Morgunblaðið - 11.06.1983, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
Reglur til að létta
greiðslubyrði íbúðalána
er
mai
er
I bráðabirgðalögum þeim
viðskiptaráöherra setti 27.
síðastliðinn (nr. 57/1983)
kveðið á um frestun greiðslna
vegna verðtryggðra íbúðalána í
því skyni að létta greiðslubyrði
húsbyggjenda. í kjölfar setn-
ingar bráðabirgðalaganna ritaði
viðskiptaráðherra Seðlabanka
íslands og félagsmálaráðherra
bréf þar sem leitað var tillagna
þessara aðila um framkvæmd
laganna. Félagsmálaráðherra
hóf viðræður við Húsnæðismála-
stjórn og í framhaldi þeirra við-
ræðna gerði Húsnæðismála-
stjórn eftirfarandi tillögur sem
ríkisstjórnin samþykkti á fundi
sínum í fyrradag:
„1. Þessi lög ná til verðtryggðra
lána, sem veitt hafa verið ein-
staklingum úr Byggingarsjóði
verkamanna frá 1. júlí 1980 og úr
Byggingarsjóði ríkisins frá 1. júlí
1974.
2. Lögin skulu gilda um ofan-
greind lán, sem gjaldfalla á tíma-
bilinu 1. maí 1983 til 30. apríl 1984,
að því tilskildu að um fulla
greiðslu á gjalddaga sé að ræða
(þ.e. vextir, afborgun og verðbæt-
ur).
3. Þeirri fjárhæð, sem frestað
er, verður bætt við höfuðstól láns-
ins og kemur til greiðslu að lokn-
um lánstímanum. Hún ber þá
grunnvísitölu, sem í gildi var á
þeim gjalddaga, sem til þessa var
stofnað.
4. Sé um vanskil að ræða reikn-
ast fullir dráttarvextir af því sem
gjaldféll að frádreginni þeirri
fjárhæð sem frestað er.
5. Ef óskað er eftir fresti skal
beiðni um hana vera skrifleg á þar
til gerðu eyðublaði, sem Húsnæð-
isstofnun ríkisins leggur til.
Beiðnin skal send innan þriggja
mánaða frá gjalddaga."
Varðandi þá hlið málsins sem
snertir viðskiptabankana og
sparisjóðina var skipuð sérstakur
vinnuhópur tilnefndur af stjórn-
um Sambands íslenskra viðskipta-
banka og Sambandi íslenskra
sparisjóða. Tillögur þessa hóps
voru samþykktar af stjórnum
sambandanna og voru síðan til
umfjöllunar hjá viðskiptaráð-
herra og Seðlabanka íslands og
fengu loks endanlegt samþykki
ríkisstjórnarinnar í fyrradag. Til-
lögurnar eru þessar:
„1. Heimilt verður að fresta
greiðslu afborgana og verðbóta er
falla í gjalddaga á 12 mánuðum á
tímabilinu 28. maí 1983 til 27. maí
1984.
2. Frestunin nái ekki til íbúða-
lána, sem veitt voru vegna
skuldbreytingar á lausaskuldum
húsbyggjenda/íbúðarkaupenda í
föst lán árið 1981.
3. Lánum sem tekin hafa verið
eftir 27. maí 1983 verður ekki
frestað.
4. Frestun greiðslna samkvæmt
framansögðu skal framkvæmd á
þann hátt, að þeim greiðslum sem
eftir eru verði fjölgað þannig, að
greiðslur á tímabilinu verði 75%
af því sem annars hefði orðið.
5. Þau 25%, sem frestað er, eru
bundin lánskjaravísitölu og samn-
ingsvöxtum á frestunartíma-
bilinu.
6. Verði vanskil eftir 27. maí
1983, reiknast fullir dráttarvextir
frá gjalddaga af 75% þeirrar
greiðslu, er upphaflega átti að
greiða.
