Morgunblaðið - 11.06.1983, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
25
ein vann óvænt
ti í Belfast
tlaóamanni Morgunblaósins.
Þessi sigur Gerry Adams hefur
vakið mikinn óhug alls staðar og er
nú talið víst að ógnaröldin á
Norður-Irlandi eigi enn eftir að
harðna. Þannig varð mikil spreng-
ing í vesturhluta Belfast í dag, þar
sem breskur hermaður beið bana og
fannst mörgum vera dapur fyrir-
boði þess sem koma kann, því talið
er víst að írski lýðveldisherinn hafi
verið þarna að verki. Sjálfur hefur
Adams setið í fangelsi fyrir meinta
hlutdeild í hryðjuverkum írska lýð-
veldisherins. Hann sagði hins vegar
í dag: „Sinn Fein hefur nú loks hlot-
ið þingsæti, sem á eftir að skipta
miklu máli í sögunni."
Þetta var þó eina þingsætið, sem
Sinn Fein vann í þessum kosning-
um. Flokkurinn bauð fram í 14
kjördæmum af 17 á Norður-írlandi.
í dag mátti hér sjá í sjónvarpi
fréttaútsendingar, þar sem Gerry
Adams gekk sigri hrósandi í far-
arbroddi stuðningsmanna sinna í
Belfast.
lagi mistókst
}ta mynstrið
drepið hefur á dreif ailri von hins síö-
arnefnda um að velta Margaret
Thatcher úr sessi, að minnsta kosti
um sinn.
Tveir félagar úr „fjórmenn-
ingaklíkunni" svonefndu, er stóð að
stofnun Jafnaðarmannaflokksins,
töpuðu þingsætum sínum þannig að
flokkurinn tapaði helmingi sæta
sinna á þingi. Leiðtogar bandalags-
ins sögðust þó mundu halda hönd-
imum
agnað
dag Margaret Thatcher, endurkjörnum
u með „áhrifamikinn" kosningasigur og
ð ég þyrfti einhvern tíma á því að halda í
ð stjórna hjá mér kosningabaráttu?“
manna franska utanríkisráðun-
eytisins er forsetinn ánægður með
endurkjör Thatcher. Fyrrverandi
forsætisráðherra Hollands, Joop
den Uyl, sagði hins vegar að úr-
slitin væru „harmleikur fyrir
Bretland“, en bætti við að ósigur
Verkamannaflokksins væri eðli-
legur i ljósi þeirra væringa sem
átt hafa sér stað innan flokksins.
Paulo Barbi, formaður Sambands
kristilegra demókrata á Evrópu-
þinginu, kvað sigur Thatcher vera
„sigur fyrir öryggi Atlantshafs-
ríkja, vestræna samstöðu og sam-
einingu." Þegar framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins,
Joseph Luns, var að því spurður
hvernig honum líkaði úrslitin,
spurði hann fréttamennina hvort
þeir hefðu ekki veitt því athygli að
hann brosti enn líkt og kötturinn í
Lísu í Undralandi.
um saman og gera aðra tilraun síð-
ar.
Shirley Williams, formaður Jafn-
aðarmannaflokksins og fyrrverandi
ráðherra Verkamannaflokksins,
var ein þeirra sem féllu. Williams
fór halloka í kjördæmi sínu í út-
jaðri Liverpool þar sem hún hafði
sigrað í aukakosningum 1981. Hún
lét þó engan bilbug á sér finna og
lýsti því yfir eftir að úrslitin lágu
fyrir að „framtíðin brosti við
bandalaginu". Leiðtogi Frjálslynda
flokksins, David Steel, sagði að
hvað svo sem bandalagið ynni á
þingi hefði gífurlegur fjöldi kjós-
enda léð öflugri nýrri stjórnmála-
hreyfingu fylgi sitt.
