Morgunblaðið - 17.05.1986, Blaðsíða 31
M0RGU>Í6iLÁÍ)IÍ), lÁWgÁRDAGUÍÍ 17. MAÍ1986
Carlsson tókst að róa
kjarnorkuandstæðingana
Ingvari Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar, tókst að róa kjarnorku-
andstæðinga í Danmerkurheimsókn sinni nýlega, þegar hann hét
að láta kanna möguleika þess að leggja Barsebáck-kjarnorkuverið
niður. Myndin hér að ofan var tekin í Kaupmannahöfn, þegar sænski
forsætisráðherrann hélt fund með fréttamönnum ásamt hinum
danska starfsbróður sínum, Poul SchlUter.
Grænland:
Japanskir rækjukaup-
endur heimta yfirvigt
Fiskveiðieftirlitið gerir athugasemd við
ófullnægjandi aflaskýrslur veiðiskipanna
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunbiaðsins.
GRÆNLENSKA fiskveiðieftirlitinu og grænlenskum togaraútgerð-
arfyrirtækjum hefur lent saman út af aflaskýrslum um rækjuveiði,
af þvi að japanskir kaupendur krefjast þess, að yfirvigt sé í hverri
öskju.
Lagðar hafa verið fram kærur á
hendur útgerðarfyrirtælqum
tveggja grænlenskra togara fyrir
að hafa látið undir höfuð leggjast
að gera grein fyrir 1270 kílóa yfir-
vikt á 28 tonna afla, sem seldur
var í öskjum.
Grænlenska útvarpið segir, að
grænlenskir, norskir og færeyskir
rækjutogarar hafi ítrekað lent í
útistöðum við fiskveiðieftirlitið, þar
sem yfirmenn þeirra hafi talið sér
nauðugan einn kost að hafa yfirvigt
í pakkningunum, en ekki gert eftir-
litinu grein fyrir henni.
Jesper Hoydal, starfsmaður
grænlenska fiskveiðieftirlitsins,
sagði í viðtali við grænlenska út-
varpið, að það kæmi fram í leið-
beiningarbæklingi Japananna —
sem eftirlitið komst yfir — að þeir
krefðust þess beinlínis, að allt að
10% yfírvigt væri í rækjuöskjunum.
Við höfum ekkert á móti yfírvigt,
sagði Hoydal, en það verður bara
að telja hana fram. Það er ekki
leyfílegt að fara að eins og togara-
menn gera, þ.e. að skýra aðeins
frá þeim þunga, sem skrifaður er
á öskjumar.
Eftirlitsmaðurinn sagði að þetta
hefði í för með sér, að Japanimir
greiddu ekki fyrir umframþungann.
Togarafyrirtækin telja hann ekki
fram, af því að þá er hann dreginn
frá kvóta þeirra, sagði Hoydal.
Þegar öll kurl koma til grafar er
það svo grænlenski rækjustofninn,
sem „borgar brúsann", og slíkt var
aldrei ætlunin.
Kristjanía lögform-
legt íbúðarsvæði
Kaupmannahöfn. AP.
DANSKA þjóðþingið ákvað á fimmtudag að gera „frí-
ríkið“ Kristjaníu að lögformlegu íbúðarsvæði og veita
rikisstyrk til þessa samfélags húsatökumanna. Stjórn-
arandstaðan lagði fram lagafrumvarp um þetta mál
og er þar kveðið á um lagfæringar á byggingum í
niðurníðslu í þessum gömlu herbúðum riddaraliðsins.
Um 15 hundmð manns hafa
búið í Kristjaníu síðan pólitískir
athafnamenn og hippar lögðu
undir sig svæðið 1971. Fjögurra
flokka minnihlutastjóm Pouls
Schluters var andvíg frumvarpinu
en átti þess ekki nokkum kost
að fella það. í frumvarpinu er
kveðið á um aukið eftirlit lögreglu
með Kristjaníu og skattheimtu
af ýmsum atvinnurekstri í hinni
yfírlýstu „fijálsu borg“.
Agnete Lausten, þingmaður
íhaldsflokksins, sagði í umræðum
um frumvarpið að stjómarand-
staðan hlyti annaðhvort að vera
framúrskarandi bamalega þenkj-
andi eða ákveðin í að hafa þjóð-
félagið að fifli og bætti við að
glæpir og stjómleysi hefðu vaxið
stöðugt þau fimmtán ár sem nú-
verandi ástand hefði ríkt í Krist-
janíu.
Bæði danska stjómin og borg-
arstjóm Kaupmannahafnar hefur
ámm saman neitað að verða við
óskum bæði danskra og skandin-
avískra stjómmálamanna um að
loka Kristjaníu þrátt fyrir að þar
sé verslað með hass fyrir opnum
tjöldum, þar séu höfuðstöðvar
vígalegs mótorhjólaflokks,
strokuböm leiti þar skjóls og
ótölulegur fijöldi flökkuhunda.
íbúar Kristjaníu höfðu lýst yfir
því að bmgðist yrði harkalega við
ef tilraun yrði gerð til að bola
þeim út og hefur það ef til vill
haft áhrif á þingmenn: hræðslan
við uppþot og róstur.
1. DEILD
KÓPAVOGSVÖLLUR
Breiðablik - ÍBK
Kl.14.30fdag
Kópavogsbúar fjölmennið á völlinn og styðjið
liðið ykkar.
SPORTBUÐ
KÓPAVOGS
Hamraborg 22
Sími 641000
YPSILON
SMIDJUVEGI 14d, 200 KÓPAVOGI.
SIMI 72177 OG 78630
Hornaflokkur Kópavogs leikur í hálfleik
Breiðablik í
umbro BYKO
Bílferð
um borgina
Frambjódendur Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík bjóða Reykvíkin£um í skoðunar-
ferð um höfuðborgina II. hvitasunnudag 19.
maí nk.
Lagt verður af stað frá Sjálfstæðishúsinu Val-
höll kl. 13 og 14 (2 ferðir).
Að lokinni skoðunarferð verður þátttakendum boðið
upp á kaffiveitingar í Valhöll.
Frambjóðendur annast leiðsögn.
Vinsamlegast tilkynnid þátttöku á skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins í síma 82900 frá kl. 9—17 virka
daga og frá kl. 13—17 laugardag.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík.