Morgunblaðið - 17.05.1986, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR17. MAÍ1986
Dómnefnd Hagkaups, „nafnakallarnir“ höfðu sannarlega nóg að gera. Alls bárust rúmlega 5.700
tillögur til umfjöllunar. Hér eru (f.h.) Jón Ásbergsson, Valdimar Kristinsson, Sigurður Gísli Pálma-
son og Ólafur Stephensen, sem var ráðgjafi nefndarinnar ásamt Guðna Kolbeinssyni.
Alls bárust 5.741
tillaga og 2.038 nöfn
í Hagkaupshúsið
Brátt dregið um verðlaun fyrir nafnið „Kringluna“
EINS og kunnugt er efndi Hag-
kaup til verðlaunasamkeppni um
nafngift á stórhýsið sem nú ris
í nýja miðbænum í Kringlumýr-
inni. Húsið verður tekið i notkun
13. ágúst 1987. Dómnefnd valdi
húsinu nafnið Kringlan, segir i
frétt frá Hagkaupi.
Undirtektir urðu mjög góðar.
Alls barst 5.741 tiliaga um sam-
tals 2.308 nöfn. Margir sendu
fleiri en eina tillögu, en bréf til
dómnefndarinnar bárust frá
þátttakendum viðs vegar af
landinu. Einnig bárust tillögur
frá Norðurlöndum og frá Niður-
löndum.
Nöfiiin voru margvísleg. Eins og
vænta mátti leituðu margir fanga
í goðafræðinni og nöfn á bústöðum
goðanna voru algeng. Þá var al-
gengt að menn styngju upp á nöfn-
um íslenskra flalla og náttúrufyrir-
bæra, og tillögur bárust um heiti
flestra íslenska stórbýla.
Enn algengari voru þó nöfn sem
enduðu á kunnuglegum nafnliðum
eins og -kaup, -ver og -val. Þá hófu
margir nöfnin á Hag- eða Mið-.
Mörg nöfn fólu einnig í sér nafnlið-
inn kringlan, ýmist sem fyrri eða
síðari lið nafns, ellegar þá einan sér.
Flestar tillögur bárust um nöfhin:
Miðgarður 76 tillögur
Kringlan 75 tillögur
Kauphöllin 70 tillögur
Hagbær 59 tillögur
Pálmalundur 59 tillögur
Dómnefnd var vitaskuld vandi á
Hagkaupshúsið Kringlan í byggingu. Beðið hefur verið með að
steypa upp turninn í fulla hæð þvi að þar á að greipa nafn húss-
ins í steypuna.
höndum að velja úr öllum þessum
nafnafjölda. En eftir marga fundi
og miklar vangaveltur varð nafnið
Kringlan fyrir valinu; enda þótt
dómnefndarmönnum fyndist það í
fyrstu skorta þá reisn sem húsinu
hæfir. En nafnið hefur ýmsa aug-
ljósa kosti: Það vísar til hvar húsið
stendur, við Kringlumýri, og er
mjög þjált í samsetningum og beyg-
ingu. Ekki þarf heldur mikið hugar-
flug til að tengja það kringlu heims-
ins, en í kringlunni verður margvís-
leg starfsemi, fyöldi verslana og
fyrirtækja og iðandi mannlíf.
Innan skamms verður dregið um
nafn þess sem hlýtur verðlaun
Hagkaups fyrir nafnið, en verðlaun-
in eru 125.000 krónur. Ráðgert er
að drátturinn fari fram í beinni
útsendingu á rás 2.
Nýtt fiskverð í gildi til mánaðamóta:
Heildarverð og verð
til skípta ákvarð-
að af verðlagsráði
NÝTT fiskverð samkvæmt lögum um skiptaverðmæti og greiðslu-
miðlun innan sjávarútvegsins tók gildi síðastliðinn fimmtudag. Það
gildir til mánaðamóta, en þá á samkvæmt samningum að ákveða
fiskverð að nýju. Fiskverð nú er verulega einfaldað frá þvi, sem
áður var og allar verðuppbætur og kostnaðarhlutdeild reiknuð beint
inn í það. Kveðið er á um heildarverð og verð til skipta, en fisk-
vinnslan endurgreiðir ákveðinn hundraðshluta heildarverðsins, sem
rennur til greiðslumiðlunar ínnan
Samkvæmt þessum lögum verður
verðið, sem ákveðið er af Verðlags-
ráði sjávarútvegsins, endanlegt verð
gagnstætt því, sem áður var er allar
uppbætur á verð lögðust á verðlags-
ráðsverðið í ákveðnum hundraðs-
hlutum. Samkvæmt þessu hækkar
áður gildandi verðlagsráðsverð um
58% og hafa þá verið teknar inn í
það verðbætur að hálfu.
