Morgunblaðið - 11.06.1983, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
Netaverkstæði — Útgeröa-
menn — skipstjórar
Hef á lager nokkurt magn af trollneti, 2,5 mm og 3ja
mm, 145 mm og 135 mm. Einfalt og tvöfalt. Mjög
hagstætt verö.
Allar nánari upplýsingar hjá Netageröin Sigurður hf.
Holtsbúö 26, Garöabæ. Sími 91-41038.
SíÖumúla33
simar 81722 og 38125
MJOLKURDAGURINN
Verður sunnudaginn 12. júní
Undanfarin ár hafa ungmennafélögin á landinu gengist
fyrir sérstökum göngudegi sem nefndur hefur verið
Göngudagur fjölskyldunnar.
Að þessu sinni verður Göngudagur fjölskyldunnar
jafnframt Mjólkurdagurinn ’83.
Ungmennafélögin hafa skipulagt gönguleiðir, hvert í sínu
umdæmi, sem nánar verða auglýstar á hverjum stað
með veggspjöldum.
Mjólkurdagsnefnd sér þátttakendum fyrir hressingu á
leiðinni og fá þeir allir barmmerki sem
jafnframt er lukkumiði.
LUKKUNÚMERIN ERU10 ALLS:
1. Vikudvöl fyrir tvo á íslensku sveitaheimili
með viðurkennda ferðamannaþjónustu eða
vikudvöl á Hótel Sögu að vetri til.
2-10. Ýmsar mjólkurafurðir.
Úrslit verða birt í dagblöðum helgina 18-19. júní.
Allir krakkar, pabbar og mömmur, afar og ömmur!
Göngum saman - gleðjumst saman - öll saman
Ungmennafélag (slands UMFÍ
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JONATHAN MIRSKY
Richard M. Nixon og Sjú en-lai snæða saman meðan á heimsókn Bandaríkjaforseta til Kína í febrúar 1972 stóð,
en Nixon hefur síðan þá verið í sérstöku uppáhaldi hjá Kínverjum.
Bandaríkjamenn frið-
mælast við Kínverja
legs eðlis og ekki er hægt að
kenna stjórnmálalegum erfið-
leikum um þær.
George Schiltz fór í opinbera
heimsókn til Peking fyrr á þessu
ári, með þá fyrirskipun upp á
vasann, að „horfa beint í augun á
Deng Xiaoping og segja honum
að við viljum góð samskipti", að
því er haft er eftir bandarískum
embættismanni. Þrátt fyrir það
herma fregnir að kínverski leið-
toginn hafi tjáð Schultz að
Bandaríkin myndu sanna vin-
skap sinn við Kinverja í raun ef
þeir létu þá sitja við sama borð
varðandi sölu á tæknibúnaði og
Sovétmenn. Þetta mun nú vera í
uppsiglingu.
„Kínverjar eiga að sitja við
sama borð og aðrar vinaþjóðir,
sem ekki eru bandaþjóðir, eins
og Indland. Það er kominn tími
til að Bandarikjamenn breyti
viðhorfum sínum. Þeir þurfa
ekki lengur að líta á Kínverja
sem óvini,“ sagði Richard M.
Nixon.
Stjórnvöld í Peking vilja ekki
veikja tengsl sín við Bandaríkin
þrátt fyrir allar sínar yfirlýs-
ingar. Eftir að Kínverjar riftu
menningar- og íþróttatengslum
við Bandaríkin vegna þess að
kínversku tenniskonunni Hu Na
var veitt pólitískt hæli í Banda-
ríkjunum, lýsti Zhao Ziyang því
yfir að máli þessu væri lokið.
Fjöldi kínverskra sendinefnda
sækir Bandaríkin heim í hverj-
um mánuði og sameiginleg fyrir-
tæki þessarra aðila eru sett á
stofn, sérstaklega í olíu- og kola-
iðnaði.
Nýr sendiherra Kínverja í
Washington, sem í utanríkis-
ráðuneytinu, er nefndur „gamli
bandamaðurinn", er nú tekinn
við. Hann stendur nú í ströngu
við að þeytast um borgina til að
kynnast réttum mönnum á rétt-
um stöðum og sannfæra þá um
trygg samskipti Bandaríkjanna
og Kína.