7. Þær greiðslur, sem frestað
verður samkvæmt framansögðu,
samþykkir lántaki að greiða á
fyrsta ári eftir að áður umsömd-
um lánstíma lýkur. Að öðru leyti
gilda sömu lánskjör um frestaða
fjárhæð og gilda um upphaflegt
lán.
8. Bankar og sparisjóðir munu
auglýsa í dagblöðum og útvarpi,
að lántakar geti fengið þann frest
er hér um ræðir, og einnig vekja
athygli á auglýsingunni með
fréttatilkynningu.
9. Ef lántaki óskar eftir fresti,
þá skal hann senda inn skriflega
beiðni á þar til gerðu eyðublaði,
sem bankar og sparisjóðir leggja
til. Umsóknarfrestur skal vera til
1. ágúst nk.
10. Gjald fyrir þessa breytingu
skal reikna samkvæmt lið 2.6 í
gjaldskrá fyrir innlánsstofnanir."
(Nú kr. 176).
Reglur þessar voru kynntar á
fundi með fréttamönnum í gær.
Þar kom fram að viðskiptaráð-
herra hefur farið þess á leit við
fjármálaráðuneytið að það beiti
áhrifum sínum við lífeyrissjóðina,
þannig að þeir veiti hliðstæða
fyrirgreiðslu um frestun á greiðsl-
um verðtryggðra íbúðalána. Á
fundinum kom einnig fram að
viðskiptaráðherra og félagsmála-
ráðherra munu í næstu viku eiga
viðræður við fulltrúa viðskipta-
banka og sparisjóða vegna þess
ákvæðis í stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar, að heildarsamn-
ingar verði gerðir við þá, sem
stofnað hafa til skuldar vegna
byggingar eða kaupa á eigin hús-
næði í fyrsta sinn undanfarin 2—3
ár.
Er þess vænst að slíkir samn-
ingar geti tekist innan skamms.
Ljósm. KÖE.
Frá blaðamannafundinum í gær, þar sem hinar nýju reglur um frestun
greiðslna vegna verðtryggðra íbúðalána voru kynntar. Á myndinni eru, talið
frá vinstri: Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðismála-
stofnunar ríkisins, Jón Júlíusson, deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu, Alex-
ander Stefánsson, félagsmálaráðherra, Matthías Á. Mathiesen, viöskipta-
ráöherra, Jónas H. Haralz, formaöur Sambands íslenskra viðskiptabanka, og
Magnús Torfi Ólafsson, blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar.
Jónas Blöndal á ráðstefnu um gæði sjávarafurða:
Ársafli 45 togara af
þorski fer í 2. og 3. flokk
„Við verðum að huga að því hvort
hægt sé að gera hlutina betur eða á
hagkvæmari hátt. Við verðum að
draga úr tilkostnaði eða auka tekjur
eða helst hvort tveggja. Við verðum
að sætta okkur við þá hugsun að
meira sé ekki endilega betra,“ sagði
Jónas Blöndal skrifstofustjóri Fiski-
félags íslands á ráðstefnu Fiskiðnar
um gæðamál sjávarafurða. Hann
sagði þetta eftir að hafa lýst þeirri
þröngu stöðu sem sjávarútvegurinn
væri í m.a. vegna þess „vítahrings
aukinnar sóknar og minnkandi afla“
sem atvinnugreinin stefndi í.
Jónas fjallaði síðan um hvernig
hægt væri að standa að málum til
að auka tekjurnar í sjávarútvegin-
um og nefndi nauðsyn þess að
framleiðsluvörurnar fullnægðu
kröfum kaupenda og betri stýringu
framleiðslunnar eftir vinnslu-
ráðstefnu Fiskiðnar um gæðamál sjávarafurða. Halldór Ásgrímsson
Endurskoða lögin um
Húsnæðismálastofnun
Félagsmálaráðherra hefur skip-
að nefnd til að vinna að endurskoð-
un laga um Húsnæðismálastofnun
ríkisins nr. 51/1980. í nefndinni
eiga sæti: Jóhann Einvarðsson,
formaður, Gunnar S. Björnsson,
Halldór Blöndal, Páll R. Magnús-
son og Þórður Ólafsson. Ritari
nefndarinnar er Hilmar Þórisson. í
skipunarbréfi nefndarinnar segir
m.a.:
_1 sambandi við endurskoðun
laganna skal nefndin fella inn í
frumvarp sitt frumvarp það til
laga um breytingu á lögum nr.
