Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984
34
„í fjötrum“ í Stjörnubíói
STJÖRNUBÍÓ hefur tekið til sýn-
ingar bandarisku kvikmyndina „í
fjötrum“ (Chained heat), gerða af
Vincent Mongol og Paul Nicolas.
Myndin gerist í kvennafangelsi
þar sem tvö þúsund konur afplána
refsingu sina, en allar hafa þær
hlotið langtímadóma fyrir alvar-
lega glæpi. 1 fangelsinu er baráttan
enn harðari en utan dyra. Þar gild-
ir lögmál frumskógarins þar sem
hinn sterki sigrar.
Leikstjóri myndarinnar er Paul
Nicolas en með aðalhlutverk fara
Linda Blair, John Vernon, Sybil
Danning og Sharon Hughes.
Forsætis-
ráðherra á
opnum fundi
FULLTRÚARÁÐ framsóknar-
félaganna í Reykjavík gengst
fyrir almennum stjórnmála-
fundi á Hótel Sögu, í Átthaga-
sal, í kvöld 6. september
klukkan 20.30, aö því er segir
í frétt frá Fulltrúaráöi fram-
sóknarfélaganna í Reykjavík.
Framsögumaður á fundin-
um verður Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra.
Mun Steingrímur fjalla um
viðræður stjórnarflokkanna,
útfærslu stjórnarsáttmálans
á árinu 1985 og útlit og horf-
ur í þjóðarbúskap Islend-
inga.
Að framsöguræðu lokinni
verða almennar umræður og
forsætisráðherra svarar
fyrirspurnum fundarmanna.
Sjötugur:
Ásgeir Bjarnason form.
Búnaðarfélags íslands
Ásgeir Bjarnason i Ásgarði,
formaður Búnaðarfélags íslands,
og fyrrverandi Alþingisforseti er
sjötugur í dag. Starfsfólk Búnað-
arfélags lslands sendir honum og
kenu hans, Ingibjörgu Sigurðar-
dóttur, sínar bestu kveðjur og árn-
aðaróskir i tilefni timamótanna.
Ásgeir Bjarnason hefur gegnt
svo mörgum trúnaðarstörfum
fvrir sveit sína, hérað og alþjóð, að
of langt yrði upp að telja í stuttri
kveðju, og skal hér aðeins minnst
á störfin fyrir Búnaðarfélag ís-
lands en þvi hefur hann nú verið
tengdur i þrjátiu og fjögur ár.
Hann var kosinn á Búnaðarþing
árið 1950, i stjórn Búnaðarfélags
íslands 1967 og formaður þess hef-
ur hann verið siðan 1971 og jafn
lengi forseti Búnaðarþings. For-
mannsstarfinu fylgir jafnframt
seta í ýmsum stjórnum og nefnd-
um sem vinna fyrir landbúnaðinn
og bændastéttina. Þvi eru störfin
sem Ásgeir hefur unnið á vegum
Búnaðarfélags íslands fjölþættari
og meiri en flesta mun gruna.
Öll þessi störf svo og öll önnur
störf á sviði félags- og þjóðmála
hefur Ásgeir unnið af stakri prúð-
mennsku, samviskusemi og ósér-
plægni. Hann kemur hvarvetna
fram sem hinn trausti, íhuguli
bændahöfðingi og er sómi bænda-
stéttarinnar og félagsskapar
hennar i öllum sínum háttum og
framgöngu.
Gagnvart starfsfólki Búnaðar-
félags íslands kemur hann fram
af umhyggjusemi og vingjarnleik.
Hann fylgist vel með störfum
hvers og eins og sýnir þeim áhuga
sem jafnframt er til hvatningar.
Hann lítur oft við á skrifstofum
ráðunauta og annars starfsfólks
broshýr og alúðlegur og spyr
hvernig gangi. Öllum sýnir hann
sama áhuga og allir finna að störf
þeirra eru metin. Með þessu stuðl-
ar hann að góðum starfsanda, sem
er ómetanlegur á hverjum vinnu-
stað.
