Morgunblaðið - 02.03.1986, Page 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARS1986 """ -j
íþróttir unglinga UMSJÓN/Vilmar Pétursson
Morgunblaðið/VIP
• Stelpurnar úr 4. þrepi Gerplu hvíla hór lúin bein undir laufkrónum Laugardalshallarpálmanna. Þær
eru frá vinstri: Helga Zoega, Alma Hallgrímsdóttir, Aðalheiður Halldórsdóttir, Krístfn Harðardóttir og
Lilja Valdimarsdóttir.
Við viljum
æfa oftar
- segja 4. þreps stelpur úr Gerplu
HELGA Zoega, Alma Hallgrfms-
dóttir, Aðalheiður Halldórsdótt-
ir, Kristfn Harðardóttir og Lilja
Valdimarsdóttir eru 8—9 ára
stelpur sem æfa fimleika hjá
Gerplu og kepptu á unglinga-
mótinu f 4. þrepi.
Þrátt fyrir ungan aldur hafa
stelpurnar æft fimleika í 2—3 ár
og æfa þær 3 tfma f viku 2 tfma
í senn. „Við viljum alveg æfa oftar
og vera miklu lengur," sögðu
stelpurnar þegar þær voru
spuröar hvort það væri ekki erfitt
að vera svona mikið í fimleikum.
Allar sögðust stelpurnar
stefna á að komast í landsliðiö
og það kæmi mér ekki á óvart
þó þessar frísku stelpur næðu
því markmiði sínu.
Sigrún Harpa og Hildur Björk:
Margir krakkar
æfa fimleika
á Akureyri
Á unglingamótinu f fimleikum
voru allmargir keppendur frá
Akureyri oa kepptu þeir undir
merkjum IBA. Meðal þeirra
voru þær Sigrún Harpa og Hild-
ur Björk.
Aðspurðar sögðust þær vera
rétt nýkomnar í bæinn en töldu
þó ekki að flugferðin myndi neitt
há þeim í keppninni. Á Akureyri
eru að þeirra sögn um 300 krakk-
ar sem æfa fimleika reglulega
og eru oft haldin mót fyrir norðan
en suður koma þær til keppni
u.þ.b. einu sinni á ári.
„Við förum norður aftur annað
kvöld en í kvöld ætlum viö að
fara í bíó og sjá myndina Lög-
regluskólinn 2,“ upplýstu þær
stöllur mig um. Aftur á móti
þvertóku þær fyrir að þær gæfu
Reykjavíkurstrákunum auga þeg-
ar þær kæmu suður í keppnis-
ferðir en þjálfarar þeirra voru nú
ekki alveg tilbúnar að skrifa undir
það.
Morgunblaðið/VIP
• Sigrún Harpa og Hildur Björk halda hór fast utan um hvor
aðra
Morgunblaðið/VIP
• Erla Þorieifsdóttir sést hér ásamt félögum sfnum úr fimleikafélaginu Björk Hafnarfirði. Þær eru
í efri röð frá vinstri: Amfrfður Arnardóttir og Arnþrúður Þórarinsdóttir. í neðri röð f.v.: Svanhildur
Vigfúsdóttir, Steinunn Ketilsdóttir, Ragnheiður Þ. Amardóttir, Guðbjörg A. Þorvaldsdóttir og Erla
Þorleifsdóttir.
Erla Þorleifsdóttir:
Gólfæfingarnar
skemmtilegastar
ÞEGAR Erla Þorleifsdóttir 8 ára fimleikastelpa
úr Björk f Hafnarfirði hafði lokið gólfæfingum
sfnum á Unglingamótinu var hún spurð út í
fimleikaiðkun sfna.
„Ég er í 4 þrepi. og hef verið í fimleikum í
nokkur ár. Ég æfi 4 sinnum í viku en sumar
stelpurnar æfa meira að segja oftar. Gólfæfing-
arnar eru skemmtilegastar."
( hópi með Erlu á mótinu voru 4 aörar stelpur
og var Erla ekki mjög bjartsýn á að henni tækist
að sigra.
v
Fjóla Ólafsdóttir og Vilborg Hjaltalín:
Reynum að láta engar
æfingar sitja á hakanum
FJÓLA Ólafsdóttir og Vilborg
Hjaltalín kepptu f 2. þrepi á
unglingamótinu f fimleikum.
Þær stöllur eru engir nýgræð-
ingar f greininni þvf báðar hafa
þær æft og keppt f fimleikum f
Bár.
Fjóla og Vilborg voru spurðar
hvernig æfingarnar hjá þeim
breyttust þegar nálgaðist mót.
„Þegar engin mót eru á döfinni
förum við oft i gegnum kannski
bara einn hluta af æfingu, t.d.
getur farið langur tími í að æfa
einn snúning í gólfæfingu. Þegar
verið er að æfa fyrir mót er aftur
á móti meira farið í gegnum
heilar æfingar án þess að
stoppa."
Báðar halda þær Vilborg og
Fjóla mest uppá æfingar á tvíslá
en sögðust samt reyna að láta
hinar æfingarnar ekki sitja á
hakanum.
J
j