Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984 45 Hvannasalat Hvannastilkar eru góðir í salat með ýmsu grænmeti, t.d. með gúrkum og tómötum sem blanda má saman í sýrðum rjóma, svo eitthvað sé nefnt. Hvannasúkkat Fínir mjóir stilkar skornir í bita, soðnir nokkrum sinnum í sykur- legi og geymdir síðan í glerkrukk- um. Notað sem súkkat á kökur, sem sælgæti og fleira. Krydd Blöð hvanna eru góð sem krydd klippt fersk í sósur og uppstúf. Mjög góður graflax fæst með því að láta ferskan fisk liggja í hvanna- og rifsberjablöðum við söltun. Hvannafræ má nota sem krydd á ofnbakaðan saltfisk. Úr hvanna- fræjum má og gera „kapers", súr kryddkorn. Óþroskuð fræ eru látin standa í sjóðandi legi (einn lftri vatn og 125 g salt) í einn sólar- hring. Síuð upp úr og soðin í svo- litlu af ediki með nokkrum hvítum piparkornum í stutta stund. Kælt, sett á krukkur með piparkornum. Notað í ýmsar fiskisósur og fleira. Mjólk og brennivín Öl mun hægt að gera af hvönn og hvannabrennivín má gera þannig, að hvannastilkar og blöð eru sett á glös með hreinum spíri- tus og látið standa tvær vikur við stofuhita. Hvannamjólk þykir víða herramannsmatur t.d. í Lapplandi. Hvannastönglar eru þá soðnir í mjólk á sama hátt og gert var með fjallagrös víða á Islandi. Þegar notaðir eru hvanna- stönglar til matar ber að varast, að taka stóra úr sér vaxna stöngla, sem eru trénaðir, heldur litla ný- vaxna stöngla, en þá er alltaf hægt að fá, því nýir sprotar vaxa allt sumarið. Milljónaiðnaður Fyrr á öldum fengu menn í Kóreu kraft úr ginseng-rótum, sem þeir „veiddu“ samkvæmt sín- um helgisiðum, með boga og örv- um. í Norður-Kína sóttu menn kraft og heilsu í þurrkuð ber scik- isandra-runnans og Inka-indíán- arnir í Perú héldu sér heilbrigðum með camu-camu ávöxtum. En ís- lendingar og aðrir Norðurlanda- búar fengu kraft og viðhéldu heilsu sinni til elliára með hvönnum. Ginseng-rótin hefur um langan tíma verið framleidd og seld sem hressingarlyf víða um heim og ís- lendingar og aðrir Vesturlandabú- ar kaupa ginsengrót fyrir mikið fé árlega. Það má ljóst vera að hvönn stendur í engu að baki hinni verð- mætu ginseng-rót, hvað varðar eiginleika ýmiskonar og nýtingar- möguleika. Á sama hátt og gin- seng-rótin og aðrar fornar lækn- ingajurtir eru nú undirstaða milljónaiðnaðar víða um heim, gæti hvönnin orðið okkur íslend- ingum gullnáma. Nóg er af hvönn út um allt land og ef þörf krefur má auðveldlega rækta hvönn á landi, sem friðað er fyrir sauðfé. Einnig mætti hugsa sér að hvannarækt gæti orðið arðbær aukabúgrein bænda, með öðrum búskap. En hvönnin yrði síðan seld til stöðva, sem fullynnu afurðir til útflutnings. Vafalítið er til nægjanleg þekk- ing í landinu í efnafræði og lyfja- gerð til þess að framleiða sam- keppnishæf heilsu- og lækningalyf úr hvönnum og mörgum öðrum ís- lenskum lækningajurtum. T.d. má framleiða asperín úr mjaðarjurt. Sala lækninga- og heilsulyfja er sem áður sagði einhver arðbærasti iðnaður, sem þekkist í heiminum í dag, og þetta er iðnaður sem mundi henta vel á íslandi og iðn- aður, sem vafalítið gæti aukið heilsu og tekjur landsmanna. 1‘orvaldur Fridriksson er íornleifa- íræOingur, búsettur í Sríþjóð. Heilsudýna gegn bakverkjum í frétt frá fyrirtækinu Aqua Sport í Randers í Danmörku segir að Bay iacobsen hafi fundið upp og þróað yfirdýnu, sem gefíst hafí vel fyrir þá, sem líða vegna bakverkja og verkja í vöðvum og liðamótum. Fyrrnefnt fyrirtæki hefur tek- ið að sér sölu og dreifingu á dýn- um þessum á Islandi. Það mun starfa í Danmörku fram á mitt næsta ár, en þá hefja starfsemi sína á íslandi. Eigendur fyrir- tækisins eru Ragna Ragnarsdótt- ir og Guðmundur Harðarson, sundþjálfari. Dýnuna á að leggja undir Iak ofan á rúmdýnuna, en yfirdýnan er 3 sm þykk. Hún er fyllt með kúlum, sem einangra og nudda vöðvana og dreifa þyngd líkam- ans á dýnuna, segir í frétt frá Aqua Sport. VETRARSTARFIÐ HEFST 10. SEPT. ASTA JENNY JAZZ—LEIKFIMI — JAZZ-DANS — JAZZ-BALLET BJÓÐUM UPP Á SAUNA, NUDDPOTT, LJÓS OG STURTUR OG SKEMMTILEGA SETUSTOFU. JAZZ-LEIKFIMI: FYRIR KONUR Á ÖLLUM ALDRI MIS ERFIÐIR TlMAR: JAZZ-DANS: SPENNANDI TtMAR ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT. JAZZ-BALLET: ERFIÐ OG MARKVISS ÞJÁLFUN FYRIR STRÁKA OG STELPUR. SOLVEIG HAMARKS FJÖLD115 í TIMA INNRITUN HAFIN í SÍMA 13880 FRÁ KL. 14 - 17 . ALLA VIRKA DAGA ERUM Á BESTA STAÐ í BÆNUM VIÐ HLEMM NÆG BÍLASTÆÐI. JAZZ SPORtÐ HVERFISGATA 105 SÍMI:13880 HÖFUM OPNAÐ FLEIRITIMA ALMENNRI MÚSSIKLEIFFIMI MORGUN - DAG - OG EFTIRMIDDAGSTÍMAR ALLTAF HEITT Á KÖNNUNNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.