Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984 Sex úr jafn- teflisleiknum — í landsiiðshópi Wales Landsliðthópur Wales gegn ís- landi, fyrir HM-leikinn á Laugar- dalsvelli á miðvikudaginn kemur er skipaður eftirtöldum leik- mönnum: Markveröir: Neville Southall frá Everton og Andy Dibble, Luton Town. Aörir leikmenn: Jeff Hopkins Fulham, Kevin Ratcliffe Everton, Joey Jones Chelsea, Robbie James Stoke, Kenny Jackett Watford, Nigel Vaughen Cardiff, Peter Nicholas Crystal Palace, Neil Slatter Bristol Rovers, Alan Davis Man. Utd., Mickey Thomas Chelsea, Mark Hughes Man. Utd., Jeremy Charles QPR, Alan Curtis Southampton, Gordon Davies Fulham. Landsliöseinvaldur Wales er sá sami og fyrir fjórum árum er ísland mætti liöinu — Mike England. Sex þeirra leikmanna sem léku meö welska liöinu gegn íslandi í jafnteflisleiknum fræga í Swansea eru í hópnum hjá Wales nú. Varn- armennirnir Jones og Ratcliffe, Jeremy Caharles, Robbie James og Peter Nicholas á miöjunni og framherjinn Alan Curtis. Líklega veröa ekki nema þrtr þessara leikmanna í byrjunarliöi Wales nú: Jones og Ratcliffe í vörninni og Robbie James á miöj- unni. Morgunblaðið/Bjarni. Miöasala í „Taxanum“ Forsala aögöngumiða á landsleikinn viö Wales hófst í Austurstræti í gær og verður hún þar í dag og á morgun milli kl. 12 og 16 en á laugardag og sunnudag verða miðar seldir á heimilissýningunni í Laugardalshöll. Á mánudag og þriöjudag vera miöar seldir í Austurstræti og á leikdaginn, miðvikudag, verður sala þar frá kl. 10 til 16 og í Laugardalnum frá kl. 12 á hádegi. Á þessari mynd er þaö Ingvi Guðmundsson, sem sár um aö selja miða úr enska leigubílnum, sem stendur í Austurstræti og af svipnum má ráða að miöasalan gangi vel. Karl í stad Lárusar TONY Knapp, landsliösþjálfari í knattspyrnu hefur ákveðið aö Karl Þórðarson frá Akranesi bæt- ist í landsliðshópinn í stað Lárus- ar Guömundssonar sem er meiddur eins og viö skýrðum frá í blaöinu í gær. Karl lék sinn fyrsta landsleik ár- iö 1975 og hefur síðan leikiö 16 landsleiki fyrir ísland. Villa steinlá heima — Forest á toppinn eftir 5K)-sigur fri Bob Htnnauy, Mltamanni Morgunblaðninn i Englandi og AP. Nottingham Forest skaust upp í fyrsta sæti ensku 1. deildarinnar í knattspyrnu í gærkvöldi er liöiö vann stórsigur, 5:0, á Aston Villa, á Villa Park. Manchester United gerði sitt fjórða jafntefli í fjórum leíkjum í deildinni í gærkvöldi. Lák á heimavelli gegn Chelsea og Leiknir tapaði Ármenningar sigruðu Létti í úr- slitakeppni 4. deildar í hávaöa- roki og rigningu á Kaplakrikavelli í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 1:0 fyrir Létti, sem lék undan vindinum ( fyrri hálfleik og var það Kristinn Hjaltason sem gerði markiö. Óskar Þorsteinsson náði síðan að jafna metin þegar um þrjár mínútur voru eftir og á síö- ustu sekúndum leiksins tókst honum að skora annað mark og tryggja liði sfnu þrjú stig. A Fáskrúösfiröi áttust Leiknir og Reynir frá Árskógsströnd viö og bjuggust flestir viö sigri heima- manna, sem unnu Reyni 3:0 á Ár- skógsströnd fyrir skömmu. Reynis- menn voru þó á ööru máli, unnu leikinn 3:1 og voru þaö þeir örn og Björn, sem skoruöu mörkin, Örn geröi tvö, en fyrir Leikni