Morgunblaðið - 08.03.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1985
Myndin er af líkfylgd í líbanska þorpinu Al-Gharbiyeh en inn í það réðust ísraelskir hermenn í fyrra mánuði í leit að skæruliðum. Féllu átta menn í
átökunum og er hér verið að fylgja tveimur þeirra til grafar.
Al-Ahram í Kaíró:
Bandaríkjamenn
viðurkenni PLO
Kairó, 7. mars. AP.
Markmið Egyptalands í málefnum
Mið-Austurlanda er að fá Banda-
ríkin til að viðurkenna Frelsissam-
tök Palestínumanna, PLO, sem full-
trúa palestínsku þjóðarinnar, sagði í
dag ■ áhrifamesta blaði Kairoborgar,
stjórnarmálgagninu Al-Ahram.
Enn fremur sagði, að markmið
þetta yrði ofarlega á dagskrá hjá
Hosni Mubarak, forseta Egypta-
lands, í viðræðum hans við Ronald
Reagan forseta í Washington í
næstu viku.
„í öllum viðræðum sem Egyptar
eiga við aðrar þjóðir, hefur verið
lögð áhersla á rétt palestínsku
þjóðarinnar, rétt sem enginn ætti
að vefengja," sagði blaðið.
í gær tók Hussein Jórdaníukon-
ungur undir uppástungu Mubar-
aks forseta um viðræður Banda-
ríkjanna og sameiginlegrar sendi-
nefndar Jórdaníumanna og Pal-
estínumanna sem fyrsta skref í
átt til eiginlegra friðarviðræðna
við ísrael.
Shimon Peres, forsætisráðherra
ísraels, hefur hafnað uppástung-
unni, þar sem halda eigi ísraelum
utan þessara undirbúningsvið-
ræðna.
Bandaríkjastjórn segist vilja
bíða með að taka afstöðu til til-
lögu Mubaraks þar til eftir við-
ræður forsetanna í Washington í
næstu viku.
Margareth Thatcher, forsætisr-
áðherra Bretlands, hefur látið í
ljós velþóknun á viðleitni Egypta
og Jjordaníumanna til að koma af
stað friðarviðræðum og leysa Pal-
estínuvandamálið.
„Kossaræning-
inn“ gómaður
AlUntic Citj, 6. mars. AP.
LÖGREGLAN í Atlantic City hefur
handtekið 22 ára gamla konu og
ákært hana um að hafa rænt þrjá
karlmenn eftir að hafa smeygt
svefnlyfi upp í þá meðan hún kyssti
þá. Hefur hún fengið nafnið „kossa-
ræninginn". Alls hafa II karlmenn
verið rændir síðustu tvö árin, en
konan hefur einungis verið ákærð
fyrir þrjú slík rán og óvíst hvort hún
verði ákærð fyrir fleiri.
hallast að því að hún hafi geymt
plasthylki milli tannanna og
sprengt það listilega á tönnum
karlanna. Konan hafði um 500
dollara upp úr krafsinu í þeim
þremur ránum sem hún hefur ver-
ið ákærð fyrir.
Frakkland:
Bankar kynna nýja
tegund greiðslukorta
Konan heitir Margarita Delos
Santos og dulbjó sig sem vændis-
kona, er karlmenn gáfu sig á tal
við hana hún með þá á hin og þessi
gistihús af ódýrara taginu og er
viðskiptin voru að hefjast, hafa
allir vottað að konan hafi þröngv-
að einhverju upp í þá í kossafans-
inu og síðan hafi þeir ekki vitað
meir fyrr en þeir vöknuðu mörg-
um stundum síðar með nístandi
höfuðverk og peningum sínum fá-
tækari. Óljóst er með öllu hvernig
konan fór að því að deyfa fórnar-
lömb sín án þess að hníga sjálf
niður meðvitundarlaus, helst er
París, 6. febrúar. AP.
FRANSKIR bankar hófu í gær að
kynna nýja tegund greióslukorta,
sem eiga að torvelda mjög að unnt
sé að viðhafa falsanir vegna þess að
þau hafa innbyggðan „minnisbút".
Hafa bankarnir farið fram á sam-
vinnu margra aðila við þetta verk-
efni, m.a. fyrirtækja á sviði iðnaðar
og verslunar.
Náist samkomulag milli aðil-
anna verða gefnar út allt að þrjár
milljónir korta á næstu tveimur
árum og tíu til tólf milljónir fyrir
árslok 1988.
Á fundi með fréttamönnum
lögðu talsmenn bankanna áherslu
á útflutningsmöguleika í þessu
sambandi, en liðinn er áratugur
frá því að franskur uppfinninga-
maður, Roland Moreno, bjó til
svona kort.
Kortin verða reynd hjá banda-
ríska fyrirtækinu Mastercard
seinna á þessu ári og eru auk þess
til reynslu á Ítalíu og í Noregi.
Minnisbúturinn í kortinu á að
torvelda mjög, að unnt sé að gera
eftirlíkingar eða falsa undirskrift-
ir, sögðu talsmenn bankanna.
Nýju kortin verða einnig búin
segulræmu eins og greiðslukort
sem nú eru í notkun. Álitu tals-
mennirnir, að bæði kerfin yrðu
notuð samhliða um margra ára
skeið.
Ný hjartaígræðsla
Tncson, Arizona, Bandarfkjunum, 7. mars. AP.
LÆKNAR GRÆDDU í dag hjarta í mann, sem haldið hafði verið á Iffi
í II klukkustundir með aðstoð gervihjarta. Er gervihjartað ný smíði,
sem ekki hefur verið opinberlega samþykkt né verið notuð áður.
