Morgunblaðið - 11.06.1983, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
Fríður hópur nýstúdenta frá Kvennaskólanum í Reykjavík.
Kvennaskólanum í Reykjavík slitið í 109. skipti:
24 nýstúdentar útskrifaðir
— Fyrsti karlstúdentinn brautskráður
KVENNASKÓLANUM í Reykja-
vík var slitið í 109. sinn fóstudag-
inn 20. maí sl. og voru 24 nýstúd-
entar útskrifaóir af menntabraut. í
þeirra hópi var fyrsti pilturinn sem
lýkur stúdentsprófi við skólann, en
þetta er í þriðja sinn sem Kvenna-
skólinn útskrifar stúdenta. Flestar
einingar á stúdentsprófi hlaut
Ragna Gunnarsdóttir.
I Kvennaskólanum er starfrækt
uppeldissvið með tveimur tveggja
ára brautum, fóstur- og þroska-
þjálfabraut og félags- og íþrótta-
braut, og menntabraut sem út-
skrifar stúdenta.
Á haustönn voru 268 nemendur
í skólanum og um áramót útskrif-
aði skólinn stúdenta í annað sinn,
33 að tölu. Á vorönn voru 190
nemendur á menntabraut, 32 á
fóstur- og þroskaþjálfabraut og 21
á félags- og íþróttabraut, en 27
nemendur voru í óskiptum byrj-
endabekk. Alls stunduðu því lið-
lega 300 nemendur nám við skól-
ann í vetur, þar af 164 nýir nem-
endur. Bekkjardeildir voru 11 á
hvorri önn.
Nú í vor útskrifuðust 24 stúd-
entar. í þeirra hópi var fyrsti pilt-
urinn sem útskrifast með stúd-
entspróf frá skólanum, Jón Árna-
son.
Verðlaun voru veitt úr Minn-
ingarsjóði frú Guðrúnar J. Briem,
úr Móðurmálssjóði, úr Minn-
ingarsjóði Ragnheiðar Jónsdóttur
og Minningarsjóði frú Þóru
Melsteð. Franska og þýska sendi-
ráðið veittu bókaverðlaun. Ragna
Gunnarsdóttir fékk verðlaun fyrir
flestar einingar á stúdentsprófi
og þær Hólmfríður Erlingsdóttir
og Elva Björk Jónatansdóttir
fengu verðlaun fyrir góðan heild-
arárangur.
Skólastjórinn, Aðalsteinn Ei-
ríksson, ávarpaði nýstúdentana
og fyrrverandi skólastjóri, dr.
Guðrún P. Helgadóttir, tók einnig
til máls. Hún gerði móðurmálið
að umtalsefni og hvatti til árvekni
í þeim efnum. Hún færði skólan-
um að gjöf tvö sendibréf Þóru
Gunnarsdóttur frá Laufási og
minntist um leið Jónasar Hall-
grímssonar. Bréf Þóru eru fáséðir
safngripir og er hér því um verð-
mæta gjöf að ræða sem skólanum
er mikill fengur að. Umhyggja dr.
Guðrúnar fyrir skólanum og
ræktarsemi heldur þannig áfram
að vera skólanum styrkur þótt
hún hafi látið af störfum.
Einnig fluttu ávörp þær Ragna
Gunnarsdóttir f.h. nýstúdenta og
Sigríður Þ. Harðardóttir fyrir
hönd 10 ára afmælisárgangs og
færði hún bókasafni skólans pen-
ingagjöf. Þá bárust skólanum
kveðjur 55 og 60 ára afmælisár-
ganga.
Við skólaslitin sungu nemendur
og einn úr þeirra hópi lék nokkur
lög á píanó.
Skólastjóri þakkaði gjafir og
kveðjur og gat þess m.a. að nú léti
af störfum við skólann Jón G.
Þórarinsson tónmenntakennari
eftir 25 ára starf. Afhenti hann
Jóni þakklætisvott af hálfu skól-
ans.
Lauk svo 109. starfsári Kvenna-
skólans í Reykjavík, segir í frétt
frá skólanum.
„Hef haft það mjög
gott í Kvennó“
segir Ragna Gunnarsdóttir, er hlaut
flest stig á stúdentsprófi í Kvennaskólanum
„MÉR hefur liðið afar vel í skól-
anum,“ sagði Ragna Gunnars-
dóttir í samtali við Mbl., en hún
hlaut flestar einingar við stúd-
entspróf í Kvennaskólanum. Hún
kvaðst hafa verið sex ár í skólan-
um, þar af þrjú ár sem grunn-
skólanemi. Hún hefur því lokið
stúdentsprófi á skömmum tíma,
auk þess sem hún er aðeins 18 ára
í dag. Ragna sagði, að hún ynni í
sumar hjá Vatnsveitu Reykjavík-
ur og færi e.t.v. seinna í sumar til
ferðaskrifstofu Úlfars Jacobsens.
í vetur mun Ragna hefja nám í
jarðfræði við Háskóla íslands, en
aðspurð kvaðst hún ætíð hafa
haft mikinn áhuga á þeim fræð-
um auk tónlistar, en hún leikur
bæði á selló og píanó.
