Morgunblaðið - 17.05.1986, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR17. MAl 1986
Hvaða
lið fær
markabikar
Morgunblaðsins?
MARKABIKAR Morgunblaðsins verður veittur því liði sem skorað
hefur flest mörk í fyrstudeildarkeppninni þegar upp verður staðið í
haust.
Eins og allir vita sem fylgjast
með knattspyrnu hafa knatt-
spyrnuyfirvöld víða um heim unnið
að því á síðustu árum að hvetja
til aukinnar sóknarknattspyrnu.
Þriggja stiga reglan svokallaða,
þ.e. að gefa sigurliði þrjú stig í
Hver skorar
fyrsta markið?
' MORGUNBLAÐIÐ hefur ákveðið að verðlauna þann leikmann fyrstu
deildar sem skorar fyrsta markið í leikjunum f sumar. Það er von
blaðsins að þessi verðlaunagripur verði öllum leikmönnum, varnar-
mönnum, miðvallarleikmönnum og sóknarmönnum, hvatning til að
leika skemmtilega sóknarknattspyrnu strax í upphafi mótsins. Morg-
unblaðið mun hafa tfmaverði á öllum leikjunum í dag, og sá leikmaður
sem fyrstur kemur knettinum innfyrir marklínu andstæðinganna vinn-
ur bikarinn til eignar.
stað tveggja, er meðal annars
hugsuð til þess að lið leiki aldrei
með það í huga að ná jafntefli. Þá
eru stundum gefin aukastig fyrir
að gera fleiri en þrjú mörk í leikjum.
Sú regla er notuð í Reykjvíkurmót-
inu í knattspyrnu og fleiri æfinga-
mótum hérlendis.
Með því að veita marksæknasta
liðinu á íslandsmótinu sérstaka
viðurkenningu vonar Morgunblað-
ið að enn aukin áhersla verði lögð
á skemmtilega sóknarknattspyrnu.
Ef svo ólíklega vildi til að tvö
eða fleiri lið skoruðu jafn mörk
mörk í deildinni í ár þá telst það
lið sigurvegari sem hefur þann
leikmann í sínum röðum sem skor-
að hefur flest mörk. Ef tveir leik-
menn hafa skorað jafn mörk mörk
fyrir sitt hvort liðið þá eru næst
markahæstu leikmenn liðanna
athugaðir og síðan koll af kolli þar
til annað liðið hefur vinninginn.
íslandsmótið í knatt-
spyrnu hefst í dag
ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu
hefst í dag með fimm leikjum f
fyrstu deild og þremur f annarri.
Fyrsta umferð 1. deildar hefst
kl. 14.30 og er einn leikur f
Garði, einn á Akureyri, einn á
Akranesi, einn f Reykjavfk og
einn í Kópavogi. Liðin sem leika
saman eru: Víðir—FH, Þór—
Valur, ÍA-Fram, KR-ÍBV, UBK-
—ÍBK.
Knattspyrnuáhugamenn vítt
og breitt um landið ættu því að
geta skroppiö á völlinn í dag og
virt fyrir sér íslenska knatt-
spyrnumenn í fyrstu alvöruleikj-
um sumarsins.
Að vanda hefst mótið af krafti
og strax á þriðjudaginn verða
leiknir aðrir fjórir leikir í fyrstu
deild. Þar sem Morgunblaðið
kemur ekki út fyrr en á miöviku-
dag eftir hvítasunnuhelgina, er
rétt að geta um þá sem leika
saman þá: FH-ÍBK, ÍBV-ÍA,
Valur—UBK, Víðir-KR.
Allir leikirnir hefjast kl. 20.00.
Fram og Þór leika svo síðasta
leik annarrar umferðar kl. 20.00
á miðvikudagskvöldið.
í annarri deild verður leikin ein
umferð um helgina. Á laugardag
kl. 14.00 leika eftirtalin lið sam-
an: KS—Völsungur, Selfoss—
Skallagrfmur, ÍBI—Njarðvfk.
Á morgun, sunnudag, verður
einn leikur: KA og Einherji mæt-
ast á Akureyri kl. 16.00. Síðasti
leikur umferðarinnar verður svo
v.#> v.#'
á Laugardalsvellinum á mánu-
dagin kl. 20.00. Þá leika Reykja-
víkurliðin Víkingur og Þróttur —
liðin sem léku í fyrstu deild í fyrra.
Þriðja deildin hefst hinsvegar
ekki fyrr en á fimmtudaginn með
leik Ármanns og Reynis frá Sand-
gerði.
Akranesvöllur kl. 14.30:
Akranes — Fram
SIGURÐUR Lárusson, fyrirliði Skagamanna (til vinstri), verður fjarri
góðu gamni í leiknum gegn Fram. Hann er f leikbanni. Guðmundur
Steinsson, fyrirliði Fram (til hægri), grætur það örugglega ekki,
því Sigurður er ekki uppáhaldsvarnarmaður fslenskra miðherja.
Lið Skagamanna er stórt spurningarmerki, þeir eru með nýjan
þjálfara og nokkra nýja, unga leikmenn innanum gömlu jaxlana.
Lið Fram er hinsvegar alveg örugglega með bestu liðum landsins
um þessar mundir. Leikurinn á Akranesi er ifklega einn af úrslita-
leikjum íslandsmótsins og getur farið á hvorn veginn sem er.
Þórsvöllur kl. 14.30:
KR-völlurkl. 14.30:
Þór — Valur
TVÖ þeirra liða sem flestir spá hvað mestri velgengni f sumar,
Þór og Valur, eigast við á malarvellinum á Akureyri. Útiiokað er
að segja hvort liðið só sigurstranglegra f leiknum. Valsmenn eru
núverandi íslandsmeistarar og hafa átt ágæta leiki f vor, en einnig
slaka. Þórsarar koma nú til leiks sem eitt þeirra liða sem eru taiin
eiga hvað mesta möguleika á íslandsmeistaratitlinum — f fyrsta
skipti f langan tfma sem um slfkt er að ræða fyrir Akureyrarlið. Á
myndinni eru fyrirliðar liðanna, Nói Björnsson, Þórsari til vinstri
og Þorgrfmur Þráinsson Valsmaður.
KR — IBV
LEIKIR KR-inga og Vestmanneyinga á undanförnum árum hafa
verið sveiflukenndir og liðin unnið á vfxl. Þeir Gunnar Gfslason,
til vinstri og Ómar Jóhannsson, fyrirliðar liðanna, gera sér grein
fyrir þessu og munu áreiðanlega hvetja menn sfna til mikilla átaka.
Vestmanneyingar eru með nýjan þjálfara og fjölda ungra leik-
manna, sem hafa litla reynslu af fyrstudeildarkeppni, en KR-ingar
hafa feiknarlegt mannaval um þessar mundir.