Morgunblaðið - 17.05.1986, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
107. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR17. MAÍ 1986
Enn fjölgar dauðs-
föllum í Chemobyl
Mnslrvii fur Vnpaii AP
Moskvu og Varsjá. AP.
LÆKNIRINN Robert Gale, sérfræðingur í beinmergsflutningi, sagði
í gær að nú hefðu þrettán manns látið lífið af völdum kjamorkuslyss-
ins í Chernobyl. Þar á meðal eru menn, sem börðust við að heinja
eldinn í kjarnaofninum og koma í veg fyrir að hann breiddist út í
miklar olíubirgðir, sem geymdar voru nærri, og læsti sig í raf-
magnslagnir.
Gale var í Sovétríkjunum til að
gera aðgerðir á sjúklingum, sem
orðið hafa fyrir geislavirkni. Hann
segir að búast megi við að fleiri láti
lífíð, en aftur á móti séu mestu
erfíðleikamir afstaðnir.
Telja læknar að flestir þeir, sem
sýktust alvarlega af geislavirkni,
hafí verið einangraðir og ólíklegt
að um fleiri alvarleg tilfelii sé að
ræða. Um 300 manns liggja nú á
sjúkrahúsi vegna geislunar.
Gale fór í gær til Bandaríkjanna
en býst við að snúa aftur til Sovét-
ríkjanna í næstu viku til að fylgjast
með sjúklingum.
Sovésk dagblöð skrifa nú um þá,
sem létust í baráttunni við eldinn í
kjamorkuofninum, sem þjóðhetjur.
í Prövdu, málgagni sovéska Kom-
múnistaflokksins, var lýst hvemig
ungir slökkviliðsmenn hefðu hnigið
Sprenging
hjá Interpol
París. AP.
SPRENGJA sprakk í höfuðstöðv-
um Interpol í París í gærkvöldi
og særðust tveir.
Slökkviliðsmenn sögðu að einn
lögreglumaður hefði særst. Hann
kom flokki manna að óvörum þar
sem verið var að koma fyrir
sprengju og varð fyrir skoti.
Slökkviliðsmenn sögðu að enn
væri óspmngin sprengja í bygging-
unni en lögreglan gat ekki staðfest
þetta. Vígorð öfgaflokksins Action
Direct vom máluð á bygginguna.
niður vegna geislunar á meðan þeir
stóðu yfír opnum kjamaofninum og
börðust við eldinn í 71,5 m hæð
frájörðu.
Þijú þúsund íbúar borgarinnar
Bialystok í norðausturhluta Pól-
lands hafa skrifað undir mótmæla-
skjal gegn kjamorkuverum. í skjal-
inu er farið fram á að þingið láti
af áformum um að reisa fyrsta
pólska kjamorkuverið þar sem ekki
mætti treysta yfírlýsingum stjóm-
valda um að öllu væri óhætt við
slík orkuver.
NATO:
Fastafulltrúamir
afgreiða efnavopn
Brussel. AP.
FASTARÁÐ Atlantshafsbandalagsins hefur afgreitt áætlun um
varnarviðbúnað bandalagsríkjanna á næstu árum. Einn liður hennar
er, að Bandaríkjamenn hefji framleiðslu á efnavopnum, en ýmis
aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hafa lýst andstöðu sinni við það.
Frá þessu var skýrt í höfuðstöðv-
um bandalagsins í Brussel að lokn-
um fundi fastafulltrúa aðildarþjóð-
anna í gær. Efnavopn hafa ekki
verið framleidd í Bandaríkjunum
síðan 1969. Ekki liggur ljóst fyrir,
hvort niðurstaða fundarins fullnæg-
ir skilyrðum, sem Bandaríkjaþing
setti fyrir fjárveitingu til fram-
leiðslu á vopnunum.
Við afgreiðslu málsins lýsti Tóm-
as Á. Tómasson, fastafulltrúi ís-
lands, yfír því, að vegna sérstöðu
sinnar innan Atlantshafsbandalags-
ins sem herlauss ríkis hefði ísland
ekki tekið þátt í meðferð þessa máls
þar og tæki ekki afstöðu til þess,
hvað önnur ríki bandalagsins telja
sér nauðsynlegt að gera. íslensk
stjómvöld legðu höfuðáherslu á
gerð samninga um algjört bann við
framleiðslu efnavopna.
Á fundi vamarmálaráðherra Atl-
antshafsbandalagsins í næstu viku
verður tekin lokaákvörðun um áætl-
unina um vamarviðbúnað fyrir árin
1987-92 og verður þá rætt um
efnavopnin á ný. Ríkisstjómir Nor-
egs, Danmerkur og Hollands hafa
lýst sérstakri andstöðu við fram-
leiðslu efnavopna.
AP/Símamynd
Hryðjuverk á Korsíku
Ajaccio, Korsíku. AP.
Franskir lögreglumenn bera á braut tvær börur með fórn-
arlömbum sprengjuárásar hryðjuverkamanna á sumarbúðir
ferðamanna á Korsíku. Tveir létust í árásinni og sjö særðust.
