Morgunblaðið - 11.06.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
13
Iðnskólanum í Reykjavík
færð ljósastillingartæki
Jóhann Ólafsson & co, einn af aðil-
um bílgreinasambandsins hefur
gefið Iðnskólanum í Reykjavík
ljósastillingartæki. Með tilkomu
þessa tækis sem er frá Hella verk-
smiðjunum í Þýskalandi, batnar
aðstaða til kennslu stiilingar í
ljósabúnaði ökutækja, segir í frétt
frá Iðnskólanum. Myndin er frá
afhendingunni.
FRAM
— VÍÐIR
Laugardalsvollur
í dag kl. 17.
Frá björgunarnámskeiðinu.
Kennaranámskeið
í skyndihjálp
BJÖRGUNARSKÓLI Landssam
bands hjálparsveita skáta stóð fyrir
kennaranámskeiði í skyndihjálp
dagana 25. maí til 5. júní. Á nám-
skeiðinu var kennd bókleg og verk-
leg skyndihjálp auk kennslutækni.
Námskeiðið fór fram að Úlf-
ljótsvatni og sóttu það 10 manns.
Námskeiðinu, sem er hið fimta
sinnar tegundar, er ætlað að
þjálfa kennara í almennri skyndi-
hjálp og aukinni skyndihjálp, en
hin síðarnefnda er einkum ætluð
félögum í björgunar- og hjálpar-
sveitum.
Þyrla Landhelgisgæslunar, TF-
RÁN, var notuð við kennsluna.
Innlendur vettvangur:
Leiðrétting
Línubrengl urðu í Innlendum vett-
vangi Mbl. í gær („Sextugrrild krónu-
töluhækkun — en kaupmáttarrýrn-
un“), þar sem rakin er niðurstaða
Þjóðhagsstofnunar á áhrifum efna-
hagsaðgerða á kaupmátt launa 1983.
Réttur er kaflinn þannig:
„Það er meginniðurstaða í úttekt
Þjóðhagsstofnunar að kaupmáttur
verði að meðaltali 14% lakari 1983
en 1982, eftir efnahagsaðgerðirnar,
en hefði versnað að óbreyttu um
11%. Aðgerðirnar sjálfar kosta því
3% rýrnun miðað við árið í heild. Á
síðari hluta ársins valda aðgerðirn-
ar 4% kaupmáttarrýrnun umfram
„óbreytt ástand". Hinsvegar ná
þær verðbólgustigi niður úr 134% í
82%, miðað við árið í heild, og
verðbólgustigi september til des-
ember nk. niður í 27%. f þessum
samanburði er ekki haft í huga,
hver áhrif það hefði haft á kjara-
stöðu fólks almennt, ef óðaverð-
bólgan hefði, óáreitt, fengið að loka
fyrirtækjum og hrifsa atvinnuna
úr höndum mikils fjölda manna.
Mildandi aðgerðir eru: 1) sér-
stakur persónuafsláttur af tekju-
skatti verður kr. 1.440; 2) sérstakar
barnabætur verða greiddar, kr.
3.000 á árinu fyrir hvert barn inn-
an 7 ára; 3) bætur lífeyristrygginga
hækka eins og laun um 8% 1. júní
og 4% 1. október en jafnframt
kemur sérstök 5% hækkun á tekju-
tryggingu; 4) mæðralaun með einu
barni verða tvöfölduð en hækka um
30% með börnum umfram eitt; 5)
veitt er 150 m.kr. umfram fjárlagá-
fé til Jöfnunar á hitunarkostnaði
íbúðarhúsnæðis".
í fréttabréfi ASÍ segir svo um
ráðgerðar skattalækkanir: „Hjá
hjónum með 1 barn undir 7 ára
aldri lækka skattar um kr. 5.800
síðari hluta ársins; eigi hjónin tvö
börn undir 7 ára verður lækkunin
kr. 8.800. Hjá hjónum sem ekki
eiga svo ung börn verður lækkunin
kr. 2.800.“
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
plotpttiMiiMfr
Já þú last það rétt. Við
seljum útlitsgallaða skápa á
stórlækkuðu verði í dag kl.
10-16.
Komið að Smiðjuvegi 9 í
Kópavogi og tryggið ykkur
vandaðan skáp í geymsluna,
bílskúrinn, sumarbústaðinn
eða svefnherbergið.
bað er vissara að mæta í
fyrra lagi . . . þetta verður ekki
endurtekið í bráð.
AXEL EYJÓLFSSON
HÚSGAGNAVERSLUN SMItXJUVEGI 9 KÓPAVCX3I SÍMI 43577