Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
C 23
sækist eftir. Það er margt fleira:
það er að hnýta, það eru félagarn-
ir, það er veiðiskapurinn og svo ég
tali nú ekki um umhverfið.
Skemmtilegast af öllu er þó auð-
vitað takan sjálf, þetta litla
augnablik."
— Hver er eftirlætisáin þín?
„í dag er það hiklaust Víðidalsá.
" Samt hef ég ekki farið í hana
“ nema einu sinni, síðastliðið haust.
J* Hún ber af, hún kallar á mann,
k hver hylur í henni, hver strengur.
a
h Samheldnin
Ég er ekki búinn að veiða mjög
^ lengi. Ég var alltaf með veiðistöng
í bílnum í öllum söluferðunum en
g það gafst aldrei tími til að veiða
j. þá. Það var ekki fyrr en eftir að
^ við hættum að fara í söluferðirnar
að ég fór að veiða og þá var það
a Árni ísleifs, píanóleikari, sem
5 kom mér á bragðið. Hljóðfæra-
leikararnir halda saman og smita
s út frá sér...
Óli Gaukur hringdi til mín í
haust og spurði hvar hann gæti
J lært að veiða. — Hefurðu veitt áð-
a ur? spurði ég. — Já, marhnút á
j bryggjunni í Grindavík, sagði
( hann. Ég sagði honum að það væri
j best fyrir hann að fara á kastnám-
c skeið hjá Ármönnum og ég held að
, hann ætli aftur í vor. Gaukurinn
hefur alltaf verið svo duglegur,
alltaf mátti virkja hann í KK í
( gamla daga, hvort sem þurfti að
( gera texta, útsetningu, sprell eða
eitthvað annað."
— Talandi um samheldni:
{ gamlir félagar þínir úr KK hafa
\ sagt frá því aö það hafi verið aðal
"l hljómsveitarinnar, samheldni og
samstaðan ...
„Já, auðvitað! Það er samheldn-
, in sem gildir. Jákvætt hugarfar og
viljinn til að tala saman, leysa
vandamálin. Þá fæst alltaf niður-
staða, hvort sem hún er músíkleg
eða manneskjuleg. Ég skal segja
þér, að samheldnin í hljómsveit-
inni var svo mikil, að á einni viku
um mánaðamótin október/nóv-
ember fyrir réttum 25 árum eign-
uðust þrír úr hljómsveitinni börn
— hver með sinni konu að sjálf-
sögðu. Samstillingin getur varla
orðið öllu betri.“ — ÓV.
ÞAÐ VEUA ALUR
m
UÓSALAMPA
iP ÞÝZK-ÍSLENZKA
Viðskiptavinir athugið
Ás, verndaða vinnustofan sem Styrktarfélag van- gefinna hefur rekið undanfarin þrjú ár inn við Stjörnugróf, hefur flutt alla sína starfsemi í Braut- arholt 5, 4. hæð. Nýtt símanúmer er 621620 oq .
pósthólf 5110 125 R. ^ ■ VINNUSTOFA 0piö9—16. 4 ZL STYRKTARFÉLAGS A. ^■VANGEFINNA L ( REYKJAVÍK XJöfóar til 11 fólks í öllum starfsgreinum!
; Jflðripmúlabib
TÝPA
Á FÖSTU
Óskabækur unglinganna í fyrra og hittifyrra voru Viltu byrja
með mér? og Fjórtán . . . bráðum fimmtán — sögurnar um
Elias Þór Árnason eftir Andrés Indriöason. Bráðfyndnar sögur
um vandræöalegan sfrákog hressarstelpur.
Núerkomin ný!
TÖFF TÝPA Á FÖSTU tekur upp þráðinn haustið '83 þegar
Elias Þór byrjar i 8. bekk — en þráðurinn er bara ekki sá sami:
Mamma og Elías eru flutt i nýtt hverfi og Elias byrjar i nýjum
skóla meö krökkum sem hann hefur aldrei séð. Þá er málið að
koma vel fyrir, vera töff, svalur að slást, djarfur að breika,
ódeigur að veifaflösku og tröllavindli. . . þó mann langi mest
til að skríða í felur niðri í geymslu. Best af öllu væri þó að sýna
nýju félögunum hana Evu, hlaupaspíruna af Skaganum — þá
gæti enginn efast lengur um að Elias væri Töff týpa á föstu!
Bækurnar um Elias Þóreru heillandi skemmtilegarog mjög
vel skrifaöar bækur sem sýna lif unglinga i Reykjavik á lifandi
hátt. Þær eru sjálfstæöar bækur hver um sig en segja þó eina
sögu saman: söguna af þvi hvernig Elias finnur sjálfan sig.
Snjallar myndir Önnu Cynthiu Leplar gefa bókunum aukiö
gildi.
Bækur Andrésar hafa verið söluhæstu unglingabækurnar
undanfarin ár. Þær bregöast ekki.
Verðkr. 548.-
Félagsverð kr. 466.— k i
Mál
cjefum cjóðar bœkur
og menning
Gjafavara
á tveimur
hæðum
Silki- og
bómullarpúðar
Handofin
veggteppi
Handofnir
dúkar
Svuntur
Diskamottur
Jólagardínur
Jóladúkar
2. hæð og kjallari.
HEIMILISDEILD,
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 12,