Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984 Þingkosningarnar í Kanada: Glæsilegur kosningasigur mælskumannsins Mulroneys Hörmuleg frammistaða forsætisráÖ- herrans gerði honum leikinn léttari í kosningunum í Kanada á þridju- dag urðu einhver mestu umskipti, sem orðið hafa í stjórnmálum þar í landi á þessari öld. íhaldsflokkurinn bar sig- ur úr býtum í öllum 10 fylkjum ríkis- ins og jafnvel í Quebec, höfuðvígi Frjálslynda flokksins, þar sem hann fékk ekki nema eitt þingsæti af 75 í síðustu kosningum. íhaldsflokkurinn ræður nú 211 þingsætum af 282 og hefur ekki verið hlutfallslega jafn sterkur síðan John Diefenbaker sigraði með yfirburðum árið 1958. Frjálslyndi flokkurinn hef- ur nú aðeins 40 þingmenn, litlu fleiri en Nýi demókrataflokkurinn, sem hefur 30. Ástæðurnar fyrir þessum stór- sigri eru margvíslegar. Kanada- menn voru orðnir leiðir á frjáls- lynda flokknum og samfelldri stjórn hans í 21 ár, leiðir á Pierre Trudeau, forsætisráðherra, sem lét af embætti í sumar eftir 15 ár, og farnir að una illa stöðnuninni f kanadísku efnahagslífi, miklu at- vinnuleysi og stórkostlegum halla á fjárlögum. Það, sem raunverulegum þáttaskilum olli, voru þó mennirnir sjálfir, John Turner, frambjóðandi Frjálslynda flokksins, og Brian Mulroney, frambjóðandi íhalds- flokksins. Þau mál, sem skipuðu öndvegið í hugum kanadískra kjósenda á átt- unda áratugnum, voru efnahagsleg þjóðernishyggja, hverjir væru best á verði gagnvart ímyndaðri eða raunverulegri ásælni Bandaríkja- manna, og reipdrátturinn milli fylkjanna. Á níunda áratugnum heyra þessi mál sögunni til. Kanadamenn eru enn að glíma við afleiðingar nærri tveggja ára krepputímabils, þess mesta eftir stríð, en á árunum 1981—82 minnk- aði þjóðarframleiðslan um 6%. Á síðasta ári jókst hún loks um 3,3% en atvinnuleysið hefur samt ekkert minnkað enn, er um 11%, og fyrir bandaríska dollarann fást nú ekki nema 76 kanadísk sent. Sigurviss for- sætisráöherra Þrátt fyrir þessar staðreyndir var John Turner bjartsýnn og sig- urviss þegar hann tók við embætti af Trudeau fyrir rúmum tveimur mánuðum. Honum hafði tekist að kveðja sér hljóðs á ný í stjórnmál- unum eftir nokkurt hlé og þaö, sem betra var, í skoðanakönnunum hafði hann gott forskot á Brian Mulroney, frambjóðanda íhalds- flokksins. Þess vegna lét hann það verða eitt sitt fyrsta verk í embætti að boða til nýrra kosninga. Fljótlega eftir að talning hófst varð Ijóst, að Brian Mulroney yrði 18. for- sætisráðherra Kanada. Hér fagnar hann úrslitunum, en hann fylgdist með talningunni í heimabæ sínura, Baie Comeau í Quebee. AP Mistök á mistök ofan Það kom fljótt í Ijós, að kosninga- barátta Turners var illa skipulögð og framkoma hans sjálfs einkennd- ist af einum mistökunum á fætur öðrum. Hann keypti sér stuðning Trudeaus í forsætisráðherraemb- ættið með því að lofa að koma 17 vildarmönnum hans í góðar stöður og þessi samningur reyndist honum dýrkeyptur í kosningunum. I kapp- ræðuþætti í sjónvarpi í júlí hamr- aði Mulroney á þessu og sakaði Turner um að hafa ekki haft bein í nefinu til að standa gegn Trudeau. „Ég átti ekki um annað að velja,“ svaraði Turner þá og Mulroney gekk strax á lagið. „Þú gast hafnað því. Þetta var rangt gagnvart fólk- inu í þessu landi og þú áttir um það að velja að segja nei.