Morgunblaðið - 11.06.1983, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
fólk í
fréttum
Ástralskt
sveitalíf
Þessi stúlka er áströlsk, 21
árs gömul, heitir Sylvia og er
frá Sydney. Hn er sem sagt
borgarbarn en lætur sig ekki
muna um aö taka til hendinni
viö heyskapinn þegar mikiö
liggur viö. Ástralski bóndinn
þarf raunar ekki aö spá í kvöld-
roðann til aö vita hvernig veör-
iö verður aö morgni og jafnvíst
aö hann hafi haft hugann viö
eitthvaö annað þegar hann var
aö binda baggana meö henni
Sylviu.
Óvanalegt uppeldi
Þær sjást ekki oft saman mæögurnar, þær Shirley MacLaine og fóst-
urdóttir hennar Sachito, en þrátt fyrir þaö er mjög kært meö þeim.
Sachito er raunar japönsk aö þjóðerni og þýöir nafniö hennar „hamingju-
samt barn“.
Þessi mynd var tekin af þeim þegar Shirley var viöstödd frumsýningu á
leikriti í Beverley Hills en þar fór Sachito meö stórt hlutverk og þótti
standa sig vel.
Shirley ól dóttur sína upp á fremur óvanalegan hátt og er þaö rakið til
þess, aö sjálf var hún ofvernduð sem barn og mátti aldrei fara úr augsýn
foreldra sinna. Hún hefur fariö alveg öfugt aö meö Sachito. „Leiktu þér
bara þar sem umferðin er hættulegust, væna min,“ á hún aö hafa sagt viö
Sachito þegar hún var lítil.
+ Kvikmyndaleikstjórinn Rom-
an Polanski, sem flúöi frá
Bandaríkjunum fyrir nokkrum
árum til að lenda ekki í fangelsi
fyrir nauögun, situr nú í Sviss
og skrifar þar endurminningar
sínar. Aö sjálfsögöu fjallar hann
mikiö um nauðgunarmáliö og
segist hann vona, aö útskýr-
ingar sínar á því veröi til þess,
aö þaö veröi látiö niöur falla og
hann geti aftur snúiö til Banda-
ríkjanna.
COSPER
<£»pib
r» "'ln
h "nh n
O r, *> f
o
no n
O nno ** O n o
r. A r> A O A
----Ertu viss um að þetta sé leiðin til Akraness?
22. JÚNl
Ætlarðu í sumarfrí?
Ef svo er þá er 3ja vikna
ferðin til Benidorm 22. júní
ódýrasti kosturinn. - Hreint
ótrúlega lágt verð.
Mjög góð gisting - Sértilboð
á Don Miguel II
50XBARNA
AFSlATTUR
Meöalverð fyrir hjón meö 2
börn kr. 13.875 per. mann.
TAKMARKAÐ FRAMBOÐ
KYNNIÐ YKKUR
GREIDSLUKJÖRIN
u FERÐA
ISIMIÐSTOÐIN
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
SPUNNIÐ UM STALÍN
eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN
50
etta er orðinn langur draumur. Hroðaleg martröð.
Höfuðið á Yuri Andropov er komið á dauðan bol
Stalíns undir lok martraðarinnar. Það svipast um,
skelfingu lostið. Hann vill ekki að höfuð hans sé fast á
digrum svíra Stalíns. Það gæti vakið grunsemdir. Óþarfa
tortryggni. Hnýsni. Þetta er svo sannarlega enginn fugls-
háls, eins og ósip Mandelstam segir í Ijóði sínu, frægu.
Honum líður illa. Þeir eru að koma með Brézhnev
dauðan og setja kistu hans á milli Lenins, Kíroffs og
Stalíns. Kamenev og Zínoviev ganga á eftir kistunni, en
Yagoda kemur í humátt á eftir. Hann er glaðklakkalegur,
eins og hann hafi fengið sakaruppgjöf. Þá kemur Yuri
Andropov og stillir sér upp við hliðina á Yezhov og Bería.
Hann gnæfir yfir þá. Síðan Molotov og Rippentrop. Og
Stalín í humátt á eftir þeim með djöfullegu glotti, svo að
skeggið lyftist, eins og á frægri mynd, sem tekin var 24.
ágúst 1939.
Bería og Andropov eru píreygir undir þykkum gleraug-
unum. Andropov horfist í augu við sjálfan sig í andliti
Stalíns. Þá breytasl gul augun í tvo ginvíða úlfa. sem
stökkva á hann. Hann vaknar með andfælum. Og þegar
hann vaknar, er hann að strjúka yfirskeggið. En það er
ekkert skegg.
Nýkominn úr óvæntu ferðalagi til Eyjaklasans þurrkar
Andropov af sér svitann. Kallar á öryggisvörð. Öryggis-
vörðurinn kemur inn, andlit Trotskys. Andropov hrekkur
við. Spyr hvað klukkan sé. En vörðurinn tekur upp ævi-
sögu Stalíns, les: Hefnd sögunnar er grimmilegri en
hcfnd nokkurs einræðisherra. Síðustu orð Trotskys, áður
en blóð hans drýpur á handritið að bókinni um Stalín.
Andropov hugsar um Yagoda í fangaklefanum. Hugsar
um Trotsky og blóð hans á exinni. Hugsar um bók hans
um Stalín, sem er ævisaga Trotskys sjálfs í aðra röndina.
Andropov veit það, því að hann hefur lesið hana. Og hann
veit einnig, að hún er ekki skrifuð með kálfsblóði. Hann
hugsar um Gorkí. Hugsar um gamla móður Túkha-
chevskys, hetjunnar sem plummaði niður sovézku sjólið-
ana í uppreisninni í Kronstadt. Hugsar um bræður hans
tvo, sem var fórnað fyrir markmið óvenjulegs manns,
ofurmennis. Hugsar um Búkharin. Hugsar um unga konu
hans og syni. Hugsar um Nadya. Hugsar um aðra skugga
þessarar sólar, sem aldrei skein. Og aldrei gengur til
viðar.
Vörðurinn með andlit Trotskys leysist upp og hvcrfur
inn í martröðina eins og öll þessi ógnlega saga. Þá vaknar
Yuri Andropov. Loksins! Setur á sig gleraugun. Horfir á
þumalfingur hægri handar. Hættir að hugsa. Öryggis-
vörður í þjónsgervi afhendir honum Prövdu. Hann les
blaðið. Les sannleikann.
En varirnar hreyfast í moldinni. Það veit Andropov.
Það vita þeir hinir, óhultir í vernduðu umhverfi, þar sem
veruleikinn er í mörg þúsund kílómetra fjarlægð. Og
ekkert gerist.
En nýtt höfuð verður sett á digran svíra einvaldans.
S Ö G U L O K