Hér fer á eftir yfirlit yfír heildar-
verð helztu fisktegunda og skipta-
verð innan sviga: Fyrsta flokks
Kosningarnar:
Borgarráð
ákveður
þóknun
BORGARRÁÐ hefur ákveðið
greiðslu til þeirra sem starfa að
borgarstjórnarkosningunum 31.
maí nk.
Ákveðið hefur verið að greiða
þeim sem sitja í hverfakjörstjómum
4.500 krónur og 3.000 krónur verða
greiddar þeim sem sitja í undirkjör-
stjómum.
þorskur 27,04 (18,93). Verð á öðrum
flokki er 72% af verði fyrsta flokks
og verð á þriðja flokki 45%. Fyrir
óslægðan fisk skal greiða 85,5% af
verði samsvarandi flokks af slægð-
um físki. Fyrsta flokks ýsa 27,73
(19,41). Sama verðhlutfall er milli
gæðaflokka af ýsu og.þroski, en
fyrir óslægða ýsu greiðast 80% af
verði samsvarandi fíokka slægðrar
ýsu. Hæsta heildarverð fyrir ufsa
verður 14,05 (9,83) fyrir löngu og
blálöngu 16,37 (11,46), fyrir stein-
bít 17,70 (12,39), fyrir hiýra 12,36
(8,65), fyrir karfa 13,56 (9,49), fyrir
Keilu 15,32 (10,73), fyrir lýsu 11,30
(7,91), fýrir lúðu 65,24 (45,67), fyrir
grálúðu 14,65 (10,25), fyrir skötu
6,41 (4,49), fyrir halastykki af
skötusel 44,07 (40,85), fyrir háf 4,36
(3,05), fyrir langhala 8,37 (5,86) og
skarkola 10,06 (7,04).
Fyrir slægðan físk eða óslægðan
karfa ísaðan í kassa skal greiða 10%
hærra verð svo fremi að hann full-
nægi gasðum í fyrsta flokk og ekki
sé meira en 60 kíló í kassa. Fyrir
línufísk, sem nær fyrsta flokki skal
greiða 10% hærra en ella og sé þessi
fískur ísaður í kassa um borð í físki-
skipi skal greiða 15% ofan á hann.
Hæsta verð á rækju verður 50,24
krónur (35,17) og á hörpudiski 21,49
(15,04).
Morgunblaðið/Bjami
Frá vinstri: Thomas Möller forstöðumaður vöruafgreiðslu, Valgeir Hailvarðsson forstöðumaður gáma-
deildar og Þórður Magnússon framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Eimskipafélag íslands:
Nýir gámar fyrir ferskfisk
MAK5ÍDSS
r TARF
PAYtöAO
CíiCAP.
EIMSKIPAFÉLAG íslands hef-
ur látið hanna 120 gáma fyrir
flutning á ferskfiski á markaði
í Evrópu. Hver gámur er 20 fet
og rúmar 12 til 14 tonn af fersk-
um fiski i keijum. Þeir eru
einangraðir og klæddir stálplöt-
um að innan með götum í gólfi
til að hleypa niður slori og ís-
vatni.
„Við höfum verið að læra smátt
og smátt hvemig gámar eiga best
við utan um þessa vöru,“ sagði
Thomas Möller forstöðumaður
vöruafgreiðslu. Eimskipafélagið
hóf flutning á ferskum físki fyrir
þremur árum og hafa flutningamir
síðan farið stöðugt vaxandi ár frá
ári og nema um 30 þús. tonnum
á þessu ári. Nýju gámamir em
hvítmálaðir að kröfu ferskfísksút-
flytjenda, framleiddir í Þýskalandi
og kostuðu 17 millj. kr. „í dag eru
milli fjögur og fímmhundruð venju-
legir gámar í þessum flutningum
rn ef góð reynsla verður af þessum
nýju gámum þá verður þeim fjölg-
að,“ sagði Thomas.