Morgunblaðið - 08.03.1985, Page 29

Morgunblaðið - 08.03.1985, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1985 29 Indriði G. Þorsteinsson „Tilraunin ísland hefur ekki miöast við aö koma hér á vopnuðum átök- um. En allt sem leiðir til upplausnar er af því góða og að því ber að vinna og hefur verið unnið hvenær sem öfga- öflin hafa verið í ríkis- stjórnum.“ Þá er ástæða til að geta þess að sjómenn eru áfram í verkfalli eftir að hafa fengið mestu kjarabætur síðan 1977. Þeir sætta sig ekki við tuttugu og sjö þúsund króna kaup- tryggingu á mánuði og breytt hlutaskipti. Þeir vilja meira. Og hver vill ekki meira? Er þá ekki best að gera hvern einstakling að sérstöku ríki með viðræðum um fjarskiptasambönd. Ekki virðist um það að ræða að nokkur grunn- ur sé eftir sem heldur okkur sam- an sem þjóð. Það hefur á skömm- um tíma tekist að hleypa samfé- laginu í slíka upplausn, að í fram- tíðinni verður hver og einn að fara að tala fyrir sjálfan sig og rífast við sjálfan sig um kaup og kjör. Yfirsýn og þjóðernistilfinning er horfin í hin yfirbyggðu ker kaup- streitunnar, og æðsta takmark sjómanna er að heimta hærri hlutaskipti af „helvítis ríkinu". í heiminum berjast meginöfl um sálirnar. Þessi öfl koma sér upp tilraunaríkjum, þar sem þau prófa kenningar sínar og láta stundum hendur skipta. Úr ríkis- fjölmiðlum vitum við allt um heil- aga baráttu vinstri manna í E1 Salvador. I Vestur-Evrópu bíður fólk eftir því að verða „finnlandis- erað“ af Rússum, allt vestur að Atlantshafi. Og satt að segja eiga lýðræðisöflin í Vesturlöndum í vök að verjast fyrir strangtrúar- stefnu kommúnista. Hér á landi verndar lýðræðið öfgaöflin og beinir öfgum þeirra eins og rýtingi að hjartastað, vegna þess það heimilar því athafnir, sem miða að því að eyðileggja og starfa á því sjálfu. I raun getur það ekki ann- að. Enda hrópar enginn hærra um að verið sé að brjóta lög en einmitt öfgamaðurinn og tilræðisfurstinn við lýðræðið, eigi að hafa einhvern hemil á honum. Tilraunin ísland hefur ekki mið- ast við að koma hér á vopnuðum átökum. En allt sem leiðir til upp- lausnar er af því góða og að því ber að vinna og hefur verið unnið hvenær sem öfgaöflin hafa verið í ríkisstjórnum. Það má nefna þess- ar stjórnir, ef einhverjir skyldu muna hvernig viðskilnaðurinn var hverju sinni. Árið 1945—1947, árið 1956-1958, árið 1971-1974, árið 1978—1983. Öll þessi ártöl vekja upp sérstakar minningar um efna- hagslegan ófarnað. Þetta eru ártöl yfir „Tilraunina ísland", þegar hefur verið freistað að koma þessu litla þjóðfélagi, sem verður að standa saman i erfiðleikum eins og það gleðst í góðæri, á vonarvöl. Þessi tilraun hefur aldrei heppn- ast eins vel og á síðari hluta ársins 1984 og fyrri hluta þessa árs. Það mun ekki koma til þess að hér verði gripið til vopna eins og víða annars staðar. Við kunnum ekki með þau að fara, en það fámenna lið sem með yfirboðum stjórnar nú upplausninni hefur unnið sigur með því að gera hærri kröfur eftir því sem meira er samið í trausti þess að í landinu finnist ekki ann- ar metnaður en launametnaðurinn einn. IndriAi G. Þorsteinsson er rithöf- undur. Frá fundinum um öryggismál sjómanna. Bolungarvík: Oryggismál sjómanna rædd í verkfallinu Bolungarvík, 26. febrúar. Slysavarnadeildin Hjálp og björgunarsveitin Ernir hér í Bol- ungarvík gripu tækifærið í verkfalli sjómanna og efndu til fundar um öryggismál sjómanna sl. laugardag, en þau mál hafa verið allnokkuð í brennidepli undanfarin misseri, t.a.m. voru samþykktar nokkrar ályktanir um þau mál á 20. lands- þingi SVFI, sem haldið var í Vest- raannaeyjum í maí sl. Á þessum fundi um öryggismál sjómanna var fjallað m.a. um tíðni drukknana í sjó, áhrif kulda á mannslíkamann, um björgunarbáta og búnað þeirra, eldvarnir um borð í skipum, með- ferð fluglínutækja, merkjagjafir og flutning slasaðra með þyrlum. Það voru þeir Pétur Pétursson, læknir, Jón Guðbjartsson, form. björgunarsveitarinnar Ernis, og Aðalsteinn Kristjánsson, slökkviliðsstjóri, sem fluttu er- indi