Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984
SIEMENS
SIEMENS — hrærivélin MK 4500:
Fyrirferöarlítil og fjölhæf og
allir aukahlutir fylgja meö!
Verö
aöeins
kr. 6.500
• þeytir, hrærir, hnoöar,
• rífur, sker, saxar, hakkar og blandar
bæöi fljótt og vel.
Siemens — stendur ætíö fyrir sínu.
Siemens — einkaumboö:
SMITH & NORLAND HF.,
Nóatúni 4, 105 Reykjavík.
Sími28300.
Alltaf á föstudögum
liMötÉM®
Alltaf ad uppgötva
eitthvaö nýtt
— Rætt viö Knút Bruun eiganda List-
munahússins.
Trjárækt á höfuöborgar-
svæöinu
— Sagt frá nýjum tillögum í þeim efn-
um.
Arnarhóll
— Fyrr og s/ðar í myndum og máli.
Norman Mailer
— í viðtali
Föstudagsblaðid er gott forskot á helgina
Edith Picht
— Axenfeld
Tónlíst
Egill Friöleifsson
Austurbæjarbíó 4.9.’84.
Flytjandi: Kdith Picht-Axenfeld
Efnisskrá: Mozart, Fantasía í c-moll
K475
Sónata í c-moll K457
Beethoven, Fantasía op. 77
Sónata í e-moll op. 90.
Schubert, Sónata í A-dúr D959.
Nýtt starfsár Tónlistarfélagsins
hófst í Austurbæjarbíói sl. þriðju-
dagskvöld með píanótónleikum
Edith Picht-Axenfeld, þar sem
hún lék verk eftir þá Mozart, Beet-
hoven og Schubert. í upphafi var
þess minnst, að einn af stofnend-
um Tónlistarfélagsins og formað-
ur þess um langt árabil, Ragnar
Jónsson, hafði látist í sumar.
Vottuðu viðstaddir honum virð-
ingu sína með því að rísa úr sæt-
um. Edith Picht-Axenfeld er
okkur að góðu kunn. Hún hefur
áður komið hingað til tónleika-
halds og einnig sem leiðbeinandi á
námskeiði sem haldið var í tengsl-
um við þing norrænna tónlistar-
uppalenda árið 1981. Vakti koma
hennar þá verðskuldaða athygli,
og kemur ekki á óvart að til henn-
ar skuli leitað á ný. Víðtæk þekk-
ing hennar og skilningur á við-
fangsefnunum, vandaður píanó-
leikur og sérstæðir persónutöfrar
gera hana eftirminnilega bæði í
kennslustofu og á konsertpalli.
Hún er góður fulltrúi mið-evr-
ópskrar hámenningar og á þakkir
skildar fyrir framlag sitt til ís-
lenskra tónmennta.
Sem fyrr segir flutti hún okkur
verk eftir Mozart, Beethoven og
Schubert. Meðlimir Tónlistarfé-
lagsins eru góðu vanir, þegar Vín-
arklassíkin er annars vegar, og má
minna á ógleymanlegar stundir
t.d. með þeim stórmeisturunum
Rudolf Serkin og Alfred Brendel
auk margra annarra, en Edith
Picht-Axenfeld sómir sér vel í
þeim hópi. Leikur hennar ber öll
merki hins þroskaða listamanns
er skilur viðfangsefni sín út í
hörgul og miðlar til áheyrandans
á sinn hljóðláta, persónulega hátt
„Eftir því sem okkur heyrist á fé-
lagsmönnum þá munu flestir greiða
þá 3% launahækkun 1. september
sem umsamdist í vetur, þrátt fyrir
það að verkalýðsfélög hafi sagt upp
íaunaliðum samningsins,” sagði
andblæ göfugrar listar, og lyftir
sálartetrinu úr gráma hversdags-
ins á ögn hærra plan.
Raunar er óþarfi að fjalla um
hvert einstakt verk á efnisskránni,
heldur skulu ítrekaðar þakkir til
Edith Picht-Axenfeld.
Júlíus Kr. Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnumálasambands
samvinnufélaganna, í samtali við
Morgunblaðið.
Eins og sagt hefur verið frá í
Morgunblaðinu, samþykkti stjórn
Vinnumálasambandsins ályktun
þess efnis að eðlilegt væri að 3%
launahækkunin komi til fram-
kvæmda núna 1. september, þar eð
fyrirsjánalegt sé í komandi samn-
ingaviðræðum að þessi greiðsla
yrði ekki felld niður. Hins vegar
væri eðlilegt að félagar á hverjum
stað taki ákvörðun um það hvenær
hún komi til framkvæmda, þar
sem aðstæður séu misjafnar á hin-
um ýmsu stöðum á landinu.
Júlíus sagðist ekki vita um neitt
dæmi þess að félag í Vinnumála-
sambandinu hefði ekki greitt hina
3% launahækkun og hann reikn-
aði með að flest félögin hefði
greitt hana nú 1. september.
VJterkurog
L/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Veriö
velkomin
ópavogsbúaT
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
þlástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opiö frá kl. 9—18 á virkum dögum.
Lokað á laugardögum í sumar.
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
Egill Friðleifsson
Vinnumálasamband samvinnufélaganna:
Flest aðildarfélögin greiddu
3 % launahækkunina 1. september
Sarnafíl
VIÐHALDSFRÍTT ÞAKEFNI
TIL ENDURNÝJUNAR -TILNÝBYGGINGA
FAGTÚN HF LÁGMULA 7, 105 REYKJAVIK, SIMI 28230