Morgunblaðið - 11.06.1983, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
29
Viðtal á Víkurgötu
Heimilisidnaðarfélagið 70 ára:
Vaxandi áhugi
og þátttaka
— eftir Pétur
Pétursson, þul
í stuttum texta, er fylgdi mynd
þeirri, er birtist af ungum smiðum
á tröppum Barnaskólans í Reykja-
vík, féll niður, af vangá minni,
heiti á bók Kristjáns Albertsson-
ar, er getið var í greininni. Skáld-
saga Kristjáns kom út árið 1982 og
heitir „Á meðan lífið yngist".
Fáum dögum eftir að mynd
Kristjáns og félaga hans birtist í
Morgunblaðinu var greinarhöf-
undur að fletta ritsafni því er
geymir bréf og ritgerðir Stephans
G. Stephanssonar. Þar er Kristján
Albertssonar getið og spáð um
framtíð hans. Skyggn eru skálda-
augu, má segja. Stephan G. Steph-
ansson segir í bréfi til Sigfúsar
Blöndal bókavarðar, þá er hann
rifjar upp heimsókn sína til ís-
lands, er hann fór í boði Ung-
mennafélaganna:
„í bréfi mínu inu fyrra til þín,
bað ég þig að bera kveðju mína
pilti, sem ég vissi að var þarna í
Höfn: Kristjáni Albertssyni.
Reyndar má ég heita þessum unga
manni ókunnugur, átti aðeins
nokkurra augnablika viðtal við
hann á „Víkur“-götu haustið 1917,
rétt í því hann var að stíga á skip
til Hafnar, en það settist einhvern
veginn að mér, að í honum væri
efni til listdómara, á sviði bók-
mennta að minnsta kosti, og að
hann væri þar á réttri en síður
vinsælli leið, eins og þá stóð og
stendur enn. Getur verið, að ég
hafi gripið það út í loftið, viðkynn-
ingin var svo stutt. Mér verður
vanalega hvort tveggja í senn, að
þykja vænt um og hálf-kenna I
brjósti um unglinga, sem mér
finnst þannig farið, slíka æfi sem
þeir hljóta að eiga hjá okkur ís-
lendingum, þó hlutfallslega séum
við ekki öðrum þjóðum verri í því.
Og kannske, eftir allt, eiga þeir
fleiri farsældar-stundir en fjöld-
inn, hver veit?“
Svo sem kunnugt er varð Kristj-
án einn kunnasti listdómari á
sviði bókmennta og mun hafa átt
margar „farsældarstundir" í
heimi lista.
Sé skyggnst í hugarheim skálds-
ins og bóndans kemur fram að um
þessar sömu mundir dvelst hugur
St.G.St. við íslensk málefni, virkj-
un fossa og stóriðju, jafnframt al-
þjóðamálum, afvopnun og fjár-
hagsmálum. I bréfi til Jóns frá
Sleðbrjót f janúarmánuði 1922
segir: „Ég trúi á rafmagn til heim-
ilisnota, ekki á stóriðnað á íslandi
— né reyndar neinsstaðar. Hann
verður alls staðar ofmenning og
þrælahald. Ég óska rafmagn á
hvern sveitabæ, hverjum læk að
gróðurmagna drög sín með því og
held, að þá yrði gaman að lifa. Það
var Gullbrá, sem var sök í Surtar-
loga.“
I bréfi til Baldurs Sveinssonar,
föðurbróður Bjarna Benediktsson-
ar, segir Stephan G. í febrúarmán-
uði 1922:
„Almennar fréttir get ég engar
til-tínt. Þær eru svo líkar um víða
veröld. Mannfall og munaðarleysi,
þar sem verst fer. Basl og barlóm-
ur, þar sem allt lifir þó og lafir
enn. Óáran og óánægja alls staðar,
þar sem flestir renna blint, og
sinn í hvern sjó, hversu við verði
gert. En aldrei hefir almenningur
hugsað út í heiminum slíkt sem
nú. Það er eina morgunstjarnan.
