Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984 ÆSKAN ER KOMIN! Meðal efnis er: ★ Glæsileg veggmynd af Dúkkulísunum ★ Skemmtileg stunda- skrá ★ Breakdans ★ Poppmúsik ★ íþróttir ★ Draumaprinsar og prinsessur ★ Gagnvegir ★ Litmyndir af meistara- flokkum Fram og Þróttar Allir eiga samleiö meö Æskunni Áskriftarsími 17336 Pottþéttur ferðafélagi Borgarljós ásamt 18 öörum lögum á aöeins kr. 399,- u*t*tc 19 ferðalög Bílsnælda ársins! — Safn — Drerfing Fálkjnn hf. íslensk fyrirtæki geta notað reynslu danskra starfsbræðra eftir Steinar Steinsson DA-skólinn Danmörk er þekkt sem land góðra skóla og markvissrar stefnu í fræðslumálum. Dönum er ljóst að þekking og kunnátta skapa verðmæti og að þær eru auðlindir ekki síður en hráefni og orka. Þar sem landið er fátækt af hráefnum og orku eru mannleg þekking og hæfni sett í öndvegi sem verð- mætaskapandi öfl. Auk skólanna er í Danmörku mikið framboð af námskeiðum, sem ætluð eru til eftirmenntunar og endurmenntunar. Flest hafa þessi námskeið það að markmiði að auka hæfni og kunnáttu ein- staklingsins og gera hann virkan þátttakanda í dönsku atvinnulífi. Þau tryggja ennfremur að starfs- framlag einstaklingsins verði traustur þáttur í verðmætasköpun og samkeppnisstöðu í dönskum atvinnurekstri og renni stoðum undir trygga afkomu borgaranna. Námskeiðin hafa í verulegum mæli efnahagsleg markmið og beinast því að aukinni þekkingu og hæfni til að leysa af höndum störf af meiri nákvæmni, aukinni vandvirkni og með betri afköstum en áður. Hagnýting þekkingar Vissulega er hráefni ekki trygg- ing fyrir góðri afkomu nema skilningur sé fyrir hendi að nýta það rétt. Þó eru þekking og kunn- átta engin trygging fyrir vel- gengni nema þekkingunni og kunnáttunni sé fylgt eftir á réttan hátt. Danska Vinnuveitendasam- bandið ásamt ýmsum aðildar- samtökum þess hafa gert sér ljósa grein fyrir nauðsyninni að kveikja neista, sem virkjar og breytir þekkingu og tækni í áþreifanleg raunverðmæti. í íslenskri fram- leiðslu og þjónustustarfsemi er mikil nauðsyn á að styrkja þau viðhorf, sem stefna í sömu átt og hjá danska Vinnuveitendasam- bandinu. Það er ljóst að eigi að kveða niður verðbólgudrauginn fyrir fullt og allt þarf framleiðni- aukningu, sem aðeins markviss hagnýting þekkingar á öllum svið- um getur tryggt og hér getum við lært mikið af frændum okkar Dönum. Það var því áhugavert að kynna sér þá námskeiðastarfsemi sem rekin er í DA-skólanum (Dansk Arbejdersgiver Skolen). Starfsem- in fer aðallega fram á tveim stöð- um í Danmörku, Arresöhöj á Sjál- andi og Bögehöj á Jótlandi. Verkaskipting á milli staðanna er í höfuðatriðum sú að á Arresöhöj eru haldin námskeið fyrir verk- stjóra og rekstrarstjóra sem að mestu annast daglegan rekstur fyrirtækisins. Á Bögehöj eru hinsvegar haldin námskeið fyrir framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn fyrirtækja, sem fást við stefnumörkun fram i tímann hjá fyrirtækinu. Steinar Steinsson Innra frumkvæði Binn öflugasti meiðurinn í starfsemi DA-skólans í dag geng- ur undir nafninu „fornyelse inde- fra“ og er miðstöð hans í Bögehöj við Ebeltoft. Það var því áhuga- vert að kynna sér starfsemi DA- skólans í Ebeltoft og þeim já- kvæðu viðhorfum, sem þar ríktu. Þessi sérstæði titill á námskeiðinu er tilkominn sem ábending um nauðsyn þess að í innra starfi fyrirtækisins verði að vera fyrir hendi frumkvæði, þekking og hæfni til að tryggja afkomu fyrir- tækisins og starfsmannanna þrátt fyrir erfið ytri skilyrði. Reynslan hefur kennt að ekki ætti að treysta á að ríkisstjórnin og stjórnmálamenn bæti ytri skilyrði atvinnurekstrarins. Góðir stjórn- málamenn hafa skilning á að búa atvinnuvegunum góð skilyrði og gera sér grein fyrir þýðingu hag- vaxtar í framleiðslu og þjónustu- greinum. En gallinn er bara sá að góðir stjórnmálamenn eru sjald- gæfir og biðin eftir að úr rætist á því sviði getur orðið löng og ör- lagarík. Því er nauðsyn að treysta fyrst og fremst á sjálfan sig og reyna að ná árangri við þær að- stæður, sem fyrir hendi eru. Uppbygging námskeiðsins Þar sem Meistarafélag járniðn- aðarmanna, Vinnuveitendasam- band íslands og Iðntæknistofnun hafa í sameiningu lagt grunn að því að nálgast umrætt námskeið er rétt að gera nokkra grein fyrir því hér. Námskeiðið sækja minnst tveir starfsmenn frá hverju fyrir- tæki og er það gert til að auðvelda hagnýtingu þeirra áætlana, sem