skoraði Heigi Ingason. endaði leikurinn 1:1. Trevor Christie, sem Forest keypti frá Notts County í sumar, skoraöi þrjú mörk í gærkvöldi, en Steve Hodge og lan Bowyer geröi sitt markiö hvor. Bowyer geröi eina mark fyrri hálfleiks, Christie skor- aöi á 60., 68. og 88. mín. og Hodge á 78. mín. Steve Wigley átti frá- bæran leik á kantinum hjá Forest. Áhorfendur voru 17.730. Heimaliö- iö átti aldrei möguleika i leiknum, eins og úrslitin bera með sér. Jesper Olsen átti frábæran leik meö Manchester United gegn Chelsea á Old Trafford og skoraöi sitt fyrsta mark fyrir félagiö í deild- inni. Hann skoraöi meö fallegu vinstri fótar skoti á 15. mín. leiks- ins. Welski landsliösmaöurinn Mickey „apagríma" Thomas, sem áöur lék meö United, jafnaöi gegn sinum gömlu félögum á 50. mín. Þetta var fyrsti leikur hans i vetur eftir meiösli. Leikurinn var mjög grófur loka- kaflann og lét dómarinn, Saunders frá Newcastle, leikmenn komast upp meö hroöalegar taklingar. Gary Bailey, markvöröur United, var heppinn aö vera ekki rekinn af velli undir lokin er hann hreinlega „jaröaöi" Speedie, framherja Chelsea, er haföi komist einn inn fyrir vörnina, en Bailey var ekki einu sinni áminntur. Áhorfendur á Old Trafford voru 48.398. Norwich sigraöi WBA 2:1 með mörkum Mark Farrington og Peter Mandham. Tony Grealish skoraöi eina mark Alibon — jafnaöi 1:1 um miöjan síöari hálfleik, er hann skoraöi framhjá Chris Woods af stuttu færi. Leicester og Watford skiidu jöfn, 1:1, á Filbert Street. Les Tayl- or kom Watford yfir á 55. mín. en enski landsliðsmaðurinn Gary Lin- eker jafnaöi sex mín. fyrir leikslok. Fyrra mark leiksins geröi Taylor meö fallegu snúningsskoti eftir að Mark Wallington haföi variö frá Maurice Johnston. Wallington varöi tvívegis seinna í leiknum mjög vel frá Johnston og þaö var hann sem lagöi upp jöfnunarmark- iö. Hann átti langa sendingu frá á Lineker sem skoraöi eftir aö hafa stungiö vörn Watford af. Áhorf- endur: 12.055. Billiard: Alþjóda- mót hér FYRSTA alþjóðabilliardmótið hér á landi verður haldið dagana 1. til 4. nóvember nk. Tuttugu og fjórir keppendur munu taka þétt í mót- inu — tólf frá Englandi og tólf Íslendíngar. Meöal þeirra sem koma á mótiö frá Englandi veröa atvinnumaöur- inn Joe Johnson og tveir enskir landsliösmenn. Verölaun á mótinu veröa sem hér segir: 1. verölaun, 500 sterl- ingspund (21.000 ísl. kr.), 2. verö- laun, 250 pund (um 10.500 ísl. kr.) og 3. verölaun veröa um 150 pund (um 6.300 ísl. kr.). Dagana 15. og 16. september veröur haldiö úrtökumót fyrir keppnina og munu ellefu efstu menn komast í aöalkeppnina ásamt íslandsmeistaranum í billi- ard 1984, Jónasi P. Erlingssyni. Bæöi mótin veröa haldin á billi- ardstofunni Ballskák, Ármúla 19. Úrtökumótiö er opiö öllum íslensk- um billiardleikurum. Komnir og farnir! Forráðamenn spánska félags- ins Kanarí komu hingað til lands í fyrrakvöld til viöraaðna við Sigurð Gunnarsson, en eins og við hðfum skýrt frá er hann að velta því fyrir sér aö fara utan til að leika handknattleik. Þeir geröu ekki langan stans hér á landi aö þessu sinni þvi þeir flugu til Kanarl strax í gær án þess þó aö Siguröur heföi skrífað undir samning viö þá. Siguröur fer í dag