Morgunblaðið - 08.03.1985, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 08.03.1985, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1985 fclk í fréttum SELFOSS: Af Grýlu- pottahlaupi w Iþróttaiðkun er býsna miitil á Selfossi og áhugi á íþróttum nokkuð almennur. í byrjun góu hefst hér árviss íþróttakeppni og er hér átt við Grýlupottahlaupið svokallaða sem nefnt er eftir skessukötlum á túni austan við íþróttasvæðið. Hlaup þetta nýtur vinsælda hjá börnum og þau kosta kapps um að taka þátt í því. Reglur hlaups- ins eru nokkuð sérstæðar, en hlaupið er sex sinn- um og til að koma til greina við verðlaunaaf- hendingu þurfa þátttakendur að hlaupa a.m.k. fjórum sinnum, en tími fjögurra hlaupa er lagður saman. Annað hlaup þessa árs fór fram fyrir skömmu í afbragðs veðri og þátttaka var mjög mikil, 165 hlauparar á öllum aldri og keppnisgleðin í fyrir- rúmi. Samtök Málfreyja á íslandi 10 ára „Starf innan samtakanna skemmtilegt og þroskandi" segir Halldóra Guðmundsdóttir forseti þriðja ráðs Málfreyja Alþjóðasamtök Málfreyja nefnast samtök, sem voru formlega stofnuð í Bandaríkjun- um 1938, en tíu ár eru liðin síðan fyrsta deildin var stofnuð hér á landi. Blm. hafði samband við forseta þriðja ráðs Málfreyja, Halldóru Guðmundsdóttur, til að forvitnast um markmið samtakanna og starfsemi. „Ég hef stundum sagt, að mark- mið samtakanna sé að læra leik- reglur lýðræðisins. Geta tjáð sig, kunna að koma fram á mannamót- um og kynnst sem flestum hliðum félagsmála," sagði Halldóra. „Þetta eru fyrst og fremst þjálfun- ar- og fræðslusamtök, en starfið innan samtakanna er mjög skemmtilegt og þroskandi, vegna þess að þátttakendur finna að það ber árangur." „Starfa samtökin víða um land?“ „Já, starfsemi samtakanna hef- ur gengið vel hér á landi og deildir innan þeirra eru starfandi um allt land. Sem dæmi má nefna deild í Vestmannaeyjum, Stykkishólmi, Selfossi og Mývatni auk Reykja- víkur. f reglum samtakanna er kveðið á um að ekki megi vera færri en 12 félagar innan hverrar deildar og ekki fleiri en 30. Heild- arfjöldi félaganna hér á landi er komin á fimmta hundrað í dag.“ „Geta allir gengið í þessi sam- tök?“ „Þú meinar vegna nafnsins?" *Já.“ „Alþjóðasamtökin munu skipta um nafn 1. ágúst næstkomandi og þá einnig hér á landi. En samtökin eru öllum opin, körlum og konum, sem hafa áhuga á starfseminni." Þess má að lokum geta að þriðja ráð samtakanna heldur tvo fundi um helgina á Hótel Loftleiðum, ráðstefnusal, og fer þar fram úr- slitakeppni í ræðumennsku milli sex deilda, sem heyra undir þriðja ráðið. Hafi einhverjir áhuga á að fylgjast með keppninni eru þeir velkomnir. Gjestgjafadeild ráðsfundanna er Málfreyjudeildin Björkin, ReykjaviH- Madonna eins og kría á steini Söngkonan unga, Madonna, hefur sannarlega slegið í gegn að undanförnu. Þessi yfirleitt naflabera og litríka hnáta hefur rutt lögum sínum „Like a Virgin" og nú síðast „Material Girl“ upp vinsældalista. Það gengur mikið á hjá henni, nú ætlar hún að slá í gegn í kvikmyndunum að auki. Hún hefur nælt sér í aðalhlutverk og myndin er í vinnslu. Kvikmyndin heitir „Desperatly Seeking Susan“ og fjallar um rugling milli tveggja kvenna, mótleikari klæðir sig í föt hennar og missir svo minnið. Hún „verður" Susan og alla kvikmyndina er Madonna eða öllu heldur hin raunverulega Susan að reyna að endurheimta skilríki sín og persónu. Best að segja ekki meira um efni myndarinnar, sem er sögð gamanmynd með alvarlegu ívafi. Frægð Madonnu litlu hefur verið skjótfengin og slíkt leikur marga skemmtikrafta og listamenn grátt. Aðspurð segist Madonna ekkert óttast í þeim efnum, verst sé þó hve fólk glápi á sig á förnum vegi: „Ef ég fer á veitingahús klára ég venjulega ekki máltíð mína, ég missi nefnilega lystina er fólk fer að glápa. í matvörubúðum glápir fólk ofan í grindina til að sjá hvað ég kaupi og í fataverslunum bíður það spennt að sjá hvað ég kaupi og kaupir svo það sama. Þetta getúr tekið á taugarnar. Það hjálpar mér hins vegar mikið að ég klæðist ekki öfgakennt né kem þannig fyrir, eins og t.d. Cindy Lauper, Annie Lenn- ox og Boy George. Það þýðir að ég get breytt um framkomu ef ég vil án þess að það þyrfti endilega að minnka vinsældir mínar. Hvað haldið þið að myndi gerast ef Boy George kæmi fram burstaklipptur í þröngum leðurbuxum? Það gengi einfaldlega ekki,“ segir Madonna. Um framtíðina segir Madonna: „Ætli leið min liggi ekki senn á Betty Ford-sjúkrahúsið, leiðir allra frægra manna virðast liggja þangað," segir hún í gríni, en bætir við alvarlegri í bragði: „Ég veit auð- vitað fátt hvað framtíðin ber í skauti sér og get í þeim efnum aðeins undirstrikað ætlun mína; ég ætla að vera fræg og vinsæl um langan aldur ..."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.