Eða eins og Richard M. Nixon
orðaði það er hann gagnrýndi
demókrata fyrir að vera of lina í
garð kommúnismans: „Mesta
velmegunarþjóð heims og fjöl-
mennasta þjóð heims þurfa að
vinna saman."
(Heimild Obnerver).
Stjórnvöld í Bandaríkjunum vinna nú að því af öllum mætti að bæta
samskiptin við Kínverja. Samkvæmt upplýsingum embættismanna í
Washington, sem beina sjónum sínum að Kína, hafa samskipti ríkjanna
aldrei verið jafn slæm frá því áður en Nixon fór til Peking 1972.
Asíðustu mánuðum hafa
Kínverjar rift öllum menn-
ingar- og íþróttatengslum við
Bandaríkin og sakað Banda-
ríkjamenn um hroka og synd-
samlegt athæfi.
Þetta spennuástand hefur
komið sér sérstaklega illa fyrir
repúblikana. í mörg ár eftir sig-
ur Mao 1949 sökuðu þeir, sem
eru hvað lengst til hægri í
flokknum, demókrata um að
hafa „tapað Kína“. Ronald Reag-
an Bandaríkjaforseti er staðráð-
inn í því að missa ekki Kína í
annað sinn, þrátt fyrir tryggð
sína við þjóðernissinna á Tai-
wan.
Taiwan er það sem mestri
gremju veldur í samskiptum
ríkjanna tveggja. „Taiwan er án
efa erfiðasta málið varðandi
samskipti Kína og Bandaríkj-
anna,“ segir Thomas ONeill,
talsmaður Hvíta hússins. Eftir
heimsókn til Kína nýlega sagðu
ONeill:„Ég gerði mér enga grein
fyrir því að þeir litu svona al-
varlegum augum á Taiwan.“
Það sem hefur valdið Kínverj-
um gremju eru ítrekaðar yfirlýs-
ingar Ronalds Reagans um
„stjórnvöld í Taiwan". Stjórn-
völd í Kína líta á yfirlýsingar
sem þessa sem brot á fyrri yfir-
lýsingum Bandaríkjamanna um
að það sé aðeins eitt Kína.
Vopnasölur Bandaríkjamanna
til Taiwan á þessu ári hafa ekki
síður orðið til að valda Kínverj-
um gremju og reiði í garð stjórn-
ar Reagans. „Við munum hætta
þessari vopnasölu á næsta ári,“
segir Clement Zablocki, repú-
blikani og formaður utanrikis-
málanefndar þingsins.
Enginn neitar því nema
hægrisinnaðir öfgamenn í Tai-
wan, að fyrr eða síðar verður
Taiwan að nýju sameinað meg-
inlandinu. Repúblikaninn Zabl-
ocki segir tilboð stjórnvalda i
Peking um hálfgildings-sjálf-
stæði óraunhæft.
Nixon fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, sem Kínverjar
líta á sem gamlan vin, hvatti í
Konald Keagan, núverandi Banda-
ríkjaforseti, lælur sér annt um
bætt samskipti Kínverja og Banda-
ríkjamanna.
ræðu í Washington fyrr í vik-
unni til þess að stjórnvöld í Pek-
ing og embættismenn f Tapei
leystu mál sín á friðsamlegan
hátt. Daginn áður en Nixon hélt
ræðu sína, sagði embættismaður
bandarískra stjórnvalda, að þau
myndu „alls ekki mótmæla” því
að Taiwan sameinaðist megin-
landinu að nýju, og bætti því við
að „í Taiwan væri fjöldi fólks
sem horfði raunsæjum augum til
framtíðarinnar."
Skýrasta dæmið um samn-
ingsvilja Bandaríkjanna kom
síðan í síðastliðinni viku, þegar
bandaríski verslunarmálaráð-
herrann lofaði Kínverjum þvi að
Bandaríkjamenn myndu losa um
hömlur sem verið hafa á útflutn-
ingi á tækniþekkingu.
Fram til þessa hafa áhyggjur
innan kerfisins vegna hugsan-
legrar hernaðaríhlutunar hægt á
útflutningi tölvubúnaðar til
Kina þrátt fyrir tryggingar emb-
ættismanna í Hvita húsinu.
Þetta er, viðkvæmt mál fyrir
bandarísk stjórnvöld. Þessar
tafir eru einungis framkvæmda-