Morgunblaðið - 11.06.1983, Qupperneq 48
Veist þú umeinhverja
góða frétt?
H
ringdu þá í 10100
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1983
^\skriftar-
síminn er 830 33
Hæstiréttur:
Dráttarbflar
með aftaní-
vögnum ekki
vörubflar
H/EffriRÉXTUR hefur fellt úr gildi
lögbann það, sem lagt var við flutn-
ingi sements frá Húsavík til Kröflu-
virkjunar að kröfu Vörubílstjórafélags
S-Uingeyjarsýslu, og gengur það gegn
dómi sem felldur var í undirrétti, þar
sem lögbannið var staðfest.
Vörubílstjórafélagið fór fram á
lögbannið á sínum tíma, vegna þess
að það taldi sig hafa einkarétt á
flutningum innan síns félagssvæðis,
en tilboð kom í flutningana frá
verktakafyrirtækinu Norðurverk
hf. um flutning á sementinu og öðru
sem flytja þurfti með dráttarbílum
með aftanívögnum. Kröfu sína
byggði Vörubílstjórafélagið á 5. gr.
laga nr. 36/1970, þar sem segir að
öllum sé óheimilt að stunda leigu-
akstur á vörubifreiðum utan stöðv-
ar eða frá stöð, sem eigi njóti viður-
kenningar bæjarstjórnar.
1 dómi Hæstaréttar segir að þau
tæki sem um ræðir, þ.e. dráttarbif-
reiðir með aftanívögnum, séu ekki
vörubifreiðir samkvæmt lögum nr
36/1970 og því beri að aflétta lög-
banninu. Vörubílstjórafélagið
greiði málskostnað í héraði og fyrir
hæstarétti, samtals 10 þúsund
krónur.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Þór Vilhjálmsson, Ár-
mann Snævarr og Sigurgeir Jóns-
son og settir hæstaréttardómarar
Gaukur Jörundsson og Guðmundur
Skaftason. Ármann Snævarr skil-
aði sératkvæði.
'■ fj|| / ’JKl m
f * ■
\{ m • i / S 1
Karmelsystur í Hafnarfirði kvöddu klaustur sitt snemma í gærmorgun. Sjö þeirra setjast að í klaustri í Hollandi
en sú áttunda í Bretlandi. Myndin var tekin er þær gengu niður tröppur klaustursins í síðasta skipti.
Morgunbladið/Guðjón.
Færri
erlend
skemmti-
ferðaskip
ERLEND skemmtiferðaskip verða
heldur færri í sumar en á því síðasta,
samkvæmt upplýsingum, sem Mbl.
fékk hjá Ferðaskrifstofunum Atlant-
ik og Samvinnuferðum-Landsýn.
Að sögn Eysteins Helgasonar,
framkvæmdastjóra Samvinnu-
ferða-Landsýnar, koma tvö skip í
tvígang hingað á vegum þeirra.
Eysteinn sagði ennfremur að kom-
um skipa hefði heldur fækkað hin
seinni ár.
Hjá Atlantik fengust þær upp-
lýsingar, að 13 skipakomur yrðu á
þeirra vegum hér í sumar, þar af
færu 90% þeirra ennfremur norð-
ur fyrir land til Akureyrar, en yf-
irleitt er stoppið einn dagur á
hvorum stað. Langstærstur hluti
erlendra ferðamanna, sem koma
hingað til lands með skemmti-
ferðaskipum eru Þjóðverjar.
Ný „svört“ skýrsla Hafrannsóknastofnunar:
Hrygningarstofii fjórð-
ungi minni en talið var
Þá gekk einnig dómur í sams kon-
ar máli, þar sem er mál Saltsölunn-
ar hf. gegn Landsambandi vörubif-
reiðastjóra. Gekk dómur á sama
veg og í hinu fyrrnefnda máli og af
sömu ástæðu.
Hafrannsóknastofnun telur að
ástand þorskstofnsins sé talsvert lak-
ara en talið var á síðasta hausti og
bendir mat stofnunarinnar á stærð
stofnsins til þess að hann sé nú 8%
minni en þá var talið eða 1300 þús-
und tonn og hrygningarstofninn 25%
minni eða um 420 þúsund tonn.
Vegna þessa hefur Hafrannsókna-
stofnun lagt það til að þorskaflinn á
þessu ári verði ekki meiri en 300 þús-
und tonn. Þetta kemur m.a. fram f
Dæmd í sekt eða fangelsi fyrir hundahald:
„Við förum í tugthús
ef þess þarf með“
„VIÐ FÖRUM í tugthús, ef þess
þarf með,“ sögðu Matthías Garð-
arsson heilbrigðisfulltrúi og Regína
Stefnisdóttir í samtali við Mbl. í
vikunni féll yfir þeim dómur í
Hæstarétti íslands fyrir að halda
hund í Reykjavík, en það er óheim-
ilt sem kunnugt er. Þau voru dæmd
í fimm þúsund króna sekt eða gert
að sæta fangelsi í átta daga verði
sektin ekki greidd innan 4 vikna frá
birtingu dómsins. Þá var þeim gert
að greiða saksóknarlaun, krónur
sex þúsund og laun verjenda, einnig
sex þúsund krónur. Um prófmál var
að ræða.
