Morgunblaðið - 27.04.1985, Síða 14
14 MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1985
Að lokinni sýningu: Á myndinni eru meöal annarra Halldór og Auður Laxness, Sveinn Einarsson og forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir.
Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráð-
herra: Megi ómar íslandsklukkunnar halda
áfram að óma úr sölum Þjóðleikhússins.
Halldór Laxness klappar lof í lófa þeim, sem gerðu sýningu íslandsklukk-
unnar að þessu sinni að veruleika.
Klukka landsins
slær í
Þjóðleikhúsinu
Helgi Skúlason var einn fimm sem Þuríður Pálsdóttir, formaður Þjóðleikhússráðs veitti viðurkenningu úr Menning-
arsjóði Þjóðleikhússins.
35 ára afmœli Þjóðleikhússins
„ÞAÐ er vel við hæfí að íslandsklukkan skuli vera hátíðar-
sýning Þjóðleikhússins á 35 ára afmæli þess. Þjóðleikhúsið
var í raun byggt yfír klukku landsins og það er ósk mín og
þeirra, sem unna íslenzkum bókmenntum og listum, að úr
Þjóðleikhúsinu megi, svo lengi sem leikið er á íslenzku, óma
hljómar klukku íslands.“
Þetta voru orð Ragnhildar
Helgadóttur, menntamálaráð-
herra, við hátíðarfrumsýningu
Þjóðleikhússins á íslandsklukk-
unni eftir Halldór Laxness.
Ragnhildur ræddi í erindi sínu í
upphafi sýningar um sögu Þjóð-
leikhússins og þann eldhug Ind-
riða Einarssonar, rithöfundar,
sem meðal annarra var frum-
kvöðull byggingarinnar. Hún
sagði draum hans hafa verið að
byggja musteri islenzkrar leik-
listar, en sá draumur hans
rættist í raun aldrei nema á
þann hátt, að hver leiksýning
yrði að veruleika.
Þuríður Pálsdóttir, formaður
stjórnar Þjóðleikhúsráðs, af-
henti í lok sýningar viðurkenn-
Grænn drykkur
í Broadway
Leiklist
Jóhann Hjálmarsson
Revíuleikhúsið:
GRÆNA LYFrAN
eftir Avery Hopwood
Þýðandi: Sverrir Thoroddsen
Leikstjóri: Þórir Steingrímsson
Leikmynd og búningar:
Baldvin Björnsson
Lýsing: Ólafur Örn Thoroddsen
Tónlist: Jón Ólafsson
Sýningarstaður: Broadway
Veitingahúsiö Broadway er nú
orðið vettvangur leiksýninga og er
það vel. Ekki er að efa að þrátt
fyrir ýmsa ókosti muni sviðið í
Broadway stuðla að því að þaðan
berist leiklist út til áhorfenda sem
í leiðinni geta notið veitinga.
Græna lyftan eftir Avery Hop-
wood er sívinsæll gamanleikur á
íslandi, kjörið verkefni áhugaleik-
félaga. Revíuleikhúsið er nú að
vísu meira en áhugaleikfélag, en á
það sameiginlegt með ýmsum
áhugaleikfélögum að leggja
áherslu á að fá fólk til að hlæja.
En leikhúsið hefur líka „innihald"
á stefnuskrá sinni og síðast en
ekki síst iistrænan flutning. Hvað
væri leikhús án hans?
Innihald Grænu lyftunnar eru
skoplegir þættir hjónabandsins,
en auðvitað háalvarlegir um leið.