Morgunblaðið - 24.07.1984, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLl 1984
Carrington lávarður og Geir Hallgrímsson, utanrikisráöherra, kveðjast á
Keflavíkurflugvelli. MorgunblaðiB/Árni Sæberg
Carrington lávarður kveður
OPINBERRI heimsókn
Carrington lávarðar, fram-
kvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins, og konu
hans, lauk á laugardaginn.
Árdegis þann dag fóru þau
til Þingvalla ásamt fylgd-
arliði og snæddu þar hádeg-
isverð í boði Halldórs Ás-
grímssonar og konu hans,
Sigurjónu Sigurðardóttur,
en Halldór fer með embætti
forsætisráðherra í fjarveru
Steingríms Hermannssonar.
Eftir hádegisverðinn á
Þingvöllum var haldið til
Keflavíkurflugvallar, þar
sem Ronald E. Narmi, flota-
foringi og yfirmaður varn-
arliðsins á Keflavíkurflug-
velli, tók á móti gestunum arliðsins, áður en hann hélt
og átti Carrington lávarður heimleiðis með þotu Flug-
fund með yfirmönnum varn- leiða.
Carrington lávarður á tali við yfirmann varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli,
Ronald E. Narmi, flotaforingja. Til hægri er Glenn Sutton, herráðsforingi.
Skagaströnd:
„Hið yillta
vestur
er hér“
Og auðvitað var svo slegið upp balli,
þar sem m.a. Hallbjorn tók lagið.
Skagaxtrönd, 23. júlí.
ÞAÐ MÁ MEÐ sanni segja, að
bæjarbragurinn hér hafi breyst nú
um helgina. Mikið var af aðkomu-
fólki og allir voru í hátíðarskapi.
Ástæðan var að sjálfsögðu fyrsta
kántríhátíðin sem haldin hefur ver-
ið hér á landi, en hún fór fram á
Skagaströnd um nýliðna helgi.
Hallbjörn „kántríkóngur"
Hjartarson stóð fyrir hátíðinni
með aðstoð nokkurra aðila frá
Akureyri, en framkvæmdastjóri
hennar var Pálmi Guðmundsson.
Hátíðin hófst síðastliðinn föstu-
dag og stóð fram á sunnudag. Á
föstudag fóru að streyma hingað
bílar og fólk fór að tjalda á há-
tíðarsvæðinu. Um kvöldið var
útiskemmtun og dansleikur. Á
skemmtuninni komu fram, við
góðar viðtökur viðstaddra,
kántrísöngvararnir Hallbjörn
Hjartarson og Johnny King.
Hljómsveitin Gautar lék síðan
fyrir dansi til klukkan þrjú um
nóttina.
Á laugardag hófst svo
dagskráin upp úr hádegi með
hópreið hestamanna þar sem
kántríkóngurinn reið í farar-
broddi um hátíðarsvæðið. Síðan
voru sýndir ameriskir, „átta
gata“ bílar og fólk á svæðinu
kaus fallegasta bilinn. Þar á eftir
hófst keppni i ýmsum hesta-
íþróttum, tunnuboðhlaupi,
kappreiðum og fleiru. Hápunktur
hátiðarinnar var síðan „ródeó-
keppni" þar sem knapar reyndu
að snara kálfa. Var þetta mjög
vel heppnað atriði og vakti gif-
urlegan fögnuð áhorfenda, sem
fögnuðu sérstaklega þegar Hall-
björn reið sjálfur inn í hringinn
og reyndi að snara kálfana. Kálf-
arnir sáu þó við kántrikóngnum
þvi eftir nokkurn eltingarleik
stukku þeir út úr hringnum og
forðuðu sér inn á tjaldstæðið.
Þeir voru handsamaðir eftir
nokkurn eltingarleik. Á laugar-
dagskvöldið var svo haldinn
stuðdansleikur i Fellsborg þar
sem hljómsveitin Týrol lék fyrir
dansi. Fellsborg var troðfull af
Loks náðist kálfurinn.
Morgunblaðið/Olaíur BernMuaaon.
fólki, sem fagnaði ákaft þegar
þeir skemmtu á ný, Hallbjörn,
Johnny King og Siggi Helgi. Þá
fór fram á dansleiknum hæfi-
leikakeppni, þar sem nokkrir
söngvarar létu ljós sitt skína.
Tókust þessi atriði hvert öðru
Ródeó á Skagaströnd.
Hallbjörn Hjartarson „kántrikóngur" sveiflar slöngunni á kálfana.