Morgunblaðið - 06.09.1984, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 06.09.1984, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984 19 Jón Gísiason með platínuhvolp. Þeir eiga vissan fjölda læða, án þess að eiga einhverjar sérstakar Iæður. Þannig fær nú hver eigandi 1,6 hvolp fyrir hverja læðu sem hann á í búinu." — Verður þörf á að kynbæta stofninn með tímanum? „Já, ég held að nauðsynlegt verði að fá nýtt blóð í stofninn á 2—3 ára fresti, ef við ætlum okkur að rækta góðan silfurrefastofn á íslandi," sagði Gísli. „Sú aðstaða er ekki fyrir hendi að fara á annað bú til að fá högna eða læður, þann- ig að við verðum að flytja inn góð undaneldisdýr frá völdum búum í Noregi. Slíkur innflutningur er auðvitað háður samþykki stjórn- valda, en hann er nauðsynlegur til þess að forðast skyldleikarækt innan stofnsins. Hún er sjaldan til góðs, einkum og sér í lagi í loð- dýrarækt." — Af hverju frá Noregi? „í fyrsta lagi vegna þess að norskir refir, þar með taldir silf- urrefir, eru þeir bestu í heimi," sagði Jón. „t öðru lagi vegna þess að Norðmenn eru nágrannar okkar og flutningskostnaður þar með í lágmarki. Og í þriðja lagi íslenskur silfurrefur, tíu vikna gam- all. vegna þess að í norska refastofn- inum er lítið um skæða sjúkdóma. Þannig eru þessir 69 refir, sem komu til okkar í desember, allir frá sama búinu. Völdu búi, bæði með tilliti til gæða, hrausts og heilbrigði stofnsins. Enda verður að vanda valið þegar menn leggja út í jafn fjárfrekan innflutning." — Hvað er síðan að frétta af platínurefunum í búinu? „Undan þessum tveimur plat- ínuhögnum sem voru fluttir hingað í desember komu 15 hvolp- ar, þar af 7 platínuhvolpar. Platínurefurinn er afbrigði af silfurref, sem varð til með stökkbreytingu í Noregi um 1930 og allir platínurefir eru komnir undan þessum sama stökkbreytta forföður. Platínurefir eru mun ljósari að lit en silfurrefir. Þetta afbrigði er ríkjandi yfir silfurref, en er þó, eins og svo mörg önnur litaafbrigði á meðal loðdýra, ekki til í arfhreinni mynd. Þeir hvolpar sem verða arfhreinir platínurefir deyja strax í fósturkviði. Þess vegna eru platínurefir alltaf par- aðir með silfurref til þess að forð- ast þennan hvolpadauða. (Jt úr þeirri pörun koma siðan jafn margir platínuhvolpar og silfur- refahvolpar." — Er Hof fyrsta silfurrefabúið á fslandi? „Nei, það er ekki svo, þó að þetta sé eina silfurrefabúið sem núna er starfrækt hérlendis,“ sagði Jón. „Silfurrefarækt hófst hér um 1930 og var í hámarki um 1940. Búin voru víðsvegar um landið, flest lít- il, með allt niður í þrjár læður. Sá refur kom allur frá Noregi, bæði silfurrefur, blárefur og platínu- refsafbrigðið. Þessi ræktun lagðist síðan niður með seinni heims- styrjöldinni, bæði voru þá settir tollar á innflutning skinna til ann- arra landa, auk þess sem skinnin seldust ekki á stríðstíma, enda lúxusvara sem naumast uppfyllir frumþarfir neytenda. Gísli Pálsson, á Hofi í Vatnsdal. Síðasta búið, sem var nú reynd- ar blárefabú, var lagt niður í Stykkishólmi á 6. áratugnum. Silf- urrefabúin höfðu verið lögð niður nokkru fyrr. Frá þeim tíma hefur silfurrefarækt ekki verið stunduð hér á landi fyrr en nú.“ — Eruð þið feðgar bjartsýnir á silfurrefaræktunina, að fenginni reynslu? „Já, það erum við, enda ekki ástæða til annars. Sem stendur eru góðar markaðshorfur með silf- urrefaskinn. Verð á þeim er að vísu nokkuð sveiflukennt, eins og er með önnur skinn, en við sjáum ekki ástæðu til annars en að horfa björtum augum á framtíðina í silfurrefarækt á íslandi." „J.R.“ nefnist þessi silfurrefur, sem er heldur betur í vígahug Faðir ... platínurefanna tveggja á Hofi. Búr og fiór í silfurrefabúinu á Hofi. Ljósm./Jón Gislason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.