Morgunblaðið - 06.09.1984, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984
43
vissan hátt á sakborningsbekk.
Því er það að mínu mati meiri-
háttar afglöp hjá Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu að
gera að órannsökuðu máli varn-
arræðu fulltrúa tannlæknakenn-
ara að opinberri stefnu ráðuneyt-
isins.
Grein minni í Hollefni og
heilsurækt fylgdi heimildaskrá og
ég hefði með ánægju látið ráðu-
neytinu í té allar þær heimildir
sem ég hef undir höndum, sem
sumar hverjar eru sennilega ekki
til annars staðar hér á landi. Auk
þess hef ég grun um að starfsfólk
ráðuneytisins hafi ekki einu sinni
hirt um að lesa greinina í Hollefni
og heilsurækt, en fyrst eftir að
hafa kynnt sér alla málavexti væri
von til þess að ráðuneytið hefði
getað haft eitthvað til málanna að
leggja. í stað þess fær ráðuneytið
fulltrúa tannlæknakennara til að
dæma í eigin máli. Slíkt hefði ein-
hverntíma þótt undarlegt réttar-
far.
Bandaríska rannsóknastofnunin
sem áður var nefnd skipaði
starfshóp til að rannsaka sömu
hluti þar í landi og beðið var með
opinbera yfirlýsingu. Hlutverk
Heilbrigðis- og tryggingamáia-
ráðuneytisins er að vinna að heil-
brigði og velferð allra lands-
manna, en ekki að verja vonlítinn
málstað nokkurra tannlækna-
kennara. Mál þetta ar of alvarlegs
eðlis til þess að hægt sé að afsaka
áðurnefnd vinnubrögð.
Verði meiri skrif um þetta efni
mun ég beita upplýsingum sem
sanna mál mitt enn frekar, en lýk
nú þessu skrifi með lokaorðum
sænska málmtæringafræðingsins
dr. Jaro Pleva í grein hans í tíma-
ritinu Journal of Ortomolecular
Psychiatry nr. 3 1983:
„Rannsókn á tærðum amalg-
am-tannfyllingum, sjúkdómsfrá-
sagnir og skráðar, samanteknar
heimildir, sýna að allar fullyrð-
ingar um það, að amalgam sé stöð-
ug og óuppleysanleg málmblanda
eru á sandi byggðar. Vegna þess
að kvikasilfurinnihald gamalla
amalgam-tannfyllinga var í öllum
tilvikum lægra en nýrra fyllinga
og í sumum tilvikum ekkert á viss-
um svæðum, hlýtur tæring að
hafa valdið upplausn og uppgufun
kvikasilfursins, en ekki hækkun
þess, eins og stundum hefur verið
haldið fram (Fraunhofer og Sta-
heli 1972). Þekking á hinni flóknu
uppbyggingu og tæringahegðun
amalgams sýnir að óraunhæft er
að líta á það sem stöðuga efna-
blöndu. Jafnvel mjög óveruleg
tæring væri óviðunandi þegar um
jafn eitraðan málm og kvikasilfur
er að ræða.
Fyrir tannlækna sem annt er
um að skaða ekki sjúklinga sína er
nú ekki lengur ástæða til að vera í
vafa. Ótalmargt bendir nú til þess
að of margir verði að líða miklar
þjáningar vegna þess að vísinda-
legar rannsóknaniðurstöður hafa
verið sniðgengnar. Einnig er full
ástæða til þess að gerð sé fræðileg
könnun á sambandi milli menn-
ingarsjúkdóma og notkunar am-
algams. Fyrsta spor í rétta átt
væri að notkun á amalgami sam-
hliða gulli og öðrum málum (stáli
á spöngum fol. þýð.) verði stöðvuð
nú þegar ...
/Erar Jóhanaesson er síarfsmaður
Raunrísindastofnunar Háskólans.
fHKgtniÞ!iifrfö
Metsölublad á hverjum degi!
5x í viku mán. — þriö. — miö. — fim. — fös. kl. 7.20.
Sími
83730
JSB
Vorum aö bæta nýjum plötum
á útsöluna
sem líkur nú um helgina
Talk Talk
Paul McCartney
Blanc Mance
gLANCMANG£
Saga
Annie Murray
ABC
Æ
\
Genesis
Marillion
John Lennon
Paul McCartney
High Life
Milli tveggja eida
Re-Flex
Smiths
Kaja Goo Goo
Kraftwerk
X>..... N
€ & !
*R£-FLEX mæmHa. *
THEPOIITICSOFOANCING P ^
It
• F,\
I1/
Gap Banc
BAF BAND y
Cliff Richard
ATH.: HÖFUM LÍKA BÆTT VIÐ JAZZ 0G KLASSÍK. NÚ ER AÐ GRÍPA GÆSINA Á MEÐAN HÚN GEFST.
FÁLKINN FÁLKINN FÁLKINN FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8.
S. 84670.
Laugarvegi 24.
S. 18670.
Austurveri.
S. 33360.
Póstkröfur.
S. 685149.