Bandalagið var stofnað fyrir tutt-
ugu mánuðum af félögum Verka-
mannaflokksins, er ofbauð áhrif
öfgasinna innan flokksins, ásamt
Frjálslynda flokknum. Síðarnefndi
flokkurinn hafði þrettán þingsæti á
síðasta þingi, sem er aðeins skugg-
inn af þeim flokki er stjórnaði
Bretlandi undir forystu Gladstones
og Asquiths um aldamótin siðustu.
Var helzti tilgangur bandalagsins
að brjóta á bak aftur tveggja flokka
kerfi íhalds- og Verkamannaflokks-
ins, sem ríkjandi hefur verið í
Bretlandi eftir fyrri heimsstyrjöld-
ina.
Stefnuskrá bandalagsins var
hófsöm í samanburði við hina
flokkana. Mælt var með auknum
ríkisútgjöldum, staðsetningu nýrra
meðaldrægra kjarnorkueldflauga í
Atlantshafsbandalagsríkjum en
einnig var því lofað að Trident-
eldflaugum yrði ekki komið fyrir ef
bandalagið kæmist til valda.
Að kosningum loknum létu leið-
togar bandalagsins í ljós harða
gagnrýni á kjördæmafyrirkomulag-
ið í Bretlandi. „Væri kosningaskip-
anin ekki jafn gerspillt og raun er
á, hefði bandalagið ekki aðeins
nokkur þingsæti nú, heldur fjöld-
ann allan," sagði Shirley Williams.
„Við unnum siðferðilegan sigur,“
bætti hún við, „þrátt fyrir að slíkir
sigrar séu ekki einatt áþreifanleg-
ir.“
Margaret Thatcher heilsar stuðningsmönnum í Downing-stræti eftir kosningasigur íhaldsflokksins í Bretlandi.
Tony Benn man
fífíl sinn fegurri
I>ondon, 10. júní. AP.
EIN AF athyglisverðustu niðurstöð-
um kosninganna er án efa að Tony
Benn, fyrrverandi ráðherra og mál-
pípa vinstri róttæklinga innan
Verkamannaflokksins, tapaði sæti
sínu í Bristol til íhaldsmannsins Jon-
athan Sayeed.
Benn, sem er fyrrverandi aðals-
maður, hefur verið óvæginn and-
stæðingur Margaret Thathers og
mótmælti hann meðal annars
harðlega þeirri ákvörðun forsæt-
isráðherrans að leggja til atlögu
við Argentínu út af Falklandseyj-
um i fyrra. Hann hafði verið þing-
maður Bristol á árunum 1950—60
og aftur frá 1963 þar til í kosning-
unum nú.
I uppvexti sínum naut Benn ým-
iss munaðar, naut leiðsagnar
einkakennara og nam síðan við
Oxford-háskóla. Er faðir hans lézt
árið 1960 erfði han titilinn Stans-
gate greifi, en afsalaði sér titlin-
Tony Benn
um þremur árum síðar. Eiginkona
hans er dóttir auðugs bandarisks
lögmanns.
I hópi þeirra mála er Benn hef-
ur beitt sér fyrir á undanförnum
árum eru víðtæk þjóðnýting fyrir-
tækja, lokun bandarískra her-
stöðva í Bretlandi og afnám
lávarðadeildar þingsins. Hann var
iðnaðarráðherra frá 1970 til 1974
og orkumálaráðherra frá 1975 til
1979. Honum er lýst sem yfirlæt-
islausum og hæglátum og segist
hann sjálfur vera „staðfastur al-
þýðumaður".
Stjarna Benn fór hækkandi inn-
an Verkamannaflokksins eftir
ósigur stjórnar James Callaghans
í kosningunum 1979. Hratt ósigur-
inn af stað illvígum deilum innan
flokksins og var Benn í forsvari
fyrir róttækari arm hans. Tapaði
hann naumlega kosningu árið 1981
um varaformannsembætti Verka-
mannaflokksins fyrir Denis Hea-
ley, sem talinn er hófsamari.
