Morgunblaðið - 08.03.1985, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1985
//J?unÓLfur! Hér cr konan scm sva.rabi cxuql^s-
in^unni finni unrt „nóin kynni'í "
ást er...
1. **
að minnast
hennar
TM Rm. U S Pat. Oft.-all rlohts rsservad
•19M Los Anjales Tlmes Syndlcate
ar, hina dagana talar hann um
það!
Bið þig að muna að við notum
ekki spýtubrjóstsykur sem bóka-
merki!
HÖGNI HREKKVÍSI
„ Hver sKyt.pi svo BOiesA Pessa
HAMPSNyRTIMGU ?! "
Bréfritari segir að Seðlabankabyggingin sé nákvæmlega rétt staðsett. Hins vegar telur hann að Arnarhóll eigi að fá
að vera í friði nákvæmlega eins og hann er.
Arnarhóll
H.S. skrifar:
Kæri Velvakandi.
Borgarstjórinn eða borgar-
stjórn hafa óskað eftir tillögum
um einhvers konar framtíðar-
frágang á Arnarhóli. Margar til-
lögur hafa þegar komið fram og
nú þegar er búið að eyða drjúgum
skildingi í að verðlauna smekk-
leysi og aulahátt. Arnarhóll á að
vera i friði nákvæmlega eins og
hann er, Ingólfur á sínum stað,
allt óbreytt, hóllinn er fallegur
eins og hann er. Að sjálfsögðu á
hann að vera í góðri rækt og það
þarf að slá hann vel með orfi og
ljá og raka með hrífu. En f öllum
bænum látið hann í friði fyrir allri
mannvirkjagerð.
Hinir og þessir og þessir og hin-
ir hafa verið að agnúast út í Seðla-
bankabygginguna. Við strikuðum
yfir öll illyrðin sem komin voru á
blaðið um þetta fólk. Seðlabanka-
húsið er nákvæmlega á réttum
stað og byggt á réttum tíma með-
an Jóhannesar Nordal nýtur enn
við, enginn annar hefði haft kjark
og manndóm til að koma þessu í
verk. Ef einhver heldur að það sé
pólitískur ávinningur að hamast
út í þessa byggingu er það hinn
mesti misskilningur. Flest fólk
hefur áttað sig á þvi að hér er ekki
verið að byggja bara til dagsins í
dag eða næstu daga eða ára. Þessi
bygging mun standa í þúsund ár
og þó líklega miklu lengur. Og i
þetta hús mun safnast um áratugi
og aldir það sem þarf og á að
geymast um, peninga fjármál og
afkomu íslensku þjóðarinnar.
Fyrir utan svo öll þau mikilsverðu
störf sem þar verða unnin dag-
Heggur
Kagnar Halldórsson fyrrverandi
löggæslumaður skrifar:
Framhaldsskólakennarar yfir-
gefa nemendur og kennslustofur
og lýsa yfir því að þeir virði ekki
lengur lög og rétt í íandinu. Dóm-
arafulltrúar stóðu fyrir skömmu
frammi fyrir framlengingar-
ákvæði réttra laga um uppsögn
starfa. Þeir fóru að dæmi Þorgeirs
ljósvetningagoða og virtu lögin:
„Ef vér slítum lögin þá slítum vér
og friðinn". Sagt var einnig „með
lögum skal land byggja en með
ólögum eyða“. Skólastjóri fram-
haldsskóla benti kennurum sínum
á að hér kynni að vera um lögbrot
að ræða. Svarið var: „að í krafti
samstöðu stéttar sinnar gengjust
þeir ekki inn á að taka þau rök til
greina".
Hvað hefur sinn tíma. Að upp-
fræða ungmenni á æðri sem Iægri
og Seðlabankahúsið
langt og árlangt um ókomnar tíð-
ir. Ef einhverjir vilja endilega
auglýsa fyrir alþjóð skammsýni
sína, grunnhyggni og ruddahátt
geta þeir haldið áfram að bölsót-
ast út í Seðlabankabygginguna og
Jóhannes Nordal, en enginn mun
hafa af því vegsauka.
En hvað sem öllu öðru líður, lát-
ið Arnarhólinn í friði.
Bréfritari segir aö aðgerðir ungmenna við styttu Jóns Sigurðssonar sýni að
allt orkar tvímælis þá gert er.
sá er hlífa skyldi
stigum og koma þar öllum til
nokkurs þroska hefur sinn tíma.
Að brjóta landslög og rífa niður
lög og reglu, rétt sett af Alþingi
íslendinga, hefur einnig sinn tíma.
Lögum skal breyta ef að þau af
bestu manna yfirsýn þurfa breyt-
inga við. Alþingi götunnar er ekki
hinn rétti aðili í lýðræðisþjóðfé-
lagi. Heggur sá er hlífa skyldi má
hér til sanns vegar færa og ekki til
fyrirmyndar meðal háskólaborg-
ara.
Aðgerðir ungmenna við styttu
Jóns Sigurðssonar sýna að allt
orkar tvímælis þá gert er.
Menntaskólinn við Lækjargötu
var baráttuvettvangur Jón Sig-
urðssonar forseta er hann stóð í
broddi fylkingar gegn erlendu
valdi. Nemandi þess skóla lét sér
um munn fara frammi fyrir alþjóð
með tungutaki nútímamóðurmáls
„mér finnst aðgerðirnar æðislega
fínar". Ef að Hkum lætur munu
ýmsir þeir er nú standa fyrir
lögbrotum við æðri stofnanir þjóð-
arinnar, í krafti samstöðu stéttar
sinnar, verða kjörnir til setu á
löggjafarsamkomu íslendinga.
Innan stundar munu einnig þeir er
heiðruðu minningu Jóns Sigurðs-
sonar og lögðu skólatösku sína við
fótstall hans, verða kjörnir til
löggjafarstarfa fyrir þjóðina. í
töskum þeirra verður þá fjöregg
þjóðarinnar, stjórnarskrá, lög og
reglur lýðveldisins íslands. Braut-
in er rudd, fordæmi skapa hefð.
Hvað hefur sinn tíma. Þá munu
þeir standa frammi fyrir þeim
herskara Alþingis götunnar sem
hrópar gegn þeim „f krafti sam-
taka stéttar okkar munum við
ekki fara að lögum". „Þá sem guð-
irnir vilja tortíma svifta þeir fyrst
vitinu".