Morgunblaðið - 17.05.1986, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.05.1986, Blaðsíða 11
;»phr i»,M f i í!•!*\A< 1 y * ’ l'' * i ora t rai/»T' MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1986 Auglýsing adidas-fréíf/r Gullskór Adidas Sölustjórinn er landsliðs- íslandsmeistarar Vals 1985 í ADIDAS 75. ÍSLANDSMÓTIÐ í KNATTSPYRNU — Fyrsta umferð leikin í dag maðurog fyrirliði KR Heildverslun Björgvins Schram er umboðsaðili ADIDAS á íslandi. ADIDAS-vörur eru vinsælar hór sem annars staðar og standa stutt við á útsölustöðunum, sem eru um 50 talsins vfðs vegar um landið. Eftirspurnin er nokkuð jöfn allt árið, en háannatíminn er á vorin og haustin og svo fyrir jólin. Fyrstu tvær vikurnar í maí seldust 6440 pör af ADIDAS-íþróttaskóm. Gunnar Gíslason sér um tengsl ADIDAS-umboðsins við verslan- irnar, en auk þess að vera sölu- stjóri hjá ADIDAS er Gunnar lands- liðsmaður í knattspyrnu og fyrirliöi KR. Hann hefur leikið 49 leiki með KR og skorað í þeim 13 mörk, en lék áður 120 leiki með KA og einnig lék hann með Osnabruck í Vestur- Þýskalandi. Gunnar hefur leikið 20 A-landsleiki, 1 U — 21 landsleik, 2 U-landsleiki og 3 drengjalandsleiki. • Sölustjóri ADIDAS er einnig góður knattspyrnumaður. í dag hefst 1. deildarkeppnin f knattspyrnu. Víðir leikur gegn FH á Víðisvelli, KR gegn ÍBV á KR-vetli, ÍA gegn Fram á Akra- nesvelli, Þór, Akureyrl, gegn Val á Þórsvelli og UBK gegn IBK á Kópavogsvelll. Allir leikirnir hefjast kl. 14.30 og fara fram á grasi nema ieikurinn á Akureyri verðurá möl. Veglegasti sigur í íslenskum iþróttum er íslandsmeistaratitill- inn í knattspyrnu. Fyrsta íslands- mótið fór fram árið 1912 og hefur veriö keppt árlega síðan nema árin 1913 og 1914, en þá vannst bikarinn án keppni. í byrjun tóku þrjú lið þátt í mótinu, en síðan árið 1977 hafa 10 lið leikið í 1. deild. Deildaskipting kcmst á árið 1955 og frá árinu 1959 hefur verið leikin tvöföld umferð. Sigurvegarar í 1. deild öðlast þátttökurétt í Evrópukeppni meistaraliða og það lið, sem hlýt- ur 2. sætið í 1. deild, á rétt á að taka bátt í Evrópukeppni félags- liða. Islensk lið hafa tekið þátt í Evrópukeppni meistaraliða frá árinu 1964 og Evrópukeppni fé- lagsliða frá árinu 1969. íslenskt lið hefur tekið þátt í Evrópu- keppni bikarmeistara frá árinu 1965. Leikir í 1. deild í fyrra þóttu sérstaklega skemmtilegir á að horfa og voru flestir mjög spenn- andi, enda hörð barátta bæði i neðri og efri hluta deildarinnar. Fram náði góðri forystu eftir fyrstu umferðirnar, en þeir gáfu eftir og svo fór að lokum að Valur varð íslandsmeistari. Þjálfarar, leikmenn og forráða- menn 1. deildarliðanna eru flestir á því að 1. deildin verði ekki síður skemmtileg í ár og búast flestir við, að sóknarknattspyrna sitji i fyrirrúmi eins og í fyrra og að mikið verði skorað af mörkum. Nokkrar mannabreytingar hafa átt sér stað hjá sumum liöunum, en unglingaþjálfun félaganna er yfirleitt vel sinnt og maður kemur ' í manns stað. Þjálfarar og fyrirliðar 1. deild- arliðanna spá Fram öruggum sigri í mótinu, en hór á eftir fer tafla yfír íslandsmeistara frá 1912 til 1985: 1912KR 1937 Valur 1962 Fram 1913 Fram 1938 Valur 1963 KR 1914 Fram 1939 Fram 1964 ÍBK 1915 Fram 1940 Valur 1965 KR 1918 Fram 1941 KR 1866 Valur 1917 Fram 1942 Valur 1987 Valur 1918 Fram 1943 Valur 1968 KR 1919 KR 1944 Valur 1969ÍBK 1920 Vikingur l945Valur 1970ÍA 1921 Fram 1946 Fram 1971ÍBK 1922 Fram 1847 Fram 1972 Fram 1923 Fram 1948 KR 1973ÍBK 1924 Vikingur 1949 KR 1974ÍA 1925 Fram 1950 KR 1975lA 1928 KR 1951ÍA 1976 Valur 1927 KR 1952KR 1977ÍA 1928 KR 1953ÍA 1978 Valur 1929 KR 1964ÍA 1979ÍBV 1939 Valur 1955KR 1980 Vslur 1931 KR 1966 Valur 1981Víkingur 1932KR 1967 ÍA 1982 Vfkingur 1933 Valur 1958ÍA 1983ÍA 1934 KR 1959KR 1984ÍA 1935 Valur 1960 ÍA 1985 Valur 1936 Valur 1961 KR Afreksmenn velja ADIDAS Lið Fram er eitt 7 liða í 1. deild, sem leikur i ADIDAS. Sjö 1. deildarlið leika og spila ÍADIDAS - Fram, IA, KR, FH, ÍBV, ÍBK og Viðir Knattspyrna er langvinsælasta íþróttagreinin, sem stunduð er á íslandi. Margan unglinginn dreymir um að komast í meistara- flokk og leika i landsliði, en hvort tveggja getur verið stökkpallur í atvinnumennsku í fþróttinni. Knattspyrnan á íslandi tekur stöðugum framförum og menn leggja hart að sér til að ná bættum árangri. Margir þættir hafa áhrif á árangurinn og einn þeirra er réttur og góður útbúnaður. Forráðamenn, þjálfarar og leik- menn 1. deildarliðanna gera sér grein fyrir þessari staðreynd og velja að leikmenn leiki í búningum og skóm, sem reynast best í hinni hörðu, erfiðu og baráttumiklu 1. deildarkeppni. í ár leika og spila sjö 1. deildar- lið í ADIDAS. Þau eru Fram, Reykjavíkurmeistarar og sigurveg- arar í Meistarakeppni KSÍ 1985 og 1986 og bikarmeistarar 1985, ÍA, íslands- og bikarmeistarar 1983 og 1984, bikarmeistarar 1982 og í 2. sæti í 1. deild 1985, KR, 20 sinnum íslandsmeistarar og 7 sinngm bikarmeistarar, FH, 2. deildarmeistarar 1984, ÍBV, 2. deildarmeistarar 1985 og sigur- vegarar í meistarakeppni KSÍ 1984, ÍBK, sigurvegarar í Litlu bikarkeppninni 1986, og Víðir Suðurnesjameistarar 1986. Mikill meirihluti iþróttamanna í 160 löndum keppir í vörum frá ADIDAS. Hvert sem liðið er má sjá merki ADIDAS haldið hátt á lofti. Hvort sem um er að ræða heimsmeist- arakeppni, Ólympíuleika, Evrópu- keppni, landsleiki, deildakeppni, innanfélagsmót eða skólakeppni má sjá, að afreksmenn í íþróttum velja yfirleitt að keppa í vörum frá ADIDAS. í heimsmeistarakeppninni í knatt- spyrnu í Sviss árið 1954 urðu Vest- ur-Þjóðverjar heimsmeistarar, en þeir léku einmitt i fyrstu takkaskón- um, sem ADIDAS framleiddi. Síðan hafa 70 til 85% leikmanna í úrslita- keppni HM leikið í skóm eða búning- um frá ADIDAS. Sama verður upp á teningnum í Mexíkó í næsta mán- uði og landslið að minnsta kosti 10 þjóða munu leika alfarið í ADIDAS. Frá árinu 1970 hefur eingöngu verið leikið með ADIDAS-boltum í úrslita- keppni HM. I úrslitaleikjum Evrópukeppni meistaraliða og Evrópukeppni bikar- hafa á dögunum lóku sigurvegararn- ir, Steaua Bukarest og Kiev, Sovét- ríkjunum, í ADIDAS. Liverpool og Bayern Munchen, nýkrýndir deildar- og bikarmeistarar Englands og Vestur-Þýskalands, og Stuttgart, lið Ásgeirs Sigurvinssonar, leika öll í ADIDAS. Þá hefur landslið íslands í knattspyrnu leikið í ADIDAS frá árinu 1974. Árlega er markahæsti leikmaður 1. deildarliða í Evrópu sérstaklega verðlaunaður af ADIDAS. Fær hann gullskó ADIDAS fyrir afrekið. Gullskórinn er einnig veittur markakóngi í úrslitakeppni heimsmeist- arakeppninnar í knattspyrnu. Gullskór ADIDAS hefur verið veittur markahæsta leikmanni 1. deildar á íslandi síðan árið 1983. Markakóngur Evrópu undanfar- in tvö tímabil er Portúgalinn Fern- ando Gomes, sem leikur með Porto í Portúgal. í fyrra skoraði hann 39 mörk og lið hans varð •meistari. Paolo Rossi var hetja heimsmeistara Ítalíu í úrslita- keppni HM á Spáni árið 1982, var markakóngur keppninnar, út- nefndur besti leikmaðurinn og hlaut gullskóinn og gullknöttinn frá ADIDAS að launum. Ingi Björn Albertsson fékk fyrsta gullskó ADIDAS á íslandi, þegar hann varð markahæsti leikmaður 1. deildar árið 1983 með 14 mörk. Hann lék þá með Val, en þjálfar nú og leikur með FH sem kunnugt er. Guðmundur Steinsson, Fram, fékk gullskóinn árið eftir, en hann skoraði 10 mörk. Ómar Torfason, Fram, skoraði 13 mörk í 1. deild í fyrra og varð markakóngur. Hann fékk því gullskó ADIDAS, en Ómar er nú atvinnumaður hjá Luzern í Sviss. • Ásgeir Sigurvinsson er sá ís- lendingur, sem hefur náð lengst í knattspyrnunni. Hann leikur í ADIDAS með liði sínu Stuttgart í Vestur-Þýskalandi. • Ómar Torfason, Fram, marka- kóngur 1. deildar árið 1985 með gullskó ADIDAS. Leikmenn Bayern Munchen hafa ástæðu til að fagna. Þeir urðu deild- ar- og bikarmeistarar á dögunum og leika í ADIDAS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.