Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984
49
Er blaðafulltrúi Bún-
aðarfélags íslands
sjálfur „dellukarl“?
— eftir Jón Á.
Gissurarson
Agnar Guðnason blaðafulltrúi
Búnaðarfélags íslands ritar grein
í Mbl. 30. ágúst sl. um hinn merka
kartöfluþátt Grænmetisverslunar
landbúnaðarins.
Agnar blaðafulltrúi ætti að bera
klæði á vopn er í odda skerst milli
framleiðenda og neytenda. Þetta
gerir hann ekki heldur heggur á
bæði borð og velur mönnum herfi-
legustu köpuryrði, svo sem „dell-
ukarl“ og að hafa „svikið stétt-
arbræður sína“. Lítið innlegg um
skemmdar kartöflur virðist síbylj-
an um „íhaldsöflin, hvar sem er að
reyna að grafa undan frjálsum fé-
lagsskap launþega og framleið-
enda ... “ , nema sú staðreynd að
SÍS hafði þarna hönd í bagga með
innkaup á ótrúlega lágu verði,
enda Finnar trúlega hent þeim á
öskuhauga sína hvort eð var.
(Grænmetisverslun landbúnaðar-
ins hefur æ ofan í æ haft á boðst-
ólum skemmdar erlendar kartöfl-
ur er íslenskar þrýtur og þannig
sýnt vanhæfni sína að annast
þennan innflutning.)
Óþurftarverk er að stimpla þá
bændur svikara sem senda upp-
skeru sína beint á markað. Athæfi
þeirra er ekki saknæmara en svo
að hinir háu kartöflufóðurmeist-
arar Islendinga töldu það fyllilega
samrýmast landslögum. Úttekt á
almennum vitsmunum eða vanviti
Jónasar DV-ritstjóra ætti blaða-
„íslenzkir innfiytjendur
hafa sannað hæfni sína
með því að hafa
óskemmda ávexti á
boðstólum allt árið, og
eru þeir þó miklu við-
kvæmari en kartöflur.
Látum þá annast inn-
Hutning á kartöflum er
innlenda framleiðslu
þrýtur. Þeir byðu okkur
ekki skemmda vöru
enda hyrfu viðskipti til
keppinauta þeirra.“
fulltrúi Búnaðarfélags íslands að
eftirláta djúpsálfræðingum okkar,
en af þeim höfum við yfrið nóg.
Hvort Styrmir ritstjóri brosir eða
ei kemur kartöflum hreint ekkert
við.
Við verðum víst að láta okkur
lynda að eta íslenskar kartöflur
meðan uppskera endist og það
gamlar fram á haust er nágranna-
þjóðir hafa löngu tekið að úða í sig
nýjum. Hins vegar virðist engin
nauð bera til að íslenskir kartöflu-
bændur ráði því hvað er á boðstól-
um er þeirra eigin framleiðslu
þrýtur.
Islenskir innflytjendur hafa
Jón Á. Gissurarson
sannað hæfni sína með því að hafa
óskemmda ávexti á boðstólum allt
árið, og eru þeir þó miklu við-
kvæmari en kartöflur. Látum þá
annast innfiutning á kartöflum er
innlenda framleiðslu þrýtur. Þeir
byðu okkur ekki skemmda vöru
enda hyrfu viðskipti til keppi-
nauta þeirra.
Ég held að Agnar Guðnason
sæmdi sér betur sem blaðafulltrúi
SÍS en Búnaðarfélags íslands.
Jón Á. Cissurasson er tyrrverandi
skólastjóri Cagnfræóaskóla Aust-
urbæjar.
c~.-------------------------------.
Áttu barn í grunnskóla?
• kennslustundum • kennaraflóttinn eykst
fækkar • hætta á fjöldaupp-
• dregiö úr stuönings- sögnum
kennslu
Er starfiö í grunnskólum ekki sameiginlegt
hagsmunamál foreldra og kennara?
Kynntu þér hvaö er aö gerast og komdu á
fundinn í Sigtúni fimmtudaginn 6. septem-
ber kl. 17.00.
Foreldrar! Við eigum samleið.
Kennarafélögin.
V_________________________________________^
„Lukkudagar“
Vinningsnúmer 1.631. ágúst 1984
1. 28593 11. 42383 21. 36735
2. 56859 12. 46450 22. 6578
3. 2378 13. 23735 23. 11233
4. 33703 14. 52197 24. 34642
5. 40761 15. 17148 25. 4036
6. 18359 16. 34032 26. 56900
7. 35702 17. 23190 27. 47624
8. 34295 18. 917 28. 27211
9. 3848 19. 50901 29. 5281
10. 6698 20. 55018 30. 572
31. 44880
Vinningshafar hringi í síma 20068.
Vegagerð á Fjarðarheiði
Sejðtafirði, 4. september.
í sumar var unnið við vega-
framkvæmdir á veginum yfir
Fjarðarheiði, Seyðisfjarðarmegin,
og annaðist Vegagerð ríkisins
verkið. Vegarkaflinn frá Fjarðar-
selsbrekku og upp fyrir Gufufoss
var endurbyggður og eru nú
brekkur allar mun minni á áður-
nefndum kafla, auk þess sem veg-
urinn var hækkaður til muna, sem
koma ætti sér vel á snjóþungum
vetrum. Þá er því aðeins ólokið að
endurbyggja veginn á milli
Neðri-Stafs og Efri-Stafs en sá
áfangi verður byggður næsta
sumar.
Ólafur Mir.
TVÖ 966
tilboð
FRÁ VERSLUNINNI T0PPSKÓR-INN
No. 1,
mjúkt skinn,
litur svart, kr. 1.099.
No. 2,
mjúkt skinn,
litur svart, kr. 1.049.
vtsa
*É
—SKðRQnf
Amerícan 4^ veltusundi 1
Express 21212
■ Fullkominn penni, búinn endingargóðum stáloddi,
sem gefur jafna, mjúka skrift sem aldrei breytist
hvernig sem honum er hallað. Og verðið innan við
30.- kr. Svartur, blár, rauður eða grænn frá
——7—í—í i ---------------;—r
uni-ball
( f 2 fclTSUBISHI PENCIL CO„ LTD. JAPAN
4