51/1980, sem lagt var fram á Al-
þingi hinn 6.desember 1982, en
hlaut ekki afgreiðslu á síðasta
þingi.
Nefndin skal athuga sérstak-
lega á hvern hátt er mögulegt að
auka fjármagn til byggingasjóð-
anna m.a. með tilliti til þeirrar
ákvörðunar núverandi ríkis-
stjórnar, að koma á næsta ári
lánshlutfallinu á staðalíbúð upp í
50% af byggingarkostnaði fyrir
þá sem eru að byggja eða kaupa í
fyrsta skipti og er þá haft í huga,
að lánshlutfallið fari síðan
hækkandi á næstu árum þar til
marki verður náð.
Jafnframt athugi nefndin
möguleika á iengingu lánstíma
almennra húsnæðislána."
Aðalfundi SÍS lauk i gær:
Fjármagnsmyndun fer minnkandi
og vaxandi rekstrarerfiðleikar
AÐALFUNDI Sambands íslenskra
samvinnufélaga lauk í gær, en á
fundinu .i var sérstaklega fjallað um
málefnið „fjárhagsmál samvinnu-
hreyfingarinnar“. 1 þeirri umfjöllun
kom m.a. fram að útlitið væri dökkt
framundan og bæri nauðsyn til að
sýna fyllstu gætni, einkum í sam-
bandi við hverskonar fjárfestingar í
nánustu framtíð, að því er segir í
fréttatilkynningu frá SÍS.
Á fundinum var samþykkt sér-
stök ályktun um fjárhagsmál
samvinnuhreyfingarinnar, þar
sem m.a. segir í inngangsorðum að
þjóðin standi nú frammi fyrir
miklum efnahagsvanda. Þjóðar-
tekjur dragist saman, erlend
skuldasöfnun sé komin á hættu-
legt stig og verðbólguvandinn
meiri en áður. Því leggi SÍS
áherslu á að atvinnurekstur
hreyfingarinnar hafi ekki frekar
en önnur atvinnustarfsemi farið
varhluta af þessari öfugþróun.
Fjármagnsmyndun hafi farið
hraðminnkandi og rekstrarerfið-
leikar farið vaxandi að sama
skapi.
Á fundinum var kosið í stjórn
Sambandsins, en fyrir fundinn
höfðu endað kjörtíma sinn þeir
Gunnar Sveinsson, Keflavík, Ing-
ólfur Ólafsson, Reykjavík, og Þór-
arinn Sigurjónsson, Laugardæl-
um, Árnessýslu, en þessir menn
voru allir endurkjörnir til 3ja ára.
Aðrir í stjórn eru: Valur Arn-
þórsson Akureyri, formaður,
Finnur Kristjánsson, Húsavík,
varaformaður, ólafur Sverrisson,
Borgarnesi, ritari, Hörður Zoph-
aníasson, Hafnarfirði, Jónas R.
Jónsson Melum í Hrútafirði, og
Óskar Helgason, Höfn í Horna-
firði.
sjávarútvegsráðherra er í ræðustóli.
greinum. „Frumforsenda þess, að
yfirleitt sé hægt að framleiða
gæðavörur er að gæði hráefnisins,
þegar það er tekið til vinnslu, séu
fullnægjandi ... gera ætti þær
kröfur, að hráefnið takmarki ekki
möguleika til að vinna úr því
hverja þá afurð sem henta þykir.
