Morgunblaðið - 17.05.1986, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR17. MAÍ1986
Evrópukeppnin í körfuknattleik:
Stórt tap í fyrsta leiknum
— íslendingar áttu aldrei möguleika gegn Pólverjum
Frá Skúla Sveinsayni, blaöamanni
Morgunblaösins f Belgfu.
PÓLVERJAR voru ekki í vandrœö-
um í gœr er þeir burstuðu íslend-
inga í fyrsta leik þeirra í B-keppn-
inni í körfuknattleik f Belgíu í
gærkvöldi. Úrslitin uröu þau að
Pólverjar skoruðu 95 stig gegn
56 stigum íslands. Já það byrjaði
ekki nógu vel þetta mót hjá ís-
lendingum en hins ber þó að
geta að Pólverjar eru með eitt
sterkasta liðið hér á mótlnu, ef
ekki það sterkasta. Staðan í leik-
hléi í gœr var 25:46.
Leikurinn byrjaði ekki gæfulega
í gær. Fyrir það fyrsta dróst um
einar tíu mínútur að hann hæfist,
nokkuð sem ekki á að koma fyrir
á mótum sem þessu og gerðist
aldrei þegar keppnin var haldin
heima á dögunum. Þegar leikurinn
hófst skoruðu Pólverjar strax
firiggja stiga körfu og í fyrstu sókn
slands varð að stöðva leikinn
vegna þess að Birgir Mikaelsson
og einn Pólverjanna höfðu rekist á
hvorn annan. Það blæddi úr munni
Birgis og olnboga þess pólska.
Þegar Sigurjón Sigurðsson
læknir liðsins hafði gert að meiðsl-
um Birgis gat ieikurinn hafist að
nýju, eða það héldu menn. Dómar-
arnir flautuðu og fsland hóf leikinn
en þá uppgötvaðist það að þeir
pólsku voru aðeins fjórir á vellinum
því sá með blæðandi olnbogann
var enn að láta Ifta á sig.
Fyrstu stig íslands í leiknum
gerði Pálmar Sigurðsson á fjórðu
mínútu og þá höfðu Pólverjar gert
11 stig. Á þessu tímabili var vörnin
slök og hittnin enginn og eins og
strákarnir bæru óþarfa virðingu
fyrir mótherjanum.
Pólverjar eru með geysilega
sterkt lið og sá munur sem var í
lokin gefur rétta mynd af því hve
mikið betri þeir eru. Hinsvegar
fannst manni íslenska liðið ekki
leika eins vel og það á að geta.
Góðar sóknir komu öðru hvoru og
þá margar í röð en síðan ekki neitt
á milli. Pólverjar sigu hægt og bít-
andi framúr og juku stöðugt foryst-
una.
Guðni Guðnason var einna
bestur í íslenska liðinu að þessu
sinni en einnig átti Leifur Gústafs-
son góðan leik þegar hann kom
inná. Valur hitti lítið og þó svo
hann léki ágætlega í vörninni þá
léku Pólverjar á næstu hæð fyrir
ofan. Pálmar varð stigahæstur
leikmanna íslands en hann skaut
Morgunblaöið/Skúli Sveinsson
• Hér er íslenska landsliðið f körfuknattleik við brottförina frá Keflavfk á fimmtudagsmorgun. íslenska liðið mátti þola stórtap í fyrsta
leik sínum í b-keppninni f Belgfu f gærkvöldi.
einnig mjög mikið. Um þá sem hér
hafa verið nefndir og hina sem eru
ónefndir má segja að þeir hafi
veriö talsvert frá sínu besta og nú
er bara að vona að þeir geri brag-
arbót á í leiknum gegn Svíum á
morgun.
Pólverjar hitta svo til úr öllum
skotum og ef þeir hitta ekki taka
þeir frákastið og nýta sér þannig
sóknina til þess að fá stig. Þeir
eru allir mjög fljótir þrátt fyrir
stærðina og voru einfaldlega miklu
betri en við í þessum leik.
Stlg islandcPálmar Sigurðsson 15, Guöni
Guönason 12, Leifur Gústafsson 7, Sturla
örlygsson 6, Valur Ingimundarson 5, Birair
Mikaelsson 3, Ragnar Torfason 2, Simon Ol-
afsson 2.
Vantrúaðir
á eigin getu
Frá Skúla Sveinssyni, blaöamanni Morg-
unblaösina f Belgfu.
„VIÐ vissum fyrirfram að við
gætum ekki unnið þetta lið, en
við hefðum samt átt að geta
staðið betur í þeim. Þeir gengu
frá okkur strax f byrjun með lát-
um, og allan leikinn virtust fs-
lensku leikmennirnir hræddir og
vantrúaðir á eigin getu. Þvf fór
sem fór,“ sagði Einar Bollason,
þjálfari fslenska liðsins, eftir leik-
inn f gærkvöldi.