“ Óvirðing við konur Turner fór illa út úr þessum kappræðum og það átti ekki eftir að batna fyrir hann. Einu sinni sakaöi hann Mulroney um að hafa á prjón- unum að segja upp störfum 600.000 opinberum starfsmönnum ef hann kæmist til valda en Mulroney benti honum þá á, að allir ríkisstarfs- menn í Kanada væru ekki nema 500.000 talsins. Afdrifaríkastur fyrir Turner var þó e.t.v. sá kækur hans að vilja alltaf vera að klappa konum á rassinn. Honum varð þetta á í tvígang frammi fyrir alþjóð og í annað sinnið var um að ræða Ionu Campagnolo, formann Frjálslynda flokksins. Þegar þetta gerðist stóð Turner ekki mjög illa að vígi sam- kvæmt skoðanakönnunum en nú urðu snögg veðrabrigði. Áður hafði hann notið stuðnings helm- ings kanadískra kvenna en nú hrapaði hann niður í 34%. Mörgum fannst þetta mál vera blásið upp úr öllu valdi og ekki skipta máli þegar um væri að tefla efnahagslega framtíð þjóðarinnar en aðrir sögðu sem svo: Hvað gerist ef Turner verður forsætisráðherra og Elísabet drottning kemur í heimsókn? Ætlar hann þá líka að Honecker kveðst vilja til Vestur-Þýskalands Bandaríska geimferjan Discovery lendir í Edwards-flugstöðinni í Kali- forníu í gær eftir velheppnaða fjögurra milljóna kflómetra ferðalag um- hverfis jörðina. AP/ Simamynd Discovery heim úr vel heppnaðri ferð KdwardH-herflujfvellinum, 5. september. AP. GEIMFERJAN Discovery, sem bandaríska geimferðastofnunin sendi út 1 himingeiminn í miðri síð- ustu viku, lenti heilu og höldnu á Edwards-herflugvellinum f Kalif- orníu í dag kl. 13.38 að íslenskum tíma. Þá átti hún að baki fjögurra milljóna km velhcppnað ferðalag um- hverfis jörðina. Um borð í geimferjunni voru sex manns, þar af einn farþegi, sem McDonel Douglas-verksmiðjurnar greiddu kostnað af. Geimförunum tókst að koma þremur fjarskipta- hnöttum á braut umhverfis jörðu og einnig mun lyfjaframleiðsla um borð hafa tekist með ágætum. Fréttaskýrendur segja að árang- ur þessarar geimferðar sé mikill sigur fyrir geimferðastofnunina, en mistök f fyrri ferðum geimferja og seinkun á því að Discovery kæmist á loft í sumar höfðu vakið efasemdir um tæknilega getu starfsmanna stofnunarinnar. Gámar nást úr Mont Louis A-Berlín, 5. september. AP. ERICH Honecker leiötogi A-Þýzka- lands sagði í viðtölum bæði við fyrr- verandi utanríkisráðherra Japan og vestur-þýzka vísindamenn í dag, að hann mundi gera það sem í sínu valdi stæði til að af heimsókn sinni til V-Þýzkalands gæti orðið. Kvaðst hann TILRAUNIR stjórnarandstöðunnar í Chile til að lama allt þjóðlíf, mistókust í dag, en þó virtu flestir Chile-búar útgöngubann hersins að vettugi, eftir að franskur prestur og þrír aðrir létu líflð í gær, í tveggja daga mótmælaað- gerð stjórnarandstöðunnar. Rösklega 50 manns hafa slasast og um 280 manns verið handteknir vegna mótmælanna, sem eru þau út- breiddustu á undanförnum sex mán- uðum. Flutningabílstjórar lögðu niður vinnu í dag, en ástæður verk- fallsins voru þó taldar af efna- hagslegum toga, fremur en pólitísk- um. Franski presturinn lést af skot- sárum sem hann hlaut á skrifstofu sinni á annarri hæð. Sjónarvottar Kúbanir orðnir 10 milljónir Meiíkébori;, S. sept AP. FRÉTTASTOFA Kúbu skýrði frá því í morgun, að í ágústmánuði hefði íbúatala á Kúbu náð tíu milljónum manna. Þessi tiðindi munu hafa bor- ist þann 28. ágúst. Þá var talin ást- æða til að taka fram að 32 prósent þjóðarinnar væru fædd eftir bylt- ingu Fidels Castro árið 1959. ekki hafa hætt við heimsóknina, sem fyrirhuguð var í september, heldur að- eins frestað henni vegna „móðgandi ummæla" í V-Þýzkalandi. Orð sín út- skýrði hann ekki frekar, en austur- þýzk yflrvöld sögðu í gær að hætt hefði verið við ferðina vegna „opinbers segja að lögreglusveitir, sem