Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984
STERKT OG VANDAÐ!
don cano
Barna-
úlpurnar
eru góöar!
Don Cano eru mjög vandaðar
íslenskar kuldaúlpur úr bómull.
Þær eru meö innfellda hettu í kraganum
fást í fjórum litasamsetningum.
Blátt og Rautt
Grátt og Blátt
Rautt og Grátt
Grátt og Rautt
Vetrarúlpur fyrir stelpur og stráka
frá 6—12 ára ...
og það er sama verð
á öllum stærðum aðeins
kr. 2.245.-
Skólavörðustíg 14, sími 24520.
Póstsendum um land allt.
PORTVAL
A Htemmtorg. Stmar 143S0 4 26090
Laugavegi116,
sími 14390.
Hermann Ragnar
opnar dansstúdíó
— flytur ásamt Módelsamtökunum í Bolholt 6
HERMANN Ragnar Stcfánsson
danskennari opnar innan skamms
dansskóla að nýju, en starfsemi
dansskóla hans hefur legið að mestu
leyti niðri undanfarin fimm ár. Skól-
inn mun bera nafnið „Dansstúdíó
Hermanns Ragnars" og verður með-
al annars kennt í Bolholti 6, en hjón-
in Hermann Ragnar og Unnur Arn-
grímsdóttir hafa nýverið fest kaup á
húsnæði þar. Unnur er, sem kunnugt
er, framkvæmdastjóri Módel-
samtakanna, sem ennfremur verða
með starfsemi sína í Bolholtinu.
Henný Hermannsdóttir, sem
síðastliðið ár hefur dvalist í
Danmörku við nám í dansi og
kennslu, mun kenna við skólann
og ennfremur er væntanleg innan
skamms dönsk stúlka að nafni Joy
Maria, en hún er atvinnudansari
og sýningarstúlka. Unnur Arn-
grímsdóttir sagði í samtali við
blaðamann Mbl. nú fyrir skömmu
að Joy Maria myndi setja upp sýn-
ingar hjá Módelsamtökunum og
leiðbeina á námskeiðunum þar.
Varðandi hið nýja húsnæði
dansskólans og Módelsamtakanna
sagði Unnur, að boðið yrði upp á
betri þjónustu en áður, aukna lík-
amsrækt á námskeiðum samtak-
anna, ljósalampa og sturtuaðstöðu
fyrir þátttakendur á námskeiðun-
um og nemendur Dansstúdíósins
og myndbandasýningar sem verða
í gangi allan daginn í anddyrinu.
Þá tjáði Unnur Mbl. að Módelsam-
tökin væru nú orðin aðili að al-
þjóðlegum módelsamtökum og
gæti það orðið til þess að hjálpa
íslenskum fyrirsætum að koma
sem það gæti orðið til þess að
auka tískumyndatökur erlendra
Danska stúlkan Joy Maria, sem
verður sérstakur gestur Dansstúdíós
Hermanns Ragnars og Módelsam-
takanna f vetur.
fyrirtækja hér á landi.
I Dansstúdíói Hermanns Ragn-
ars verður kenndur djassdans,
stepp, akróbatik, auk sígíldu sam-
kvæmisdansanna og barnadans-
anna. Hermann Ragnar útskrifað-
ist sem danskennari fyrir 26 árum
og stofnsetti þá Dansskóla Her-
manns Ragnars, en Unnur stofn-
aði Módelsamtökin ásamt Pálínu
Jónmundsdóttur árið 1967. Innrit-
un á námskeið samtakanna og í
Dansstúdíóið stendur nú yfir í
Bolholti 6.
Kjartan Lárnsson, formaður Ferðamálaráðs, afhenti Sigurði Sigurðarsyni,
fjölmiðlabikarinn fyrir árið 1983.
Ferðamálaráð íslands:
Sigurður Sigurðarson
hlaut Fjölmiðlabikarinn
FJÖLMIÐLABIKAR Ferðamálaráðs
fslands fyrir árið 1983 var afhentur í
síðustu viku. Sigurður Sigurðarson
hlaut bikarinn að þessu sinni, en
hann var eigandi og ritstjóri tíma-
ritsins „Áfangar" á árinu 1983.
Tímaritið Áfangar hefur um
fjögurra ára skeið fjallað um
ferðalög um ísland og átt drjúgan
þátt í því að kynna landsmönnum
ferðamöguleika hér innanlands og
í mörgum tilfellum um áður lftt
þekktar sióðir, segir í fréttatil-
kynningu frá ferðamálaráði. Að
mati ferðamálaráðs hefur Sigurð-
ur því unnið mjög lofsvert braut-
ryðjendastarf i þágu islenskra
ferðamála, sem ráðið vill viður-
kenna og þakka með því að veita
honum Fjölmiðlabikarinn fyrir
árið 1983.
Þetta er þriðja árið sem bikar-
inn er veittur, en áður höfðu hlotið
hann þeir Sæmundur Guðvinsson
og Haraldur J. Hamar.
(t)r frétUtilkynningu)
Nýjung á íslandi:
Píanóleiga með
UMBOÐS- og heildverslunin Lamp-
ar og gler hf. býður nú viðskiptavin-
um sínum upp á nýjung sem nefnist
leigukaupsamningur og felst í því að
hægt er að leigja píanó með kaup-
réttindum.
Leigusamningur er minnst til 12
mánaða í senn og innan þess leigu-
tima er hægt að breyta leigu-
samningnum í kaupsamning.
Kaupin geta orðið í staðgreiðslu-
formi innan fyrstu 12 mánaða með
3% staðgreiðsluafslætti, en einnig
kaupréttindum
er hægt að semja um greiðsluskil-
mála og gilda þá venjulegir
bankavextir á hverjum tíma. 1
báðum tilfeilum dregst allt að 6
mánaða leiga frá kaupverðinu.
Verð hljóðfærisins við undir-
skrift fyrsta leigusamnings helst
óbreytt þrátt fyrir framlengingu á
leigusamningi eða hugsanlegar
gengissveiflur.
Mánaðarleiga með tryggingu er
2,2% af útsöluverði hljóðfærisins.
(Úr frétU'ilkyniiingu)