Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 51
51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984
Myndmenntakennarar:
Mótmæla skerðingu
kennslustundafjölda
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá Fé-
lagi íslenskra myndmenntakennara.
„Á fundi myndmenntakennara
sem haldinn var 30. ágúst sl. var
samþykkt eftirfarandi ályktun:
Myndmenntakennarar harma
sparnaðarráðstafanir ríkisstjórn-
arinnar í skólamálum. Fundurinn
tekur undir áskorunarbréf for-
manns Kennarasambands Islands
til ráðherra, sem birst hefur í fjöl-
miðlum og kveður á um skerðingu
kennslustundafjölda samkvæmt
viðmiðunarstundaskrá.
Fundurinn varar eindregið við
að sífellt sé verið að skerða
kennslu í myndmennt."
t
Þökkum innilega vinsemd og samúö sem okkur var sýnd vegna
andláts og jarðarfarar
INGIBJARGAR MARKÚSDÓTTUR
frá Arnarnúpi í Dýrafirði.
Markúa Stsfánsson, Hulda Jónsdóttir,
börn og barnabörn.
Miðstjórn
Alþýöubandalagsins:
t
Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Kristínar Halldórsdóttur,
Hólsvegi 11, Reykjavík.
Halldóra Bjarnadóttir,
Anna Bjarnadóttir,
Bjarni K. Bjarnason,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Vörumarkaðurinn ht.
Ármúla og Eiöistorgi.
Hvetur til bar-
áttu á kom-
andi mánuðum
Þensla á höfuðborg-
arsvæðinu „mergsýg-
ur sjávarútveginn"
Á FUNDI midstjórnar Alþýðubanda-
lagsins, sem haldinn var á Akureyri
2. september sl., var samþykkt
„hvatning til launafólks“. Hvatt er
til „órofa samstöðu launafólks í bar-
áttu fyrir mannsæmandi kjörum og
gegn afleiðingum stjórnarstefnunn-
ar“, eins og segir í fréttatilkynningu
frá miðstjórninni.
Orðrétt segir í tilkynningunni:
„Reynt er að nota vanda sjávar-
útvegsins til að halda launum
niðri, en vitaskuld er unnt að
hækka laun þar eins og annars
staðar með því að létta af sjávar-
útveginum okurgjöldum banka og
skipafélaga, svo dæmi séu nefnd.“
„Við skorum á launafólk að taka
virkan þátt í baráttunni á kom-
andi mánuðum, ella verður haldið
áfram að þrengja að kjörum ykk-
ar,“ segir í hvatningu Alþýðu-
bandalagsins. „Fjármunir eru til í
þjóðfélaginu og verðmætasköpun-
in er mikil. Það er unnt með sam-
stöðu að knýja fram breytingu á
þjóðfélaginu launafólkinu í vil;
það þarf pólitískt afl og einbeittan
vilja til þess að koma þeim breyt-
ingum í framkvæmd þannig að á
íslandi skapist forsendur fyrir
þjóðfélag mannúðar, jafnréttis og
lýðræðis í stað sundrungar, sér-
hyggju og valdboðs.“
Þá sendi miðstjórnin frá sér
„Aðvörun vegna samningavið-
ræðna við Alusuisse" og „kröfu um
íslenska atvinnustefnu. Þar segir
að „þensla á höfuðborgarsvæðinu
og gróðasöfnun milliliða merg-
sjúgi sjávarútveginn og aðrar
framleiðslugreinar" og að „brýn
þörf sé á nýrri byggðastefnu".
Verkafólk
í fiskiðnaði
sýni samstöðu
FÉLAG verkafólks í fiskiðnaði var
stofnað 16. aprí sl. í fréttatilkynn-
ingu sem Morgunblaðinu hefur bor-
ist frá félaginu segir að hlutverk
þess sé m.a. að efla samheldni
verkafólks í flskiðnaði, að gæta
hagsmuna verkafolks í fiskvinnslu
gagnvart atvinnurekendum í sam-
vinnu við stéttarfélögin, og að stuðla
að verðmætaaukningu sjávarafurða,
með aukinni vöruvöndum félags-
manna við vinnu sína.
í fréttatilkynningunni er verka-
fólk í fiskiðnaði jafnframt hvatt
til að standa saman um að fá kröf-
um sínum framgengt, um átta
stunda vinnudag og fuíla atvinnu
allt árið.
ORVAUDERÖVISAIW!
Vanti
hvað aniia
i þig skólabækur, skólatöskur, ritföng eða
inað sem að gagni kemur við námið þá ertu á
réttum stað hjá okkur.
Bókabnð
V.MÁLS & MENNINGAFO
LAUGAVEG118-101 REYKJAVÍK SÍMAR: 24240 - 24242