halda áttu mótmælunum ( skefjum, hafi skotið úr vélbyssum á byggingar í grenndinni nokkru áður. Stjórnin setti á útgöngubann í borginni frá miðnætti til kl. 5 árdegis, meðan lögreglan hreinsaði logandi vegar- tálma sem unglingar höfðu sett upp f kringum borgina. Tilmæli stjórn- arinnar um að fólk héldi sig heima við í dag voru ekki virt og héldu flestir til vinnu sem áður. Stjórnin hefur einnig fyrirskipað ritskoðun hjá tveimur sjálfstæðum útvarpsstöðum og tekið fyrir sölu stjórnarandstöðudagblaðs. Mikið hefur verið gengið á eftir forseta landsins, Augusto Pinochet, til að koma aftur á lýðræði f landinu og sagði leiðtogi sex flokka lýðræðis- bandalagsins, sem komu mótmæla- aðgerðunum af stað, að mótmælin sýndu að meirihluti þjóðarinnar þráir aukið lýðræði. Hann sagði að ritskoðuninni hefði verið komið á einungis til að hylma yfir hina gíf- urlegu þátttöku f mómælunum. Stjórnarliðar segja hins vegar að aðeins lítið brot „andlega bilaðra manna,“ eins og Roberto Guillard, hershöfðingi, komst að orði, hafi tekið þátt f mótmælunum og þau myndu engan árangur bera. ágreinings" í V-Þýzkalandi um gildi heimsóknarinnar, en ýmsir þingmenn hafa lagst gegn heimsókninni. Sagði Honecker að við núverandi kringum- stæður væru eðlileg samskipti við Bonn ómöguleg. Leiötogi vestur-þýzkra vistfræð- inga, sem dveljast í A-Þýzkalandi, Jo Leinen, átti klukkustundar fund með Honecker í morgun þar sem Honecker lagði áherzlu á að ferð sinni vestur yfir hefði aðeins verið frestað um óákveðinn tfma en ekki aflýst. Hafi Honecker sagt að ákveöa yrði nýja dagsetningu er hentaði báðum aðilum. Þá sagöi Honecker við Yoshio Sakurauchi fyrrverandi utanríkis- ráðherra að hann vonaðist til að eiga eftir að heimsækja V-Þýzka- land, að sögn japanskra embætt- ismanna. Sakurauchi er formaður sendinefndar japanska þingsins, sem heimsækir Sovétríkin og A-Þýzkaland um þessar mundir, og átti fund með Honecker og Oskar Fischer í morgun. „Ég hef fengið boð um að heim- sækja V-Þýzkaland og ég vil þiggja það boð, en það verður að jafna ágreiningsefni áður en að heimsókn- in verður að raunveruleika. Heim- sóknin verður að bera árangur,“ er haft eftir Honecker á fundinum með Sakurauchi. Háttsettir embættismenn f Bonn telja skýringar á því að ekkert verð- ur af heimsókn Honeckers nú hrein- an fyrirslátt, hinn raunverulega ástæða sé sú að látið hafi verið und- an þrýstingi Sovétmanna. Fjölmiðlar í A-Þýzkalandi skýrðu aðeins frá þvf í dag að ferðin yrði ekki farin nú, eins og fyrirhugað hefði verið, en fjölluðu ekki nánar um málið og engar yfirlýsingar voru hafðar eftir Honecker. Sovézkir fjölmiðlar fjölluðu ekki um málið f morgun, utan þess að birtar voru örstuttar fréttir um að hætt hafi verið við heimsóknina. Ontendr, 5. seplember. AP. Björgunarmönnum tókst f morgun að fjarlægja þrjá tóma gáma, sem flutu út úr lestum flutningaskipsins Mont Louis, sem sökk f Norðursjó 25. ágúst sl. með 30 gáma af geislavirku úrgangsefni. Um borð í skipinu voru einnig 22 tómir gámar og hefur fjórum þeirra verið bjargað, hinum fyrsta á sunnudag. Áfram verður haldið björgun tómu gámanna á næstu fjöru, en óljóst er hvenær reynt verður að bjarga geislavirka úr- gangsefninu. Mont Louis, sem er rúmlega fjög- urþúsund lesta flutningaskip, sökk 19 km undan Belgfuströnd eftir árekstur við Norðursjávarferju. Liggur skipið á stjórnborðshliðinni á 14 metra dýpi. Útgöngubann virt að vettugi Santiago, Chile, 5. september. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.