Morgunblaðið - 11.06.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNf 1983
31
„Jaftimargir áhorfendur
á einni leið og á heilum
knattspyrnulandsleik“
einbeitt okkur betur að rallinu
sem slíku," sagði Hafsteinn.
Trufluðu allir þessir áhorfendur
ykkur ekki við aksturinn?
„Nei,“ svaraði Hafsteinn. „Þrátt
fyrir allan fjöldann truflaði það
okkur ekki, nema helst á nóttunni
þegar kannski hundruð manna
voru með myndavélar á lofti og
flassblossar skiptu hundruðum."
„Þetta var eins og á gamlárs-
kvöld," sagði Birgir hlæjandi.
„Manni leið eins og Flash Gord-
on,“ bætti Hafsteinn við kíminn
og þeir félagar skelltu síðan upp-
úr. „Við erum heldur ekki vanir
svona hér heima, ekki í svona
miklum mæli.“ (Hérlendis eru
kannski 3—4 hugaðir menn sem
leggja út í það að fylgjast með
raílkeppni á næturnar skjálfandi
á beinunum í kuldanum, en næt-
urröll eru einungis hérlendis á
haustin.) „Það var rosalegt að sjá
hve mikið er lagt upp úr upplýs-
ingastarfseminni í röllum erlend-
is. Þegar komið var í mark sérleið-
anna í Mintex-rallinu gat maður
séð hvaða tíma keppendur, sem á
undan voru höfðu á leiðinni. Var
það skrifað á tölfu í lok leiðanna.
Á hálftíma — kiukkutíma fresti
var okkur síðan tilkynnt hvar við
vorum í röðinni. Maður gat því al-
veg hagað akstrinum eftir því
hvar við vorum staddir, og þurfti
ekki að spenna sig upp að óþörfu
við að ná einhverjum, sem við átt-
um kannski ekki möguleika á að
ná,“ sagði Hafsteinn.
„Lítið samneyti milli
toppökumannanna“
Ilvernig er mórallinn meðal kepp-
enda í svona keppni, þar sem
atvinnumenn skipa efstu sætin?
„Það er ekki mikið samneyti
milli ökumanna á toppnum," sagði
Hafsteinn." „Menn bíða bara í bíl-
unum sínum á milli leiða, það er
ekki eins og hér heima þar sem
allir eru að spjalla við alla. Þetta
er bara þáttur af keppninni þarna
úti og maður finnur hve mórallinn
hér heima er léttur. Þetta er bara
hluti af atvinnumennskunni, en
aðstoðarökumennirnir í toppbar-
áttunni spyrja hvorn annan hins
vegar alltaf um tíma hvors annars
milli leiða,“ sagði Birgir.
Nú töluðuð þið um það eftir
Mintex-rallið hversu líkamlega erfið
„Blessaður láttu fólk ekki halda að þetta sé undirhúningur fyrir Skoska
rallið,** sagði Hafsteinn Hauksson hlæjandi þegar hann og félagi hans, Birgir
Viðar Halldórsson, voru myndaðir í aksturspili í Júnó-bar. Sló Hafsteinn
Ljósm. Mbl. Gunnlau£ur R.
reyndar met í spilinu stuttu áður.
spjallað við
Hafstein og
Birgi um
Skoska
alþjóðarallið
RALLY
þekkti, Martin Holmes, um að þið
hefðuð ekið mikið „sideways“, þ.e.
ekið mikið á hliðarskriði í Mintex.
„Ég ók mikið „sideways" í byrj-
un, en það má segja að aðstæðurn-
ar hafi ekki boðið upp á það. Undir
lokin var ég farinn að aka bílnum
öðruvísi vegna hálkunnar, en í
Skoska rallinu tel ég notadrýgra
að aka „sideways" og aksturstíll
minn er þannig, að ég nota breidd
vegarins eins vel og hugsast get-
ur,„ sagði Hafsteinn.
Ræður þú alveg við öll 240 hest-
öflin í Escortinum?
„Ég ræð náttúrulega ekki við
þau við hvaða aðstæður sem er, en
maður verður að finna hjá sjálfum
sér hvað maður ræður við mikið af
þeim. Við vissar aðstæður ræð ég
kannski við öll hestöflin og nota
allt sem bíllinn býður uppá. Við
aðrar aðstæður beiti ég kannski
bílnum ekki eins og hann bíður
uppá. En ég þekki bílinn a.m.k.
betur núna en fyrir Mintex-rall-
ið,“ sagði Hafsteinn og skenkti sér
kaffi í bolla hugsi.
„Þetta rall ræóur úrslitum um hve
mikla áherslu við leggjum á að
keppa crlendis í framtíðinni," sögðu
félagarnir Hafsteinn Hauksson og
Birgir Viðar Halldórsson m.a. í sam-
tali við Morgunblaöið um þátttöku
þeirra á Ford Escort RS 2.000 í rall-
keppni í Skotlandi, sem fram fer
dagana 11.—14. júní nk. Þá fer fram
svonefnt Arnold Clark Scottish
International Rally, sem er liður í
Bretlandseyjakeppninni í rallakstri
svo og Evrópukeppninni.
