Morgunblaðið - 06.09.1984, Síða 26

Morgunblaðið - 06.09.1984, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1984 Við bjóðum þér \ikuferð London ámánu- dagbm kemur! frá kr. 15.573.- pr. mann. ínnifalið flug, gisting og morgunmatur. Ferðaskrifstofan Farandi verður með sérstakar vikuferðir (pakkaferðir) til Lundúnaborgar á hverjum mánu- degi í allt sumar. Verðið er afskaplega gott, — frá kr. 15.834.-pr. mann. Innifalið í verðinu er flug, gisting og morgunmatur. Auk þess útvegum við aðgöngumiða á hljómleika, í leikhús, á íþróttaleiki næturldúbba o.m.fl. Hægt er að velja á mifli eftiríarandi hótela: Cavendish, Regent Crest, Leinster Towers, Park Lane. Komið og rabbið við okkur sem fyrst Pað er alltaf gaman að fá gott fólk í heimsókn. Ííaiandi . Vesturqötu q, sími 17445 MiUiveggjasteinn w Cm. 1 cm. 5 cm STEYPUIÐJAN Austurmörk 20-810 Hveragerði - S/mi 99-4605 SA-steinn (heimke yrs/us teinn) Smárasteinn (heimke yrs/us teinn Gangsté ttarheiiur 50 x 50 cm 25 x 50 cm 40 x 40 cm 20 x 40 cm / Sexkantur 32 x 32 cm 32 x 16 cm Brotasteinn 55 x 40 cm Munkasteinn Skákþing íslands 1984: V aramaður- inn er efstur Skák Margeir Pétursson HALLDÓR G. Einarsson, 18 ára gamall Bolvíkingur, er einn efstur í landsliðsflokki á Skákþingi ís- lands, sem fram fer þessa dagana á Hótel Hofi í Reykjavík. Byrjun Halldórs á mótinu er ævintýri lík- ust. Hann átti ekki rétt á sæti í flokknum, en fékk tækifæri vegna þess að Pálmi Pétursson frá Akur- eyri varð að hætta við þátttöku á síðustu stundu. Það var ekki fyrr en sama kvöld og fyrsta umferðin var tefld að Halldóri var boðin þátttaka. Hann þáði boðið strax og varð þar með yngsti þátttakandinn á mótinu. Síðan hóf hann keppni með því að sigra íslandsmeistar- ann Hilmar Karlsson og í fyrra- kvöld vann hann skák sína við Hauk Agnantýsson sem frestað var úr fyrstu umferð. Að loknum tveimur umferðum var Halldór eini keppandinn sem hafði fullt hús vinninga þannig að útlit er fyrir að keppnin um efstu sætin verði mjög jöfn og spennandi. Staðan var þá þann- ig: 1. Halldór G. Einarsson 2 v. 2.-5. Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason, Guðmundur Sigur- jónsson og Jóhann Hjartarson l‘/i v. 6.—10. Dan Hansson, Margeir Pétursson, Haukur Angantýsson, Sævar Bjarnason og Björgvin Jónsson 1 v. 11,—12. Karl Þorsteins og Hilmar Karlsson % v. 13,—14. Ágúst Karlsson og Lárus Jóhannesson 0 v. Auk frábærrar frammistöðu Halldórs hefur það einna helst komið á óvart í upphafi mótsins að Björgvin Jónsson skyldi leggja Karl Þorsteins að velli, en fyrirfram var Karl álitinn sá þátttakandi sem myndi veita tit- ilhöfunum mesta keppni. Þeir Halldór og Björgvin eiga margt sameiginlegt sem skákmenn. Þeir eru báðir ungir að árum, ekki sérlega vel skólaðir í stöðu- baráttu en geysilega sókndjarfir og óhræddir við að taka áhættu. Áður en mótið er á enda munu þeir vafalaust tefla margar æsi- spennandi skákir. Hvítt: Björgvin Jónsson. Svart: Karl Þorsteins Drottningarbragð I. d4 — RfG, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — d5, 4. cxd5 — exd5, 5. Bg5 — c6, 6. e3 — Be7, 7. Bd3 - 0—0, 8. Dc2 — Kbd7, 9. Rf3 — He8, 10. 0—0 — Rf8, 11. Habl Nú er komin upp þekkt staða úr uppskiptaafbrigði hefðbund- ins drottningarbragðs. Afbrigði þetta þykir afar traust fyrir hvítan en með nákvæmri tafl- mennsku getur svartur jafnað talfið. Nú er venjulega leikið 11. — a5,11. - Bd6, eða 11. - Re4!? sem kemur sterklega til greina. í staðinn reynir Karl að flækja taflið og leggur meira á stöðuna en hún þolir. II. — g6, 12. b4 — Re6, 13. Bh4 — »6, 14. Hfcl — Rg7, 15. a4 — a5, 16. b5 — Ba3,17. bxc6 — bxc6,18. Hel — Rf5, 19. Bg5 — h6?!, 20. Bf4 — Rh5, 21. Be5! — f6, 22. Bg3 Svartur nær nú að skipta upp á þessum biskup hvíts en sá ávinningur er allt of dýru verði keyptur, því auk þess að hafa stakt peð á c6, sem svartur fær oft í þessu afbrigði, hefur hann einnig veikt kóngsstöðu sína meira en góðu hófi gegnir. 22. - Bb4, 23. Rh4! - Rhxg3, 24. hxg3 — rxh4, 25. gxh4 — f5, 26. h5! Eyðileggur svörtu peðastöð- una, því 26. — g5 má augljóslega svara með 27. Bxf5 — Bxf5, 28. Dxf5 — Bxc3, 29. Hb7! og vinnur. 26. — Dg5, 27. hxg6 — Ha7 Svartur vonast eftir að ná kóngssókn eftir g-línunni. 28. Hecl — hg7, 29. Re2 — Bd7, 30. Rf4 — Bd6, 31. Hel — h5 Svartur sættir sig ekki við að láta betri biskup sinn af hendi fyrir riddarann á f4. 32. Ddl — h4, 33. Df3 — He4?! Örvæntingarfull tilraun til að blása til sóknar. 34. Bxe4 — fxe4, 35. Dh5! Líklega hefur Karli yfirsézt þessi öflugi leikur. Nú virðist 35. — Bxf4 í fljótu bragði vinna mann, en hvítur á svarið 36. Dxg5 — Bxg5, 37. Hb8+ og mát- ar. 35. — Dxh5, 36. Rxh5 — Hxg6, 37. g3! — Bg4, 38. Rf4 — Bxf4, 39. gxf4 — Bf3+, 40. Kh2 — Hg2+, 41. Kh3 Hér fór skákin í bið. Svarta staðan er vonlaus. 41. — hxf2, 42. Hb7 — Hg2, 43. Hebl - Hg3+, 44. Kxh4 — Hg6, 45. He7 — Hh6+, 46. Kg3 — Hg6+, 47. Kh4 og svartur gafst upp. Halldór G. Einarsson frá Bolung- arvík hóf keppni fyrirvaralaust, en fékk samt óskabyrjun. Þriðju umferð mótsins átti að tefla í gærkvöldi, en í kvöld verð- ur fjórða umferð tefld. Þá tefla saman: Helgi — Dan, Jón L. — Guðmundur, Lárus — Halldór, Sævar — Ágúst, Hilmar — Margeir, Haukur — Karl og Björgvin — Jóhann. Á mótinu er ávallt teflt um helgar kl. 14, en á virkum dögum á milli 18 og 23. Á þriðjudögum og föstudögum eru tefldar bið- skákir frá 18—24, en að öðru leyti eiga keppendur frí á þeim dögum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.