Morgunblaðið - 11.06.1983, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNf 1983
Að
hafa
lúmskt
gaman
af
Hljóm-
plotur
Sigurður Sverrisson
Big Nós Band
Tvöfalt siðgædi.
Gallerí Austurstræti
Sannast sagna gerði ég mér
ekki miklar vonir um merki-
lega plötu þegar ég fékk Tvö-
falt siðgæði Big Nós Bandsins í
hendurnar. Reyndar hafði ekk-
ert til sveitarinnar heyrst frá
því á Melarokki í fyrrasumar
og endurminningin um þá
uppákomu var býsna langlíf
þótt sjálf frammistaða sveit-
arinnar gæfi ekki tilefni til
slíks. Tvöfalt siðgæði er hins
vegar um margt skondin plata,
þótt sumt hefði betur mátt
fara.
Ótvíræður styrkur hennar
liggur í því hversu „hrá“ hún
er og þá um leið óvenjuleg í
flesta staði. „Sándið" er stund-
um dálítið tómlegt, en blessun-
arlega laust við alla ofhleðslu.
Hljóðfæraleikur er yfirleitt
með ágætum og skringilegur
söngur Péturs Stefánssonar,
höfuðpaursins, gefur yfir-
bragðinu sérstakan blæ.
Margar hjálparhendur koma
við sögu við gerð þessarar
plötu. Hljóðfæraleikur er í
höndum valinkunnra mannaá
borð við Sigurð Karlsson,
Björgvin Gíslason og Tryggva
Hubner. Pétur Hjaltested
stýrir upptöku og ferst það vel
úr hendi. Auk þessara syngur
Aðalheiður (ég man ekki hvers
dóttir) í tveimur lögum, misvel
þó, og Ella Magg, sem lagði
miðborgina að fótum sér með
„one-off“-tónleikum á Borg-
inni fyrir tveimur árum, legg-
ur til áhrifaríkar stunur í einu
lagi og aggressíva röddun í
öðru. Ekki má gleyma Stefáni í
Möðrudal, sem leggur til tón-
stigann í einu laga plötunnar.
Lögin á Tvöföldu siðgæði
flokkast flest hver undir
hreint og klárt rokk. Af og til
örlar á reggae-töktum eins og í
laginu Get ekki hætt. Það er
annars nokkuð þreytandi lag,
sem og lokalag plötunnar. Það
hefði alveg mátt missa sig og
reyndar lokalag fyrri hliðar-
innar líka, ef lag skyldi kalla.
En það eru bjartar hliðar á
þessari plötu líka, mikil ósköp,
og það miklu meira áberandi
en hinar. Mörg laganna eru
býsna glúrin en eiga vart
möguleika í vinsældaþáttum
útvarpsins sakir framsetn-
ingarinnar, þau eru ekki nógu
hefluð til að fá náð fyrir eyr-
um hins almenna hlustanda.
Sem dæmi um lipur lög má
nefna Gribbu, Fullnægðu mér,
Steindór og þrjú lög sem eru
snyrtilega tengd saman í eitt;
Rythmann blús, íslenskt lag
og Stop. Sérstaklega er vert að
veita nettum bassatrommu-
áslætti athygli í íslensku lagi.
Annars er dæmi um skemmti-
lega notkun óvenjulegs hljóð-
færis í rokktónlist að finna í
laginu Mér er sama séu menn
spenntir fyrir slíkum pæling-
um. Þar kreistir einhver Addi
J. hljóma úr sellói og gerir það
laglega.
Sumir textanna á Tvöföldu
siðgæði eru nokkuð góðir og
hafa eitthvað að segja. Stund-
um vantar þó á rökrétt sam-
hengi á milli einstaktra hluta
textanna, en hver segir að slíkt
sé endilega forsenda söng-
texta?
Tvöfalt siðgæði er á engan
hátt tímamótaplata í íslenskri
popptónlist. Hún er heldur
ekki plata, sem selst í stórum
upplögum. Hún fær væntan-
lega heldur ekki ýkja mikla
spilun í útvarpi. Ég hef samt
lúmskt gaman af henni.
Ahættan mikla
Kvíkmyndír
ÓlafurM. Jóhannesson
ÁHÆTTAN mikla
Nafn á frummáli: High Risk.
Handrit: Stewart Kaffill.
Stjórnun: Stewart Raffill.
Yfirframleiðslustjórn: John Daly.
Sýnd í Bíóhöllinni.
„James Brolin er einn af lag-
legustu og karlmannlegustu leik-
urum sem við sjáum á hvíta
tjaldinu í dag, og sómir hann sér
vel í hlutverki sínu sem Stone í
hinni spennandi og ævintýraríku
mynd „High Risk“. Þannig hefst
kynningarpistill prógramms
Bíóhallarinnar er gerir stuttlega
grein fyrir framangreindri
kvikmynd, efnisþráði og aðal-
leikara. Ég hefi oft gaman af að
líta yfir þessa pistla frá Bíóhöll-
inni og sakna þess satt að segja
hve upplýsingamiðlun sumra
bíóhúsanna er af skornum
skammti. Af hverju ekki að gefa
út vönduð litprentuð prógrömm
— svipað og Háskólabíó gerði á
sínum tíma — þar sem stuttlega
er gerð grein fyrir væntanlegum
bíómyndum.
Við kvikmyndagagnrýnendur
reynum oftast að miðla smá
upplýsingum í umsögnum en eðli
starfs okkar vegna er okkur nú
frekar ætlað að fella dóma en
upplýsa söguþráð eða lýsa í smá-
atriðum tæknilegri útfærslu.
Prógrammþyrstum bíóáhuga-
mönnum til huggunnar get ég þó
upplýst að upplýsingastreymi á
þessu sviði á eftir að aukast hér
í blaðinu. Blaðamennska gerist
nú sérhæfðari og fylgir þar í
fótspor annarra atvinnugreina.
