Morgunblaðið - 11.06.1983, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JtJNÍ 1983
17
25 þúsund manns í sæti, — og þar
hefjast sýningar á því að gestir
kveikja á kertum í kvöldrökkrinu,
sem kunnugir segja einkar eftir-
minnilega stund.
Holland — Belgía —
V-Þýzkaland
í stað þess að taka stefnuna á
París frá London hefði líka mátt
bregða sér til Hollands og Belgíu
áður en lengra væri haldið. Þar
verður margt góðra gesta í sumar,
þar á meðal sópransöngkonan Kiri
Te Kanawa, Grumiaux-kvartett-
inn, píanóleikarinn Alfred Brend-
el og flautuleikarinn Jean Pierre
Rampal. í Briissel á að flytja óper-
ur eftir Rossini og Janacek og
Hollendingar leggja sérstaka
áherzlu á japanska músík í sumar,
auk annarra verkefna. Brahms
verður auðvitað hátt skrifaður,
ópera Zimmermanns „Hermenn-
irnir" verður sýnd og í haust
(20.sept—15. okt.) verður flutt
rússnesk músík; Mussorgsky, Scri-
abin og Matiushin.
{ Vestur-Þýzkalandi er mikið
um að vera að venju og skal þá
fyrst frægar telja óperuhátíðirnar
í Bayreuth þar sem í ár verður ný
uppfærsla á Niflungahringnum
undir stjórn Georgs Soltis, auk
Meistarasöngvaranna, Tristans og
Parsifals, — og í Miinchen, þar sem
fjöldi ópera er á skrá; Mozart,
Puccini, Purcell, Monteverdi,
Strauss og Wagner. Auk þessara
eru fjölmargar minni hátíðir svo
sem Mozart-hátíðin í Wiirzburg
9.-27. júní og Bach-hátíðin í Ans-
bach, þar sem leikið er á gömul
hljóðfæri í höllum og kirkjum frá
tíma Bachs.
Spánn — Nordurlönd
Til Spánar er margt fleira að
sækja en sól og baðstrendur. Þar
verður Granada-tónlistarhátíðin 20.
júní—7. júlí, þar sem Teresa Berg-
anza verður meðal gesta, og síðan
tekur við hátíð 11. júlí—31. ágúst í
strandbænum Santander og verða
þar meðal annarra Alicia de Larr-
ocha, ítalska kammersveitin I
Musici og hljómsveitin Academy
of St. Martins in the Fields. Og um
þessar mundir er ítalska óperan í
heimsókn í Madrid.
Loks skulum við taka stórstökk
beint úr Spánarsólinni norður í
Skandinavíu. Þar er líka margt
um að vera en því miður rétt lokið
hátíðinni í Bergen. Þar hefur verið
margt skemmtilegt að heyra svo
sem Sálumessu Brahms, píanóleik-
arana Ashkenazy og Mörthu Arg-
erich, Gideon Kramer fiðluleikara,
sellóleikarann Yo-Yo Ma og ensku
kammersveitina. í Danmörku er
tónlistarhátíð 2. júlí—12. ágúst og
fjöldi góðra gesta kemur líka fram
á tónleikum í Tívolí í allt sumar.
Upptalninguna skulum við svo
enda á óperuhátíðinni í Savon-
linna-kastalanum í Finnlandi,
2.-24. júlí, þar sem í sumar á að
flytja Hollendinginn fljúgandi eftir
Wagner, Töfraflautu Mozarts, Don
Carlo Verdis og óperu eftir Auli
Sallinen sem finnska óperan var
með á Metropolitan í New York nú
í vor.
Hér hefur verið stiklað á fáein-
um stórum steinum í því tónaflóði
sem fer um Evrópu í sumar, — ef
verða mætti einhverjum til ábend-
ingar, en nánari upplýsingar er
auðvitað að fá hjá ferðaskifstofum
hvarvetna og í blöðunum á hverj-
um stað. Oft er erfitt að fá að-
göngumiða á hátíðirnar án þess að
panta með fyrirvara, en þess
skyldu menn líka minnast að oft
falla úr pantanir á síðustu stundu
ef einhverjir vilja losna við miða
sína og aldrei er að vita nema
maður detti óvænt í lukkupottinn.
Góða skemmtun í sumarleyfinu.
Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja:
150 þús. kr. gjöf til fé-
lags- og menningarmála
AÐALFIJNDUR Kaupfélags Suður-
nesja var haldinn í Safnaðarheimil-
inu í Innri-Njarðvík laugardaginn
14. maí kl. 13.30 e.h.
Formaður félagsstjórnar, Sigfús
Kristjánsson, setti fundinn og
flutti skýrslu félagsstjórnar.
Fundarstjórar voru Sigmar Inga-
son og Ólafur Gunnlaugsson.
Hjörtur Hjartar var gestur
fundarins og flutti hann ávarp um
stöðu og starfsemi Samvinnu-
hreyfingarinnar á íslandi.
Samþykktar voru gjafir til fé-
lags- og menningarmála til eftir-
talinna aðila: í orgelsjóð Útskála-
kirkju kr. 20.000, til körfu-
knattleiksdeildar ÍBK kr. 20.000,
til safnaðarheimilisins í Grinda-
vík kr. 20.000, til Golfklúbbs Suð-
urnesja vegna húsbyggingar kr.
40.000 og til Starfsmannafélags
KSK kr. 75.000.
Kosnir voru 9 fulltrúar á aðal-
fundi Sambandsins.
Úr fréttatilkynningu.
NIAN
RENAULT BILL FRAMTIÐARINNAR
Renault 9 var valinn
bíll ársins 1982 í Evrópu
og bíll ársins 1983 í U.S.A.
Renault 9 er ódýr „stór bíll“ sem eyðir
ótrúlega litlu. Það þarf ekki að hugsa það
mál lengi til að finna svarið. . . -
Renault 9 er bíllinn fyrir þig.
Við ættum að geta treyst fulltrúum 52 bila-
blaða til að velja rétt.
Besta trygging sem þú getur fengið fyrir
vali góðs bíls- og hagkvæmri fjárfestingu
á tímum sparnaðar.
Gerd Vél Eyðsla Verd
R9TC 48 din 5,41 259.000
R9GTL 60 din 5,41 283.000
R9GTS 72 din 5,41 301.000
R 9 Autom. 68 din 6,31 300.000
Gangi í júní '83.