Morgunblaðið - 17.05.1986, Blaðsíða 20
BORG
★ GO-KART V . ^
★ KOLKRABBI Wfa&k
★ HRINGEKJA'^göf 'A
KLESSUBÍLAR Æ
n V KLESSUBÁTAR ,
}/m* SKILVINDA
tff* SKOTBAKKAR [§MgMm §
■Æ* tombólur 'w&immtn r
É O.FL. %BBaÉ|g^.f . A
FRÁBÆR FJÖLSKYLD
SKEMMTUN ggf /;|p
’>^v Opið virka daga 14.00-22.00 og um helgar IZPS^g^kJ
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR17. MAÍ1986
Ólafur Björnsson formaður stjórnar Samlags skreiðarframleiðenda:
Hagsmunum bezt borgið sjái
einn aðili um skreiðarsöluna
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá Ólafi
Björnssyni, formanni stjórnar
Samlags skreiðarframleiðenda:
í framhaldi af frétt í Morgunblaðinu
um að til umræðu sé að SÍF taki
að sér sölu á allri skreið hér tel ég
rétt að það komi fram, að stjóm
Skreiðarsamlagsins hefur fjallað
um það mál og þar voru allir á einu
máli um að hagsmunum framleið-
enda og þjóðarbúsins væri bezt
borgið, ef tækist að koma allri
skreiðarsölu á eina hendi. Nær allir
skreiðarframleiðendur eru í SÍF og
flestir ánægðir með það fyrirkomu-
lag. Þegar SÍF var stofnað stóð líkt
á í salfisksölu og skreiðarsölu nú.
Margir vom að selja og buðu hver
niður fyrir annan. Gjaldþrot blasti
við mörgum. Flest bendir til að þau
lögmál séu óbreytt. Kaupendum er
vel kunnugt um að skreið fæst
aðeins á íslandi og í Noregi. Okkur
ætti að nægja að slást við Norð-
menn um þá fáu kaupendur sem
bjóðast, þó ekki sé líka staðið í slag
hér heima.' Þetta held ég að sé
almennt álit þeirra, sem em í skreið-
arsamlaginu."
PAYIMES
KÚLNAHRÍD,.
ifii in/Ái n
BLOM
VIKUIMNAR
Umsjón:
Ágústa Björnsdóttir
Grasflöt í góðri ræktun
MOSI í GRASFLÖTUM
MOSII grasflötum er vandamál
sem garðeigendum gengur
seint og illa að leysa. Við sner-
um okkur til kunnáttumanns
sem lét í té eftirfarandi upplýs-
ingar:
„Mosi er hvimleið sníkjuplanta
í grasflötum sem fólk gjaman viil
útrýma þó oft vilji það ganga
erfiðlega. Mosinn heldur lengur í
sér raka en grasið, hann hefur
stöngul og blöð en rótina vantr.
Mosi vex mjög vel í íslensku loft-
slagi enda vaxa hér á landi flöl-
margar tegundir af honum og
nokkrar þeirra í grasflötum og
skrúðgörðum. Algengastur og ili-
vígastur er mosinn jafnan í skugg-
sælum görðum og rökum jarðvegi.
Áburðarskortur og vanhirða auka
mjög vöxt hans. Mosi fyrirfínnst
ekki í nýjum grasflötum sem sáð
hefur verið til, en hann lætur
ekki á sér standa séu þær ekki
nógu vel hirtar og áburðargjöf
rífleg. í aðkeyptum þökum er oft
mikill mosi enda að öllu jöfnu
skomar úr misjafnlega vel rækt-
uðum túnum. Skal fólki bent á
að gefa þessu gaum þegar þökur
era keyptar.
Ekki er auðvelt að losna við
mosa úr grasflötum en ráð nokkur
má hafa í huga: Grisja þarf ræki-
lega krónur gamalla tijáa og fjar-
lægja tré sem standa of þétt og
valda skugga. Sólin nær þá betur
að skína á grasflötina og dregur
úr vexti mosans.
Þá er reyndandi að rífa mosann
vandlega upp með garðhrífu,
dreifa síðan yfir flötina garðmold
blandaðri pússningarsandi og
áburði. Sá síðan grasfræi, raka
því vel saman við moldina og valta
eða klappa efsta lag moldarinnar
vel niður t.d. með steypuskóflu.
Ný kúamykja snemma vors dreg-
ur úr mosavexti. Jámsúlfat borið
á í maí/júní drepur mosa en hefur
ekki skaðleg áhrif á gras. Sama
er að segja um tröllamjöl. Þá er
það enn eitt ráð að slá grasflötina
reglulega og svo snöggt að slegið
sé ofan af mosanum og grómynd-
un þar með fyrirbyggð.
E.I.S.
Við höfum hlerað að jámsúlfat
muni verða fáanlegt í vor í 2 og
5 kg pakkningum, heppilegt til
að blanda saman við sand og
dreifa þannig, en að sjálfsögðu
þarf að fylgja þeim notkunarregl-
um sem seljandinn gefur.
Og fyrir alla muni gleymið ekki
grasflötinni þegar öðram gróðri
er gefinn áburður.
Ums.