Er ekki nema gott eitt um það að
segja. Breyttir tímar krefjast
nýrra verkhátta. Menn grípa
ekki lengur í bílaviðgerðir útí
bílskúr heldur renna bílnum
gegnum tölvu sem á augabragði
sér í hvernig ástandi hið flókna
gangvirki er.
En nóg um það, myndin „High
Risk“ sem svo skemmtilega er
kynnt í prógrammi Bíóhallar-
innar gæti flokkast sem B-mynd.
í tölvuveröld samtímans þýðir
þetta að hún telst ekki fréttnæm
en gæti samt sem áður skilað
framleiðendum dálaglegum
skildingi. Þar er nefnilega ekki
aðeins að finna hinn snoppufríða
James Brolin. Hinni öldnu hetju
Ernest Borgnine bregður fyrir
andartak er hann selur dóp fé-
lögunum fjórum sem James
Brolin leiðir að aðsetri dópsal-
ans mikla Serrano í Colombiu í
þeim tilgangi að ræna þar fé.
Sjálfur James Coburn leikur
James Brolin sem lýst er svo fng-
urlega í prógramminu.
Serrane dópsala. Verð ég að
segja að bleik er brugðið. Coburn
hefur ætíð staðið fyrir hugskots-
sjónum mínum sem einn allra
hressilegasti leikari sem um get-
ur á hvíta tjaldinu. í þessari
mynd er hann líkastur uppgjafa
hóru sem hefir verið púðruð í
bak og fyrir í þeim tilgangi að
vekja upp glataðan æskuþokka.
Anthony Quinn er hins vegar að
mestu ótilhafður í myndinni
enda sómir hann sér prýðilega
sem gigtveikt gamalmenni í
hlutverki Mariano skæruliðafor-
ingja. Það er ósköp eðlilegt að
leikarar eldist og veljist í ný
hlutverk eftir því sem tíminn
líður. Hitt er sorglegra en tárum
Gullkletturinn molnar
Gullkletturinn molnar
Nafn á frummáli: Rocky III.
Handrit og stjórn: Sylvester Stallone.
Músik: Bill Conti
Kvikmyndastjórn: Bill (’onti.
Bardagaatriði: Ron Stein og Howard
Jensen.
Sýningarstaður: Tónahíó.
ÉG MAN VEL þegar ég gekk út
að lokinni sýningu á Rocky I að
mér fannst heimurinn baðaður í
björtu ljósi. Slík áhrif hafði sigur
hins góða yfir hinu illa á sálarlífið.
Boxarinn Rocky Balboa (Sylvester
Stallone) hafði nefnilega barist
með kyndilinn á lofti upp á topp-
inn. Sama tilfinning greip mig
einnigað lokinni sýningu Rocky III
— en sú mynd fyllir þessa dagana
sýningartjald Tónabíós. Mér
fannst eins og ég hefði tekið þátt I
að bera kyndilinn með Rocky upp á
tindinn i þriðja sinn. Mér fannst ég
standa í hringnum yfir illmenninu
Apollo Creed sem fulltrúi hins
góða í veröldinni. Þetta fannst mér
— þó að Rocky Balboa sé í raun
ekkert annað en framleiðsluvara
menningar sem nærist á ofbeldi.
Það hvarflaði ekki að mér fyrr en
að lokinni sýningu myndarinnar að
hetjan sé raunar ófær um annað en
barsmíðar, að þess á milli dvelur
hún í bleiklitu plastmusteri eða
bíður út um borg og bí í límúsfnum
sem undirsátar stýra. Samt hefði
ég ekki getað svarið fyrir að ég
stykki ekki inn í hringinn og berð-
ist gegn fátæka svertingjanum Ap-
ollo Creed við hlið gullkálfsins
Rocky Balboa.
Svo segja menn að kvikmyndir
skipti ekki máli í veröldinni. Eg tel
að þær móti lífssýn nútímamanns-
ins að meira og minna leyti. En
þær gera meira, því þær móta
einnig persónuleika unglingsins og
setja honum markmið að keppa að.
Auðvitað vonar maður að sú menn-
ingarheild sem umlykur mann sé
þeirrar gerðar að þar þrífist
mannskepnan best. En hvað þá um
þær menningarheildir sem næra
menn á gerólíku menningarefni,
annarskonar kvikmyndum. Ég
man eftir að ég sá eitt sinn rússn-
eska mynd sem fjallaði um sama
efni og Rocky I—III. Mér leið
Fulltrúi hins góða í veröldinni?
SKÁLHOLTSSKÓLI
Hringdu í síma
91-15015
og fáðu upplýsingar
um skólann.
:1BR
iimiiiiiinn
TáÆTl — 11 T »■ iJUj j ,
,
ÉSfe&i
Umsóknarfrestur
um skólavist
er til 10. júní.
ALMENNT KJARNANÁM
I i
LEIÐTOGABRAUT Haust/vorönn MYNDMENNTABRAUT Haust/voröon
Langt
frá sínu
besta
Hljóm-
plotur
Siguröur Sverrisson.
I»eyr
The Walk/Positive Affirmal-
ions/Lunaire
Gramm
Eftir þögn frá því snemma
fyrir jól, er platan Fourth Reich
kom út, hefur verið hljótt um
Þeysara. Þeir rjúfa nú þögnina
með þriggja laga smáskífu með
ofangreindum lögum.
Þótt hér sé um verulegt aft-
urhvarf að ræða frá Fourth
Reich, enda lögin tekin upp fyrir
meira en ári, er þetta á allan
hátt áheyrilegra efni en þar var
að finna.
Tvö fyrsttöldu lögin eru bæði