Gagnsókn hófsamari afla innan
flokksins kom því þó til leiðar í
fyrra að Benn var hrakinn úr sjö
mikilvægum nefndum og veikti
það framavonir hans verulega.
Eftir sigur Thatchers:
„Dimmur dagur í sögu
V er kamannaflokksins“
London, 10. júní. AP.
NOKKRIR kunnustu stjórnmála-
menn Breta biðu ósigur í kosningun-
um.
Þeirra á meðal voru Tony Benn
fyrrum orkumálaráðherra, leiðtogi
vinstri arms Verkamannaflokksins,
og tveir af fjórum stofnendum
Bandalags frjálslyndra og jafnaðar-
manna, Shirley Williams og William
Rodgers.
Aftur á móti héldu hinir stofn-
endur bandalagsins, Roy Jenkins
og David Owen, þingsætum sínum,
þótt þeir byðu sig fram í vafakjör-
dæmum.
Af þingmönnum bandalagsins á
síðasta þingi náðu aðeins Owen og
Jenkins og tveir aðrir endurkjöri.
Leiðtogar Verkamannaflokksins
eru þegar farnir að reyna að gera
sér grein fyrir ástæðum ósigurs-
ins. Leo Abse, gamalreyndur
flokksmaður, skoraði á alla for-
ingja flokksins að segja af sér og
sagði: „Þeir klúðruðu kosninga-
baráttunni."
Reyndur vinstrileiðtogi, Eric
Heffer, sagði: „Þetta er dimmur
dagur í sögu flokksins."
Jafnvel í virkjum Verkamanna-
flokksins í Skotlandi og Norður-
írlandi juku íhaldsmenn fylgi sitt
um 1,4% á kostnað Verkamanna-
flokksins. Fylgisaukning íhalds-
manna á kostnað Verkamanna-
flokksins var rúmlega 4% á Suð-
ur-Englandi.
Owen sagði að bandalagið hefði
náð að skjóta rótum í kosningun-
um og það mundi eflast og dafna
unz það tæki við stjórnartaumun-
um. Jenkins taldi bandalagið hafa
náð mesta árangri sem um gæti í
brezkumn stjórnmálum í 60 ár.
Osigur frú Williams var alvar-
legt áfall fyrir bandalagið. Hún
tapaði með 3.000 atkvæða mun í
kjördæminu Crosby á Norðvest-
ur-Englandi, tveimur árum eftir
glæsilegan sigur í aukakosningu
þar. En hún brosti og sagði:
„Starfi mínu verður haldið áfram
til að að tryggja að þetta nýja afl
verði óstöðvandi."
Fyrrverandi formaður Verka-
mannaflokksins, Joan Lestor, beið
ósigur fyrir íhaldsflokknum í
Slough-hverfi vestur af London,
kjördæmi sem hún hefur haldið
síðan 1946.
Denis Healey, varaleiðtogi
Verkamannaflokksins, kenndi
bandalaginu um ósigurinn. „Lið-
hlauparnir úr Verkamannaflokkn-
um hafa skaðað lýðræðið," sagði
hann.
í vafakjördæminu Northfield í
Birmingham, sem er nokkurs kon-
ar loftvog í brezkum stjórnmálum,
sigruðu íhaldsmenn með 2.760 at-
kvæða mun. Verkamannaflokkur-
inn sigraði með mjög naumum
meirihluta í aukakosningu í
Northfield fyrir átta mánuðum.
Ken Livingstone, vinstrisinnað-
ur leiðtogi Verkamannaflokksins f
borgarráði Stór-Lundúna, sagði a)
„baráttunni" yrði haldið áfran
utan þings og virtist með þestu
boða víðtæk verkföll. „Ég he.d
ekki að stjórn Thatcher haldist við
völd næstu fimm ár,“ sagði hann.
Sonur Tony Benn, Hilary, b?ið
ósigur fyrir íhaldsmanni í vata-
kjördæminu Ealing í Lundúnum.
Pundið hækkaði um eitt sent í
New York þegar í ljós kom að
Thatcher myndi sigra.