Morgunblaðið - 03.02.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1984
Simamynd AP
Arftaki Haddads
Arftaki Haddads majórs hefur nú verið skipaður. Verður hann yfirmaður þess herliðs, sem Haddad réði yfir. Herliðið
hefur aðsetur í suðurhluta Líbanon og nýtur stuönings ísraela.
Fjölskylda Wallenbergs
stefnir Soyétríkjunum
Bretland:
Lítilsháttar
aukning at-
vinnuleysis
London, 2. febrúar. AP.
Atvinnulausum Bretum fjölgaði um
hálft prósent í janúarmánuði og er nú
hlutfall atvinnulausra 13,4 af hundraði
vinnuafls í landinu. Mánuöina þrjá
þar á undan hafði atvinnulausum hins
vegar fækkað jafnt og þétt.
Atvinnuleysingjar í Bretlandi eru
nú rösklega þrjár milljónir eða
3,199,678 og fjölgaði um rúm 120
þúsund í janúar.
Mest er atvinnuleysið er á Norð-
ur-írlandi og í norðurhluta Eng-
lands.
Thatcher sækir
Ungverja heim
London, 2. feb. AP.
MARGRÉT Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, var væntanleg i opin-
bera heimsókn til Ungverjalands í
kvöld, en það er í fyrsta sinn sem hún
heimsækir ríki í Austur-Evrópu í
opinberum erindagerðum.
Gyorgy Lazar, forsætisráðherra
Ungverjalands, sagði í blaðaviðtali
sem birt var í dag að hann vonaðist
til að heimsókn hennar yrði til þess
að bæta sambúð ríkja í austri og
vestri.
Frú Thatcher hefur verið nefnd
„Járnfrúin" í blöðum í Sovétríkjun-
um, og þar er hún talin ósveigjan-
legur og einsýnn stjórnmálaleiðtogi.
Ungverski forsætisráðherrann
kvaðst aftur á móti hafa trú á því að
hún væri viðræðugóð, þótt mikill
skoðanamunur væri þeirra í milli.
Ungverjaland þykir frjálslyndast
af ríkjum kommúnista í Austur-
Evrópu og hagur almennings góður
miðað við lífskjör austantjalds. Tal-
ið er að Sovétmenn muni fylgjast af
mikilli athygli með því hvernig við-
tökur almenningur í landinu veitir
henni.
Hondúras:
Bandarískir her-
menn um kyrrt
Washington, 2. febrúar. AP.
BANDARÍSKA varnarmálaráðuneytiö
áætlar, að a.m.k. 7—800 bandarískir
hermenn verði áfram f Hondúras í
kjölfar heræfinganna, sem þar lýkur
síðar í þessum mánuði.
Þetta er í fyrsta sinn, sem ráðu-
neytið staðfestir opinberlega fréttir
um að bandarískir hermenn verði
áfram í Hondúras eftir að æfingun-
um er lokið. Þá sagði ráðuneytið
jafnframt, að svo gæti farið að her-
mennirnir tækju þátt í frekari her-
æfingum, sem fram eiga að fara í
júní.
Washington, 2. febrúar. AP.
FJÖLSKYLDA Raoul Wallen-
bergs, sænska sendifulltrúans
sem stóð fyrir björgun eitt hundr-
að þúsund ungverskra gyðinga í
síðari heimsstyrjöldinni, hefur
fengið lögmann í Philadelphia í
Bandaríkjunum til að höfða mál á
hendur Sovétríkjunum vegna
hvarfs hans.
Krafa lögmannsins er sú að
annaðhvort verði Wallenberg
framseldur af Sovétmönnum,
en þeir handtóku hann árið
1945, eða að jarðneskar leifar
hans verði afhentar ættingjum
hans, ef hann er látinn.
Sovétmenn hafa haldið því
fram að Wallenberg hafi látist
árið 1945.
Raoul Wallenberg, sænski auðkýf-
ingurinn sem bjargaði ungverskum
gyðingum úr klóm nasista í síðari
heimsstyrjöldinni.
í kröfu lögmannsins, sem
rekin er fyrir bandarískum
dómstól, er einnig farið fram á
að því verði lýst yfir að afskipti
Sovétmanna af Wallenberg
hafi verið ólögmæt, að allar
upplýsingar um afdrif hans
verði gefnar og að greiddar
verði skaðabætur að upphæð 39
milljónir Bandaríkjadala til
fjölskyldu hans.
Að sögn lögmannsins, Morris
Wolff, er ástæðan fyrir máls-
höfðuninni nú þegar liðin eru
39 ár frá hvarfi Wallenbergs sú
ákvörðun Bandaríkjastjórnar
árið 1981 að gera hann að heið-
ursborgara Bandaríkjanna.
23
Reit nafn
morðingjans
með eigin
blóði
Wbite PiaiiLs, New York, 2. febrúar. AP.
FANGAVÖRÐUR í fangelsi í
New York hefur upplýst, að
orð, sem deyjandi fangi reit á
klefagóifið hjá sér með eigin
blóði rétt áður en hann skildi
við, hafi orðið tii þess að upp-
lýsa hver varð honum að ald-
urtila.
Atvikið gerðist eftir að Isaac
Waddell hafði séð um dóm-
gæslu í leik á milli tveggja
körfuknattleiksliða fanga.