Frelsisfylking Korsíku, sem er aðskilnaðarhreyfing, hefur lýst
ábyrgð á verknaðinum á hendur sér.
Að sögn lögreglu réðust fimmtán manns inn í Les Mandiles-
búðirnar nærri Cargese. Þeir bundu starfsmenn sumarbúðanna
og komu fyrir sprengjum. Eiganda búðanna tókst að leysa af
sér viðjamar þegar árásarmennirnir voru farnir og gera lög-
reglu viðvart.
Sprengjurnar sprungu í þann mund sem tveir lögreglumenn
komu á vettvang. Annar lögreglumannanna og eigandi sumar-
búðanna biðu bana.
Thatcher
tapar fylgi
London. AP.
SAMKVÆMT nýiri skoðana-
könnun Gallup-stofnunarinnar
hefur Verkamannaflokkurinn nú
tíu prósenta forskot á íhalds-
flokkinn.
Ef gengið yrði tii kosninga nú
myndu 37 prósent kjósenda greiða
Verkamannaflokknum atkvæði, en
27.5 prósent íhaldsflokknum. í
könnun Gallup-stofnunarinnar, sem
birtist 24. apríl, hafði Verkamanna-
flokkurinn 4,5 prósent forskot á
íhaldsflokkinn. Síðan þá hefur
Kosningabandalagið unnið mest á
og aukið fylgi sitt um 5,5 prósent.
Kosningabandalag frjálslyndra og
sósíaldemókrata er í öðru sæti með
32.5 prósent fylgi.
íhaldsflokkurinn hefur látið á sjá
í sveitarstjómarkosningum undan-
farið og sagði Malcolm Rifkind
Skotlandsráðherra að ekki væri
hægt að dylja þá staðreynd að
íhaldsflokkurinn hefði tapað fylgi
undanfama mánuði á þingi skoska
íhaldsflokksins í Perth á fímmtu-
dag.
Ef fram heldur sem horfír verður
aðeins þijú prósent verðbólga á
Bretlandi á þessu ári. Þetta er
miðað við að verðbólga þar í landi
var þijú prósent á ársgrundvelli í
apríl og hefur lækkað um 1,2 pró-
sent síðan í mars. Þetta er lægsta
verðbólga á Bretlandi í átján ár.
Aftur á móti jókst atvinnuleysi í
apríl og hefur ekki verið meira siðan
í kreppunni miklu. Atvinnuleysi er
nú 13,2 prósent og lækkaði jafn-
framt landsframleiðsla á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs um 0,3 prósent.
Það hefur ekki gerst síðan 1980.
64 SÍÐUR OG LESBÓK
Prentsmiðja Morgunblaðsins
AP/Símamynd
Kapphlaup
við tímann
Khartoum, Súdan. AP.
1500 m hlauparinn Khalifa Omer lagði i gær upp í „kapphlaup
við tímann" með logandi ólympíukyndil í hendi. Sólin bakaði
jörðuna þegar Omer hóf Sport Aid-hlaupið, sem haldið er viða
um heim til styrktar hungruðum Afrikubúum. Leið Omers liggur
um fjórtán ríki og tólf höfuðborgir i Evrópu. Fyrsti áfangastað-
ur Omers er Aþena í Grikklandi, en för hans lýkur við höfuð-
stöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York 25. maí. Þá verður
hlaupið i 60 höfuðborgum þ.á m. Reykjavík. Þess má geta að
Omer hleypur ekki alla þessa leið og fór hann í flugvél frá
Khartoum til Aþenu eftir að hafa hlaupið fjóra km. Sport Aid
er nýjasta hugarfóstur irsku rokkstjörnunnar Bobs Geldof.
Hann skipulagði Band Aid-hljómleikana, sem haldnir voru
samdægurs í London og Philadelfiu fyrir ári.
Kosningar í Dóminik-
anska lýðveldinu
Santo Domingo, Dóminikanska lýðveldinu. AP.
MIKIL þátttaka var í forseta-, e
þing- og borgarstjórakosningun- t
um, sem haldnar voru í Dóminik-
anska lýðveldinu í gær. t
Miklar biðraðir mynduðust áður I
en kjörstaðir opnuðu og fengu I
verkamenn frí frá vinnu til að kjósa. J
Kosningamar fóru friðsamlega í
fram öfugt við kosningabaráttuna. I
Meðan á kosningabaráttu frambjóð- I
enda stóð biðu tólf manns bana og
tugir manna slösuðust.
Salvador Jorge Blanco, forseti,
býður sig ekki aftur fram í þessum
kosningum og bítast þrír um sæti
hans. Þeir em Jacobo Majluta,
Dóminikanska byltingarflokknum,
Joaquin Balaguer, Kristilega sós-
íalistaflokknum, og Juan Bosch,
Dóminikanska frelsisflokknum.
Þessir flokkar eru allir til vinstri.