Talsmaður læknanna sagði hjarta og síðan hjarta úr látnum
eftir aðgerðina, að nokkuð væri manni. Bandaríska lyfja- og
tvísýnt um hvernig sjúklingnum matvælastofnunin hefur ekki
myndi reiða af og mætti rekja samþykkt gervihjartað, sem
það til þessarar miklu aðgerðar, kallað er Phoenix-hjartað.
fyrst þegar sett var í hann gervi-
Florencio Campomanes
Heimsmeistara-
einvígið í skák:
Tillögur
um nýjar
reglur
til í maí
Moskvu, 6. mars. AP.
SOVÉSKA fréttastofan TASS
hafði það í dag eftir Campoman-
es, forseta Alþjóðaskáksam-
bandsins (FIDE), að hann væri
„næstum 100% viss um“ að
næsta heimsmeistaraeinvígi yrði
takmarkað við 24 eða 30 skákir.
Florencio Campomanes var
staddur í Moskvu til viðræðna
við fulltrúa Anatolys Karpov
heimsmeistara og áskorandans
Garris Kasparov. Þeir hafa
báðir áréttað óánægju sína
með þá ákvörðun forseta FIDE
15. febrúar s.l., að slíta einvígi
þeirra um heimsmeistaratitil-
inn og skipuleggja nýtt einvígi
i september. Þeir segja að of
seint sé að ákveða nýjar ein-
vígisreglur á þingi FIDE seinni
partinn í ágúst, eins og Camp-
omanes hefur stefnt að.
Campomanes sagði í viðtal-
inu við TASS, að líklega yrði
unnt að ganga frá tillögum um
nýjar keppnisreglur á fundi
framkvæmdastjórnar FIDE í
maí.
■ ■I '
ERLENT,
Eþíópía:
Uppreisnarmenn
gera atlötu að
stjórnarhernum
AddLs Ababa, 7. febrúar. AP.
Uppreisnarmenn í Eþíópíu hafa
undanfarið gert harða hríð að herjum
stjórnarinnar. Hafa þeir gert árásir á
borgina Lalibela í norðurhluta lands-
ins og ráðist á bflalestir með hjálpar-
gögn, að því er vestrænir sendiráðs-
menn og starfsmenn hjálparstofnana
sögðu í gær, miðvikudag.
Eþíópíustjórn segir, að níu millj-
ónir manna svelti nú heilu hungri.
Enn fremur telja stjórnvöld, að
milljón manns hafi látist af völd-
um þurrkanna í landinu á síðasta
ári einu saman.
Um 220 hjálparstöðvar eru nú
starfandi í Eþíópíu, aðallega í
norðurhéruðunum, þar sem þurrk-
arnir hafa verið mestir og flestir
hinna 42 milljóna íbúa landsins
búa.
Verðbólgumet
í Argentínu
Buenos Aires, 7. marz. AP.
VERÐBÓLGA í Argentínu á 12 mán-
aða tímabili til febrúarloka nam
803,9% og hækkaði framfærslukostn-
aður um 20,7 % í febrúar.
í janúarlok mældist verðbólga
síðustu 12 mánaða 776,3%, sem var
met, og jókst verðbólgan um 25,1%
í janúar.
Af opinberri hálfu hefur engin
skýring verið gefin á verðbólgu-
þróuninni á þessu ári. Erlendar
skuldir Argentínu nema 48,4 millj-
örðum dollara. Lofuðu Argentínu-
menn skuldunautum sínum um
áramótinu að 12 mánaða
verðbólguvogin yrði komin niður í
300% í september næstkomandi, en
þróunin í janúar og febrúar lofar
ekki góðu.
Grænland:
Rækjukvóti
ákveðinn
kaupmannahöfn, 7. mars. Frá NJ. Bruun,
Grænlandsfréttaritara Mbl.
GRÆNLENSKA heimastjórnin hef-
ur nú ákveðið að heimila veiðar á
6.375 tonnum af rækju við Austur-
Grænland á þessu ári.
Grænlendingum sjálfum er út-
hlutað 2.650 tonnum en afganginn
fá Norðmenn og Færeyingar. AUs
var sótt um leyfi fyrir 9 080 tonna
kvóta. Auk þess hefur fjórum
skipum verið heimilað að veiða
samtals 1.300 tonn af hörpudiski
við Vestur-Grænland en áhugi
manna á honum fer mjög vaxandi
vegna lítillar þorskveiði.
Tékkar varað-
ir við „geisla-
virku hylki“
Pr»g, 7. marz. AP.
YFIRVÖLD í Tékkóslóvakíu lýstu í
gærkvöldi eftir „hylki, sem inniheld-
ur geislavirk efni“ og týndist sunnar-
lega í Mið-Tékkóslóvakíu. Var al-
menningur varaður við hylkinu, sem
sagt var stórhættulegt.
Sjónvarpsútsending var rofin í
gærkvöldi þar sem skýrt var frá
hvarfi hylkisins, og hættu þeirri,
sem af því stafaði, ef meðhöndlað
væri af öðrum en sérfræðingum.
Gætu tilraunir með hylkið valdið
geislun af völdum gammageisla.
Var þess krafist að finnandi
hreyfði ekki frekar við hylkinu og
gerði næstu lögreglustöð viðvart.
Ekki var sagt hvers kyns geisla-
virkt efni væri í hylkinu, sem sagt
var 30 sentimetra langur sívalning-
ur úr málmi og um 20 kíló að
þyngd. Var hylkið notað við jarð-
fræðirannsóknir, að sögn frétta-
stofunnar CTK. Týndist það af
flutningabíl um siðustu helgi.