Morgunblaðið - 11.06.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNf 1983
15
ráðstefnunni í Madrid. Austurríki
og Sviss eru ekki aðilar að tveimur
fyrstnefndu stofnununum og Sviss
er ekki í Sameinuðu þjóðunum.
Hvorugt þeirra er í Efnahags-
bandalaginu.
Sigríður tók B.sc. econ.-próf frá
London School of Economics en
las alþjóðafræði til meistaraprófs
í Fletcher School of Law and Dipl-
omacy í Bandaríkjunum. Hún
þekkir því vel kenningar um al-
þjóðastofnanir og hefur haft gam-
an af að kynnast þeim af eigin
raun. Hún kvað það merki um
stofnun á niðurleið, þegar hún
færi að óttast um eigin áhrif og
heimta einokun á vissum mála-
flokkum og stundum vildi það
brenna við í umræðum um menn-
ingarmál í Evrópuráðinu. Hún
sagði, að stofnunin hefði komið
miklu til leiðar og samningur
hennar um verndun mannréttinda
og mannfrelsis væri eitt mikil-
vægasta verkefnið sem hún hefði
unnið, virðing fyrir mannréttind-
um væri hornsteinninn að starfi
ráðsins.
Allt frá því að herforingja-
stjórnin tók völdin í Tyrklandi,
hefur hún verið gagnrýnd harð-
lega í Evrópuráðinu. Danmörk,
Frakkland, Holland, Noregur og
Svíþjóð hafa kært ríkisstjórnina
fyrir brot á ýmsum mannréttinda-
ákvæðum og hefur mannréttinda-
nefndin málið til meðferðar. Þetta
hefur varpað skugga á starf Evr-
ópuráðsins og það verið gagnrýnt
fyrir að grípa ekki til ráðstafana
gegn ríki sem hefur skrifað undir
mannréttindasáttmálann, en brot-
ið hann margsinnis. Herforingja-
stjórnin segist ekki hafa brotið
samninginn, en ekki er séð fyrir
endann á þessu máli og kemur til
greina að Tyrkland verði rekið úr
Evrópuráðinu. Herforingjastjórn-
in í Grikklandi sagði ríkið úr Evr-
ópuráðinu á sínum tíma, áður en
kom til ráðstafana gegn því.
í aðildarríkjum Evrópuráðsins
búa samtals um 390 milljónir
manna. Fulltrúar þeirra hittast í
hinni svokölluðu „Evrópuhöll" í
útjaðri Strassborgar og ræða
vandamál aðildarríkjanna og
heimsins alls. Þeir hafa komist að
samkomulagi um ýmis mál, sam-
ræmt lög og reglur innan Evrópu
og reynt að standa vörð um
mannréttindi einstaklinga heima
fyrir og eriendis. Evrópuráðið er
pólitísk stofnun þar sem starfið
tekur langan tíma og árangurinn
er ekki alltaf augljós. Tilgangur
slíkra stofnana er stundum dreg-
inn í efa, en eins og Churchill vissi
og Sigríður benti á, þá er mikil-
vægt fyrir þjóðirnar í Vestur-
Evrópu, og ekki síst jaðarþjóðir
eins og Island, að hittast og
tryggja vináttuböndin. ab
Flestir ísiendingar eru góðir
ferðamenn og því einnig náttúru-
verndarmenn (án gæsalappa) og
vilja varðveita iandið og ganga vel
um það. Sama má segja um flesta
þá erlendu, sem sækja okkur
heim. Við sjálfir setjum fordæmið
og reglurnar. Það, sem þér viljið
að aðrir geri yður, skuluð þér og
þeim gera. Hin gullna regla gildir
hér sem alls staðar annars staðar.
Ferðamannaþjónusta hefur
aldrei verið neins metin í röðum
stjórnmálamanna á Islandi, og í
stjórnarsáttmála nýju ríkisstjórn-
arinnar sá ég ekkert um ferða-
þjónustu sem atvinnugrein, frem-
ur en endranær.
Við, sem viljum veg ferðamál-
anna á íslandi sem mestan, verð-
um að upphefja raust okkar meir
en áður og kveða áðurnefnda sál-
armengun í kútinn. Þetta mál
varðar þjóðina alla, þjóðin verður
að lifa af landsins gæðum, sem eru
mikil.
