig þangað til
starfa í haust. Þá var samþykkt
gjaldskrá sem búið er að starfa
eftir síðan og virtist ganga vel,
allt þar til greiðslur voru stöðv-
aðar í maí vegna þess að stjórn
spítalans vildi breyta því hvað
teldist til aðgerða þannig að
meira af tekjunum kæmi í hlut
Dýraspítalans sjálfs.
Aftur á móti er hitt ágrein-
ingsmálið, þ.e. uppsögn dýra-
læknisins, í athugun hjá lögfræð-
ingi félagsins. Við teljum tví-
mælalaust að ólöglega hafi verið
að uppsögn hans staðið og ekki
samkvæmt þeim starfssamningi
sem gerður hafði verið á milli
dýralæknanna og Dýraspítal-
ans.“
Hyggst Dýralæknafélagið
grípa til aðgerða gegn Dýraspít-
alanum vegna þessa máls?
„Það fer allt eftir því hvað
lögfræðingur félagsins ráðleggur
okkur. Ég vil taka það skýrt fram
að Dýralæknafélag íslands telur
mikla nauðsyn á að Dýraspítal-
inn starfi áfram af fullum krafti
með dýralæknunum og vonumst
við til að hægt verði að leysa
þetta deilumál með samningum
aðila."
Stjörnuliðið
STUTTGART
á Laugardalsvelli í dag
Hemmi Gunn, Maggi Ólafs og Halastjarnan
leika upphitunartónlist frá kl. 13.30. „íkingur.