gerðar verða á námskeiðinu. Þá skulu þeir og hafa á hendi stjórn- unarstörf hjá viðkomandi fyrir- tæki. Það sem aðgreinir þetta nám- skeið frá öðrum námskeiðum er að námsefnið er ekki mótað í upp- hafi. Ekki er stuðst við dæmi um fyrirtæki sem á í erfiðleikum og samdar tillögur um hvernig standa beri að því að koma fyrir- tækinu á réttan kjöl. Hér koma menn með staðreyndir úr eigin fyrirtæki, þeir skilgreina mark- mið fyrirtækisins, lýsa rekstri þess, skoða vankantana. dratra unn Horgunblaiið/ Bæríng Cecilsson. Hornsteinn í Stykkishólmskirkju Hornsteinn var lagður í byggingu nýrrar kirkju í Stykkishólmi 19. ágúst sl. Við athöfn- ina mæltu biskupinn yfir Islandi, herra Pétur Sigurgeirsson, og séra Gísli Kolbeins, prestur í Stykkishólmi. Meðfylgjandi mynd var tekin við athöfnina í kirkjubyggingunni. Tómstundaiðja ungmennæ Piltar og yngri börnin horfa mest á myndbönd Öldruð kona fyrir bifreið LAUST fyrir klukkan 14 á laugardag varð öldruð kona fyrir bifreið á Hringbraut, skammt fyrir austan Ljósvallagötu. Konan, sem er 88 ára gömul, fótbrotnaði og hlaut höfuð- meiðsl en er ekki talin í lífshættu. Maðurinn sem varð fyrir bifreið á Hverfisgötu fyrir nokkru er enn meðvitundarlaus en hann hlaut alvarlega höfuðáverka. Maðurinn er 67 ára gamall. SHÍ mótmælir skerðingu á kjör- um námsmanna 6. fundur stúdentaráðs Háskóla íslands, haldinn 23. ágúst, álvktar: Með afstöðu sinni og augljósu viljaleysi til að leysa fjárhags- vanda Lánasjóðs íslenskra náms- manna, ber menntamálaráðherra ábyrgð á einni stærstu skerðingu sem námsmenn hafa mátt þola til þessa. Sú ákvörðun menntamála- ráðherra að afnema víxillán til 1. árs nema hefur gert áralanga rétt- indabaráttu námsmanna að engu. Er með ólíkindum hversu iðin nú- verandi ríkisstjórn er við skerð- ingar á kjörum þeirra er síst mega við því. Það fólk sem mest þarf á aðstoð LÍN að halda er fólkið sem orðið hefur harðast úti í kjara- skerðingu þeirri sem dunið hefur yfir síðasta ár. Ákvörðun mennta- málaráðherra er ein grófasta að- för að LÍN og námsmönnum, sem gerð hefur verið lengi, og stangast á við þá grundvallarhugsun sem liggur að baki LÍN, það er að allir hafi jafnan rétt til náms, óháð efnahag, búsetu eða kyni. SHÍ mótmælir harðlega þessari ákvörðun menntamálaráðherra. Stúdentar hafa verið seinþreyttir til vandræða, en við svo búið verð- ur ekki lengur unað. (Kréttatilkynning) Umfangsmikil könnun á tóm- stundavenjum og viðhorfum ung- menna í efri bekkjum grunnskólans í Reykjavík fór fram þ. 3. aprfl sl. meðal nemenda 5., 7., og 9. bekkjar grunnskólans í nær öllum skólum borgarinnar og tók til 1.704 nem- enda alls. Þessi könnun er gerð að tilstuðl- an samstarfsnefndar Æskulýðs- ráðs og Fræðsluráðs Reykjavíkur í samvinnu við Félagsvisindadeild Háskóla íslands og er sambærileg við könnun, sem gerð var vorið 1980. Skýrsla um könnunina verður lögð fram á opnum fundi í Menn- ingarmiðstöðinni 'i Gerðubergi iaugardaginn 8. september nk. og munu þá þeir, sem að henni stóðu, skýra hana og sitja fyrir svörum. Ungmennin sem þátt tóku í könnuninni fengu í hendur langan og fjölbreyttan lista yfir tóm- stundaiðju og var leitað svara um hvort og hversu oft hver tegund iðju væri ástunduð. Sem dæmi um svör má geta þess, að 10% heidarúrtaksins kváðust horfa svo til daglega á myndbönd af einkatæki. Ekki varð vart við mikinn aldursmun á þeim sem svöruðu þessari spurningu játandi, en þó virtust yngstu bðrn- in (5. bekkingar) horfa meira en hin eldri og kemur það heim við að þau eru einnig ákafari sjónvarps- notendur. Drengir horfa einnig nokkru meira á myndbönd en stúlkur (12% á móti 8%). Sá hóp- ur sem segist aldrei horfa á mynd- bönd af einkatæki er miklu fjöl- mennari og þar er einnig munur milli kynja (38% pilta og 44% stúlkna). Kapalkerfin, sem urðu tilefni svo mikilla umræðna fyrir ekki ýkja löngu síðan, virðast nú vera hverfandi þáttur í lifi ungmenna. Einungis 4% segjast nota þau daglega og nærfellt % hlutar þeirra sem svöruðu segjast aldrei nota þau. Kynningarfundurinn um niður- stöður könnunarinnar verður, sem áður sagði, haldinn í Menning- armiðstöðinni Gerðubergi laugar- daginn 8. september. Hann hefst klukkan 14.00 og er öllum opinn, en auk þess verður til hans boðið öllum aðilum sem tengjast æsku- lýðs- og skólastarfi í borginni, auk fjölmiðla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.