Menn hafa verið tilneyddir að
ráðstafa hráefni á annan hátt en
þeir hefðu helst kosið," sagði Jónas.
Hann ræddi síðan um fersk-
fiskmatið. Benti hann m.a. á að
hlutdeild 1. flokks þorsks hefði
minnkað úr 92,8% árið 1980 í
79,5% árið 1982 og hlutfall 2. og 3.
flokks þorsks hefði aukist að sama
skapi. Sá þorskur sem metinn var á
sl. ári í 3. flokk jafngilti ársafla 16
togara og það sem metið var í 2. og
3. flokk til samans jafngilti ársafla
45 togara.
Sagði hann að skýring þessa
væri annaðhvort að gæðum land-
aðs þorsks hafi í raun og veru
hrakað á þessu tímabili eða að
matið sé orðið strangara, en senni-
legast komi hvorttveggja til. Hann
nefndi nokkur atriði sem kynnu að
valda þessu en bætti því við að það
væri ljóst að hægt sé að skila óað-
finnanlegu hráefni á land. Sagði
Jónas að varlega áætlað mætti
vænta þess, út frá gefnum forsend-
um, að 203 milljónir króna vanti á
að mesta hugsanlega verðmæti ná-
ist fyrir þorskaflann og svipaðar
upphæðir hvað aðrar fisktegundir
varðar. í þessu sambandi nefndi
hann að á síðasta ári hefði aðeins 1
togari af 102 náð því að vera með
allan þorskaflann í fyrsta flokki, en
95 bátar af þeirn 695 sem lönduðu
þorski á síðasta ári. En þegar betur
væri að gáð sagði Jónas að í heild-
ina væri þorskafli bátanna mis-
jafnari að gæðum en togarafiskur-
inn.
Jónas Blöndal lauk erindi sínu
þannig: „Þegar þær fjárhæðir, sem
til er að vinna með bættum gæðum
og nýtingu fiskafla okkar, eru skoð-
aðar verður manni ljósari nauðsyn
þess að láta einskis ófreistað til að
gera betur. Þetta á ekki síst við í
Morirunblaðið/KÖE.
því ástandi, sem nú ríkir og horfur
eru á að riki á næstu árum. Okkur
munar um hverja krónu. Við verð-
um að skoða veiðiaðferðir og veið-
arfæraval. Við verðum að skoða að-
ferðir við stjórnun fiskveiða og
leita aðferða sem hvetja til öflunar
gæðahráefnis. Við verðum að
endurskoða verðlagningu með til-
liti til þess að það hvetji frekar en
nú er til bættra gæða. Við verðum
að athuga möguleika á því að hafa
meiri áhrif á ráðstöfun hráefnis en
nú er. Við verðum að finna leiðir til
að koma í veg fyrir tímabundið
offramboð hráefnis. Við verðum að
huga að því hvort vinnufyrirkomu-
lag iðnríkja hentar við þær aðstæð-
ur sem ríkjandi eru í sjávarútvegi.
Við verðum að sníða af öll þau
horn, sem við rekumst á við að gera
okkur sem mestan mat úr því
takmarkaða hráefni, sem til boða
stendur."
30 útlend
skip að
veiðum við
landið
RÚMLEGA 30 bátar og togskip eru
aö veiöum hér viö land, samkvæmt
upplýsingum Landhelgisgæzlunnar,
og eru þau öll meö veiðileyfi.
Skipin eru að veiðum utan 12
mílna markanna á svæði frá
Stokksnesi að Reykjanesi, flest
með handfæri og línu, en að auki
eru nokkur belgísk og færeysk
togskip.
Afli útlendu skipanna hefur
verið sæmilegur, en þau hafa flest
verið í keilu og löngu.
Rússneski flotinn sem var í
karfa suður af Reykjanesi er far-
inn þaðan, samkvæmt upplýsing-
um Gæzlunnar.