„Mig grunaði fyrir þetta mót að
Pólverjar ættu sterkasta liðið hér,
og nú, eftir að hafa séð nokkur
liðanna leika, þá er ég viss. En ég
er líka viss um að byrjunarhrollur-
inn er úr íslenska liðinu og að við
munum standa okkur betur í
næstu leikjum — þó svo þetta verði
alveg örugglega mjög erfitt mót
fyrirokkur,“ sagði Einar.
Létt hjá ísrael
Frá Skúla Svelnssyni, blaðamanni Morg-
unblaðsins f Belgfu:
ísraelsmenn áttu ekki f neinum
erfiðleikum með að vinna Svfa
þegar liðin mættust f öðrum leik
B-keppni Evrópukeppninnar f
körfuknattleik f Belgfu f gær.
Lokatölur urðu 86:70 fyrir ísraela
eftir að staðan f leikhléi hafði
verið 42:40.
ísraelsmenn voru fyrir þetta mót
taldir sigurstranglegastir allra hér
en eftir að hafa horft á öll liðin
leika virðast yfirburðir þeirra ekki
eins miklir og talið var. Þó svo
þeir hafi unnið Svía með 16 stiga
mun í gær voru þeir ekki það mikiö
betri. Það munaði mest um hve
hörmulega Svíar hittu í leiknum.
Bestur ísraelsmanna var svert-
ingi einn sem Bird Lavon heitir.
Stór og mikill leikmaður sem er
ótrúlega góður bæði í vörn og
sókn.
í fyrsta leik mótsins unnu Ung-
verjarTyrki naumlega með 73 stig-
um gegn 67. í hálfleik var staðan
38:37.
Hverjir vinna?
Frá Skúla Sveinssyni, blaðamanni Morg-
unblaðsins (Balgfu.
EFTIR að hafa horft á öll sex liðin
í fyrstu leikjum Evrópukeppninn-
ar f körfuknattleik hár f Liege í
Belgfu þá er freistandi að geta
Efnilegur hástökkvari:
Stökk tvo metra á
sínu fyrsta móti
FRAMFARIR hins átján ára há-
stökkvara úr ÍR, Jóhanns Óm-
arssonar, eru með óifkindum.
Hann hóf að æfa frjáisar íþróttir
í fyrrahaust, og strax á sfnu
fyrsta utanhússmóti, Vormóti ÍR
á fimmtudagskvöldið, stökk
hann tvo metra f hástökki.
Jóhann er 1,96 metrar á hæð
og hefur að sögn Ólafs Unn-
steinssonar, þjálfara hans, mjög
góða Ijkamsbyggingu fyrir há-
stökk. í vetur hefur Jóhann æft
mjög vel undir stjórn Ólafs, verið
á hoppæfingum þrisvar í viku,
hlaupæfingum þrisvar í viku og
kraftæfingum tvisvar í viku, og
árangurinn hefur ekki látið á sér
standa. í nóvember stökk hann
1,78 á innanhússmóti, í desem-
ber hafði hann bætt sig um 10
sentimetra, og um mánaðamótin
febrúar-mars stökk hann 1,90 í
fyrsta sinn. Um miðjan apríl
bætti hann sig svo skyndilega
um 6 sentimetra, var þá kominn
í 1,96. Á mótinu í fyrrakvöld,
hans fyrsta utanhússmóti, var
svo tveggja metra múrinn rofinn.
Að vonum segjast þeir bjartsýnir
á framtíðina og Ólafur fullyröir
að Jóhann sé eitt allra mesta
frjálsíþróttaefni sem hafi komið
fram hér á landi í langan tíma.
Mörg ágæt afrek voru unnin á
Vormótinu. Nánar verður sagt
frá því eftir helgina.
• Jóhann á æfingu á Laugardalsvellinum f gær. Morgunbiaöiö/Bjarni
sér til um hvaða lið komi til með
að standa uppi sem sigurvegari
þegar flautað verður til leiksloka
í sfðasta leiknum á þriðjudags-
kvöldið.
Líklegast finnst mér að Pólverjar
vinni þetta mót. Þeir eru glettilega
góðir og hafa auk þess mjög há-
vaxið lið. ísrael verður í öðru sæti,
ef þeir verða þá ekki í því fyrsta,
og þriðju í röðinni verða Tyrkir.
Svíar verða í fjórða sæti og þau lið
sem ekki komast áfram í keppninni
verða Ungverjar sem verða í
fimmta sæti og við íslendingar
sem sennilega höfnum í sjötta og
neðsta sætinu.
Danir unnu
Pólverja
DANIR unnu Pólverja í landsleik
í knattspyrnu f Kaupmannahöfn f
gærkvöldi með einu marki gegn
engu. Preben Elkjær gerði mark-
ið. Danir höfðu mikla yfirburði í
leiknum og þóttu leika vel. Eftir
leikinn sagði Sepp Piontek, þjálf-
ari þeirra, að gaman væri að vera
kominn á sigurbraut eftir tvo
tapleiki að undanförnu, en enn
þyrfti að laga nokkur atriði svo
liðið ætti möguleika f Mexfkó.