Sjálfur trúi ég á ekkert minna en
gagngerða umsteypu í viðskiptum
mannanna — byltingu, ef ekki
fæst með betra móti. Verði ég til
ráða kvaddur hlífist ég þó við
henni. Bara afnema allan hernað
og hans (ó)gögn, þvf meðan hann
er til, ræður alþýðu-skynsemin
éngu. — Strika yfir allar stríðs-
skuldir, gamlar og nýjar. Alþýður
heimsins geta aldrei unnið þær af
sér, og af handafli þeirra eru þær
teknar. — ógildi alla banka og
peningabrask, sný þvf í þjóðeign.
Það er iánstraustið á framleiðslu-
von hverrar þjóðar, sem bankar og
þessh. velta á. Einstaklingum gef-
in sú allra-eign, til gróða. Margt
annað myndi ég láta á eftir fylgja!
Þér mun þykja ég eirrauðari en
„í-rauður“, en ég verð að láta þig
vita, hve heimskur ég er, og það
þér til leiðinda."
Enn í dag eru skoðanir skiptar
um mál þau er Stephan G. Steph-
ansson rökræddi í bréfum til vina
sinna. Orð hans eiga erindi og
halda gildi sínu.
Pétur Pétursson, þulur.
HeimilisiAnaðarfélag íslands var
stofnaA 1913 og er því 70 ára á þessu
ári. í tilefni afmælisins hyggst stjórn
félagsins kynna starfsemi þess meA
ýmsu móti í haust og fyrri part vetr-
ar. FyrirhugaA er aA koma fyrir far-
andsýningu meA íslenzkum heimilis-
iAnaAi, sem sýnd verAur á nokkrum
stöAum á landinu . Einnig er fyrir-
huguA samkeppni um jólavarning og
fleira er í athugun.
Aðalfundur félagsins var 9. maí
sl. á Rauðarárstíg 18 í Reykjavík. I
skýrslu stjórnar kom fram að fé-
lagatala hefur aukist á árinu og
áhugi á heimilisiðnaði fer vax-
andi. Helstu liðir í samstarfi HÍ
eru:
1. Ársritið Hugur og hönd kom út
í 17. sinn á árinu 1982. Upplagið
er 6.500 eintök og birtar ýmis-
konar uppskriftir og vandaðar
greinar.
2. Heimilisiðnaðarskólinn er rek-
inn að Laufásvegi 2 með styttri
og lengri námskeiðum í ýmsum
handmenntagreinum. Sóttu á
sl. skólaári um 500 nemendur
skólann á 60 námskeiðum.
3. Þá rekur félagið verzlunina ís-
lenzkur heimilisiðnaður í Hafn-
arstræti 3 og hefur á boðstólum
fjölbreytt úrval af ullarvörum,
heimilis- og listiðnaði og eykst
framboðið með hverju ári. Auk
þess er þar að fá útsaumsefni
og ýmiskonar efni og áhöld til
heimilisiðnaðar.
4. Félagið tekur þátt í samstarfi
norrænu heimilisiðnaðarsam-
takanna. Norrænt heimiliþing
verður í sumar, en þau eru
þriðja hvert ár.
Stjórn félagsins skipa nú: Jak-
obína Guðmundsdóttir, formaður,
Ragna Þórhallsdóttir, varafor-
maður, Soffía Jónsdóttir, gjald-
keri, Guðbjörg Hannesdóttir, rit-
ari, og meðstjórnendur Ingibjörg
Sigurðardóttir, Kristín Jónasdótt-
ir og Stefán Örn Stefánsson, en í
varastjórn Ester Helgadóttir,
Borghildur Jósúadóttir og Bryndís
Þorsteinsdóttir.
9} 19
á helgartílboói
Selium um helgina nnikið
magnafgarðrösumogfiolœr;
um plöntum með 20 /o atsiæm.
Yfir 40tegundir af
garðrósum og yfir 50 tegundir
affjölærum plöntum.
Falleg blóm gleðja alla.
