Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984 I’eningamarkaAur Morgunblaðsins er á bls. 35 í blaðinu í dag. Versnandi staða á ál- markaði og birgðasöfnun í Straumsvík HEIMSMARKAÐSVERÐ á áli er komið niður í um 1.190 dollara tonn- ið, en það var á sama tfma í fyrra á milli 1.600 og 1.700 dollarar. Nokk- ur birgðasöfnun á sér nú stað hjá álverinu í Straumsvík, en sala fyrri hluta þessa árs var að sögn Ragnars Halldórssonar forstjóra ÍSAL eðli- leg. Hann sagði ennfremur að ekki hefði verið dregið úr framleiðslunni í Straumsvík, þó svo mörg erlend fyrirUeki hefðu þegar gripið til þess ráðs vegna versnandi markaðsstöðu. Ragnar Halldórsson sagði í við- tali við blaðamann Mbl., að ástæða hins lækkandi álverðs væri annars vegar sú, að markað- urinn hefði veikst og hins vegar styrkari staða Bandaríkjadollars. Dollarinn hefði til dæmis styrkts um 10% gagnvart franka. f nýjum tölum frá ÍJtflutn- ingsmiðstöð iðnaðarins kemur fram að útflutningur áls og ál- melmis mánuðina janúar til júni þessa árs nam 37.830 tonnum á móti 58.500 tonnum sömu mánuði í fyrra. Aðspurður sagði Ragnar aðaiástæðu þessa vera þá, að mik- ið hefði selst af uppsöfnuðum birgðum á fyrri hluta síðasta árs. Salan fyrri hluta þessa árs hefði verið eðlileg, en nú hefði dregið úr henni. Kvað hann birgðir í Straumsvík vera um 4.000 tonnum meiri en þeir teldu æskilegt. Álverð á heimsmarkaði hefur orðið lægst um 900 dollarar tonnið og sagði Ragnar Halldórsson for- stjóri ÍSAL í lokin, að ómögulegt væri að segja til um framhaldið á þessu stigi. c*rr*f Skrúfur á báta og skip Allar stœröir trá 10O0—4500 mm og allt aö 4500 klló. Efni: GSOMS—57—F—45 Eöa: GNIALBZ—F—60. Fyrir öll klössunarfélög. Skrúfuöxlar oftir teikningu. \ Vesturgótu 1 6, Sími 14680. Rás 2 kl. 15: Ennþá brenn- ur mér í muna Á dagskrá rásar tvö kl. 15 í dag er þátturinn Ennþá brenn- ur mér í muna. Þar munu verða ieikin ýmis lög sem eiga það sameiginlegt að hafa náð hátt á bandaríska og breska vinsæld- arlista, en sungin á öðrum tungumálum. Meðal hljómsveita og söngvara sem við sögu koma er Nena, Spliff, Syngjandi nunnurnar og japanski söngvarinn Sakamoto. Aldur laganna er misjafn, allt frá síðasta ári til ársins 1952 Hljómsveitin og söngkonan Nena sem verður á dagskrá þáttarins Ennþá brennur mér í muna. Útvarp kl. 20.30: Ég veit hvað það er sem þú þarft Fimmtudagsleikrit útvarpsins í dag nefnist „Ég veit hvað það er sem þú þarft“, og er byggt á sam- nefndri smásögu bandaríska rit- höfundarins Stephen King. Leikrit- ið flytja þriðja árs nemar í Leiklist- arskóla íslands, og er leikgerðin eftir Hallmar Sigurðsson sem er jafnframt leikstjóri. Leikritið fjallar um Liz, unga og myndarlega skólastúlku. Dag nokkurn hittir hún ungan og sér- kennilegan mann á bókasafni skólans. Pilturinn sýnir henni afar mikinn áhuga og veitist Liz erfitt að losna við hann úr huga sér. Samband þeirra verður æ nánara og pilturinn virðist geta lesið hug Liz eins og opna bók. Er kærasti Liz lætur lífið í bfl- slysi tekur herbergisfélaga hennar að gruna að eitthvað sé bogið við piltinn og að tilgangur hans með sambandinu við Liz sé ekki á allan hátt heiðarlegur. Eftirgrennslanir hennar leiða ýmislegt dularfullt í ljós. Leik- endur eru: Jakob Þór Einarsson, Rósa Þórsdóttir, Alda Arnar- dóttir og Þröstur Leó Gunnars- son. Útvarp kl. 23.00: Tvíund Þátturinn Tvíund er á dagskrá út- varps í kvöld kl. 23.00. Þar munu tveir söngvarar verða kynntir, það eru þau Sylvia Sass og Hákon Hage- gird. Sylvia Sass er ungversk söng- kona, fædd 1951. Hákon Hagegárd er Svíi og mun hann syngja lög úr ýmsum áttum á sænsku þar á með- al er Papageno úr Töfraflautunni, kínversk ljóð og úr Tannháuser eftir Wagner. Sylvia söng fyrst á sviði er hún var aðeins 14 ára og var 21 árs er hún söng á sviði óper- unnar í Búdapest. Hún mun flytja þætti úr Tosca og Madam Butter- fly. Einnig mun hún syngja ljóð eftir Wagner. Allt er þetta leikið af plötum sem nýlega hafa verið teknar upp. Rás 2 kl. 16: Rokkrásin I Rokkrásinni, sem er á dagskrá rásar tvö í dag, verður fjallað um bresku hljómsveit- ina Class. Leikin verður tónlist af plötum sem komið hafa út frá því hún var stofnuð árið 1976. Þar á meðal verða ýmsar sjaldgæfar upptökur sem sjaldan eða aldrei hafa náð eyrum landsmanna. Þar á meðal eru upptökur frá tón- leikum sem ekki hafa komið fram áður. Útvarp Reykjavík V FIM41TUDIkGUR 6. septcmber MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. í bítið. 