Þeir Hafsteinn og Birgir hafa
þegar tekið þátt í einni alþjóðlegri
keppni á Bretlandseyjum. óku
þeir Ford Escort RS 2.000 í
Mintex-rallinu í mars og luku
keppni í 25. sæti við erfiðar að-
stæður, en 79 bílar hófu keppni
þar. í Skoska rallinu verða 74
keppendur frá 11 þjóðlöndum.
Þeir þurfa að leggja að baki 1.650
km, þar af 435 km á 50 sérleiðum
áður en í endamark kemur. Margir
bestu rallökumenn heims munu
verða meðal keppenda, þeirra á
meðal Stig Blomqvist og Björn
Cederberg á Audi Quattro, sem
sigruðu örugglega í Mintex-rall-
inu. Fjórhjóladrifinn Quattro
þeirra mun örugglega henta að-
stæðum í skoska rallinu vel, leið-
irnar eru margar hverjar fremur
grófar og aðrar sem oft verða hál-
ar í rigningaveðrum hálendisins í
Skotlandi. Oft hefur aðstæðum í
rallinu verið líkt við það sem ís-
lendingar eiga að venjast hér
heima. Kemur það vonandi þeim
Hafsteini og Birgi til góða, en við
skulum snúa okkur að þeim félög-
um, sem eru að borða heitar góm-
sætar samlokur á heimili Birgis
ásamt blaðamanni, sem kona
hans, Steinunn Sæmundsdóttir
fyrrum skíðadrottning, bar fram.
Viðtalið fer fram stuttu eftir mið-
nætti á hvítasunnu en vegna anna
hjá þeim félögum var þetta eini
hugsanlegi tíminn til viðtals!
„Tugir þúsunda
af áhorfendum“
Áður en við snúum okkur að
Skoska rallinu langar mig að spyrja
hvernig tilfinning það er að keppa á
erlendum vettvangi í fyrsta skipti,
eins og þið gerðuð í Mintex-rallinu.
„Það er vissulega allt önnur til-
finning að aka í rallkeppni í Eng-
landi en hér heima. Áhuginn á
ralli er vægast sagt gígantískur,"
sagði Hafsteinn. „Á einni sérleið
eru kannski samankomnir jafn-
margir áhorfendur og á heilum
knattspymulandsleik hér heima!
Okkur fannst við vera þátttakend-
ur í einhverju meira og mikilvæg-
ara en í keppni heima.“ Birgir
bætti um betur. „Áhorfendur
leggja líka mikið á sig til að fylgj-
ast með.
Þeir labba allt að 4—6 km inn á
leiðirnar til að finna góðan stað til
að fylgjast með. Þetta gera þeir
alla keppnina og sjá fjölmargar
leiðir." Það má bæta því hér við að
í þekktu ralli í Englandi í fyrra
mættu yfir 70.000 manns á eina
sérleiðina, sem var á kappaksturs-
braut. Sýnir þetta best áhugann á
þessari íþrótt í Englandi. „Það var
töluverð spenna í okkur í byrjun,
en eftir fyrstu leiðirnar var þetta
orðið gott,“ sagði Birgir. „Við vor-
um úti í átján daga fyrir og í
kringum Intex-rallið og má segja
að keppnisdagarnir tveir hafi ver-
ið rólegastir! Við lærðum það mik-
ið að nú þurfum við ekki að eyða
nema viku út í Skotlandi í kring-
um Skoska rallið. Við getum því
keppnin var. Eruð þið betur undir
Skoska rallið búnir?
„Við erum engir kyrrsetumenn
... erum í rauninni betur undir
þetta rall búnir andlega og líkam-
lega. Það var miklu meiri pressa á
okkur fyrir Mintex-rallið og við
förum með allt öðru hugarfari
núna og jafnframt afslappaðri,“
sagði Birgir. „Bíllinn er klár og
allt í standi og við getum einbeitt
okkur betur að akstrinum,“ bætti
Hafsteinn inní, en þeir félagar
kváðust stunda léttar æfingar
fyrir keppnina.
Getið þið skoðað eitthvað af leið-
unum fyrir keppni?
„Það verður eitthvað takmark-
að, helst að við lítum á leiðina út-
úr Glasgow, þar sem rallið hefst
og á fyrstu leiðirnar," sagði Birgir
og Hafsteinn kvað sérleiðirnar all-
ar inn á einkalöndum, þannig að
ekki væri hægt að skoða þær. „Við
vitum að vegirnir úti eru leir-
kenndari en hér heima. Okkur hef-
ur verið sagt að sumar leiðirnar
verði blautar og munu þær því
grafast mjög fljótt."
