Morgunblaðið - 06.09.1984, Side 23

Morgunblaðið - 06.09.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984 23 Ávöxtun sparifjár: Bankar samræma vaxtakjör Gunnar H. Guðmundsson „Aðferðir Japana eiga við á Islandi. Vel mennt- uö og víðlesin þjóð eins og Islendingar ætti að búa yfir kröftum til að taka við nýjungum og tækni og aðlaga að ís- lenskum aðstæðum.“ skipti og samstarf ætti að vera auðveldara vegna smæðar. Þetta er þó ekki svo og samstarfsaðferð- ir er kannski það sem helst á vant- ar. Það þarf að taka aðferðir ann- arra þjóða og aðlaga þær aðstæð- um svo að sérstaðan verði styrkur en ekki veikleiki. íslendingar þurfa að skapa sér íslenska stjórn- un eins og Japanir hafa þróað upp japanska stjórnun. Stjórnunarfélagið sýnir nú það lofsverða framtak að halda nám- skeið með japönskum fyrirlesara um japanska stjórnun. Japanir hafa lengst af verið þiggjendur hugmynda og tækni. Þetta hefur breyst. Nú eru aðferðir þeirra verðug fyrirmynd. Gunnar H. GuAmundsson er rekstrarráógjaíi á Rekstrarstof- unni og hefur kennt japanska stjórnun. MR fékk ekki KFUM- húsið MENNTASKÓLINN í Reykjavík var settur sl. mánudag í Dóm- kirkjunni. Alls hefja nám í skól- anum rúmlega 832 nemendur og eru þar af 250 nemendur í 3. bekk. Fjöldi nemenda er heldur minni en í fyrra. Menntaskólinn hefur lengi búið við þröngan húsakost, en núna í vetur verður kennt í 5 húsum. í sumar var reynt að ná samkomulagi við KFUM og K til að fá leigðar fjórar stofur í húsnæði þeirra, að Amtmanns- stíg 2b, til afnota fyrir skólann. Að sögn Sólrúnar Jensdóttur tóks ekki samkomulag um leigu þar nú í ár. Menntaskólinn hef- ur því fengið, eins og síðastliðið ár, 4 stofur í Miðbæjarskólan- um. í Miðbæjarskólanum eru því í vetur bæði menntaskólinn og Vesturbæjarskólinn, auk námsflokkanna. BANKAR hér á landi hafa að undan- fornu verið að samræma vaxtakjör sín aftur, eftir að þeim var gefið frelsi til vaxtaákvarðana um miðjan ágúst sl.. Eiríkur Guðnason, forstöðumaður hagdeildar Seðlabankans, staðfesti í samtali við Morgunblaðið að þessar- ar tilhneigingar hefði gætt nú á síð- ustu dögum og væri Ijóst að bankar væru nú farnir að taka mið af vaxta- kjörum hver hjá öðrum. „Það er alveg ljóst að það sem er að gerast nú eftir fyrstu umferð er í átt til samræmingar," sagði Ei- ríkur Guðnason. „Bankarnir hafa líkt eftir hinum og ef við tökum dæmi eins og Búnaðarbankann, þá breytti hann ekki í fyrstu umferð neinu varðandi verðtryggða hlut- ann, en gerði það síðar i ljósi þess sem hinir höfðu ákveðið. Fleiri dæmi mætti nefna sem sýna þessa tilhneigingu bankanna til sam- ræmingar og er alveg ljóst að þróunin er í þá átt,“ sagði Eiríkur Guðnason. En það eru fleiri aðilar en bank- arnir, sem auglýsa ávöxtun á spari- fé. Verðbréfamarkaður Fjárfest- ingarfélagsins hefur að undan- förnu auglýst boð til sparifjáreig- enda, félaga og peningastofnana um „pakkalausn“ í ávöxtun spari- fjár, sem nefnt er „kaskó í verð- bréfaviðskiptum“. Gunnar H. Hálf- dánarson hjá Fjárfestingafélaginu sagði í samtali við Morgunblaðið að pakkalausn þessi væri í fjórum lið- um; ráðgjöf í verðbréfakaupum, hámarksávöxtun sparifjár með kaupum á verðbréfum, eftirlit með innheimtu þeirra og endurfjárfest- ingu afborgana og vaxta. Að sögn Gunnars er hér verið að gefa fólki kost á að láta verðbréfamarkað Fjárfestingarfélagsins annast hag- kvæmustu ávöxtun sparifjár fyrir það. spansw Beröu saman mismunandi spamaöarleiöir sem bankarnireru aö bjóöa þessa dagana. Athugaöu aö viö bjóðum aöra leið: 6 mánaða BANKAREIKNING MEÐ BÓNUS. Ársmxtun: ðryggii Þú mátt færa á milli verötn/ggöra sem óverðtryggðra reikninga. Slíkt er nú aldeilis ön/ggisatriöi ef verö- bólgan vex. Þægindi: Bankareikningurinn þarfnast ekki endurnýjunar. Engar feröir í bank- ann á 6 mánaöa fresti. Iðnaúartankinn Fer eigin leiöir - fyrir sparendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.