7.25 Leikfími. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: — Sigurlaug Bjarnadóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Snigillinn og randaflugan“ eft- ir Kjartan Stefánsson. Heiðdís Norðfjörð les. 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynn- ir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veóurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 11.00 „Ég man þá tíð“. Lög frá liðnum árum. Umsjón: Her- mann Ragnar Stefánsson. 11.30 „Skapadægur“, smásaga eftir Ingólf Pálmason. Erlingur Gíslason les. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. SÍDDEGIO 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar 14.00 „Daglegt líf í Grænlandi" eftir Hans Lynge. Gísli Krist- jánsson þýddi. Stína Gísladóttir les (5). 14.30 A frívaktinni. Sigrún Sigurð- ardóttir kynnir óskalög sjó- manna. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð- urfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. Alicia de Larrocha leikur á píanó Capricc- io í a-moll op. 33 nr. 1 og Variat- ions serieuse í d-moll op. 54 eft- ir Felix Mendelssohn/Barry Tuchwell og Vladimir Ashken- azy leika Sónötu í Es-dúr op. 28 fyrir hom og píanó eftir Franz Danzi. 17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar KVðLDID__________________________ 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn. Stjórnandi Sólveig Pálsdóttir. 20.00 Sagan: „Júlía og úlfarnir" eftir Jean Graighead George. Geirlaug Þorvaldsdóttir les þýð- ingu Ragnars Þorsteinssonar (10). 20.30 Leikrit: „Ég veit hvað það er sem þú þarft“ eftir Stepben King. Nemendaverkefni Leik- listarskóla íslands 1984. Leik- gerð og leikstjórn: Hallmar Sig- urösson. Leikendur: Þór Ein- arsson, Rósa Þórisdóttir, Alda Arnardóttir og Þröstur Leo Gunnarsson. 21.10 Einsöngur í útvarpssal. Svala Nielsen syngur íslensk þjóðlög. Ólafur Vignir Alberts- son leikur á píanó. 21.30 Forn vinátta. Hermann Pálsson prófessor flytur erindi. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Suðurnesjaljóð og lög frá liðnum árum eftir Kristin Reyr. Flytjendur: Höfundurinn, Jón- ína H. Jónsdóttir, Árni Tryggva- son, Jón Sigurbjörnsson o.fl. SKJÁNUM FÓSTUDAGUR 7. september 19.35 Umhverfls jörðina á áttatíu dögum. 18. Þýskur brúðu- myndaflokkur. Þýöandi Jó- hanna Þráinsdóttir. Sögumaóur Tinna Gunnlaugsdóttir. 19.45 Fréttaágrip á láknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Á döfinni. Umsjónarmaður Karl Sigtrygga- son. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 20.45 Grinmyndasafnió. Chaplin á flækingi. Skopmynda- syrpa frá árum þöglu mynd- anna. 21.00 Handan mánans Bresk heimildamynd gerð í til- efni af því að 15 ár eru liðin síöan mcnn stigu fæti á tungiiö. Þessi merki áfangi er rifjaður upp en síðan er fjallaö um þróun geimvísinda og framtíð þeirra næsta áratuginn. Þýó- andi og þuhir Bogi Arnar Finn- bogason. 22.10 Eina von hvítu mannanna (The Great White Hope) Bandarísk híómynd frá 1970. Leikstjóri Martin Ritt. AðaF hlutverk: James Earl Jones, Jane Alexander og Lou Gilbert. Myndin er byggð á sögu Jack Johnsons sem fyrstur blökku- manna varð heimsmeistari ( hnefaleikum í þungavigt árið 1908. I>ýðandi Björn Baldurs- son. 23.50 Fréttir í dagskrárlok. 23.00 Tvíund. Þáttur fyrir söng- elska hlustendur. Umsjónar- menn: Jóhanna V. Þórhallsdótt- ir og Sonja B. Jónsdóttir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. FIMMTUDAGUR 6. september 10.00—12.00 Morgunþittur Fyrstu þrjátíu mínúturnar helg- aðar íslenskri tónlist. Kynning á hljómsveit eða tónlistar manni. Viðtöl ef svo ber undir. Ekki meira geflð upp. Stjórnendur: Jón Olafsson og Sigurður Sverrisson. 14.00—15.00 Eftir tvö Létt dægurlög. Stjórnendur: Jón Axel Ólafs- son. 15.00—16.00 Ennþá brennur mér í muna. Kynntir söngvar sem eiga það sameiginlegt að hafa ekki enska texta en hafa þó náð ótrúlegum vinsældum. Stjórn- endur: Sveinn Guönason og Imrður Magnússon. 16.00—17.00 Rokkrásin Kynning á hljómsveit eða tón- listarmanni. Stjórnendur: Skúli Helgason og Snorri Skúlason. 17.—18.00 Einu sinni áður var Vinsæl lög frá 1955 til 1962 _ Rokktímabilið. Stjórnandi: Bertram Möller.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.