„Ástandið í dag er óþolandi. Ég
mun halda mínum hundi á meðan
hanp lifir. Það er hart að vera
gerður að tugthúslim fyrir að láta
sér þykja vænt um dýr sitt — að
fólk skuli dæmt í fangelsi. Ég
mun hins vegar ekki eignast ann-
an hund eftir Loka að óbreyttu
ástandi," sagði Regína f samtali
við Mbl. Regína hefur átt hundinn
Loka frá því 1975. í október 1981
slapp Loki út og hafnaði f klóm
lögreglunnar. Honum var skilað,
þar sem ekki mun heimilt að taka
skepnur af eigndum sínum, en all-
ar götur síðan hefur Regína átt í
Regína Stefnisdóttir með Loka sinn,
sem er af síberísku sleðahundakyni.
útistöðum við yfirvöld vegna Loka
síns.
Kátur, hundur Matthíasar, var
aldrei tekinn. „Þeir sögðust ekki
hafa heimild til þess,“ sagði
Matthías. „Ég var hins vegar
margoft kallaður fyrir og síðar
boðin dómssátt. En ég hafnaði —
tel öll þessi mál ákaflega óljós.
Matthías Garðarsson með Kát, sem
er */« íslenzkur og Ví Collier.
Við vitum, að fjölmargir í Reykja-
vík eiga hund — bæði háir sem
lágir. Frammámenn í Reykjavík
hafa verið myndaðir í bak og fyrir
með hunda sína, án þess að við
þeim hafi verið hróflað. óviðun-
andi er að örfáir séu teknir fyrir
og sektaðir. Jafnt verður yfir alla
að ganga,“ sagði Matthías.
skýrslu sem Hafrannsóknastofnun
hefur gert um ástand þorskstofnsins
að lokinni vetrarvertíð 1983.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið f gær, vegna skýrslu
Hafrannsóknastofnunar, að alvar-
legast væri hve meðalþyngd
þorsksins hefði minnkað mikið.
„Menn vita ekki alveg ástæður
þessa, en það er greinilegt að rösk-
un hefur orðið í lífríki sjávarins
m.a. vegna kulda," sagði Halldór.
Hann bætti því við að hann hefði
ákveðið að kalla hagsmunaaðila í
sjávarútvegi saman til fundar á
mánudag til að ræða stöðuna.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands fslenskra út-
vegsmanna, tók í sama streng og
Halldór og kvað það áhyggjuefni
hve þorskurinn færi minnkandi frá
því sem áður hefur verið. „Niður-
staða skýrslunnar kemur annars
ekki svo á óvart," sagði Kristján.
„Það sem við blasir er að ef upp
kann að koma mikill sumarafli hjá
togurunum þá getur þurft að
bregðast við því til að halda afla-
magninu niðri. Alvarlegast í því
efni er, að nú verður ekki unnt að
fjölga skrapdögum vegna þess að
það er ekki um aðra stofna að ræða
sem unnt er að halda skipunum út
á. Hin nýju rekstrarskilyrði skip-
anna og hið háa olíuverð gera það
óhagkvæmt að halda skipunum við
karfaveiðar. Auk þess munu frysti-
húsin hætta að frysta karfa á
Rússlandsmarkað frá 1. júlí næst-
komandi. Frekari veiðitakmarkan-
ir munu því þýða stöðvun á skipun-
um og það er alvarlegt bæði frá
sjónarmiði útgerðarinnar, sjó-
mannanna og fólksins sem við
þetta vinnur. Ég held að mönnum
ætti að vera það Ijóst nú fremur en
áður, hve mikið óhappaverk stjórn-
valda það hefur verið að stuðla að
auknum flota í þeim mæli sem gert
hefur verið og við eigum eftir að
standa frammi fyrir miklum erfið-
leikum á næstunni með hliðsjón af
þessum upplýsingum um að af-
rakstur þorskstofnsins fari minnk-
andi,“ sagði Kristján Ragnarsson.
í skýrslu Hafrannsóknastofnun-
ar segir að meira hafi verið gengið
á eldri árganga stofnsins (7 ára og
eldri) en áður var talið.
1 skýrslu Hafrannsóknastofnun-
ar segir ennfremur að á undan-
förnum árum hafi dregið miög úr
vaxtarhraða þorsks við Island.
Meðalafrakstur á 3ja ára nýliða er
nú 1,61 kg en var 1,93 kg tímabilið
1977-1979.
Setja saman síldar-
tunnur í Siglufirði
Ilafin var nú í vor í salarkynnum
Síldarverksmiðja ríkisins í Siglufírði
samsetning á síldartunnum, sem
keyptar eru óstafsettar frá Finnlandi.
Samkvæmt upplýsingum Geirs
Zoega, tæknilegs framkvæmda-
stjóra hjá sfldarverksmiðjunni á
Siglufirði, er hugmyndin að sam-
setning þessi fari einnig fram hjá
SR á öðrum stöðum á landinu,
þannig að ekki þurfi að flytja
tunnnur mikið milli staða.
Geir sagði að hægt væri að fram-
leiða allt að 20 þúsund tunnur f
verksmiðjum SR, en hann taldi
óraunhæft að ætla að saltað yrði f
mikið meira en fjögur þúsund tunn-
ur f Siglufirði á þessu ári.