„Dásamlegt og fór alltaf batnandi“,
— segir Jón Árnason, fyrsti karlstúdent Kvennaskólans í Reykjavík
ÞETTA var dásamlegt og fór þó
alltaf batnandi," sagði Jón Árnason
nýstúdent, er Mbl. hafði samband
vió hann og innti hann eftir verunni
í Kvennaskólanum, en Jón er fyrsti
karlstúdent skólans. Kvaðst hann
hafa verið fyrstu tvö árin á fþrótta-
braut, en síðan hafið nám á mennta-
braut. Iþróttirnar eru hans yndi og
æfir Jón blak með Þrótti jafnframt
því sem hann leikur með landslið-
inu og hefur undanfarin tvö ár farið
með því til þátttöku í Evrópukeppni
landsliða í blaki.
Jón er fæddur og uppalinn á
Kópaskeri og vinnur í sumar við
afgreiðslu áburðar og timburs hjá
Pakkhúsinu, en það er deild innan
Kaupfélagsins á Kópaskeri. En í
haust hyggst pilturinn koma aft-
ur til Reykjavíkur og dveljast vet-
urlangt. Hann sagðist vera enn
óráðinn hvað varðar framhalds-
nám og taldi ekki ólíklegt að hann
gerði hlé á námi um tíma.
Norræna húsið:
Islands-
kynningar fyrir
ferdamenn
Á VEGUM Norræna hússins verða
haldnar í sumar 10 íslandskynn-
ingar fyrir ferðafólk og verður sú
fyrsta þann 11. júní kl. 17.
Umsjón með kynningunum hef-
ur Unnur Guðjónsdóttir ballett-
meistari, en hún er búsett í Sví-
þjóð. Á kynningunum, sem eru á
sænsku, verða auk frásagna not-
aðar skyggnur og einnig syngur
Unnur íslenskar rímur. Við ís-
landskynningar klæðist Unnur ís-
lenskum skautbúningi. Einnig
verður hún með Svíþjóðarkynn-
ingar í júlí.
W
Unnur Guðjónsdóttir
Sýning í Gallerí Vesturgötu 17
í sýningarsalnum íslensk list,
Gallerí Vesturgötu 17, hefur verið
opnuð sýning 15 málara sem allir
eru félagar í Listmálarafélaginu.
Á sýningunni eru 60 verk, flest
olíuverk en einnig nokkrar vatns-
litamyndir og grafíkmyndir.
Sýningin er opin alla virka daga
frá kl. 9.00-18.00.
Kirkjudagur
á Kálfatjörn
NÆSTKOMANDI sunnudag, 12.
júní, verður árlegur kirkjudagur
Kálfatjarnarkirkju og verður þess
minnst að kirkjan á 90 ára vígslu-
afmæli, en hún var vígð 1893.
Biskup íslands, herra Pétur Sig-
urgeirsson, predikar við guðsþjón-
ustu sem hefst kl. 14.00. Formaður
sóknarnefndar, Jón Bjarnason,
flytur ávarp og kirkjukórinn syng-
ur undir stjórn Jóns Guðnasonar
organista. Að lokinni guðsþjón-
ustu verður kvenfélagið Fjólan
með kaffiveitingar í Glaðheimum
í Vogum.
Endurnýjun kirkjunnar hefur
farið fram undanfarið og er því
verki senn að ljúka og er nú hafin
söfnun fjár til kaupa á pípuorgeli.
Islenskir
fiskréttir
í FRAMHALDI af frétt á baksíðu
Mbl. á föstudag um innflutning á
dönskum fiski, frystum í neyt-
endapakkningum, skal það tekið
fram að verslunin Sæver í Reykja-
vík hefur á boðstólum um 10 teg-
undir af frystum fiski, gratineruð-
um og marineruðum, sem verslun-
in framleiðir og hefur gert í tæp
tvö ár.
Nokkur íslensk fyrirtæki fram-
leiða einnig ferskan fisk í álbox-
um, sem er tilbúinn i ofninn.
„The Gregg
Smith Singers“
með tvenna tón-
leika hér á landi
HÉR á landi er nú staddur
bandarískur kór, „The Gregg
Smith Singers“, sem undanfarið
hefur ferðast um Norðurlönd á
vegum Scandinavia Today.
I kórnum, sem er atvinnu-
mannakór, eru sextán meðlim-
ir og verða haldnir hér tvennir
tónleikar, þeir fyrri kl. 17.00 í
dag og klukkan 20.30 á þriðju-
dag. Kór Langholtskirkju tók á
móti „The Gregg Smith Sing-
ers“ og sér um tónleikana, sem
verða í Langholtskirkju.
Innan kórsins er starfandi
karlakvartett sem verður
áfram hér á landi eftir tónleik-
ana og heldur tónleikana í
Reykjavík, á Akureyri og jafn-
vel víðar um land.
Happdrætti
Sjálfstæðisflokksins
Afgreíöslan í Vaihöll. Háaleitisbraut 1,
er opimfrá kl. 9—19.00. ,
Sími 82900.
Sækjum greiðslu heim,
ef óskað er.
Vinsamlega gerið skil,
sem allra fyrst.