Gróðurhústnu viö Sigtún, símar: 36770-86340
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Tökum aö okkur alls
konar viögeröir og
nýbyggingar
Skiptum um glugga, hurðir, setj-
um upp sóibekki, viögeröir á
skólp og hitalögn, alhliöa viö-
geröir á bööum og flísalögnum,
vanir menn. Uppl. í sima 72273
og 46050.
Málningarvinna —
sprunguviögeröir
Tökum aö okkur alla máln-
ingarvinnu, úti og inni. Einnig
sprunguviögeröir. Gerum föst
tilboö ef óskaö er. Aðeins fag-
menn vinna verkin. Uppl. í sima
84924 eftir kl. 19.00.
Takiö eftirl
Honeybee Pollen S. blómafrævl-
ar, hin fullkomna fæöa. Sölu-
staöur Eikjuvogur 26, sími
34206. Kem á vinnustaöi ef
óskaö er.
Siguröur Ólafsson.
Krossinn
Arsfundur safnaöarins veröur í
dag, laugardag kl. 16.00 aö Alf-
hólsvegi 32, Kópavogi. Almenn
samkoma veröur i kvöld kl.
20.30.
ÚTIVISTARFERÐIR
Útivistarferöir
Sunnud. 12. júní. Útiviatardagur
fjölskyldunnar:
a. Kl. 8.00 Oórsmörk. Verö 400
kr. og frítt f. börn.
b. Kl. 10.30 Þríhnúkar — Gjáa-
rélt — Pylsuveisla. Þrihnuka-
gigurinn skoöaöur (120 m). Verö
200 kr.
c. Kl. 13 Búrtellsgjá — Gjáarátt
— Pylsuveisla. Lótt ganga f. alla
fjölskylduna. Krakkar taklö
pabba og mömmu meö. Þaö
veröur sungiö og fariö i leiki.
Verö 150 kr. (pylsugjald innifal-
iö). Fritt f. börn m. fullorönum.
Brottför frá BSl, bensínsölu. Sjá-
umst. Simsvari 14606.
Helgin 16.—19. júnf.
a. Skaftafell — Oræfi: Tjaldgist-
ing. Gönguferöir. Fararstj. Ingi-
björg S. Ásgeirsdóttir.
b. Óræfajökull — Skaftafell:
Fararstj Reynir Sigurösson. ör-
fá sæti laus.
c. Þórsmörk: Gist í Utivistarskal-
anum. Gönguferöir.
Sumarleyfisferö: Jónsmessa viö
Djúp. Fuglaparadisin Æöey o.fl.
23.-26. júní. Uppl. og fars. á
skrifst. Lækjarg. 6a, s. 14606.
handmenntaskölinn
91 - 2 76 44
, f«« KTWWIWGAIIWIT SKðlMIS SEkT HUM |
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferöir sunnudag-
inn 12. júní:
1. Kl. 09.00. Hafnarljall (844 m)
— Hróartindur. Fararstjóri:
Hjalti Kristgeirsson.
2. Kl. 09.00 Skarösheiðarveg-
ur Gengiö frá Skorradal yfir i
Svinadal gamla þjóölelö. Far-
arstjóri: Eirikur Þormóösson.
Verö kr. 400.
3. Kl. 13.00. Undirhlíðar í
Reykjanesfólkvangi. Farar-
stjóri: Baldur Sveinsson
Verö kr. 150.
Fariö frá Umferöarmiöstööinni,
austanmegin Farmiöar viö bíl.
Fritt fyrir börn i tylgd fulloröinna.
Miövikudaginn 15. júní ki. 20.00
er siðasta skógræktarferöin í
Heiömörk nú i sumar. Fritt fyrir
þátttakendur.
Ferðafélag Islands.
$§.. Hjalpræðis-
V, Kirkjustræti 2
^í£*4f 8?^
2/
I kvöld kl. 23.00 miðnætursam-
koma. Unglingar frá Akureyri
taka þátt.
Sunnudagur 12. júni.
Vinnudagur í Valabóli
Upplysingar á skrifstofunni,
Laufásveg 41, simi 24950.