utan meö handknatt- leiksliði lögreglunnar, sem tekur þátt í Evrópukeppni lögreglu- manna og sagöi Stgurður aö þegar hann kæmi heim aftur vonaðist hann til aö allt yröi komiö á hreint varöandi hans mál. Klaufaskapur Stutt- gart að tapa í gær Fré Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttamanni Morgunblaðsins f Vsstur-Þýskalandi. BAYERN MUnchen sigraói Stuttgart í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu, 3:1, fyrir framan 67.00 éhorfendur í Neckarstadion Atvinnumennirnir nú vel tryggðir „VIO höfum samband við félag þeirra leikmanna, sem viö fáum í landsleiki, og þau gefa upp þá upphæð sem þau vilja tryggja leikmanninn fyrir og við sjáum um að tryggja þá,“ sagði Páll Júlí- usson, framkvæmdastjóri KSÍ, í samtali við blm. Mbl. í gær þegar grennslast var fyrir um hvernig tryggingum væri háttað á þeim leikmönnum, sem leika erlendis, en koma heim til að leika lands- leíki fyrir ísland. Páll sagöi aö þeir skiptu viö þýskt tryggingafélag, sem væri stærst í heiminum á sviöi íþrótta- trygginga og héti Albingia. Þeir hafa séö um tryggingar vegna Evrópukeppna og eins vegna heimsmeistarakeppninnar. Félagiö sendi mann hingaö til lands í vetur og var um þaö samiö viö hann aö féiagiö sæi um allar tryggingar á okkar „erlendu" leikmönnum. Ekki er enn vitaö hvaö þetta muni kosta en vitaö er aö þetta kostar mikiö. Albingia sér um tryggingar fyrir flest liö í Þýska- landi og þegar leikmenn okkar þar þurfa aö leika hér heima hafa félög þeirra samband viö tryggingafé- lagiö og þaö sér síöan um aö leik- mennirnir séu rétt tryggöir í lands- leikjunum, sem þeir leika fyrir ís- land. í Stuttgart í gærkvöldi. Bayern var 2:0 yfir í leikhléi. Hans Pflugler skoraöi fyrsta mark- iö á 37. mín. og Bernd Durnberger bætti glæsilegu marki við á 44. mín. Roleder í markinu réö ekkert viö frábært skot hans frá víta- teigshorninu. Bayern var mun betra liöið í fyrri háifleik. í síöari hálfleik snerist dæmiö viö — Stuttgart sótti mun meira, og skoraöi á 68. mín. Hermann Ohlicher var þar aö verki af stuttu færi eftir fyrirgjöf Ásgeirs Sigur- vinssonar. Stuttgart átti stuttu seinna þverslárskot og tvö dauöa- færi en tókst ekki aö skora. Stutt- gart-liöið pressaöi mjög eftir markiö en á lokaminútunni skoraði Bayern þriðja markiö. Eftir mikla sókn Stuttgart var hreinsaö fram völlinn — Roland Wholfarth var einn á auöum sjó og gat ekki ann- aö en skoraö hjá Roleder. Jafntefli heföi ekki veriö ósanngjörn úrslit leiksins. Bayern átti fyrri hálfleikinn en Stuttgart þann selnni — eftir að leikmenn Bayern höföu dregiö sig til baka. En leikmenn meistaranna voru klaufar aö skora ekki nema eitt mark. Stuttgart-liöiö hefur enn ekki náö sér á strik í haust — allir leikmenn þess hafa spilaö undir getu. Feyenoord vann: Pétur lagði upp markið FEYENOORD sigraöi NAC Breda 1:0 á heimavelli í hollensku 1. deildinni í knattspyrnu í gær- kvöldi. Pétur Pétursson lék allan tímann með Feyenoord og þaö var eftir fyrirgjöf frá honum sem Houkstra skoraði eina mark leiksins. Tveimur umferöum er nú lokíö í Hollandi — Feyenoord tapaði fyrsta leiknum en vann nú, og er í 8. sæti með tvö stig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.