um þessa þætti, auk þess sem þeir sýndu búnað tengdan þessum málum og sýndar voru fræðslumyndir. Fundinn sóttu um 70 manns, sjómenn og aðrir áhugamenn um öryggi sjómanna. Fundarmenn voru sammála um ágæti fundar sem þessa, sér- staklega hversu skýrt og skil- merkilega tekið var á þessum málum. Samþykkt var á fundin- um að stefna að umfangsmikilli æfingu sjómanna og björgun- arsveitarmanna þar sem reynt verði á björgunaraðgerðir og björgunarbúnað ýmiss konar. Forustumenn slysavarnafé- lagsins og björgunarsveitarinnar hér í Bolungarvík vilja koma á framfæri þakklæti til þeirra, sem sýndu þessum fundi áhuga, og þá sérstaklega vilja þeir þakka ís- húsfélagi Bolungarvíkur, sem hýsti fundinn og bauð uppá veit- ingar, og Verkalýðs- og sjó- mannafélaginu sem sá um að auglýsa fundinn, en án þessarar aðstoðar hefði ekki verið hægt að koma þessum fundi á með eins skömmum fyrirvara og raun varð. Gunnar „Lifði í hálfgerðum draumaheimi“ — segir Anna Stefánsdóttir sem gekkst undir skurðaðgerðina „Það var nú ósköp lítið sem ég vissi af þessu, þú verður að spyrja Pál Gíslason, lækni, hann veit allt um þetta,“ sagði Anna Stefánsdóttir, sjúklingur- inn sem skurðaðgerðin, sem sagt er frá í Morgunblaðinu í dag, var reynd við, þegar hefðbundnar aðferðir höfðu brugðist. „Annars get ég ekki sagt annað spítala í Middlesex daginn fyrir en mér líði ágætlega í dag. Það sem gamlársdag eftir að hafa verið í ég kvarta helst yfir, er að mér finnst ég ósköp þróttlítil, en ég finn hvergi til, það eru engar kvalir eða þvíumlíkt," sagði hún ennfremur. Anna sagði að það hefði verið haustið 1981 sem hún hefði lagst inná hjartadeild Landspítalans. „Þetta byrjaði þannig að ég hætti eiginlega alveg að borða og hafði ekki nokkra matarlyst," segir hún. Frá Landspítalanum hefði hún síð- an verið send út til London, þar sem hún hefði farið á milli spítala. Að lokum var hún skorin upp á Köntgenmynd sem sýnir hvað gert var. Orvar merktar tölustafnum 1 sýna nýju teöina sem er úr gerviefni og liggur frá slagteðinni til hægri fót- ar og til innyflanna. örvar 2 og 3 sýna að blóð berst til innyflanna og ör merkt tölustafnum 4 sýnir þrengslin i aeð frá hjarta til innyfla. sem reynt var að gera við árangurslaust rannsóknum. Hún var síðan send aftur til íslands í febrúar og lagðist inná Landspítalann, þar sem Páll Gíslason læknir tók við henni. Þar voru gerðar á henni tvær skurðað- gerðir, sú fyrri til að reyna að bæta úr skurðaðgerðinni sem fram- kvæmd hafði verið í London. Það gekk ekki og því var þriðja skurð- aðgerðin gerð, þar sem nýju aðferð- inni var beitt. „Ég veit ósköp lítið hvað verið var að gera við mig. Ég borðaði lítið, en það var verið að reyna að gefa mér eitthvað til að halda mér gangandi. Páll gerði síðan þessar tvær aðgerðir á mér. Ég get voða- lega lítið sagt um þennan tíma, ég lifði í hálfgerðum draumaheimi og geri mér ekki almennilega grein fyrir hvað var að gerast. Ég var orðin þannig að ég gat ekki stigið í fæturna, en þegar ég reis nú upp og rankaði við mér eftir síðari aðgerð- ina, fékk ég þjálfun fyrst á Land- spitalanum og síðan á Reykjalundi. Þar var mér komið á fæturna aft- ur. Ég get í sjálfu sér ekki sagt að mér hafi nokkurn tíma liðið beint illa. Það fylgdu þessu ekki kvalir, má fremur segja að maður hafi verið eins og dauður hlutur og ósköp gott að vera á spítalanum, allir góðir við mann og allt það. En ég held ég hafi verið mikið út úr heiminum og sagt allskyns vit- leysu. Ég man voðalega lítið eftir þessum tíma. Ég er nú orðin 67 ára og kannski ekki von til þess að ég sé mjög spræk lengur. Ég get þó alveg hugsað um mig sjálf með góðra manna hjálp og þeir fylgjast alltaf með mér á Landspítalanum. Ég fer alltaf upp á Göngudeild með ákveðnu millibili og hitti Pál eða staðgengil hans, þannig að það er alltaf fylgst með mér. En ég hef ekki þrótt til að bera neitt og þegar ég geng, verð ég að hvíla mig, þegar ég hef gengið í svona 20 mínútur," sagði Anna að iokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.