Við minnumst fjölmargra
ánægjulegra stunda með Ásgeiri
og Ingibjörgu þar sem kímni Ás-
geirs og gamansemi hefur lífgað
upp hópinn, og vonumst við eftir
því að eiga með honum margar
fleiri á ókomnum árum bæði við
störf og leik.
Starfsfólk Búnaðarfélags íslands.
Þessir skipsskrokkar bíða þess nú I Reykjavíkurhöfn, að Sólbakur EA
dragi þá utan.
Sólbakur EA dregur þrjú
skip utan í brotajárnsvinnslu
— hlýtur sjálfur sömu örlög að loknu þessu verkefni
TVEIR skipsskrokkar liggja nú
bundnir í Reykjavíkurhöfn og bíða
þess að verða dregnir utan til niður-
rifs og bræðshi málma úr þeim.
Fyrirhugað er að togarinn Sólbakur
dragi þá utan auk þriðja skipsins og
verði það síðasta verkefni þessa
gamla togara Útgerðarfélags Akur-
eyringa.
Það er Stálfélagið, sem keypt
hefur þessi skip af Úreldingar-
sjóði og skuldbundið sig til þess,
að rífa þau niður. Sigtryggur
Hallgrímsson hjá Stálfélaginu
sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins, að skipin yrðu
rifin erlendis vegna þess, að eins
og væri borgaði sig ekki að gera
það hér heima. Fyrirhugað væri
að fara utan með fjögur skip,
skrokkana tvo i Reykjavíkurhöfn,
en þeir hefðu um tíma legið inni á
Sundum, Sólbak frá Akureyri og
ögmund frá Þorlákshöfn. Ekki
væri enn ljóst hvenær af þessu
yrði, en ákveðið að Sólbakur drægi
hin þrjú skipin utan.
Fiskmarkaðurinn í Grimsby: *
47,54 fyrir kíló af þorski
TOGARINN Beitir seldi 123,2 lest-
ir í Grimsby í gær og fékk mjög
gott verð fyrir aflann, þrátt fyrir að
hann færi ekki allur í fyrsta flokk.
Sem dæmi má nefna að Beitir fékk
47,54 krónur fyrir kílóið af stórum
þorski.
Eins og áður sagði landaði
Beitir NK alls 123,2 lestum.
Heildarverð var 3.792.500 krón-
ur, meðalverð 30,79. Aflinn var
mestmegnis þorskur og fóru
55% hans í 2. gæðaflokk, en af-
gangurinn skiptist nokkuð jafnt
milli 1. og 3. gæðaflokks. Það
skal tekið fram, að mjög litið var
af stórum þroski í afla Beitis, en
fyrir milliþrosk, sem mest var af
í aflanum, fengust að meðaltali
34,93 krónur fyrir kílóið.
Á þriðjudag lauk Viðey RE við
að selja afla sinn i Cuxhaven.
Alls seldi Viðey 265 lestir af
karfa og ufsa. Heildarverð var
5.995.000 krónur, meðalverð
22,61.
Þetta er dans fyrir stráka og stelpur, ungar stúlkur og herra
og Jass fyrir konur á besta aldri.
Kennslustaöir:
Bolholt 6
Tónabær
, Geröuberg
Henný Þrekmiöstööin, Hafnarfiröi.
Innritun er í Bolholti 6, símar 68-
74-80 og 68-75-80 daglega frá kl.
14—19.
Afhending skírteina sunnudaginn
16. sept. í Bolholti 6, kl. 14—19.
SPES!
Jass-leikskóli fyrir 4—9 ára börn.
Jass-dans Guffi — Mikki mús og Jóakim.
Jass-ballet m.a. dansar úr „Fame“.
Step- Tap-dans 6 ára og eldri.
Akbrobatik.
BREAK.
DANSSTÚDÍÓ,
^
Fjölbreytt námskeið hefjast mánudaginn 17.
september 1984.
OKKAR DANSAR ERU
Bolholt 6.
Böð og sól á staðnum