Öðru liðinu fannst á sig hallað
og einn leikmanna þess, Gary
Taylor, sem hafði viðurnefnið
„Love“, kom dómaranum fyrir
kattarnef. Þegar komið var að
Waddell í klefa hans var gólfið
útatað blóði, en með því að
hreinsa það varlega af mátti
sjá hvar hann hafði skrifað
„Love“ á gólfið á þremur stöð-
um. Er gengið var á Taylor ját-
aði hann morðið á sig.
Fimmburar í
Mexíkó
Morelia, Mexikó, 2. febrúar. AP.
ÞRÍTUG kona, Josefina Mor-
eno de Lanusa, eignaðist
fimmbura á fæðingardeild hér-
aðssjúkrahússins í Morelia í
morgun. Fimmburarnir eru
allir að vonum smávaxnir og
vógu aðeins um 6 merkur hver
við fæðinguna. Þeim heilsast
öllum vel, sem og móðurinni.
de Lanusa og maður hennar
áttu fjögur börn fyrir.
Grænlend-
ingar á skel-
fiskveiðum
kaupmannahöfn, 2. febrúar. Frá Niels
Jörgen Brnun, Grænlandsfréttaritara Mbl.
GRÆNLENSKT fyrirtæki hef-
ur með góðum árangri hafið
veiðar og vinnslu á hörpudiski
og krabba, sem fram til þessa
hafa ekki verið veiddir við
Grænlandsstrendur. Mikið er
af þessum dýrum á hafsbotnin-
um við landið.
Tilraunaveiðar hófust í
fyrrasumar og gáfu góða raun.
Til þessa hafa 10 tonn af
krabbakjöti verið unnin og
framleiðslan verið seld innan-
lands og í Danmörku. Þá hafa
veiðst um 150 tonn af hörpu-
diski, en nýtingin á aflanum er
aðeins um 8%, þar sem ekki
hefur enn fundist markaður
fyrir hina mjög svo kalkríku
skel. Fiskurinn hefur einkum
verið seldur í neytendaumbúð-
um til Kanada.
Fjöldi mót-
mælir dómum
yfir prestum
Stokkhólmi, 2. febrúu. AP.
MEIRA en 130.000 manns hafa
skrifað undir mótmælas.kjöl,
sem hanga uppi fyrir utan
kirkjur í Litháen. Mótmælin
eru vegna dóma yfir tveimur
kaþólskum prestum, sem sak-
aðir eru um and-sovéskan
áróður. Margir þeirra, sem
skrifað hafa undir mótmæla-
skjölin, hafa verið sektaðir af
yfirvöldum og almenningur
hefur verið varaður við því í
sjónvarpi og útvarpi að skrifa
nafn sitt á skjölin. Slíkt geti
haft alvarlegar afleiðingar í
för með sér. Þó hafa skjölin
ekki verið tekin niður og fólk
er enn að skrá sig á þau að
sögn talsmanna samtaka, sem
berjast fyrir sjálfstæði ríkis-
ins.
u
Hart sótt að Wörner vegna Kiessling-hneykslisins:
„Eg var of trúgjarn
- sagði varnarmálaráðherrann eftir að hershöföinginn fékk uppreisn æru
Bonn, 2. febrúar. AP.
MANFRED Wörner, varnarmálaráðherra Vestur-Þýskalands, sem viður-
kennt befur að uér hafi orðið á mistök er hann vék Giinter Kiessling
hershöfðingja úr embætti, segist ekki telja að Kiessling-málið muni valda
Vestur-Þýskalandi álitshnekki erlendis.
í viðtali við vestur-þýska sjón- hálfan annan áratug og væri þar
varpið sagðist Wörner hafa
meiri áhyggjur af því að
hneykslismál þetta kunni að
valda einhverjum vandræðum
innan þýska hersins. „Ég leyni
því ekki,“ sagði hann í viðtalinu,
„að ég hef örðið fyrir áfalli í
sambandi við þetta mál, og
kannski hefur virðing hersins
líka beðið tjón.“
Wörner kvaðst hins vegar vera
sannfærður um að sér tækist
endurvinna traust á hernum,
hann hefði starfað fyrir herinn í
gagnkunnugur. Hann sagðist
hafa boðist til að segja af sér
ráðherradómi vegna þess að
hann bæri ábyrgð á brottvikn-
ingu Kiesslings eins og öðrum
ákvörðunum sem teknar væru í
varnarmálaráðuneytinu.
„Ég viðurkenni að ég var í
sumu tilliti of trúgjarn í þessu
máli, og hugleiddi kannski ekki
nægilega vel þær upplýsingar
sem mér bárust," sagði hann enn
fremur.
Manfred Wörner varnarmálaráö-
herra Vestur-Þýskalands
Ákvörðun Kohls kanslara að
láta Wörner sitja áfram hefur
verið harðlega gagnrýnd af
stjórnarandstöðunni, og nú hafa
tveir forystumenn Frjálsra
demókrata, sem er stjórnar-
flokkur, tekið undir þá gagnrýni.
Þau Hildegard Hamm-Brúcher
og Burkhard Hirsch sögðu í við-
tali við dagblað í Hannover í dag
að Wörner mundi aldrei losna úr
skugga Kiessling-hneykslisins
og ætti að víkja. Aðgerð Kohls
kanslara væri kattarþvottur og
hann bæri á endanum pólitíska
ábyrgð á því ef hitnaði í kolun-
um innan hersins vegna fram-
vindu og endaloka málsins.