Morgunblaðið - 11.06.1983, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
Forseti Alþjóða
Olympíunefmlarinnar
heimsækir Island
Norrænt Ólympíuþing fer fram
hér á íslandi um helgina.
Ólympíunefndir allra Norðurland-
anna eru komnar til landsins og
munu þinga hér fram á mánudag.
Verða mörg mál varðandi næstu
Ólympíuleika rædd.
Forseti Alþjóða Ólympíunefnd-
arinnar, Spánverjinn Juan Anton-
io Samaranch, kom í gær til
landsins og mun hann sitja nor-
ræna þingið.
Juan Antonio Samaranch er átt-
undi forseti Alþjóöa Ólympíu-
nefndarinnar. Hann er fæddur 17.
júlí 1920 í Barcelona á Spáni. Hann
er kominn af miðstéttarfólki, er
kvæntur og á tvö börn.
Sem iönrekandi og forseti
„Diputación" heimahéraös síns var
upphaf aö frama hans til æöstu
metoröa innan Ólympíuhreyfingar-
innar. Hann var formaöur
Spænska skautasamPandsins og
aöalfararstjóri á Ólympíuleikana í
Cortína 1956, í Róm 1960 og í
Tokyo 1964. Áriö 1953 var hann
valinn t spænsku Ólympíunefndina
og var hann forseti hennar 1967 til
1971. Hann var valinn í Alþjóöa
Ólympíunefndina 1966 og varö aö-
alfundarritari nefndarinnar 1968.
Óþreytandi elja hans og þrek voru
fljótlega virkjuö til margpreytilegra
verkefna og áriö 1970 varö hann
stjórnarmaöur í framkvæmda-
nefnd Alþjóöa Ólympíunefndarinn-
ar. Hann var kosinn varaformaöur
Alþjóöa Ólympíunefndarinnar
1974 til 1978.
Þegar Spánn og USSR tóku upp
stjórnmálasamband aö nýju 1977
var Juan Antonio Samaranch til-
nefndur sendiherra í Moskvu.
Hann tók þá aftur sæti sitt, sem
aöalfundarritari Alþjóöa Ólympíu-
nefndarinnar.
Þegar hann var valinn forseti Al-
pjóða Ólympiunefndarinnar í fyrstu
umferö 16. júlí 1980 tók hann þar
meö viö af Lord Killanin, sem lét af
störfum þegar Ólympíueldurinn
slokknaöi þriöja ágúst 1980.
Undir forsæti Samaranchs hefur
Alþjóöa Ólympíunefndin lagt höf-
uðáherslu á hina ýmsu stjórnunar-
pætti á alþjóöavettvangi sem sam-
einar Ólympíufjölskylduna í eina
heild. Samaranch hefur í störfum
sínum reynt aö binda þessa þætti
þéttar saman m.a. meö aukinni
þátttöku kvenna og ríkjum þriöja
heimsins í Ólympíuhreyfingunni og
auknu framlagi Ólympíusamhjálp-
arinnar. Þessi stefnumarkandi mál
hafa veriö ofarlega á baugi hjá
Samaranch forseta og komiö fram
víöa í máli hans sem talsmanns
ólympíuhugsjónarinnar. Hann hef-
ur einsett sér aö heimsækja öll 154
meðlimaríki ólympíuhreyfingarinn-
ar til þess aö koma þeim á fram-
færi og hefur þegar gist meira en
helming þeirra.
ÍR-ingarnir sem urðu islandsmeistarar í 4x800 metra boöhlaupi (f.v.)
Gunnar Birgisson, Gunnar Páll Jóakimsson, Þorvaldur Þórsson og
Hafsteinn Óskarsson. Ljósmynd Ágúst Ásgeirsson.
íslandsmet í sjöþraut
HELGA Halldórsdóttir KR setti
nýtt íslandsmet í sjöþraut kvenna
í fyrsta hluta meistaramóts is-
lands í frjálsíþróttum í Laugardal
í vikunni, hlaut samtals 5027 stig,
en gamla metiö átti Helga sjálf og
var það 4991 stig.
Árangur Helgu í einstökum
greinum var sá að hún hljóp 100
metra grind á 14,1 sekúndu,
stökk 1,56 í hástökki, varpaði
kúlu 8,74 metra, hljóp 200 metra á
25,2 sekúndum, stökk 5,46 í lang-
stökki, kastaði spjóti 22,62 metra
og hljóp loks 800 metra á 2:18,3
mínútum.
Aöeins tvær konur til viöbótar
luku þrautinni, Valdís Hallgríms-
dóttir er hlaut 4323 stig og Linda
B. Loftsdóttir FH meö 3890 stig.
Bryndís Hólm ÍR veitti Helgu lengst
af haröa keppni en geröi öll stökk
sín þrjú í langstökki ógild, og klár-
aói ekk, þrautina.
Á mótinu náöist góöur árangur í
4x800 metra hlaupi og var um
hörkukeppni aö ræöa milli ÍR-inga
og FH-inga allt þar til á síóustu
metrunum. ÍR-ingar uröu is-
landsmeistarar, hlupu á 7:56,2
mínútum en sveit FH á 7:59,5.
Árangur þeggja sveitanna er góö-
ur og íslandsmetiö skammt undan,
en mjög óhagstætt var aó hlaupa
og geta báóar því betur.
í ÍR-sveitinni voru Gunnar Birg-
isson, Hafsteinn Óskarsson, Þor-
valdur Þórsson og Gunnar Páll
Jóakimsson, en i FH-sveitinni Sig-
uröur Pétur Sigmundsson, Viggó
Þ. Þórisson, Siguröur Haraldsson
og Magnús Haraldsson.
islandsmeistari í tugþraut varö
Stefán Þór Stefánsson ÍR, hlaut
6079 stig. Stefán var sá eini sem
lauk keppni, hver keppandinn af
öörum heltist úr lestinni eftir því
sem á leió þrautina.
