Morgunblaðið - 06.09.1984, Side 7

Morgunblaðið - 06.09.1984, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984 7 Sæmilegt í Leirársveitinni „Þetta hefur gengið svona all- sæmilega, það eru komnir vel á sjöunda hundrað laxar á land og veiðimenn segja talsvert líf vera í ánni, hann taki hins vegar illa, sérstaklega í bjartviðrinu að und- ?.nförnu,“ sagði Sigurður Sigurðs- son, hreppstjóri i Stóra-Lamb- haga, í gær, aðspurður um lax- veiðina í Laxá í sumar. Sigurður sagði þetta heldur betri veiði en á sama tíma í fyrra, hins vegar langt frá meðaltali Laxár á góðu árunum eigi alls fyrir löngu, en þá fór áin sjaldan niður fyrir 1200 laxa sumar hvert. Nú veiða íslendingar á stangirnar sjö og fyrstu dagana eftir að út- lendingar hættu veiðum var veið- in góð, 15 til 20 laxar voru þá fangaðir að jafnaði dag hvern og nær allir á maðk. „Hann leit ekki við flugunni þessa daga,“ sagði Sigurður. Sigurður sagði jafn- framt, að laxinn hefði verið ágæt- lega vænn framan af og fyrstu mánuðina hefði nær eingöngu veiðst tveggja ára lax úr sjó, ekki undir 10 pundum og sá stærsti 18 punda. Síðan smækkaði laxinn að meðaltali og þó að smálaxagöng- urnar hafi verið veikar hefði smælkið verið mun smærra en venja er til, 3—4 punda tittir í stað 5—8 punda í venjulegu ári. Veiði stendur yfir til 13. sept- ember og er lax enn að ganga. Talsvert kom af nýrunnum fiski með Höfuðdagsstraumnum. Gljúfurá Mbl. hefur eftir veiðimönnum sem voru fyrir stuttu í Gljúfurá að heldur léleg veiði hafi verið í ánni í sumar, miklu lakari en í fyrra, en þá veiddust þar nokkuð á þriðja hundrað laxar og var upp- sveifla frá síðustu sumrum. Nú hafa laxarnir rétt losað eitt hundrað og herma fregnir að lítið sé af fiski í ánni og mikið sé staðið yfir hausamótunum á sömu fisk- unum, sem hafa nú trúlega séð flestar þær flugutegundir sem hnýttar hafa verið, og maðk að auki í ríkum mæli, en þeir eru yfirleitt hver öðrum líkir. Heldur dauft í Srartá Mbl. hefur fregnað að komnir munu um 120 laxar á land úr Svartá, sem rennur sem kunnugt er í Blöndu. Veiðin hefur gengið misjafnlega og hafa tveggja stanga hollin fengið á tveimur dögum frá engum laxi upp í 10—12 stykki. Laxinn hefur verið ákaflega vænn í Svartá í sumar, allt upp í 18 pund og þar sveimar trúlega enn þessi risastóri sem slapp af flugu veiðimanns i stð- asta mánuði. Smálax hefur verið heldur fáséður og meðalþunginn góður. Aðeins er veitt í tvo mán- uði í Svartá og veiði nú lokið. Hallá Við höfum ekki sagt frá Hallá í sumar, en þar hefur verið alveg hreint viðunandi veiði, tæplega 100 laxar komnir á land á tvær stangir og margir þeirra mjög vænir. Tónleikar í Stykkishólmi Sinfóníuhljómsvcit íslands heldur í dag í tónleikaferð um Vesturland og Vestfirði. Einleikari í ferðinni er Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari, og einsöngvari er Kristinn Sig- mundsson. Fyrstu tónleikar hljómsveitar- innar verða í kvöld í Stykkishólmi en á Búðardal annað kvöld. Þaðan heldur hljómsveitin til Þingeyrar, Bolungarvíkur, ísafjarðar og Suð- ureyrar, en lokatónleikarnir eru á Patreksfirði nk. þriðjudagskvöld. Á efnisskránni er m.a. sinfónía í G-moll og íslensk sönglög. Krist- inn Sigmundsson syngur aríur úr óperunum Rigoletto, eftir Verdi, og Faust, eftir Gounod. Rut Ing- ólfsdóttir leikur balllöðu og pólón- esu eftir Vieuxtemps. Þetta er fyrsta tónleikaferð hljómsveitarinnar á nýbyrjuðu starfsári. Meðfylgjandi mynd var tekin á æfingu hljómsveitarinnar í gærmorgun. Fyrst lent uppi á Bárðarbungu 1984 — segir Baldur Sigurðsson hjá Jöklaferðum á Akureyri MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Baldri Sigurðssyni hjá Jöklaferðum á Akur- eyri: „Það er rangt, sem Einar B. Pálsson sagði í grein í Morgun- blaðinu þann 28. ágúst síðast- liðinn, að DC-3 Gunnfaxi, hafi lent á Bárðarbungu og flogið þaðan aftur 1972. Ég var með snjóbílaferðir um Vatnajökul þetta sumar, og var ekið í Grímsvötn, upp á Bárðar- bungu, en sjaldnar í kverkfjöll. Það var vinsælt að koma við hjá Jöklarannsóknarmönnum, þeim Braga Árnasyni, Páli Theódórs- syni og starfsfólki, sem unnu við djúpborun í 1.780 metra hæð, sunnan í Bárðarbungu. Það tók mig hálfan tíma að aka frá bor- stað, og upp á suðurbrún Bárðar- bungu, og jafnlangan tíma í viðbót uppi á Bungunni, á þann stað sem hún er hæst, upp af Vonarskarði. Það vissu flestir, sem unnu að bor- verkefninu og hinir er áttu leið um, í hvaða hæð var unnið, og að DC-3-flugvélin lenti sunnan við borstaðinn, eins og mynd Einars sannar, sem kom með greininni hans, og líka að Gunnfaxi lenti undir 1.780 metra hæðarlínu. Eftir stendur sú staðreynd, að Víðir Gíslason á TF-LEO lenti fyrstur flugmanna, uppi á Bárð- arbungu þann 24.8.’84 og ómar Ragnarsson annar á TF-FRÚ. Áð endingu. Hafa skal það er sannara reynist." er nú loksins komin í bæinn og byrjar á bæjarins besta stað Broadway um næstu helgi.föstudag og laugardag. Sumargleöin meö öllum toppskemmti- kröftum landsins sló svo sannarlega í gegn úti á landsbyggöinni í sumar og nú fá höfuöborgarbúar aö njóta gleöinnar í öllu sínu veldi. JÉ Sumir segja aö Sumargleöin í ár sé sú besta frá upphafi og aörir aö hún sé sú langbesta. Komiö, sjáiö, hlustiö og dansiö meö Sumargleöinni, í Broadway. Matseðill: Koníakslöguö humarsupa Fyiltur grísahryggur Bordelalse framreiddur meö rjómasoönu blómkáll, gláöum gulrótum, sykur- brúnuöum jaröeplum og hrásalati. fs meö perum, heftrl klrsuberjasósu og rjóma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.