Það má ekki veiða of mikla síld,
þorsk eða loðnu, það má ekki
framleiða of mikið kjöt, það má
ekki laða hingað erlenda stóriðju,
það má ekki fá hingaö of marga
erlenda ferðamenn. Hvað má gera,
og á hverju eigum við að lifa?
Kinar /'. Gudjohnsen rann að
íerðamilum hér innanlands í
fjölda ára, rar m.a. tramkræmda-
stjóri Ferðafélagsins og síðar Úti-
ristar.
Dídó verslar með Jaeger
Dídó, tískuvöruverslun fyrir konur, hefur um árabil haft á boðstólum
vörur og fatnað frá ýmsum löndum. Dídó er til húsa að Hverfisgötu 39
í Reykjavík og sögðu eigendur verslunarinnar að m.a. versiaði Dídó
mikið með vörur frá merkinu Jaeger og hefði gert sl. 10 ár. Mest er það
fatnaður unninn úr ull og er fluttur inn frá Englandi. Kváðu eigendurn-
ir fatnað þennan mjög vandaðan, sem og reyndar allar vörur frá þessu
merki.
Vinsamleg ábending
til fjölmiðlanna
Má ég gera örstutta athugsemd
við árvissar fréttir frá æskuslóð-
um mínum.
Þegar færð á fjallavegum lands
vors ber á góma, er ósjaldan á það
minnst, að „Vopnafjarðarheiði" sé
fær (eða ófær) eða muni bráðum
verða fær o.s.frv. Hér mun átt við
fjallveginn á milli Vopnafjarðar
og Möðrudals.
Við þetta er það að athuga, að á
þessum slóðum er ekki til neitt
svæði, sem heitir Vopnafjarðar-
heiði.
Víst er Vopnafjörður umluktur
heiðum á alla vegu, nema í þá átt,
sem veit að sjó. Þessar heiðar
heita, og er þá farið sólarsinnis
umhverfis héraðið: Hellisheiði,
Smjörvatnsheiði, Tunguheiði,
Hauksstaðaheiði, Mælifellsheiði,
Hágangaheiði, Hróaldsstaðaheiði
og Sandvíkurheiði. Þetta eru að-
eins nöfn stærstu svæðanna, en
öllum hinum minni svæðum
sleppt, svo sem Fossheiði, Stak-
fellsstykki o.fl. En ekkert þeirra
heitir Vopnafjarðarheiði.
Um Sandvíkurheiði liggur veg-
urinn á milli Vopnafjarðar og
Bakkafjarðar, og um Hellisheiði
liggur vegur á milli Vopnafjarðar
og Jökulsárhlíðar.
Vegurinn frá Möðrudal til
Vopnafjarðar liggur mjög lengi
eftir Hauksstaðaheiði, þangað til
hann beygir austur í Fossheiðina,
þegar nær dregur Vopnafirði.
Þess vegna, góðir menn á blöð-
um, útvarpi og sjónvarpi: Hættið
fyrir alla muni að búa til örnefni á
þessu landsvæði, notið heldur þau
sem fyrir eru. Þar er nóg af nöfn-
um, allt frá því að vegurinn beygir
til austurs, áleiðis til Vopnafjarð-
ar, sunnan við Skarðsána, og ligg-
ur fyrst yfir Jökulkinn, siðan
niður Langadal, (þá er komið í
Hauksstaðaheiði), svo út Biskups-
áfanga, og þannig áfram, allt
niður í Vopnafjörð.
Ég skrifa ekki þessar línur til
þess að ráðast á neinn. Ég veit af
reynslu, að flestir fréttamenn
reyna að gera sitt besta, og þess
vegna leyfi ég mér að vona, að þeir
taki þessari ábendingu minni vel.
Valgeir Sigurðsson.
Þú svalar lestrarþorf dagsins
ájsíóum Moggans!
Kynmim
CRESSIDA
CAMRY
TERCEL 4X4
á Hvolsvelli,
kl. 10.30 — 12.00 vió Félagsh. Hvol
Hellu,
kl. 13.00—14.30
Selfossi
kl. 15.00 — 16.30 við Fossnesti
og Hveragerði
kl. 17.00 —18.30 viðEden
'ja^oS0'®
TOYOTA
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SÍMI44144