Þá varö Súsanna Helgadóttir,
kornung og efnileg hlaupakona úr
FH, islandsmeistari í 3000 metra
hlaupi, hljóp á 10:46,5 mínútum,
önnur varð Hildur Björnsdóttir
Ármanni á 10:48,5 og þriöja Guö-
rún Eysteinsdóttir FH á 11:22,1
mín.
Keppt var í nokkrum aukagrein-
um á mótinu og má þar nefna góö-
ar framfarir Helga Þórs Helgason-
ar USAH í kúluvarpi, en hann varp-
aöi 16,22 metra og er þaö tíunda
bezta afrek íslendings frá upphafi.
Þá var hörö og skemmtileg
keppni í 100 metra hlaupi karla.
Egill Eiðsson UÍA sigraöi á 10,7
sekúndum, annar varö Jóhann Jó-
hannsson ÍR á 10,8 og Hjörtur
Gíslason KR hlaut sama tíma. Ör-
lítill meövindur var í hlaupinu, eöa
2,3 sekúndumetrar. — ágás.
• Frá keppni í 10 kílómetra hlaupi á meistaramóti íslands. Fremstur fer Sigurður Pétur Sigmundsson FH,
þá Gunnar Páll Jóakimsson ÍR, Stefán Friðgeirsson ÍR og Garðar Sigurðsson ÍR, 17 ára piltur sem er mikið
langhlauparaefni. Ljósmynd Hafsteinn öskarsson.
Góður tími hjá Sigurði Pétri í 10 km
SIGURÐUR Pétur Sigmundsson
langhlaupari úr FH varð ís-
landemeistari í 10 km hlaupi á
góðum tíma á Laugardalsvellin-
um í vikunni. Hljóp hann á 31:38,6
mínútum, sem er hans næstbezti
árangur, og að öllum líkindum
meistaramótsmet.
Árangur Sigurðar bendir til
þess að hann sé í ágætri æfingu
og eflaust mun hann bæta þenn-
an tíma talsvert í keppnum
sumarsins. Hans bazti árangur er
31:25,8 frá í fyrra, sem er þriðji
bezti árangur Islendings frá upp-
hafi, en íslandsmet Sigfúsar
Jónssonar ÍR er 30:10 mín.
Tveir næstu menn í hlaupinu,
ÍR-ingarnir Steinar Friögeirsson og
Garðar Sigurösson, náöu báöir
sínum bezta árangri, og Garöar
var skammt frá drengjametinu, en
hann er á fyrra ári í þeim flokki og
gæti því eflaust krækt i metiö. Ur-
slitin uröu annars sem hér segir:
1. Siguröur Pétur Sigmundsson
FH 31:38,6
2. Steinar Friögeirsson ÍR 33:53,8
3. Garöar Sigurósson ÍR 34:15,0
4. Stefán Friögeirsson IR 37:40,6
5. Ingvar Garöarsson HSK 37:47,6
6. Gunnar Páll Jóakimsson ÍR
38:46,6
Gunnar Páll hljóp meó Sigurði
Pótri og leiddi hlaupiö fyrstu fjóra
kílómetrana. — ágás.
íþróttafólk fær styrki
frá Olympíunefndinni
Ólympíunefnd íslands hefur I æfinga og þátttöku í íþróttamót-
styrkt eftirtalda íþróttamenn til | um erlendis.
Ol-leikarnir:
Allur kostnaður
greiddur fyrir
níu keppendur
Reiknað er meö því aö Alþjóða-
ólympíunefndin fái 256 milljónir
Ferð á leik
ÍA og KR
Á sunnudaginn mun Akraborg-
in veita helmingsafslátt á far-
gjöldum í sambandi við leik Ak-
urnesinga og KR og mun því
kosta 220 kr. að fara báðar leiðir
með Akraborginni og miði á leik-
inn. Farið verður frá Reykjavík kl.
13 og til baka strax að leik lokn-
um. I ráöi er aö hafa þennan hátt-
inn á þegar Akurnesingar eiga
heimaleik.
dollara í tekjur af ólympíuleikun-
um á næsta ári. Tekjur þessar
koma meðal annars inn af aug-
lýsingum og útsendingarrétti
sem seldur er sjónvarpi.
Þaö er athyglisvert aö nú í fyrsta
sinn greiöir Alþjóöaólympiunefnd-
in kostnað þátttakenda. Mun ís-
land njóta góös af því og greiöir
nefndin kostnaöinn fyrir níu kepp-
endur, allar feröir svo og uppihald.
Léttir þetta mjög á Ólympíunefnd
Islands, því kostnaöur viö leikana
er mjög mikill enda langt aö fara
og feröir og Uþpihald er afar dýrt.
— Þr.
Óskar Jakobsson kr. 40.000,-
Einar Vilhjálmsson kr. 40.000,-
Þórdís Gísladóttir kr. 30.000,-
Vésteinn Hafsteinss. kr. 30.000,-
Þráinn Hafsteinsson kr. 30.000,-
Oddur Sigurðsson kr. 30.000,-
Þá hefur nefndin styrkt þau
Þórdísi Gísladóttur, Vóstein Haf-
steinsson og Þráin Hafsteinsson til
þess aö taka þátt í tilraunaleikun-
um í Los Angeles í þessum mán-
uöi.
Bjarni Friöriksson júdómeistari
hefur veriö styrktur meö kr.
50.000,-. Skíöasamóand íslands
hefur veriö styrkt með kr.
100.000,-, en þeir hafa ekki enn
bent á líklega þátttakendur í
Ólympíuleikunum.