Nú talaði enski blaðamaöurinn
„Hámarkshraöinn 200
km á klukkustund“
Birgir kvað þá, sem dæmi, ekki
hafa sett bílinn í fimmta gír nema
4—5 sinnum í Mintex-rallinu, en
hægt hefði verið að aka bílnum á
urrandi siglingu í botni á sumum
köflum, eins og Birgir orðaði það,
en þeir sáu ekki nægilega vel í
þungri þokunni, sem var mest allt
rallið. Hámarkshraði bíls þeirra í
Skoska rallinu verður um 200
km/klst. og veitir ekki af þ\ í, n.eð-
alhraðinn er um 129 km/klst., þó
rallið sé gróft á köflum!
Hve hátt setjið þið markið í
Skoska rallinu?
„Ef óheppni eltir okkur ekki í
rallinu eins og í Mintex þá gerum
við okkur vonir um að verða ekki
neðar en í fimmtánda sæti, en að
vísu erum við að fara í sterkari
keppni en síðast," svaraði Haf-
steinn og Birgir tók við. „Við setj-
um okkur að ná meiri hraða en
síðast og teljum okkur alveg hafa
möguleika á því. Við ætlum að
reyna að ná góðum timum inn á
milli, en reyna að aka þétt og ör-
ugglega út keppnina. Við komum
til með að leggja mun meira á
okkur og bílinn í þessu ralli en
nokkurn tíma áður, margfalt
meira!“ Hafsteinn komst nú að og
sagði: “Það sem við náðum ekki í
Mintex var að ná toppakstri, nema
á örfáum leiðum, en þá bárum við
okkar tíma saman við tíma for-
ystu bílanna. í Skoska rallinu von-
ast ég til að við finnum okkur vel,
og ég komist í stuð, þó það verði
ekki alla keppnina. Þá sjáum við
hvar við stöndum í samanburði
við hina ökumennina. Við fengum
í rauninni aldrei almennilegt
tækifæri til þess síðast, allar að-
stæður og bilun bílsins gerði
okkur svo erfitt fyrir. Þrátt fyrir
erfiðleikana náðum við sex sinn-
um topp fimmtán tímum og tíu
sinnum náðum við betri tíma en
Finninn Harri Uotila, sem varð í
sjötta sæti. Við bárum okkur sam-
an við hann, því hann var nálægt
okkur í rásröðinni."
Talandi um rásröð þá verðið þið
númer tólf í rásröð í Skoska rallinu.
Fyrir framan verður John Haugland
á Skoda 120 L£, en fyrir aftan full-
veðja Audi Quattro 80, Andrew Cow-
an. Er ekki óþægilegt að vita af Cow-
an fyrir aftan?
„Þetta verður til þess að maður
stillir baksýnisspegilinn betur,"
svaraði Hafsteinn brosandi.
„Markmiðið er að ná frammúr
Skoda Hauglands áður en Qu-
attroinn kemst framúr okkur,“
bætir Hafsteinn við og hlær.
„Hann fer ekkert frammúr okkur
nema á lengri leiðunum," segir
Birgir ákveðinn á svip.
Kemur það ekki til með að vekja
athygli að þið eruð frá íslandi eins
og gerðist í Mintex-rallinu?
„Ætli við vekjum vekjum ekki
meiri athygli í Skotlandi. Það eru
meiri tengsl milli Skotlands og ís-
lands, m.a. vegna velgengni
Búbba, Jóhannesar Eðvaldssonar í
knattspyrnunni þar,“ kvað Birgir,
en Hafsteinn sagði að það hefði
verið áberandi, að í Mintex-rallinu
hefði áhorfendur margir hverjir
greinilega verið búnir að lesa
eitthvað um þá í fjölmiðlum. „Það
gerir líka sitt að við höfum lágt
rásnúmer," sagði Hafsteinn,
„fyrstu tíu til tuttugu bílarnir
vekja mesta eftirtekt.
„Það er múr á milli
atvinmi- og
áhugaökumanna.“
Skiptir árangurinn í Skoska rall-
inu miklu fyrir ykkur í sambandi við
framtíðarplön tengd rallakstri?
„Þetta rall ræður úrslitum um
hvað mikla áherslu við leggjum á
að keppa úti í framtíðinni," sagði
Birgir. „Það að keppa á erlendum
vettvangi er í rauninni mun auð-
veldara en margur héldur. Það er
mikið um að menn séu að gera
sömu skyssurnar keppni eftir
keppni hér heima og væri rr.örgum
ráðlegt að skoða hvernig erlendir
rallökumenn aka og haga öllurn
sínum málum. En í sambanði við
að ná framarlega í Skoska rallinu
og öðrum álíka, þá er best að nota
orð eins vinar okkar hjá Malcolm
Wilson Motorsport. Hann segir:
Það getur enginn unnið verk-
smiðjurallbíl, ef hann er áhuga-
maður. Það er nánast múr á milli
atvinnuökumanna og áhuga-
manna," sagði Hafsteinn að lok-
um, en lokaorð Birgis voru þessi:
„Það er með rall eins og aðrar
íþróttir, reynslan vegur þungt á
metunum og við erum rétt að
byrja.“
— GR.